Bændablaðið - 02.02.2012, Side 12

Bændablaðið - 02.02.2012, Side 12
Bændablaðið | fimmtudagur 2. febrúar 201212 Fréttir Sumarið 2011 fór fram viðamikil rannsókn á fuglum og smádýrum á 26 landgræðslusvæðum víðsvegar um land. Þessi rannsókn er meist- araverkefni Brynju Davíðsdóttur við Landbúnaðarháskóla Íslands. Eru þetta fyrstu heildarrannsóknir á áhrifum landgræðsluaðgerða á fuglalíf hér á landi, en árið 2008 rannsökuðu Guðný H. Indriðadóttir og Tómas G. Gunnarsson áhrif land- græðslu á fuglalíf á Mýrdals- og Skógasandi. Niðurstöður þessara rannsókna eru mikilvægt innlegg í þekkingu á áhrifum landgræðslu og endurheimtar vistkerfa á fuglalíf á Íslandi. Allt að 6,3 fuglar á lúpínuhektara Bornar voru saman þrjár landgerðir, óuppgrædd svæði, lúpínubreiður og endurheimt mólendi. Fuglar reyndust vera flestir í lúpínubreiðum; 6,3 á hektara, næstflestir í endurheimtu mólendi; 3,4 á hektara og fæstir á óuppgræddu landi; 0,3 á hektara. Meðalfjöldi tegunda var mestur í mólendi; 0,5 tegundir á hektara, lítið eitt minni í lúpínu og minnstur á óuppgræddum svæðum; 0,1 tegund á hektara. Mest um þúfutittling og hrossagauk Í lúpínu voru þúfutittlingur og hrossagaukur langalgengustu teg- undirnar og komu fyrir í 96% og 77% tilvika. Í mólendi voru þúfutittlingur, heiðlóa, spói og lóuþræll algengustu tegundirnar og komu fyrir í 81%, 77%, 73% og 65% tilvika. Fáir fuglar fundust á ógrónum svæðum. Tegundafjölbreytni fugla var mest í mólendi en þar fundust alls 16 teg- undir fugla, 14 í lúpínu og 10 á óupp- græddu landi. Ekki var marktækur munur á tegundafjölda í mólendi og í lúpínu en tegundafjöldi var marktækt lægri á lítt grónu landi en í hinum vistgerðunum. Fjölbreytileikastuðull Shannon var reiknaður fyrir vist- gerðirnar en hann tekur tillit til þess hversu mikið finnst af hverri tegund ásamt fjölda tegunda. Stuðullinn var hæstur fyrir endurheimt mólendi, þá lúpínu og lægstur fyrir óuppgrætt land. Stuðullinn var marktækt hærri fyrir mólendi en óuppgrætt land en ekki var marktækur munur milli mólendis og lúpínu. Smádýr voru veidd í háf á öllum rannsóknarsvæðum en einnig í fallgildrur á völdum svæðum á Suðurlandi. Í báðum tilvikum reynd- ist fjöldi smádýra mestur í lúpínu, næstmestur í mólendi og minnstur í óuppgræddu landi. Sterk fylgni var á milli fjölda dýra sem veiddust í háf og í fallgildrur. Marktæk fylgni var á milli heildarfjölda smádýra sem veiddust í háf og heildarfjölda fugla. / / Guðmundur Halldórsson. Frá Hvanneyri til Wageningen - Fjögurrra barna móðir í meistaranámi í umhverfisskipulagi Fjöldi fugla sækir í lúpínubreiður - Viðamikil rannsókn á 26 landgræðslusvæðum „Mig langaði út í nám og fór að skoða ýmsa möguleika og sækja um skóla. Ég frétti af íslenskum nemanda í Hollandi, Hildu Björgu Þorgeirsdóttur, en hún hafði einnig lokið námi í umhverfisskipulagi við LbhÍ. Ég hafði samband við hana, skoðaði upplýsingar um skólann á netinu og svo í fram- haldinu skrapp ég út til að skoða aðstæður eftir að hafa séð aug- lýstan opinn dag hjá skólanum,“ segir Hjördís Sigurðardóttir, sem útskrifaðist með B.Sc.-gráðu í umhverfisskipulagi frá LbhÍ vorið 2009. Hún stundar nú meistara- nám við Wageningen University í Hollandi og stefnir á að útskrifast í haust. Hjördís er Sunnlendingur að uppruna, en hún er alin upp að Kastalabrekku í Ásahreppi í Rangárvallasýslu. Hún lauk námi í matvælafræði frá HÍ og starfaði sem matvælafræðingur í áratug áður en hún söðlaði um og fór í umhverfis- skipulag við LbhÍ. Frá Hvanneyri til Wageningen En hvað réð vali á skóla ytra? Hjördís segist hafa þurft að vega og meta kosti og galla þess að læra í Osló, Edinborg og Wageningen. „Ég hafði sótt um á öllum þessum stöðum eftir að umsóknarferli til Kanada gekk ekki upp. Wageningen varð ofan á en margir samverkandi þættir höfðu áhrif á það. Kostnaðarlega virtist það álitlegt, auk sterkrar stöðu skólans, uppbyggingar námsins og gjörólíks en að mörgu leiti heillandi umhverfis til að prófa að búa í. Svo má nefna að gott gengi hollenska fótboltalands- liðsins á þessum tíma hafði áhrif en flest börnin mín eru í boltanum, að því leyti lagðist það vel í þau að flytja til Hollands!“ - Hvernig tilfinning var það að setjast á hollenskan skólabekk? „Fyrir mig var það í byrjun frekar erfitt, ég féll ekki beint að hol- lensku staðaltýpunni í svona námi. Nemendur hér er flestir mjög ungir og nánast enginn með fjölskyldu. En smám saman vandist ég því að sjá undrunarsvipinn á fólki þegar það komst að minni stöðu.“ Meiri regla og agi í hollenskum skólum - Í hverju liggur munurinn á milli skólakerfa hér heima og í Hollandi? „Hið almenna skólakerfi í Hollandi miðar að því að nemendur séu nokkuð jafnir í getu í hverjum bekk þannig að hér hika menn ekki við að láta nemendur endurtaka árið til að ná fullnægjandi kröfum. Þannig að í grunnskóla og framhaldsskóla geta nemendur verið á þremur ald- ursárum í sama bekk. Þetta gerir að sjálfsögðu starf kennarans léttara. Grunnskólastigi lýkur fyrir flesta um 12 ára aldur en þá tekur við framhaldsskólastigið. Það skiptist í fjórar megin námsleiðir (sem svo skiptast enn frekar) eftir því hvaða stefnu nemendur ætlar að taka og eftir getu þeirra. Á unga aldri þurfa nemendur því að svara spurningum um sjálfa sig og vita hvað þeir vilja í framtíðinni. Að mínu mati ríkir í Hollandi miklu meiri agi og regla á öllu, t.d. er hér starfandi skólalögregla á grunn- og framhaldsskólastigi. Nemendum ber að sýna kennara sínum virðingu og ávarpa hann með titli. Eftir framhaldsskóla eru mismun- andi námsleiðir í boði miðað við þá leið sem valin hefur verið.“ Samvinna milli námsleiða og faggreina - Hvaða áherslur eru í þínu námi? „Ég er í námi sem kallast „meist- aranám í landslagsarkitektúr og skipulagi með áherslu á skipulag“. Það er mjög kenningafræðilegt, rannsóknamiðað og frekar krefjandi. Póstmódernísk hugmyndafræði og sjálfbær þróun á ýmsum sviðum eru mikið til umfjöllunar. Mikil áhersla er lögð á samvinnu milli náms- leiða og jafnvel milli faggreina. Mikil krafa er um að nemendur hafi undirbúið sig vel, taki afstöðu og að kennsla fari fram á gagnvirkan hátt.“ Krakkarnir fengu góða uppfræðslu í hollensku Hjördís er svo sannarlega ekki ein á báti, en hún á fjögur börn sem fluttu út með henni og eru á aldrinum 6 til 16 ára. „Þau hafa staðið sig eins og hetjur. Það var ekki auðvelt fyrir þau að setja sig inn í tungumálið en allt er kennt á hollensku í þeirra námi. Þeim var boðið upp á mjög góða kennslu í málinu og það kom fljótt hjá þeim. Ég vil meina að reglan á hlutunum hafi verið þeim kjölfesta fyrstu vik- urnar, jafnvel þó þau skildu ekkert vissu þau fljótlega hvernig allt fór fram. Yngri börnin eru í skóla sem er sérstaklega hannaður til að taka á móti erlendum nemendum, þannig að þar er mjög alþjóðleg stemming þar sem um það bil helmingur nemenda kemur frá tuttugu og fjórum mis- munandi menningarheimum. Í fram- haldsskólanum þar sem eldri börnin stunda nám er boðið upp á sértæka hollenskukennslu fyrir erlenda nem- endur sem einnig koma hvaðanæva að. Að þessu leyti eru skólarnir sem börnin eru í mjög frábrugðnir íslenskum skólum, fyrir utan meiri aga og reglu. Skólaárið er líka lengra og aðeins sex vikna sumarfrí en í staðinn eru tekin haust-, vetrar- og vorfrí.“ /ÁÞ LbhÍ vorið 2009. Hún stundar nú meistaranám við Wageningen University í Brynja Davíðsdóttir mundar kíkinn. Hreiður skógarþrastar. Hann var - breiðum. Mynd / Brynja Davíðsdóttir. Mynd / Brynja Davíðsdóttir. Fagráðstefna skógræktar 2012 verður að þessu sinni haldin á Húsavík dagana 27.-29. mars undir heitinu „Tegundir, kvæmi og klónar í íslenskri skógrækt“. „Þetta viðfangsefni hefur verið rauður þráður í skipulagðri skógrækt á Íslandi alla síðustu öld eða allt frá aldamótunum 1990, að finna hvaða tegundir og staðarafbrigði gætu þrifist á okkar harðbýla landi,“ segir Brynjar Skúlason, svæðisstjóri hjá Norðurlandsskógum. Hann segir að á grundvelli rann- sókna og reynslu á kvæmum ýmissa tegunda hafi val á erfðaefni til skóg- ræktar breyst. „Mikil bylting hefur orðið á síð- ustu árum hvað varðar vöxt og rækt- unaröryggi fjölmargra trjátegunda og það er staðreynd að Ísland getur auðveldlega orðið sjálfbært með allar timburafurðir. Þeirri vissu þarf að fylgja vilji og fjármagn til að skóg- rækt nái að dafna sem atvinnugrein og styðja við þá atvinnustarfsemi sem fyrir er á landsbyggðinni,“ segir Brynjar. Meðal efnis sem þegar liggur fyrir eru erindi um kvæmaval stafafuru, fjallaþins, skógarfuru og sitkagrenis, byggt á nýjum mælingum á misjafn- lega gömlum kvæmatilraunum. Þá verður fjöldi erinda fluttur á ráð- stefnunni. / MÞÞ Fagráðstefna skógræktar á Húsavík 27.-29. mars 2012

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.