Bændablaðið - 02.02.2012, Page 7
Bændablaðið | fimmtudagur 2. febrúar 2012 7
andskunnur hagyrðing-
ur, Pétur Stefánsson,
birtir ykkur næstu stök-
ur. Pétur er fæddur í Reykjavík
1954 en alinn upp frá blautu
barnsbeini hjá föðurforeldrum,
þeim Sölvínu Konráðsdóttur
ljósmóður og bónda á Mýrum
og síðar Keldum, Fellshreppi í
Sléttuhlíð í Skagafirði og Pétri
Björnssyni bónda á sama stað.
Fyrstu vísu sína kallar Pétur „Eftir
jól“:
Lengir daginn, lyftist sólin,
landans bíða reikningsskil.
Búin eru blessuð jólin,
bankar fara‘að hlakka til.
Og í framhaldinu fara Pétri að
berast bréf:
Ævislóðin grýtt og grá
gengin er með þjósti.
Gleðikornin finnast fá
en fullt af gluggapósti.
Þorrablótin eru í algleymingi
þessa dagana. Því er við hæfi að
birta ljóðið „Bóndadagurinn"
eftir Pétur Stefánsson. Eitthvað
hafa veðrin verið landsmönnum
blíðari þegar þetta ljóð birtist:
Veri Þorri velkominn
nú verður glatt á hjalla.
Í kvöld mun margur maðurinn
við meyjar þurfa að spjalla.
Ekki er tíðin okkur hörð;
autt og hitavella.
Nú skal vegleg veisla gjörð,
og víni í glösin hella.
Svigna borð af súrum mat,
sviðum, magál, lungum.
Ýmsir borða á sig gat
af innyflum og pungum.
Gerum okkur glaðan dag,
góðra veiga njótum.
Drekkum öl og yrkjum brag,
etum mat og blótum.
Pétur er fyrirferðarmikill á
„Leirnum“ vefsvæði hagyrðinga.
Beinlínis bjóða margar stökur
hans uppá andsvör líkt og þessi
vísa Péturs sem ort er í algleymi
Menningarnætur í Reykjavík:
Meðan fjöldi fólks í nótt
vill fjörs og gleði njóta,
mun ég lúra ljúft og rótt,
leysa vind og hrjóta.
Margir urðu til að lýsa aðstæðum
Péturs þessa nótt, þar á meðal
gerði undirritaður þessa vísu:
Meðan borgarbúar gnótt
bergja öls úr glasi,
sefur Pétur sælt og rótt
í sínu iðragasi.
Eftir Egil Jónasson á Húsavík eru
tvær næstu vísur. Á einhverri tíð
voru aðstæður þannig í Aðaldal,
að Kvenfélag Aðaldæla þurfti
að halda hjónaball sitt vestur í
Ljósvetningabúð, félagsheimili
Kinnunga. Þetta var undir lok
fengitíma, eða í byrjun janúar:
Aðaldælir eiga sinn
erfiðleika við að glíma.
Þurfa vestur í Köldukinn
með konurnar á þessum tíma.
Daufur finnst mér dalurinn,
dvínar bænda þrek og kraftur.
En slíkt var fjör í Köldukinn,
að konurnar leita þangað aftur.
Umsjón: Árni Jónsson
kotabyggd1@gmail.com
Í umræðunni
MÆLT AF
MUNNI FRAM
L
Endurmenntun Landbúnaðarháskóla Íslands:
Húsgagnagerð úr skógarefni
Á vegum Endurmenntunar
Landbúnaðarháskóla Íslands er
árlega haldinn fjöldi námskeiða.
Á haustdögum var t.d. námskeið
sem haldið var á Snæfoksstöðum
í Grímsnesi og byggði á nytjun
timburs úr íslenskri skógrækt.
Mikið var um að vera þegar ljós-
myndari leit inn á námskeiðið en
þar var fólk í óða önn að smíða hús-
gögn úr efni sem hafði fallið til við
grisjun. Björgvin Örn Eggertsson,
verkefnisstjóri LbhÍ, sagði að þetta
námskeið hefði þróast upp úr nám-
skeiðinu Lesið í skóginn tálgað í tré
sem hefur verið í boði frá árinu 2001
og hefur notið mikilla vinsælda. Búið
er að skipu-
leggja nokkur
námskeið á
nýbyrjuðu ári
og raunar er það
næsta einmitt á
Snæfoksstöðum
þann 10. febrú-
ar. Þá verða
námskeið á
Vöglum í
Fnjóskadal og
á Hallormsstað.
Björgvin Örn sagði að þessi nám-
skeið hefðu notið mikilla vinsælda
og að margir listmunir hefðu litið
dagsins ljós. Þarna gæfist kostur á að
skapa úr efni sem annars
hefði verið hent. Í lýsingu
á námskeiðinu kemur fram
að allir fari heim með einn
koll og bekk. Það gekk
eftir á Snæfoksstöðum
- og ekki skorti einbeit-
inguna eins og sjá má
á myndunum. Nánari
upplýsingar um nám-
skeiðin eru á heimasíðu
Landbúnaðarháskóla
Íslands – www.lbhi.is.
Myndirnar á síðunni
tók Áskell Þórisson.
Þröstur Ólafsson sýndi mikil tilþrif í útskurði.
Björgvin Örn
Eggertsson
Inga María Jónínudóttir tálgar
af mikilli innlifun.
Nákvæmni skiptir líka máli, hér gildir ekkert
fúsk upp á tommu til eða frá.
Karl Nikulásson er
nú trúlega búinn
að tálga nokkrar
spýturnar um
ævina.
Allt vill lagið
hafa...
Stefán
Kjartansson
með öxina
að vopni.
Röðull Helgason kann greinilega réttu handtökin við að saga.
Þórey Eiríks
dóttir
festir smíðag
ripinn
í skrúfstykk
ið.
Hér mundar Ágústa Júníusdóttir borvélina af miklu öryggi.