Bændablaðið - 02.02.2012, Qupperneq 2

Bændablaðið - 02.02.2012, Qupperneq 2
Bændablaðið | fimmtudagur 2. febrúar 20122 Fréttir Sextán áburðartegundir sem fluttar voru til landsins í fyrra reyndust ekki uppfylla reglur um efnasamsetningu samkvæmt niðurstöðum áburðareftirlits Matvælastofnunar (MAST). Þar af uppfylltu þrjár tegundir sem Búvís flutti inn ekki reglurnar, ellefu tegundir sem Skeljungur flutti inn og tvær tegundir sem Sláturfélag Suðurlands (SS) flutti inn. Um þetta hefur ítrekað verið fjallað í fjölmiðlum síðustu vikur, m.a. í síðasta Bændablaði. Mest hefur verið rætt um of hátt kadmíuminnihald áburðar sem Skeljungur flutti inn en tvær tegundir áburðar sem SS flutti inn reyndust einnig með of háu kadmíuminni- haldi. Í þeim þremur tegundum sem Búvís flutti inn og ekki upp- fylltu reglurnar, reyndust skráð gildi næringarefna ekki rétt. Allar þessar áburðartegundir hafa verið teknar af skrá MAST, að sögn Valgeirs Bjarnasonar, sérfræðings áburðar- og fóðureftirlits hjá MAST. „Við leyfum ekki dreifingu á þessum áburðartegundum núna í vor fyrr en að fyrir liggja niður- stöður úr efnagreiningum sem sýna að áburðurinn standist kröfur. Þetta er ekki nýtt, þetta hefur alltaf verið gert með þessum hætti. Það má ekki auglýsa þessar tegundir til sölu fyrr en búið er að skrá þær hjá Mast. Í því förum við eftir vottunum frá fram- leiðanda. Hins vegar verður dreifing á áburðinum ekki heimil til notenda fyrr en að lokinni sýnatöku og efna- greiningu sem sýnir að áburðurinn standist kröfur.“ Myndi brjóta gegn EES- samningnum - Stendur til, í ljósi þess hvernig málum var háttað á síðasta ári, að breyta vinnubrögðum við áburðar- sýnatöku almennt? „Það verður að hafa í huga að áburður sem fluttur er hingað til lands er EB-vottaður. Samkvæmt EES-samningnum höfum við undir- gengist reglur um frjálst flæði vöru og þar með telst áburður. Við megum því ekki stöðva innflutning, sölu og dreifingu áburðar nema við höfum rökstuddan grun um að eitthvað sé í ólagi. Við munum hins vegar fara yfir okkar verklag og funda með áburðar- fyrirtækjum um leiðir til að tryggja öryggi áburðar.“ - Það gilda samt sem áður ekki sömu reglur um kadmíuminnihald hér á landi og í Evrópusambandinu, ekki satt?Var farið með rangt mál í þeim vottorðum sem fylgdu áburð- inum? „Nei, áburðinum þarf að fylgja við skráningu um að hann standist íslenskar kröfur um kadmíum. Það höfum við alltaf fengið, en það sem brást síðasta vor var að hráefnum var breytt án vitundar aðila. Þessi áburð- ur er búinn að vera á skrá undanfarin ár og við höfum alltaf tekið sýni úr honum, sem hann hefur ávallt staðist með tilliti til kadmíums. Því tökum við gild vottorð með honum. Þetta mál, hvað varðar Skeljungs áburðinn, liggur hjá fosfórbirgi áburðarverk- smiðjunnar úti, Carrs. Carrs sendi þennan áburð í góðri trú.“ Þarf heimildir æðra stjórnvalds - Má MAST sem sagt ekki takmarka sölu og dreifingu á áburði með þeim rökum að stofnunin vilji bíða eftir niðurstöðum áburðareftirlits? Má það eingöngu ef rökstuddur grunur leikur á um að efnainnihald áburðar- ins sé ekki í lagi? „Ég tel að við yrðum að sækja þær heimildir til æðra stjórnvalds en þessarar stofnunar. MAST hefur ekki neina heimild til að gera slíkt ef ekkert bendir til annars en að vara sé í lagi.“ - Hefur verið rætt innan MAST að sækja um slíkar heimildir? Hefur það verið rætt við stjórnvöld? „MAST hefur lagt fram ýmsar til- lögur um lagabreytingar til að auka ábyrgð fyrirtækja á áburði sem þau markaðssetja. Ráðuneytið er nú að vinna úr þeim tillögum.“ Virða þarf andmælarétt - Í umræðunni um að kadmíumstyrk- ur í áburði hefði verið yfir mörkum í fyrra var nefnt að bráðbirgðaniður- stöður hefðu legið fyrir í kringum 20. maí síðstliðinn. Hvað þýðir það þegar talað er um bráðbirgðaniður- stöður? Af hverju þótti þetta ekki ljóst strax þá? „Um var að ræða niðurstöður af fáum sýnum, þannig að óskað var eftir að kadmíum yrði greint í öllum sýnum sem innihéldu fosfór. Þá var einnig beðið eftir niðurstöðum grein- inga sýna úr fleiri förmum, m.a. til að kanna hvort þessi galli væri aðeins í fyrstu sendingu. Gefi niðurstöðurnar til kynna að áburður sé ekki í lagi, t.a.m. að kadmíuminnihald sé ofan við leyfileg mörk, þá hefur fyrir- tækið sem flytur inn áburðinn rétt til að andmæla þeim niðurstöðum. Fyrirtækið hefur ekki heimild til að setja áburðinn í dreifingu á meðan. Það getur svo samþykkt niðurstöðu okkar og endursent áburðinn eða látið efnagreina systursýni hjá ann- arri rannsóknarstofu. Ef sú greining er í lagi verða næstu skref skoðuð. Hins vegar þarf auðvitað að virða þennan rétt fyrirtækjanna til að láta fara fram efnagreiningu á systursýni til að staðfesta fyrri greiningar og því er talað um bráðabirgðaniðurstöður.“ Engin tímamörk á skráningu áburðar - Fyrirtækin þurfa að hafa leyfi til að flytja inn, selja og dreifa áburði. Hvað gildir sú skráning lengi? „Sá áburður sem var í lagi og var á skrá í fyrra er áfram á skrá. Það þarf ekki að sækja um nýskráningu á honum aftur. Það er engin ástæða til takmarkana, hafi ekkert komið fram sem gefur tilefni til að ætla að áburðurinn sé ekki í lagi. Hins vegar þarf að sækja um skráningu á þeim áburðartegundum sem ekki voru í lagi í fyrra. Innihaldslýsingin sem hann var skráður eftir var röng og þar með fellur skráningin úr gildi.“ - Nú gaf ráðherra út reglugerð um birtingu á niðurstöðum áburðar- eftirlits á dögunum. Breytir hún einhverju varðandi það vinnulag sem viðhaft hefur verið hjá MAST í þessum efnum, t.a.m. að það mætti birta bráðabirgðaniðurstöður efna- greininga strax? „Þessi nýja reglugerð styrkir heimildir Matvælastofnunar varð- andi birtingar á niðurstöðum úr eftir- liti með áburði sem er á markaði. Samkvæmt henni verður stofnuninni skylt að birta niðurstöður úr eftir- liti með áburði þegar niðurstöður úr greiningum leiða í ljós að áburður er ekki í samræmi við vörulýsingar eða ákvæði laga og reglna um áburð. Jafnframt ber stofnuninni að upplýsa strax ef gefin eru fyrirmæli til áburð- arfyrirtækja um afmengun áburðar eða þegar stofnunin takmarkar fram- leiðslu eða markaðssetningu, leggur hald á áburð eða fer fram á förgun. Í reglugerðinni er talað um að birting skuli verða eins fljótt og unnt er, en stofnunin þarf eftir sem áður að tryggja að niðurstöður séu réttar og að fyrirtækin hafi haft tækifæri til að láta efnagreina systursýni áður en niðurstöður úr efnagreiningum eru birtar. Upplýsingar um fyrirmæli sem Matvælastofnun gefur áburðar- fyrirtækjum verða hinsvegar birtar þegar ákvörðunin liggur fyrir, en áður en að því kemur fá fyrirtækin andmælarétt.“ /fr MAST telur sig ekki hafa heimild til að stöðva dreifingu á vottuðum áburði: Áburðareftirliti ekki breytt - Rökstuddur grunur þarf að vera um að efnainnihald sé ekki í lagi Höfuðstöðvar Mast á Selfossi. Mynd / HKr. Eins og kemur fram í viðtali við Valgeir Bjarnason sér- fræðing í fóðureftirliti hjá Matvælastofnun (MAST) hér á síðunni, er óumdeilt að þrettán áburðartegundir sem fluttar voru til landsins síðasta vor uppfylltu ekki þær kröfur sem gerðar eru hér á landi varð- andi magn kadmíums í áburði. MAST taldi sig með vísan til þessa hafa heimildir til þess að afskrá áburðinn og banna frekari sölu á honum. Í 1. mgr. 6. gr. a. laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, segir að leiki rökstuddur grunur á að tiltekið fóður, áburður eða sáðvara hafi í för með sér áhættu fyrir heil- brigði manna eða dýra skuli Matvælastofnun upplýsa almenn- ing um eðli áhættunnar fyrir heilsu dýra eða manna. MAST taldi með hliðsjón af magni kadmíums í þessum tilteknu áburðartegundum að ekki stafaði hætta af honum og að þar af leiðandi væri stofnuninni ekki skylt að upplýsa almenning um niðurstöðurnar þegar þær lágu fyrir. Í tilkynningu frá MAST í lok síðasta árs kom fram að þar sem áburðurinn hafi verið kominn í dreifingu og notkun hans hafi ekki verið talin hættuleg hafi ekki verið tilefni til þess að innkalla hann frá kaupendum. Elías Blöndal Guðjónsson, lögfræðingur Bændasamtakanna, telur röksemdir MAST í þessu máli á gráu svæði. „Það ætti auðvitað ekki að hafa áhrif á ákvörðun um hvort innkalla eigi áburð að hann sé þegar kominn í dreifingu. Þetta er allt saman mjög mótsagnakennt og maður hlýtur að spyrja sig hvernig það fer saman annars vegar að áburðurinn upp- fylli ekki innlendar kröfur um magn kadmíums og hins vegar að ekki felist áhætta í því. Hér á landi hefur verið ákveðið að gilda skuli strangar kröfur um magn kadmíums í áburði og það eitt að kadmíuminnihald sé yfir við- miðunarmörkum ætti að fela í sér að skilyrði 1aga númer 22/1994 um áhættu sé fullnægt. Það er í það minnsta afar óheppilegt ef Matvælastofnun er í sjálfsvald sett hverju sinni að meta hversu mikið má fara fram úr tilteknum viðmiðunarmörkum án þess að það feli í sér áhættu fyrir heil- brigði manna og dýra.“ Elías segir fjölmörgum spurn- ingum enn ósvarað varðandi málið. „Ég held að það sé óhjá- kvæmilegt að aðdragandi þess verði rannsakaður til þess að kom- ast að raun um hvað fór úrskeiðis, svo koma megi í veg fyrir að slíkt sem þetta gerist aftur.“ /fr Röksemdir MAST mótsagnakenndar - segir lögfræðingur Bændasamtakanna Danskir svínabændur rækta árlega um 2,5 milljónir sláturgrísa utan Danmerkur. Það samsvarar tíu prósentum af allri framleiðslu svínakjöts í Danmörku. Danskir bændur og fjárfestar hafa byggt upp stórar framleiðslueiningar erlendis sem telja um 100.000 gyllt- ur sem standa undir framleiðslunni. Magnið er svo mikið að það er meira en næststærsta sláturhús Danmerkur, Tican, slátrar ár hvert. Umræddar tölur eru byggðar á mati félagsskapar sem heitir Danish Farmers Abroad. Tölurnar eru ein- göngu unnar eftir upplýsingum frá félagsmönnum svo ekki er útilokað að um enn meiri danska uppbyggingu sé að ræða á erlendri grundu. Í tölum Danish Farmers Abroad kemur jafnframt fram að danskir bændur eigi 350.000 hektara lands í ræktun erlendis en það samsvara 14% af öllu ræktarlandi í Danmörku. Langstærstur hluti þessara fjárfest- inga í landbúnaði eru í Austur Evrópu en danskir bændur hafa einnig reist svínabú í Norður Ameríku og nú síðast í Kína. /fr Danskir svínabændur færa út kvíarnar Fyrra ár var ekki riðulaust eins og talið var. Staðfest hefur verið að smitefni riðu hafi fundist í heilasýni úr einni kind frá bænum Merki á Jökuldal. Kindinni var slátrað á sláturhúsi í haust og því var síðasta ár ekki án riðu- tilfella eins og talið var. Riðan er af afbrigðinu NOR 98 og er þetta fjórði bærinn á Íslandi þar sem þetta afbrigði finnst. Bærinn Merki er í Héraðshólfi en þar greindist síðast riða árið 1997. Um 530 kindur eru á bænum og mun þeim öllum verða lógað og gripið til þeirra venjubundnu aðgerða sem gripið er til þegar riða kemur upp. Þorsteinn Ólafsson dýra- læknir sauðfjársjúkdóma hjá Matvælastofnun (MAST) segir þetta dapurleg tíðindi. „Það átti eftir að greina nokkur sýni og því miður kom þetta upp í einu af síðustu sýnunum.“ Í síðasta Bændablaði var frétt um að ekkert riðutilfelli hefði komið upp á síðasta ári, byggt á fréttatilkynn- ingu frá MAST. Því miður er svo ekki raunin eins og nú er komið í ljós. Í fréttinni var rætt við Sigurð Sigurðarson dýralækni sem sagði að niðurstaðan væri gleðiefni en of snemmt væri að hrósa happi. Varaði hann sterklega við að dregið yrði úr baráttunni gegn riðunni og þessi tíðindi gefa tilefni til að veita þeim orðum hans góðan gaum. /fr Riðusmit staðfest í einni kind á Jökuldal

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.