Bændablaðið - 02.02.2012, Qupperneq 29

Bændablaðið - 02.02.2012, Qupperneq 29
29Bændablaðið | fimmtudagur 2. febrúar 2012 Bókabás Komin er út skáldsagan Eitt and- artak í einu eftir Hörpu Jónsdóttur hjá bókaútgáfunni Sölku en það er hennar fyrsta skáldsaga. Á sólbjörtum laugardagsmorgni birtist ófrísk stúlka í sjávarplássi úti á landi. Lárus, borinn og barn- fæddur í firðinum, er beðinn um að taka á móti henni á flugvellinum. Þorpsbúar komast smám saman að misjafnri fortíð þessarar hæglátu stúlku; þeir fylgjast með glímu hennar við lífið og áður en yfir lýkur eru örlög hennar samofin lífi fólksins í plássinu og þá sér- staklega Lárusi. Í þessu fámenna samfélagi speglast mismunandi forsendur þorpsbúa og væntingar. Á meðan sumir hafa búið í plássinu allt sitt líf flytjast aðrir burt og enn aðrir koma þangað til að byrja upp á nýtt eða jafnvel til að finna sér skjól fyrir vindasömu lífi. Eitt andartak í einu er saga um hverfulleika, ást, mannlega bresti og djúpa vináttu. Harpa Jónsdóttir hlaut íslensku barnabókaverðlaunin árið 2002 fyrir bók sína Ferðin til Samiraka. Önnur bók hennar, ljóðabókin Húsið, kom út árið 2008. Eitt andartak í einu er fyrsta skáldsaga hennar. Harpa er ekki síður þekkt sem textíllistamaður og áhugaljósmyndari, en sem rithöf- undur. Hún hefur haldið einkasýningar á útsaumsverkum sínum, meðal annars á torgi Þjóðminjasafnsins og í Edinborgarhúsinu á Ísafirði. Verk hennar hafa birst í erlendum blöðum og tímaritum og hún hefur unnið til alþjóðlegra verðlauna fyrir þau. Harpa var bæjarlistamaður Ísafjarðarbæjar árið 2002. Vefsíða Hörpu: http://www.harpaj.net/ Bókin er er 220 bls og prentuð í Odda. Eitt andartak í einu Dagana 4.-6. nóvember sl. sátum við undirritaðar ráðstefnuna ,,Sheep breeders round table“, sem haldin var í Nottingham á Englandi. Skipulagning ráðstefn- unnar var í höndum EBLEX, helstu ráðgjafarstofnunar Englands á sviði nautakjötsfram- leiðslu og sauðfjárræktar. Á ráð- stefnunni kom fram fjöldi fyrirles- ara sem fjölluðu um sauðfjárrækt í Bretlandi á víðum grundvelli. Þá kom jafnframt fram fyrirlesari frá Ástralíu, Alex Ball að nafni, sem tæpti á því helsta sem varðar sauð- fjárrækt þar í landi. Ræktunarmál voru áberandi umfjöllunarefni en einnig var farið yfir niðurstöður nýlegra rannsókna, markaðs- og sölumál o.fl. Í þessari samantekt verður greint frá nokkrum atrið- um sem þarna komu fram. Kynbætur sauðfjár Skipulag ræktunarstarfs í Bretlandi er mjög ólíkt því sem gerist hérlend- is. Aðeins viss hluti bænda tekur þátt í skýrsluhaldi og stundar kynbætur, þessir bændur eru yfirleitt með mun færra fé en þeir sem ala sláturgripi. Verslun með lífgripi er mikil og þeir bændur sem vinna að kynbótum selja gjarnan talsverðan hluta framleiðslu sinnar á fæti. Meginþorri framleiðsl- unnar er hins vegar magnframleiðsla á sláturgripum sem aldrei koma til greina til kynbóta, þá gjarnan blend- ingar. Í Bretlandi er mikil hefð fyrir sölusýningum og fjöldi kynbótahrúta er seldur á slíkum sýningum. Það kom fram í máli nokkurra fyrir- lesara að of stíft væri horft á svipfar (þ.e. útlit gripa) við kaup og sölu. Auka þurfi vægi kynbótaeinkunna við verslun kynbótagripa, þar sem þær gefa öruggari mynd af gripnum sem kynbótagrip, auk þess sem alls ekki er hægt að sjá það á gripnum hvers virði hann er fyrir marga eigin- leika s.s. mjólkurlagni eða frjósemi. Líklega geta íslenskir bændur tekið þetta til sín að nokkru leyti, án efa er algengast að horft sé til útlitsdóma þegar verslað er með líflömb. Telja má víst að markvissara sé að líta til þess hvað viðkomandi lamb hefur í BLUP-einkunn. Einnig spannst umræða um fræðslustarf og mikil- vægi þess að útskýra fyrir ræktendum og kaupendum kynbótagripa hvað liggur að baki kynbótaeinkunnum. Hér á landi má einnig telja að skorti fræðslu til bænda varðandi uppbygg- ingu kynbótaeinkunna. Skýrsluhald Sam Boon frá EBLEX, einn fyrir- lesara á ráðstefnunni, hélt yfir- litserindi um skýrsluhald sauð- fjárræktarinnar. Þar kom fram að EBLEX heldur utan um skýrslur fyrir alls 49.000 ær af u.þ.b. 30 fjárkynjum. Heildarfjárfjöldi er yfir 4 milljónir. Í ræktunarstarfinu er hvert kyn gert upp sérstaklega, þ.e. reiknuð eru kynbótagildi fyrir hina ýmsu eiginleika fyrir viðkomandi fjárkyn. Það er misjafnt milli kynja hvaða eiginleikar eru gerðir upp enda væntanlega breytileg ræktunarmark- mið fyrir hin ýmsu kyn. Athygli vakti hve mikil áhersla er lögð á eigin- leika sem hafa bein áhrif á hagræna þætti við rekstur búa, s.s. burðar- erfiðleika, fóðurnýtingu, lífsþrótt lamba og vaxtarhraða svo eitthvað sé nefnt - áherslur sem við ættum án efa að líta meira til, ekki síst samfara stækkun búa og aukinni kröfu um hagræðingu í rekstri. Líklega er einsdæmi í heiminum að yfir 90% af fjárkyni sé skýrslu- fært, eins og hér á landi. Það er nokk- uð sem íslenskir sauðfjárbændur geta verið afar stoltir af. Jafnframt er það nokkur sérstaða að einungis er unnið með eitt sauðfjárkyn, en það býr íslenskum bændum nokkuð annað umhverfi samanborið við sauðfjár- bændur í öðrum löndum. Fyrir það fyrsta útilokar það allt ræktunar- skipulag sem lýtur að nýtingu blend- ingsræktar. Í annan stað útilokar það val bænda á ólíkum kynjum, eftir því sem best hentar mismunandi umhverfisaðstæðum eða búskapar- háttum. Á hinn bóginn má segja að þær aðstæður sem við búum við, þ.e. mikil þátttaka í skýrsluhaldi og eitt sameiginlegt kyn, bjóði upp á mjög markvisst opinbert ræktunarstarf. Í opinberu ræktunarstarfi hérlendis gegnir rekstur sæðingastöðvanna mjög mikilvægu hlutverki. Það fyrirkomulag er ekki fyrir hendi í Bretlandi. Yfirstjórn ræktunar- mála hefur kost á að velja inn bestu kynbótagripi landsins á grundvelli víðtækra upplýsinga en það opnar möguleika á markvissu úrvali á landsvísu, sem aftur ætti að gefa kost á góðum erfðaframförum. Markaðs- og sölumál Undanfarin tvö ár hefur verð á dilka- kjöti til bænda hækkað umtalsvert. Bretar eru talsvert stórtækir í bæði inn- og útflutningi á lambakjöti. Þeir flytja mest út til annarra landa innan Evrópu en Frakkland er þeirra mikilvægasti útflutningsmarkaður. Mest er flutt inn til landsins frá Nýja-Sjálandi og þá helst í þeim mánuðum sem framboð af bresku kjöti er minnst, þ.e. mars-apríl. Neysla á lambakjöti í Bretlandi hefur heldur verið að dragast saman. Laura Dodds markaðs- fræðingur flutti erindi um mark- aðssetningu á lambakjöti. Hún fjallaði nokkuð um þá ímynd sem lambakjöt hefur í Bretlandi. Að mörgu leyti virðist lambakjöts- neysla á Íslandi hafa verið að þróast í svipað far á undanförnum árum og áratugum. Hún benti á að lambakjöt er ekki hversdagsmatur, það tekur of langan tíma í eldamennsku og fjölbreytni í framsetningu er ekki nægjanlega mikil. Jafnframt þykir lambakjöt of dýrt samanborið við annað kjöt. Þá fjallaði Alex Ball, ástralski fyrirlesarinn, um mikil- vægi þess að ræktun sauðfjár og framleiðsla dilkakjöts í framtíðinni taki mið af þörfum neytenda um efnainnihald fæðunnar, s.s. prótein- innihald. Hann skýrði einnig frá því að markviss ræktun gegn fitusöfnun sláturlamba getur komið niður á bragðgæðum kjötsins. Fylgni er á milli yfirborðsfitu dilka og innan- vöðvafitu. Þegar miklum árangri hefur verið náð í ræktun gegn yfir- borðsfitu getur það leitt til minni innanvöðvafitu og þar með lakari bragðgæða kjötsins. Athygli vekur markviss greining Breta á kjötmarkaði og verðmætum afurðanna (sjá www.eblex.org.uk). Þar er opinberlega birt verðmæti sláturafurða og hlutur bónda af söluverðmæti. Á árinu 2011 var hlutur bónda 49-71% af verðmæti dilkakjötsins frá afurðastöð. Hlutur bónda í þessu verði er mjög breyti- legur eftir árstíma og framboði kjöts. Hér hefur aðeins verið tæpt á nokkrum atriðum sem fjallað var um á ráðstefnunni. Án efa má sækja margt í þekkingarbrunn Breta. M.a. er unnið að áhugaverðum rann- sóknum á arfgengi júgurbólgu í ám, lambavanhöldum og fleiru sem vert er að fylgjast með á komandi árum. Oddný Steina Valsdóttir Elín Heiða Valsdóttir Af sauðfjárræktarráðstefnu í Bretlandi: Skipulag ræktunarstarfs í Bretlandi mjög ólíkt því sem gerist hérlendis Bændablaðið Smáauglýsingar 56-30-300 Næsta blað kemur út 16. febrúar Borum eftir heitu og köldu vatni um allt land Liprir í samningum og hagstætt verð. Bændur - Sumarhúsaeigendur Upplýsingar gefur Guðni í síma 864-3313 og í netfangi: bjarnastadirehf@gmail.com Vatnsveitur á lögbýlum Veittir eru styrkir úr jöfnunarsjóði sveitarfélaga til að leggja vatnsveitu að einstökum bæjum í dreifbýli samkvæmt reglu- gerð nr. 973/2000. Umsóknir um framlög til vatnsveituframkvæmda skulu ber- ast viðkomandi ráðunautaþjónustu eða til Bændasamtaka Íslands fyrir 1. mars. Umsókn skal fylgja staðfest kostnaðar- og framkvæmdaáætlun. Nánari reglur og umsóknareyðublöð er hægt að nálgast á www.bondi.is Bændasamtök Íslands Bændahöllinni við Hagatorg 107 Reykjavík

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.