Bændablaðið - 12.07.2012, Síða 8
Bændablaðið | Fimmtudagur 12. júlí 20128
Fréttir
Aðaldælingar slepptu fé sínu á fjall um mánaðamótin júní júlí. Bjarni Eyjólfsson, bóndi í Hvoli í Aðaldal, var einn
þeirra sem fór með fé sitt á Þeistareyki í björtu og fallegu veðri. Hann bauð formanni Framsýnar- stéttarfélags,
Aðalsteini Árna Baldurssyni, með í þá för en hann tók þessa mynd í ferðinni. Fé Aðaldælinga var frelsinu fegið,
þótti greinilega gott að losna úr heimahögum og í gróðurlendið á Þeistareykjum þar sem það unir væntanlega hag
sínum vel næstu vikurnar.
Mynd: Aðalsteinn Árni Baldursson
Aðaldælingar sleppa fé á fjall
Úrslit í A-flokki gæðinga:
1. Fróði frá Staðartungu – 8,94
Knapi: Sigurður Sigurðarson
2. Fláki frá Blesastöðum 1A – 8,88
Knapi: Þórður Þorgeirsson
3. Stakkur frá Halldórsstöðum – 8,86
Knapi: Sigurbjörn Bárðarson
Úrslit í B-flokki gæðinga:
1. Glóðafeykir frá Halakoti – 9,0
Knapi: Einar Öder Magnússon
2. Hrímnir frá Ósi – 8,97
Knapi: Guðmundur Björgvinsson
3. Loki frá Selfossi – 8,95
Knapi: Sigurður Sigurðarson
Úrslit í barnaflokki:
1. Glódís Rún Sigurðardóttir
Kamban frá Húsavík – 9,02
2. Aron Freyr Sigurðarson
Hlynur frá Haukatungu syðri – 8,72
3. Thelma Dögg Tómasdóttir
Taktur frá Torfunesi – 8,58
Úrslit í unglingaflokki:
1. Guðmunda Ellen Sigurðardóttir
Blæja frá Háholti – 8,83
2. Dagmar Öder Einarsdóttir
Glódís frá Halakoti – 8,73
3. Þórdís Inga Pálsdóttir
Kjarval frá Blönduósi – 8,54
Úrslit í ungmennaflokki:
1. Kári Steinsson
Tónn frá Melkoti – 8,78
2. Ásmundur Ernir Snorrason
Reyr frá Melabergi – 8,74
3. Teitur Árnason
Hróarskelda frá Hafsteinsstöðum – 8,70
Úrslit í tölti:
1. Sigursteinn Sumarliðason
Alfa frá Blesastöðum 1A ‒ 8,56
2. Hinrik Bragason
Smyrill frá Hrísum – 8,44
3. Jakob Svavar Sigurðsson
Árborg frá Miðey – 8,28
Úrslit í í 100 metra flugskeiði:
1. Davíð Jónsson
Irpa frá Borgarnesi – 7,57
2. Sigurbjörn Bárðarson
Andri frá Lynghaga – 7,57
3. Eyjólfur Þorsteinsson
Spyrna frá Vindási – 7,60
Úrslit í 150 metra skeiði:
1. Sigurbjörn Bárðarson
Óðinn frá Búðardal – 14,59
2. Sigurður Óli Kristinsson
Gletta frá Fákshólum – 14,86
3. Ævar Örn Guðjónsson
Blossi frá Skammbeinsstöðum 1 – 14,88
Úrslit í 250 metra skeiði:
1. Sigurbjörn Bárðarson
Flosi frá Keldudal – 22,58
2. Teitur Árnason
Korði frá Kanastöðum – 22,64
3. Daníel Ingi Smárason
Blængur frá Árbæjarhjáleigu 2 – 22,72
Kynbótadómar stóðhesta 7 vetra og eldri:
1. Konsert frá Korpu ‒ aðaleinkunn 8,58
Ræktandi: Ragnar Þór Hilmarsson
Eigendur: Hafliði Þ. Halldórsson og Steinþór
Gunnarsson
Sýnandi: John Kristinn Sigurjónsson
Kynbótadómar 6 vetra stóðhesta:
1. Hrannar frá Flugumýri 2 – aðaleinkunn 8,67
Ræktendur: Eyrún Anna Sigurðardóttir og Páll
Bjarki Pálsson
Eigendur: Eyrún Anna Sigurðardóttir, Júlía
Kristín Pálsdóttir og Þórdís Inga Pálsdóttir
Sýnandi: Þorvaldur Árni Þorvaldsson
Kynbótadómar 5 vetra stóðhesta:
1. Arion frá Eystra-Fróðholti – aðaleinkunn 8,67
Ræktandi: Ársæll Jónsson
Eigendur: Ársæll Jónsson og Ragnheiður
Hrund Ársælsdóttir
Sýnandi: Daníel Jónsson
Kynbótadómar 4 vetra stóðhesta:
1. Nói frá Stóra-Hofi – aðaleinkunn 8,51
Ræktandi: Bæring Sigurbjörnsson
Eigandi: Bæring Sigurbjörnsson
Sýnandi: Daníel Jónsson
Kynbótadómar hryssa 7 vetra og eldri:
1. Gletta frá Þjóðólfshaga 1 – aðaleinkunn 8,53
Ræktandi: Sigurður Sigurðarson
Eigandi: Sigurður Sigurðarson
Sýnandi: Sigurður Sigurðarson
Kynbótadómar 6 vetra hryssa:
1. Spá frá Eystra-Fróðholti – aðaleinkunn 8,63
Ræktandi: Ársæll Jónsson
Eigandi: Ragnheiður Hrund Ársælsdóttir
Sýnandi: Daníel Jónsson
Kynbótadómar 5 vetra hryssa:
1. Fura frá Hellu – aðaleinkunn 8,46
Ræktandi: Guðmundur Friðrik Björgvinsson
Eigandi: Marie Cecilie Clausen Kolnes
Sýnandi: Guðmundur Friðrik Björgvinsson
Kynbótadómar 4 vetra hryssa:
1. Pála frá Hlemmiskeiði 3 – aðaleinkunn 8,24
Ræktandi: Inga Birna Ingólfsdóttir
Eigandi: Inga Birna Ingólfsdóttir
Sýnandi: Þórður Þorgeirsson
Sleipnisbikarinn, heiðursverðlaun stóðhesta:
1. Álfur frá Selfossi
Ræktandi: Olil Amble
Eigandi: Christina Lund
Reiðmennskuverðlaun Félags tamningamanna:
Sigurbjörn Bárðarson
Gregesen-styttan, fyrir prúðmannlega reið-
mennsku, klæðaburð og hirðingu hests:
Guðmundur Björgvinsson
Helstu úrslit Landsmóts hestamanna 2012Tónleikamaraþon á
Borgarfirði eystri
– 18 tónleikar á sama stað á sama tíma í 3 vikur
Tónlistarmaðurinn Jónas
Sigurðsson hóf sólógjörning sinn
í Félagsheimilinu Fjarðarborg á
Borgarfirði eystri um síðustu helgi
við mikinn fögnuð viðstaddra.
Húsfyllir var í félagsheimilinu af
heimamönnum og aðkomufólki
sem komu til að hlýða á Jónas
fyrsta tónleikakvöldið af 18 sem
hann heldur, næstu kvöld og til
28. júlí næstkomandi.
Jónas treður upp sex sinnum í
viku í þrjár vikur en frítt er inn á alla
viðburðina fyrir utan síðasta kvöldið.
Nokkur kvöld fær hann til liðs við
sig valinkunna tónlistarmenn, eins
og Ómar Guðjónsson gítarleikara
og Magna Ásgeirsson söngvara, svo
tveir séu nefndir.
„Mig langaði mikið að prófa eitt-
hvað nýtt í sambandi við að spila á
tónleikum fyrir fólk. Ég hef mjög
oft spilað með bandi og þá getur
maður jafnvel lent í að endurtaka sig.
Hérna er ég að nota tölvu og fleiri
hljómbrigði en ég er vanur og það er
spennandi. Ég á mörg falleg lög sem
ég spila yfirleitt ekki á tónleikum
með bandinu mínu og því ákvað ég
að fara þessa leið,“ útskýrir Jónas.
Í haust kemur þriðja sólóplata
Jónasar út, Þar sem himinn ber við haf,
og eru tónleikarnir á Borgarfirði eystri
eins konar upphitunarspil fyrir nýju
plötuna sem hann vinnur að í samstarfi
við Lúðrasveit Þorlákshafnar og tón-
listarband eldri borgara í Þorlákshöfn,
Tóna og trix.
„Þetta hefur gengið dúndurvel og
hér var fullt hús á fyrstu tónleikunum,
fleiri í félagsheimilinu en íbúar staðarins
eru. Hugsunin hjá mér er að gera þetta
skemmtilegt, ekki endilega með fullri
mætingu. Fjölskyldan er með mér hérna
fyrir austan og ég er að hitta marga góða
vini svo það er óhætt að segja að ég slái
hér margar flugur í einu höggi.“
Hægt verður að fylgjast með gjörn-
ingnum á Fésbókarslóðinni:
facebook.com/
events/244184889032647/.
Einnig verður öllum tónleikunum
streymt beint á Netinu undir
slóðinni:
ustream.tv/channel/fjardarborg.
/ehg
Vegna útkomu þriðju sólóplötu tónlistarmannsins Jónasar Sigurðssonar
á haustmánuðum ákvað hann að efna til þriggja vikna tónleikamaraþons á
Borgarfirði eystri.
Íslandsmót í
hestaíþróttum
á Vindheimamelum
Íslandsmót fullorðinna í
hestaíþróttum fer fram á
Vindheimamelum í Skagafirði
dagana 18.‒22. júlí næstkomandi.
Frítt verður inn á mótið og ýmis-
legt við að vera. A-úrslit munu
fara fram á sunnudegi og verður
RÚV með beina sjónvarpsútsend-
ingu frá þeim.
Að sögn Eyþórs Einarssonar,
framkvæmdastjóra mótsins, er
undirbúningur í fullum gangi og
gengur vel. „Það var auðvitað haldið
landsmót á Vindheimamelunum í
fyrra og því er svæðið í góðu standi.
Sömuleiðis er búið að halda mót og
nota vellina í ár og þeir eru líka í
góðu ásigkomulagi. Við ætlum
að leggja áherslu á að hafa mótið
skemmtilegt en auk þéttrar dagskrár
á keppnisvellinum munum við setja
upp hoppukastala fyrir börnin og
verða með frekari afþreyingu.“
Eyþór hvetur Norðlendinga sem
og aðra að vera duglega að mæta enda
verði þarna samankomnir bestu hest-
ar landsins. Þá verði hestamannaball
í Miðgarði þar sem mótsgestir geti
komið saman og verið glaðir.
Alltaf gaman á Vindheimamelum
Sigurður Sigurðarson knapi er
ekki ókunnur Íslandsmótum en
hann er margfaldur Íslandsmeistari
í ýmsum greinum síðustu 15 ár.
Hann ætlar sér að mæta galvaskur
á Vindheimamelana. „Ég er svona
nokkurnveginn búinn að gera upp
við mig hvaða hross ég ætla að mæta
með, þó ekki alveg. Þetta verður
mjög mikil skemmtun, ég hef aldrei
farið á mót á Vindheimamelum án
þess að það sé gaman. Ég hvet alla
hestaáhugamenn til þess að fjöl-
menna á mótið og hafa gaman af.“
/fr
Mynd: Hafþór S. Helgason