Bændablaðið - 02.02.2012, Síða 16

Bændablaðið - 02.02.2012, Síða 16
16 Bændablaðið | fimmtudagur 2. febrúar 2012 Aðalheiður S. Eysteinsdóttir vinnur að endurbótum á Alþýðuhúsinu á Siglufirði Menningaruppbygging í þriðja sinn – Réttardagur 50 sýninga röð, með áherslu á sauðkindina og menninguna í kringum hana, heldur áfram Skammt er stórra högga á milli hjá Aðalheiði S. Eysteinsdóttur myndlistarkonu í Freyjulundi í Hörgársveit. Hún vinnur nú við framkvæmdir í Alþýðuhúsinu á Siglufirði og hyggst standa þar fyrir menningarstarfsemi í fram- tíðinni, þá opnaði hún sýningu í Reykjanesbæ og í lok janúar var svo opnuð sýning í Leifsstöð á Keflavíkurflugvelli. Endurbætur hófust á gamla Alþýðuhúsinu á Siglufirði á milli jóla og nýárs, en 7 manna hópur hönnuða og listamanna starfaði þar við niðurrif og uppbyggingu um tveggja vikna skeið um áramót. Aðalheiður segir að stefnt sé að því að endurbótum á húsinu ljúkí í júlí á komandi sumri. Húsinu verður breytt í vinnustofu og menningar- setur, það er um 300 fermetrar að stærð og stendur í hjarta bæjarins, rétt norðan við Torgið. Fjallabyggð og Sparisjóður Siglufjarðar lögðu verkefninu lið og kveðst Aðalheiður þakklát fyrir þann stuðning, en for- svarsmenn bæjarfélagsins og spari- sjóðsins hafi tekið vel í hugmyndir hennar. Menningarumhverfið á Siglufirði í mikilli sókn „Framtíðarhugmynd varðandi húsið er að lána það tímabundið lista- og fræðimönnum með því skilyrði að þeir leggi sitt af mörkum til sam- félagsins, eins er ætlunin að standa fyrir skipulögðum menningarvið- burðum einu sinni í mánuði auk þess sem myndlistarsýningar verða í litlu rými í miðju hússins,“ segir Aðalheiður. Hún hyggst flytja hluta af starfsemi sinni í Alþýðuhúsið, setja upp listasmiðjur og taka þar á móti gestum líkt og hún hefur gert í Eyjafirði undanfarin 20 ár. Þá segist Aðalheiður munu standa fyrir víðtækri menningarstarfsemi í Alþýðuhúsinu með áherslu á mynd- list, með menningardegi barna ár hvert og fjölþjóðlegri hugmynda- og listastefnu. „Menningarumhverfið á Siglufirði er í mikilli sókn,“ segir hún og bendir m.a. á Síldarminjasafnið, Rauðku, Þjóðlagasetrið og ýmis smærri söfn og menningarfélög. Á næstu tveimur áratugum hyggst Aðalheiður koma upp skúlptúragarði á túni sunnan við húsið. Uppbygging í þriðja sinn „Þetta er í þriðja sinn sem ég legg af stað í menningaruppbyggingu af þessu tagi, fyrst með virkri upp- byggingu Listagilsins á Akureyri, þá Verksmiðjunnar á Hjalteyri og nú í Alþýðuhúsinu á Siglufirði,“ segir Aðalheiður, en hún er fædd og uppalin þar í bæ, flutti þaðan 23ja ára gömul og hélt til náms. Leiðin lá í Myndlistaskólann á Akureyri og síðar tók hún þátt í Dieter Roth akademíunni, sem er óhefðbundin akademía. Aðalheiður hefur starfað að myndlist í 18 ár og á þeim tíma lagt gjörva hönd á margt; starfrækt gallerí, staðið fyrir menningarvið- burðum, sýnt verk sín í 14 löndum, kynnt myndlist á öllum skólastig- um, haldið námskeið og fyrirlestra og starfað með listamönnum úr ólíkum listgreinum. Sameinaði heimili og vinnustofu í sveitasælunni Síðastliðin ár hefur Aðalheiður búið og starfað í Freyjulundi, norðan Akureyrar, þar sem áður var félags- heimili Arnarneshrepps, en þar sam- einaði hún heimili og vinnustofu í sveitasælunni. „Ég hef eingöngu unnið að myndlist undanfarin ár og m.a. hlotið starfslaun frá ríki og Akureyrarbæ, sem og menningar- styrki ýmiss konar. Nú um nokk- urt skeið hef ég verið að svipast um eftir húsnæði á Siglufirði, sem hentaði fyrir vinnustofu og menningarstarfsemi og eftir að hin dásamlegu Héðinsfjarðargöng urðu að veruleika opnaðist möguleiki á að vera þar með annan fótinn; starfa bæði í Freyjulundi og á Siglufirði,“ segir Aðalheiður. Um þessar mundir vinnur Aðalheiður að gerð verka í anddyri Icelandair hótelanna víða um land, en þegar eru komin upp verk eftir hana á Hótel Natura í Reykjavík og Icelandair hótelunum á Akureyri og Egilsstöðum. „Verkefnið er hugsað sem tenging eða samnefnari fyrir öll hótelin, en þau leggja öll áherslu á þjóðlega og svæðisbundna stemningu og verk mín þóttu standa vel fyrir þeirri upplifun,“ segir Aðalheiður. Fangar þorrablótsstemningu landsmanna Aðalheiður er um það bil að opna tvær sýningar í Keflavík, annars vegar sýninguna „Á Bóndadag“ í Listasafni Reykjanesbæjar og hins vegar sýningu í Leifsstöð sem ber yfirskriftina „Ferðalangar“, en hún samanstendur af þremur skúlptúrum sem staðsettir eru í gangi á leið út að flugvelli. Báðar eru sýningarnar hluti af verkefni sem Aðalheiður hefur unnið að undanfarin ár eða frá því í júní árið 2008 og nefnist „Réttardagur 50 sýninga röð“, en því lýkur í júní á næsta ári, 2013. Á Bóndadag og Ferðalangar eru sýn- ingar númer 34 og 35 í þeirri röð, en þema sýninganna er sauðkindin og menning sem skapast hefur hér á landi í kringum hana. Á sýningunni í Listasafni Reykjanesbæjar snarar Aðalheiður fram þorrablótsstemningu, þar sem sjá má skúlptúra af fólki að dansa og sitja við borð hlaðin þorramat, hljómsveitin er á sínum stað, bar- inn, reykingahornið og allt annað það sem tíðkast á hefðbundnum þorraskemmtunum landsmanna. Við opnunina leikur hljómsveitin Hjálmar, boðið verður upp á dans- gjörning og þorramat. „Þannig bland- ast raunveruleikinn hinum tilbúna veruleika myndlistarinnar og gerir upplifunina vonandi áhugaverðari,“ segir Aðalheiður en hún vinnur sýninguna í samstarfi við nokkra listamenn, þá Arnar Ómarsson, Sean Millington, Jón Laxdal, Gunnhildi Helgadóttur, Nikolaj Lorentz Mentze og Guðbrand Siglaugsson. /MÞÞ Aðalheiður Eysteinsdóttir myndlistarkona í Freyjulundi í Hörgársveit er jafnan með mörg járn í eldinum. Myndir / MÞÞ Þessi mynd sem fylgir var tekin á hlaðinu í Freyjulundi, sem er rétt við Reistarárrétt. Verk eftir Aðalheiði vöktu athygli þeirra sem lögðu leið sína í 50 sýninga röð, en um er að ræða 50 sýningar sem settar eru upp eða verða settar upp víða um heim á tímabilinu júní 2008 til júní 2013 og fjalla allar á einn eða annan hátt um sauðkindina. verður í sumar opnað menningar- setur og vinnustofa fyrir listamenn. Aðalheiður Eysteinsdóttir ásamt syni sínum Arnari Ómarssyni. ATZ 28”-38” Hljóðlát og endingargóð mtdekk.is Söluaðili:

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.