Bændablaðið - 02.02.2012, Page 11

Bændablaðið - 02.02.2012, Page 11
Bændablaðið | fimmtudagur 2. febrúar 2012 11 HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA BKT er einn stærsti framleiðandi hjólbarða fyrir traktora, vinnu- og iðnaðarvélar í heimi. BKT hefur einnig haslað sér völl í framleiðslu á dekkjum fyrir hjólaskóflur og stóra vörubíla (Búkollur). DUGGUVOGI 10 RVK AUSTURVEGI 52 SELFOSS PITSTOP.IS WWW HJALLAHRAUNI 4 HFJRAUÐHELLU 11 HFJ568 2020 SÍMI HJÓLBARÐAR FYRIR TRAKTORA, VINNUVÉLAR OG LANDBÚNAÐAR TÆKI VIÐ EIGUM GRÍÐARLEGT ÚRVAL HJÓLBARÐA FYRIR FLESTAR TEGUNDIR VÉLA, TÆKJA OG VAGNA. KÍKTU Á PITSTOP.IS EÐA HAFÐU SAMBAND Í SÍMA 568 2020. BKT MP567 BKT FLOT648 BKT TR459 BKT AGRIMAX RT-657 Aðalfundur félags ungra bænda á Vesturlandi og Vestfjörðum Aðalfundur félags ungra bænda á Vesturlandi og Vestfjörðum verður haldinn í húsnæði Búnaðarsamtaka Vesturlands á Hvanneyri þann 15. febrúar næstkomandi kl 20:00. Hvetjum fólk til að íhuga framboð í stjórn og koma með tillögur að ályktunum á fundinn. Léttar veitingar Stjórn F.U.B.V.V. Aðalfundur félags ungra bænda á Austurlandi Aðalfundur F.U.B.A. verður haldinn á Hótel Héraði Egilsstöðum þann 13. febrúar nk. kl. 20:30. Dagskrá: Þórarinn Lárusson flytur okkur erindi um sjálfbærni. Almenn aðalfundarstörf Breytingar á samþykktum félagsins Kynning á merki félagsins Hvetjum félaga til framboðs í stjórn og sem fulltrúa félagsins á aðal- fund S.U.B. Nýir félaga boðnir velkomnir. Stjórn F.U.B.A. Á aðalfundi Norðurhjarasamtaka var stjórn falið að koma á fram- færi ályktun vegna Dettifossvegar. Þarf að klára veginn niður í Kelduhverfi Aðalfundur Norðurhjara bendir ráðamönnum á að sú ákvörðun að klára ekki Dettifossveg niður í Kelduhverfi stuðlar að samdrætti í ferðaþjónustu í norðurhluta Vatnajökulsþjóðgarðs. Það er þvert á þau markmið sem vinna átti að með uppbyggingu vegarins, þ.e. að styrkja ferðaþjónustu á svæðinu og hafa jákvæð samfélagslega áhrif. Fyrir Kelduhverfi, Öxarfjörð, Þistilfjörð og Langanesbyggð er hálfur Dettifossvegur verri en eng- inn og bein ógnun við svæðið hvað varðar uppbyggingu ferðaþjónustu. Skorar Norðurhjari á stjórnvöld að klára neðri hluta Dettifossvegar strax. Norðurhjari lýsir þó einnig yfir ánægju sinni með þær samgöngu- bætur sem orðið hafa á starfssvæði hans síðastliðin ár, Hófaskarðsleið og nú síðast nýja brú yfir Sauðanesós á Langanesi. Þessar framkvæmdir eru afar mikilvægar fyrir uppbyggingu ferðaþjónustu á svæðinu. Þarf að klára Dettifossveg Leyft að veiða 1009 hreindýr Umhverfisráðherra hefur ákveðið hreindýrakvóta þessa árs að fengnum tillögum frá Umhverfisstofnun. Heimilt verður að veiða allt að 1009 dýr á árinu sem er fjölgun um átta dýr frá fyrra ári. Heimildirnar skiptast þannig að leyft verður að veiða 588 kýr alls og 421 tarf. Veiðin skiptist milli níu veiðisvæða og verða mörk þeirra og fjöldi dýra á hverju svæði tilgreind nánar í Lögbirtingablaðinu. Heimildirnar eru veittar með fyrirvara um að ekki verði veru- legar breytingar á stofnstærð fram að veiðum, sem kalli á endurskoðun veiðiheimilda. Veiðitíminn er frá 1. ágúst til og með 15. september, en þó getur Umhverfisstofnun heimilað veiðar á törfum frá og með 15. júlí og lengt veiðitíma kúa til og með 20. sept- ember. Veturgamlir tarfar eru alfriðaðir og miðast tarfaveiði því við tveggja vetra tarfa og eldri. Óheimilt er að veiða kálfa. Gjaldskrá hefur ekki verið gefin út en opnað verður fyrir umsóknir þegar hún liggur fyrir, segir á vef Umhverfisstofnunar.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.