Bændablaðið - 02.02.2012, Page 4

Bændablaðið - 02.02.2012, Page 4
Bændablaðið | fimmtudagur 2. febrúar 20124 Fréttir Fyrirtækið Kanína ehf. er ungt sprotafyrirtæki á sviði mat- vælaframleiðslu, sem var stofnað haustið 2011 og leitar nú að nýjum hluthöfum til að styrkja rekstur- inn. Að fyrirtækinu stendur Birgit Kositzke, búsett á Hvammstanga í Húnaþingi vestra. Markmið fyrirtækisins er ræktun kanína til manneldis. Í dag er rækt- unarstofninn um 20 kanínur, en markmið er að byggja upp 250 gripa ræktunarhóp sem muni gefa af sér u.þ.b. 6.000 sláturgripi á hverju ári. Í tilkynningu frá félaginu segir m.a. að Kanína ehf. sé að leita eftir framsæknu fólki sem vilji taka þátt í þessu frumkvöðlastarfi og sé tilbúið til að leggja inn hlutafé. Hver hlutur er 10.000 ISK. Hægt er að skrá sig í gegnum heimasíðuna www.kanina. is. Fundur á næsta miðvikudag Áhugasamir geta óskað eftir að fá viðskiptaáætlun fyrirtækisins í gegnum netfangið info@kanina. is. Þá verður haldinn kynningar- fundur á Selfossi miðvikudaginn 8. febrúar nk. kl. 15:30, í húsnæði Búnaðarsambands Suðurlands Austurvegi 1. Búið er að gera samning um leigu á fjárhúsum í Tjarnarkoti í Húnaþingi vestra, undir ræktunina. Vörumerki er tilbúið, heimasíðan www.kanina. is er á frumstígi og farin í loftið, og fyrstu kanínurnar eru mjög duglegar að fjölga sér. Þá eru fyrstu skinnin þegar farin til sútara. Í tilkynningu frá félaginu segir jafnframt að í núverandi stöðu sé afar brýnt að byggja upp ræktunarhóp á árum 2012 og 2013. Þrátt fyrir ágæta frjósemi taki fjölgun kanína tíma, þar sem hlutfall kven- og karl- dýra er nokkuð jafnt í hverju goti. Læður geta byrjað að fjölga sér 8 mánaða gamlar. Því fer langur tími í eldi ræktunarhóps en á meðan skilar ræktunin litlum sem engum tekjum. Á fullt skrið fyrir árslok 2013 Sótt hefur verið um leyfi til MAST vegna fyrirhugaðs innflutnings á sérstakri holdakanínutegund. Einnig hefur verið sótt um leyfi fyrir lítilli sláturlínu. Stefnt er að samvinnu við sláturhús á Íslandi þegar kemur að því að slátrun hefjist fyrir alvöru en gert er ráð fyrir að það verði fyrir jólin 2013. Hafinn er undirbúningur að útgáfu uppskriftakvers um eldun kanínukjöts og munu uppskriftir einnig birtast á heimasíðu. Samhliða þessu verður unnið að leyfis- og fjár- öflunarmál af fullum þunga. Kanína ehf. leitar eftir auknu hlutafé: Ráðgert að framleiðsla á kanínukjöti verði komin á fullt skrið í lok næsta árs Sala á dráttarvélum jókst á síðasta ári – Mikil batamerki, segja vélasalar og búast við aukningu á þessu ári Samkvæmt gögnum Umferðarstofu voru 50 dráttarvélar nýskráðar á síðasta ári. Er um nokkra aukn- ingu að ræða í samanburði við árið 2010 en þá voru nýskráðar dráttarvélar 32 samkvæmt sömu gögnum. Þrátt fyrir aukningu milli ára er enn langt í land með að metárinu 2007 verði náð en það ár voru nýskráðar vélar 382 talsins. Sala dráttarvéla hrundi með efna- hagshruninu í byrjun október 2008 en fram til októbermánaðar það ár voru 123 vélar nýskráðar. Ellefu vélar voru nýskráðar í október, nóvember og desember 2008 og má gera ráð fyrir að flestar þeirra hafi þegar verið pantaðar. Allt árið 2009 voru hins vegar einungis 29 vélar skráðar. Fram kemur í gögnum Umferðar- stofu að það voru Kubota vélar sem höfðu vinninginn í sölu síðasta ár en skráðar voru 14 nýjar slíkar vélar. Þar með er hins vegar ekki öll sagan sögð því ekki eru bara hefðbundnar dráttarvélar skráðar í þeim gögnum. Undir tollflokk dráttarvéla falla meðal annars smærri vélar sem ekki eru í eðli sínu dráttarvélar, þó víða séu þær notaðar við landbúnaðar- störf. Ein Kubotavélin fellur ein- mitt í þennan flokk, að sögn Odds Einarssonar framkvæmdastjóra Þórs, en þar er um að ræða fjölnotahjól með palli. Jötun Vélar seldu á síðasta ári 13 Valtra dráttarvélar og voru því jafn margar Kubota og Valtra vélar seldar. Þriðju í röðinni á síðasta ári voru síðan Massey Ferguson vélar en sam- kvæmt tölum Umferðarstofu voru níu slíkar vélar nýskráðar. Samkvæmt upplýsingum frá Finnboga Magnússyni, framkvæmdastjóra Jötuns, seldi fyrirtækið hins vegar bara átta vélar síðasta ár. Ekki er ljóst hvaðan níunda vélin er til komin en mögulega hefur hún verið flutt inn notuð. Þeir vélasölumenn sem Bændablaðið ræddi við voru á þeirri skoðun að líkur væru til að aukning yrði á sölu í ár. Uppsöfnuð þörf væri fyrir endurnýjun og eftir því sem rykið settist meira eftir efna- hagshrunið ykist salan. Hjá Jötni hafa menn fengið töluverðar fyrir- spurnir og nú þegar hafa verið lagðar inn pantanir fyrir nokkrum fjölda. „Ég hef tilfinningu fyrir því að veru- leg aukning verði á markaðnum í ár. Það eru klár batamerki í þessu,“ segir Finnbogi í Jötni og bætir því við að einnig séu vísbendingar um aukningu í sölu á öðrum tækjum, svo sem rúllusamstæðum. /fr Kubota er samkvæmt tölum Umferðarstofu söluhæs- tadráttarvélin 2011. Kubota M-9540 dráttar- vélin sem hér sést er með 95 hestafala mótor en minnsta vélin úr M-40 línunni frá Kubota er með 63 mótor. Jötunn Vélar seldu 13 Valtra vélar á síðasta ári eða jafn margar og Þór af Kubota. Valtra framleiðir dráttarvélar í og með mótorum allt frá Frestur sem eigendum katta á Akureyri var gefinn til að skrá þá, rann út um áramót, en þó nokkuð var um að kattaeigendur létu skrá ketti sína hjá bæjar- yfirvöldum fyrir áramót. Þeir sem ekki gerðu það þurfa að greiða sér- stakt skráningargjald sem ekki var innheimt fyrr en nú eftir 1. janúar 2012. Alls er búið að skrá um 230 ketti um þessar mundir, en nokkrar umsóknir um leyfi til að halda kött eða ketti voru ófullkomnar, sam- kvæmt upplýsingum frá bænum. Talið er að um 1000 kettir séu á Akureyri en sú tala er byggð á upp- lýsingum frá dýralæknum. Tveir kattaeigendur á Akureyri hafa kært bæði skráningar- og eftirlitsgjald Úrskurðarnefndar um hollustuhætti og mengunarvarnir. Bæjarbúar hafa misjafnar skoð- anir á málinu, en gjaldið hefur verið ákveðið og því verður ekki breytt nema með formlegri ákvörðun framkvæmdaráðs sem bæjarstjórn staðfestir. Lítið hefur verið um nýskráningar hunda upp á síðkastið eftir mikla fjölgun á liðnum misserum og eru nú skráðir alls 578 hundar á Akureyri. Búið að skrá um 230 ketti á Akureyri Ný reglugerð um kattahald hefur tekið gildi á Akureyri og er eigendum þeirra nú gert að skrá þá og greiða skráningar- og eftirlitsgjöld. Tveir kattaeigendur hafa kært málið sem bíður afgreiðslu Úrskurðarnefndar um hollustuhætti sér á ís! Mynd / MÞÞ Matís og Landbúnaðarháskóli Íslands unnu að verkefni á árunum 2009-2011 sem átti að stuðla að auk- inni neyslu á innlendu matkorni. Skýrsla um verkefnið var nýverið gefin út og má nálgast hana rafrænt á vef LbhÍ. Jafnframt þeirri vinnu var unnið að því að skilgreina gæða- kröfur fyrir bygg til manneldis. Þeim er ætlað að vera viðmið í við- skiptum með bygg til matvælafram- leiðslu, en mismunandi kröfur eru settar fram um matbygg og bygg til ölgerðar. Þá eru einnig skilgreindar sérstakar gæðakröfur fyrir þurrkað fóðurbygg. Verklagsreglur fyrir innra eftirlit voru einnig teknar saman fyrir vinnslu byggs á býlinu Þorvaldseyri undir Eyjafjöllum og er reiknað með að þær verði hægt að yfirfæra á önnur býli. Undanfari verkefnisins var annað verkefni sem Matís og LbhÍ unnu saman að á árunum 2006-2008, en það fólst í könnun á efnainnihaldi í íslensku byggi og möguleikum á hag- nýtingu þess til matvælaframleiðslu. Er skemmst frá því að segja að þar kom í ljós að íslenska byggið var talið öruggt m.t.t. örvera og aðskotaefna, auk þess sem gæði afurða úr bakstri og bjórgerð úr því voru talin full- nægjandi. Í skýrslunni kemur fram að nýting á íslensku byggi í bökunariðnaði hafi leitt til nýsköpunar, sparað gjaldeyri og skapað atvinnu. Könnun á framboði á matvöru úr innlendu korni leiddi í ljós að margvísleg matvæli standa neytendum til boða. Þar var að finna byggmjöl, bankabygg, byggflögur, heilhveitimjöl, brauð, kex, flatkökur, morgunkorn og bjór. Ljóst þykir að mögulegt er að framleiða ýmsar aðrar matvörur úr innlendu korni. Góðar niðurstöður og jákvæð viðhorf Í niðurstöðum efnagreininga á inn- lendu korni frá árinu 2010, sem var mjög hagstætt til kornræktar og samsetning kornsins því eins hag- stæð og búast má við, kom í ljós að magn sterkju var ekki verulega frá- brugðið því sem mældist í innfluttu korni. Athyglisvert þykir að innlent heilhveitimjöl skilaði 59 g/100 g af sterkju. Þá var innlenda kornið mjög Magn óæskilegra efna eins og kvikasilfurs, kadmíns, blýs og arsens í korni frá svæðinu undir Eyjafjöllum eftir gosið var undir magngreiningar- mörkum – eða mjögt lágt. Magn flúors í korninu var svipað og mælst hefur í korni erlendis. Ekki varð vart við myglu í korn- sýnum sem voru til skoðunar í verk- efninu, en myglusveppir geta myndað skaðleg sveppaeiturefni. Ekki var þó mögulegt að gera mælingar á þessum efnum í verkefninu en í skýrslunni er tekið skýrt fram að mjög mikilvægt sé að slíkar mælingar fari fram, þar sem upplýsingar skorti um myndun líkra efna á Íslandi. Hlýnandi veðurfar gerir það einnig að verkum að slíkar rannsóknir verða brýnni en ella. Þá er alltaf hætta á votviðrasömu tíðarfari á haustin þegar korn er skorið og því ákveðnar líkur á því að mygla myndist og jafnvel sveppaeitur. Þá var í verkefninu einnig gerð könnun á viðhorfi fólks til íslenska byggsins. Leiddi hún í ljós jákvætt viðhorf til hollustu þess og skiptir hinn íslenski uppruni miklu máli í því sam- bandi. /smh Skýrsla Matís og LbhÍ um matkorn: Marvíslegar jákvæðar niðurstöður

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.