Bændablaðið - 02.02.2012, Síða 23

Bændablaðið - 02.02.2012, Síða 23
23Bændablaðið | fimmtudagur 2. febrúar 2012 um heim, flest í Vestur-Evrópu en þriðjungur stofnsins er á Íslandi. Útflutningur hefur verið umtals- verður alla tíð frá 1850. Þannig voru um 150.000 hross flutt út á tímabilinu 1850-1949 og þá flest til Bretlands (Björnsson and Sveinsson, 2004). Eftir 1950 hefur fjöldi útfluttra hrossa verið breytilegur en eftir hitasótt- arfaraldurinn 1998-1999 dró töluvert úr útflutningi miðað við árin þar á undan. Síðustu 10 ár hefur árlegur útflutningur verið um 1400 hross eða mun færri en þegar best lét. Til þess ber þó að líta að meðalverð útfluttra hrossa hefur farið hækkandi og á síðasta ári voru flutt út hross fyrir u.þ.b. einn milljarð króna. Ástæður samdráttar í útflutningi eru sjálfsagt margar en líklegt er að sumarexem vegi þar þungt. Talið er öruggara að kaupa hesta sem fæddir eru úti en þá sem fæddir eru hér. Það eru því grundvallarhagsmunir fyrir markaðs- sókn í útflutningi á íslenska hestinum að þróa meðferð og forvörn gegn sumarexemi. Rannsóknarátak gegn sumarexemi Vorið 2000 skipaði þáverandi land- búnaðarráðherra, Guðni Ágústsson, að höfðu samráði við Framleiðnisjóð landbúnaðarins, starfshóp til að skipuleggja rannsóknir á sumarexemi í hestum. Formaður starfshópsins var Ingileif Jónsdóttir prófessor í ónæmisfræði. Hópurinn lagði til að gert yrði stórt rannsóknarátak á sumarexemi í hrossum, sem fyrst og fremst yrði unnið af sérfræðingum á Keldum í samstarfi við rann- sóknarhóp í Bern í Sviss svo og í samstarfi við aðra íslenska og erlenda sérfræðinga. Ákveðið var að aðal- markmið rannsóknanna yrði að þróa ónæmismeðferð gegn sumarexemi en til að ná því þyrfti fyrst að skil- greina ofnæmisvakana í smámýinu og ónæmisferlana í sjúkdómnum. Rannsóknarátakinu var skipuð stjórn sem í sitja Ágúst Sigurðsson rektor Landbúnaðarháskóla Íslands, sem formaður, Sigríður Björnsdóttir sér- greinadýralæknir hrossasjúkdóma, Ólafur Andrésson prófessor í erfða- fræði, Sigurbjörg Þorsteinsdóttir ónæmisfræðingur á Keldum og Eliane Marti dýralæknir og ónæmis- fræðingur við Dýrasjúkdómastofnun Háskólans í Bern í Sviss. Í kjölfarið eða haustið 2000 hófust rann- sóknir á sumarexemi á Keldum, undir stjórn Sigurbjargar og Vilhjálms Svanssonar dýralæknis og undir stjórn Eliane Marti í Bern. Rannsóknirnar voru í upphafi styrktar af Framleiðnisjóði land- búnaðarins, Rannís og Svissneska rannsóknarsjóðnum og síðan einnig af fleiri aðilum (sjá síðar). Eins og greint hefur verið frá var þekking á ofnæminu við upphaf rannsóknarátaksins tak-mörkuð, auk þess sem mikill skortur á sértækum líf- og prófefnum háði öllum rann- sóknum á ónæmissvörun í hrossum á þeim tíma. Því varð að byrja á að framleiða prófefni eða prófa hvort efni sem gerð höfðu verið fyrir aðrar dýrategundir dygðu fyrir hross. Á þessum tíu árum hafa verið fram- leidd eða fundin mörg nauðsynleg prófefni, bæði af okkur og öðrum. Miklar framfarir hafa einnig orðið í aðferðafræði í sameindafræðum, rannsóknum á ónæmiskerfi músa og manna sem og í meðhöndlun á ofnæmi og þróun á bóluefnum og bólusetningum í fólki. Einkenni sumarexems Sumarexem er ofnæmi gegn pró- teinum, sem berast í hross við bit mýflugna af ættkvíslinni Culicoides, sem við köllum smámý. Engar teg- undir af þessari fluguættkvísl lifa á Íslandi. Hestar hér á landi fá því ekki ofnæmið. Exemið lýsir sér í útbrotum og kláða, sérstaklega í fax- og taglrótum og, sé ekkert að gert, sáramyndun og sýkingu í sárunum. Eina leiðin til þess að halda exeminu niðri er að hýsa hrossin í ljósaskipt- unum, þegar mest er af flugu, eða hylja þau með ábreiðum. Mögulegt er að meðhöndla með sterum en engin varanleg lækning eða vörn er fyrir hendi. Sumarexem er því verulegt dýravelferðarmál. Rannsóknir á sumarexemi í íslenskum hestum 2000-2011 Markmið rannsóknanna er að finna og greina próteinin (ofnæmisvak- ana) sem valda exeminu og rannsaka ónæmissvarið og feril sjúkdómsins með því lokamarkmiði að þróa ónæmismeðferð gegn honum, þ.e. bólusetningu sem forvörn og afnæm- ingu sem lækningu. Staða rannsóknanna: Við höfum einangrað og tjáð þá ofnæmisvaka sem máli skipta úr flugnabitkirtlum, alls 15 pró- tein (Schaffartzik et al., 2010; Schaffartzik et al., 2011; Schaffartzik et al., 2009). Rannsóknum á ónæmis- svarinu í sjúkdómnum hefur einnig miðað vel og hafa þær skilað mjög áhugaverðum niðurstöðum sem eru undirstaða þess að velja meðferð og meta gagnsemi hennar (Hamza et al., 2007; Hamza et al., 2010; Hamza et al., 2008; Heimann et al., 2011). Framangreindar niðurstöður hafa gert okkur kleift að hefja tilraunir í ónæmismeðferð, bólu-setningum og afnæmingu. Ofnæmi og ónæmismeðferð: Ofnæmissvar er ótímabært ónæmis- svar gegn saklausum próteinum með framleiðslu á IgE-mótefnum og bólgumiðum sem valda einkenn- unum. Ónæmiskerfið er varnarkerfi líkamans sem ver einstaklinga gegn innrásum sýkla s.s. baktería, veira, sveppa eða sníkjudýra. Kerfið bregst við sýklum með viðeigandi ónæmissvari sem sér um að drepa, éta eða leysa upp sýkla og sýktar frumur og taka til, hreinsa og græða í kjölfarið. Heilbrigðir einstaklingar bregðast ekki við saklausum pró- teinum sem þeir borða, anda að sér, snerta eða fá við skordýrabit eða -stungur. Ónæmiskerfi ofnæmis- sjúklinga bregst hins vegar við slíku áreiti og úr verður of-næmis- svar. Svarið getur verið af ýmsum toga, t.d. ofnæmiskvef, heymæði, astmi, kláði, erting, bjúgur, útbrot, meltingaróþægindi og jafnvel ofnæmislost. Sumarexem er ofnæmi eða ónæmissvar á svokallaðri Th2- braut, með framleiðslu á IgE- mótefnum og bólgumiðlum sem valda exeminu. Ónæmismeðferð felst í því að stýra ónæmis-svari gegn ofnæmisvökunum inn á Th1-braut og efla svokallaðar Th-stýrifrumur sem bæla ofnæmið. Bólusetning er þá forvörn þannig að hestarnir svara ofnæmisvök- unum á Th1-braut þegar þeir hitta fluguna, en afnæming er lækning á hestum með exem sem felst í því að beina svarinu af Th2-braut yfir á Th1-braut og efla sértækar Th-stýrifrumur til að bæla Th2- ofnæmissvarið. Tilraunir á hrossum eru mjög dýrar, einstaklingsmunur er mik- ill svo endanlegir tilraunahópar verða helst að vera 10-20 hross til þess að marktækni náist. Flestar viðurkenndar afnæmingar- og bólusetningaraðferðir taka einnig langan tíma. Afnæmingu verður að framkvæma erlendis, þar sem hross á Íslandi eru ekki með sumarexem og dýrara er að halda tilraunahross erlendis en hér. Vegna kostnaðar er áríðandi að reyna að stytta með- höndlunartíma sem mest. Við ætlum að reyna þrjár leiðir til að þróa ónæmismeðferð gegn sum- arexemi; 1) með hreinum ofnæmis- vökum í Th1-stýrandi ónæmisglæði, 2) með ofnæmisvökum á veiruferj- um, 3) um slímhúð meltingarfæra með því að fóðra hross á byggi sem tjáir ofnæmisvaka. 1. Bólusetja/afnæma með hreinum ofnæmisvökum í Th1- stýrandi ónæmisglæði. Ónæmisglæðar eru nauðsynlegur þáttur í próteinbóluefnum en þeir ræsa ónæmissvarið og stýra því. Gríðarleg framför hefur orðið í þróun kröftugra ónæmisglæða undanfarin ár. Til þess að fá aðgang að glæðum sem viðurkenndir eru í bóluefni þarf að semja við lyfjafyrirtækin sem eiga þá. Fyrstu bólusetningartilraun undir þess- um lið er að ljúka. Í henni var borin saman bólusetning í eitla og húð með fjórum hreinsuðum ofnæmisvö-kum, bæði einum og sér, og í Th1-stýrandi ónæmisglæði frá lyfjafyrirtækinu Intercell í Vín. Frumniðurstöður sýna að ónæmisglæðirinn er án aukaverk- ana og virðist efla rétta tegund af ónæmissvari. Einnig virðist sprautun í eitla áhrifarík aðferð sem gæti stytt tilraunatíma. Í Bern eru hafnar tilraunir til að afnæma hesta með sumarexem með því að sprauta ofnæmisvökum í ónæmisglæði í eitla. 2. Bólusetja/afnæma með ofnæmisvökum á veiruferjum. Vörn gegn veirusýkingum er á Th1- braut ónæmissvars og því tilvalið að notafæra sér það í gerð bóluefnis gegn ofnæmi. Nú þegar eru í notkun í hrossum veiruferjubóluefni gegn West Nile- og inflúensuveirum. Við notum tvær veirutegundir, gamma-herpes- veiru 2 (EHV-2), sem sýkir hesta, og baculoveiru, sem sýkir skordýr. Hannaðar hafa verið nokkrar EHV-2 ferjur þar sem ofnæmisvakagenin voru sett inn á mis-munandi stöðum. Verið er að búa til baculoveiruferjur sem geta komist inn í hesta-frumur og tjáð í þeim ofnæmisvakagen. Veiruferjurnar sem sýna öflugustu tjáninguna á inn- settum genum í hestafrumum, bæði af EHV-2 og baculoveiru uppruna, verða notaðar til tilraunabólusetninga í hestum. Vonast er til að af því geti orðið á árinu 2012. 3. Bólusetja/afnæma um slímhúð meltingarfæra með því að fóðra hross á byggi sem tjáir ofnæmisvaka. Í samstarfi við ORF Líftækni er verið að tjá ofnæmisvaka í byggi. Í fólki er farið að nota afnæmingu um slímhúðina undir tungunni í stað þess að sprauta undir húð. Við hyggjumst athuga hvort hægt sé að afnæma sumarexemshesta um slímhúð melt- ingar-færa með því að fóðra þá á byggi sem tjáir ofnæmisvaka. Verið er að tjá tvo ofnæmis-vaka í byggi og verður vonandi hægt að prófa annan þeirra á hestum fljótlega. Árangur af bólusetningu í þessum fyrstu tilraunum er metinn með því að mæla mótefna-, boðefna- og bólgu- miðlasvörun hestanna og á þeim grundvelli verður ákvarðað hvort ónæmis-svarið er á réttri braut. Á end- anum þarf að gera áskorunartilraunir, þ.e. flytja hópa af bólu-settum hestum út með hópum af ómeðhöndluðum samanburðarhestum á flugusvæði og fylgjast með þeim í a.m.k. tvö ár. Það ætti að leiða í ljós hvort bólusettu hestarnir eru raunverulega varðir gegn exeminu miðað við samanburðar- hestana. Styrktaraðilar verkefnisins: - búnaðarins Rannís - ræktarinnar - Heimildir: Eitlasprautun.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.