Bændablaðið - 12.07.2012, Síða 23
23Bændablaðið | Fimmtudagur 12. júlí 2012
Fjaðurmagnaður Pajero nýtur
sín við fjölbreyttar aðstæður
Fyrir nokkru hitti ég sölumenn frá
Heklu sem voru í söluferð hringinn
í kringum landið eftir nokkurt hlé
vegna áfalla í efnahagslífinu. Í spjalli
við Guðna Eðvaldsson sölumann
sannfærðist ég um að kreppan væri
búin og að ég skyldi prófa alvöru
jeppa. Hann bauð mér að líta við
hjá Heklu og reynsluaka nýjasta
Mitsubishi Pajero jeppanum og ég
tók hann á orðinu.
Vinsæll til marga ára
Pajero er Íslendingum vel kunnur
enda hefur hann verið meðal sölu-
hæstu jeppabifreiða á Íslandi um
árabil. Þó ekki hafi margir nýlegir
farið á götuna síðustu misseri á hann
þó sína tryggu aðdáendur. Bíllinn
sem ég prófaði var dýrari týpan, með
leðursætum, bakkmyndavél og vind-
skeið. Jeppinn er 7 manna, 5 dyra
og á að skila 200 hestöflum. Strax
og ég settist inn í bílinn tók ég sér-
staklega eftir hversu gott útsýni var
úr bílnum fram á veginn og til hliðar,
en einhverra hluta vegna fannst mér
ekkert sérstaklega gott að horfa á
mælaborðið (hraðamæli og snún-
ingsmæli). Í fyrstu fannst mér bíll-
inn vera óþægilega þungur af stað,
en með ákveðinni þyngingu hægri
fótar þrýstist maður aftur í sætinu
og auðfundið var að þarna var meira
en nægur kraftur og hestöflin mörg.
Öruggur á vegi
Að venju reyni ég að keyra þá bíla
sem ég prófa við sem fjölbreytt-
astar aðstæður og ók ég jeppanum
að Djúpavatni á Reykjanesi og til
baka. Í holóttum og grófum malar-
veginum á Djúpavatnsleiðinni naut
fjöðrunin sín vel og nánast ekkert
malarvegahljóð var upp undir bílinn
(greinilegt að yfir 25 ára Dakar-
keppnisreynsla Mitsubishi Pajero
er að skila sér til viðskiptavina).
Þrátt fyrir polla og drullu skvettist
lítið upp á hliðarnar á jeppanum en á
gangbrettin á hliðum bílsins safnaðist
töluverð drulla. Á sleipum malar-
veginum var gott að sjá hversu fljótt
spólvörnin kom inn, en ef gefið var í
á sleipum moldarköflum náðu aftur-
dekkin ekki að spóla nema hluta úr
hring áður en spólvörnin tók völdin.
Xenon-framljós bílsins eru nokkuð
sem heillar mig sem hinn fullkomni
ljósabúnaður. Hliðarspeglarnir eru
stórir og góðir, en baksýnisspegill-
inn inni í bílnum mætti vera stærri.
Höfuðpúðarnir í aftursætinu skyggja
töluvert á fullkomið útsýni í inni-
speglinum en hliðarspeglarnir eru
það góðir að þeir gera hann næstum
óþarfan.
Gott pláss
Sé bíllinn bara með fimm sæti upp-
sett og sætin fyrir öftustu tvo niðri,
er mjög mikið pláss fyrir farangur.
Það er mjög fljótlegt að leggja niður
sætin í miðjum bílnum og eykur það
enn rými fyrir farangur (svo mikið
verður rýmið að jafnast á við lítinn
sendibíl). Að loknum akstrinum
var ég mjög sáttur (sérstaklega við
fjöðrunina á malarveginum), en
hægt er að panta prufuakstur hjá
Heklu í gegnum vefslóðina www.
hekla.is.
Næsta Bændablað
kemur út 26. júlí
Verð: frá 9.865.000 til 10.650.000
Vél: 3,2 l dísel 200 hestöfl
Lengd: 4900 mm
Breidd: 1875 mm
Hæð: 1870 mm
Hæð undir lægsta punkt: 235 mm
Vélaprófanir
hlj@bondi.is
Hjörtur L. Jónsson
Það er hægt að koma töluverðum farangri þarna inn.
Nýi Pajero-jeppinn er 7 manna og skilar um 200 hestöflum.
th
or
ri@
12
og
3.
is
/
3
1.
31
3
...sem þola álagið!
TRAUSTAR VÖRUR...
VIFTUR
Í MIKLU ÚRVALI
Það borgar sig að nota það besta!
www.falkinn.is
• Bor›viftur
• Gluggaviftur
• I›na›arviftur
• Loftviftur
• Rörablásarar
• Ba›viftur
• Veggviftur
Gylfaflöt 16-18 - 112 Reykjavík - S:5535200
solo@solo.is - www.solo.is
Islensk framleiðsla
og hönnun
Afsláttur fyrir
lesendur
Bændablaðsins
fyrir heimili,
fundarherbergi,
mötuneyti,
kaffihús,
skóla
JÖRÐIN
EFRI-ÚLFSSTAÐIR
Í LANDEYJUM
Til sölu er jörðin Efri-
Úlfsstaðir í Rangárþingi
eystra. Landstærð er um
206 ha, þar af er ræktað
land 55 ha. Laxveiðiáin
Affall rennur um land
jarðarinnar og á aurum
hennar er malarnám.
Á jörðinni er 149 fm
íbúðarhús með sambyggðum bílskúr byggt árið 1989. Útihús eru
samtals 719 fm. Á jörðinni er stunduð nautgriparækt. Bústofn og
vélar geta fylgt með við sölu. Nánari upplýsingar og myndir á www.
fannberg.is og á skrifstofu.
FANNBERG FASTEIGNASALA EHF. sími: 487-5028
Guðmundur Einarsson lögg. fasteignasali
Jón Bergþór Hrafnsson viðskiptafræðingur
Auglýsinga- og
áskriftarsími
Bændablaðsins
er 563-0303
Netfang:
bbl@bondi.is