Bændablaðið - 12.07.2012, Síða 5
Bændablaðið | Fimmtudagur 12. júlí 2012 5
grilljón
hugmyndir
á gottimatinn.is
Á uppskriftavef Gott í matinn er að finna
fjöldann allan af girnilegum grilluppskriftum
og aðrar sumarlegar uppskriftir sem kitla
bragðlaukana í sólinni.HVÍTA
H
Ú
SI
Ð
/
S
ÍA
Hágæða
útimálning
sérhönnuð
fyrir járn,
stein og tré
Komdu í Sérefni og fáðu ráðgjöf hjá
fagmönnum um val á réttu efnunum
Fræðsluferð æðarbænda til Noregs
- Norðmenn framarlega í markaðssetningu
Íslandsstofa, Bændasamtök Íslands
og Æðarræktarfélag Íslands
hafa tekið höndum saman um að
skipuleggja könnunarleiðangur
til Vega í Noregi 27. ágúst –
31. ágúst nk. Þetta er einstakt
tækifæri fyrir fyrirtæki og
einstaklinga í æðarrækt og tengdri
atvinnustarfsemi til að kynnast
því hvernig staðið hefur verið að
endurreisn og markaðsvæðingu á
Vega með æðarfuglinn í öndvegi.
Guðbjörg Helga Jóhannesdóttir,
nýsköpunar- og hlunnindaráðgjafi
hjá Bændasamtökunum, segir
Norðmenn stolta af sinni arfleifð
en þeir fengu hluta Vega-eyjaklasans
skráðan á náttúru- og minjaskrá
UNESCO árið 2004. „Þeir hafa unnið
af miklum krafti við uppbyggingu
svæðisins með ferðaþjónustu og
staðbundna framleiðslu í huga.
Útgangspunkturinn er náttúruleg
arfleifð svæðisins og verndun
forns handbragðs. Norðmenn hafa
byggt upp þverfaglegt starf ólíkra
atvinnugreina með góðum árangri
og staðið vel að markaðssetningu.
Það er því mikill innblástur að
heimsækja norska æðarbændur heim,
kynnast starfseminni og leita í brunn
þeirra til að fá nýjar hugmyndir
að afþreyingarmöguleikum og
atvinnuuppbyggingu hér á Íslandi.
Einn dagur verður tekinn undir
fræðsluerindi og hópvinnu,“ segir
Guðbjörg.
Áhugasamir eru beðnir um að hafa
samband fyrir 27. júlí nk. Takmarkaður
fjöldi þátttakenda kemst með í ferðina
og gildir reglan „fyrstir koma, fyrstir
fá“. Nánari upplýsingar veita Guðbjörg
H. Jóhannesdóttir, nýsköpunar- og
hlunnindaráðgjafi, ghj@bondi.is
eða í síma 563-0367 og Hermann
Ottósson hjá Íslandsstofu hermann@
islandsstofa.is eða í síma 511-4000.
Verslunin Lånan á Vega þar sem vörur tengdar æðarfuglinum og æðardúni
eru seldar. Mynd: Guðbjörg Helga Jóhannesdóttir
Óska eftir að kaupa
allar tegundir dráttarvéla
og dísel-lyftara.
Uppl. í síma 866-0471
traktor408@gmail.com