Bændablaðið - 02.02.2012, Blaðsíða 31

Bændablaðið - 02.02.2012, Blaðsíða 31
31Bændablaðið | fimmtudagur 2. febrúar 2012 Vélabásinn Toyota Urban Cruiser: Frábær fjórhjóladrifinn smábíll í vetraraksturinn Það hefur varla farið framhjá neinum að töluverður snjór var í Reykjavík í síðustu viku og margir áttu í erfiðleikum með að komast áfram í umferð borgarinnar á sínum smábílum með drif á einum öxli. Mér til happs var mér boðið að prófa Toyota Urban Cruiser, sem er með fjórhjóladrifi, og gat ég því látið spúsu minni eftir jeppling heim- ilisins í snjóskaflaævintýrið mikla í síðustu viku. Toyota Urban Cruiser er með 1364cc dísilvél sem á að skila 90 hestöflum en bíllinn er ekki nema 1240 kg. Frá miðvikudegi og fram yfir helgina síðustu prófaði ég bílinn við mjög mismunandi akstursskilyrði og satt best að segja kom bíllinn mér verulega á óvart, stóðst allar mínar væntingar og vel það. Rétt eins fjallajeppi Fyrsta daginn var snjór og þæfingur á götum Reykjavíkur og fjórhjóladrifið kom sér vel ásamt spólvörninni, við að komast upp brekkuna í götunni sem ég bý við. Á fimmtudagsmorgun þegar bílar voru fastir víða um bæinn átti ég ekki í neinum vandræðum með að komast út úr mínu hverfi þótt mikið hefði skafið í skafla, sem ég hélt að bílnum væru ofviða, en með því að læsa öllum hjólum var ég rétt eins og á fjallajeppa og ekkert virtist geta stoppað Urban. Um kvöldið þurfti ég að leggja í ómokað stæði og taldi víst að ég kæmist ekki í burtu úr stæðinu, en bíllinn er svo léttur og dekkin breið að hann flaut hreinlega ofan á snjónum og markaði varla í hann. Á föstudag kom svo klakinn og þrátt fyrir að vera á ónegldum vetrar- dekkjum var Urban Cruiser ótrúlega stöðugur í hálkunni og ekki í nema örfá skipti sá og heyrði ég skriðvarnar- búnaðinn fara í gang. Meðaleyðsla í ófærðinni um 9 lítrar Á sunnudeginum renndi ég upp að Skíðaskálanum í Hveradölum, svona rétt til að finna hvernig væri að keyra bílinn á langkeyrslu og sjá hverju hann væri að eyða á hundraðið. Mér sýndist bíllinn vera að fara með einhversstaðar á milli 5 og 6 lítra á hundraðið í lang- keyrslunni hjá mér og þessa daga sem ég ók bílnum í blönduðum akstri sagði tölvan að meðaleyðslan hjá mér hefði verið 9,2 lítrar, sem mér þykir mjög gott miðað við færðina (miðað við minn akstursstíl gæti ég trúað að ég væri að fara með á milli 5 og 6 lítra á hundraðið í blönduðum akstri að sumarlagi á þessum bíl). Í prufurúntinum kom ég við á Litlu kaffistofunni. Þegar ég fór af bílaplan- inu renndi ég út á vegöxlina og gaf bílnum vel inn til að finna upptakið og áður en ég var kominn fráreinina á enda var ég kominn á 90 km hraða (gefið er upp að Urban Cruiser diesel nái 100 km. hraða á 12,3 sek., sem er mjög gott fyrir svona litla dísilvél). Eitt af því sem ég var ánægðastur með við bílinn var hversu fljótur hann var að hitna að innan, en á nokkrum mínútum var kominn funhiti inn í bílinn (sennilegast fljótasti bíll sem ég hef vitað, að hitna að innan). Aðeins eitt gat ég fundið að bílnum sem ég varð var við, en í tvígang virtist hann frjósa í bremsu (annað sinnið yfir nótt og í hitt meðan ég var í vinnunni), en í bæði skiptin fannst mér það vera hægra framhjól sem fraus fast (gæti vel verið einstök tilfelli). Sætishitararnir eru mjög góðir, ekki eins og í mörgum bílum, að eftir stuttan tíma fer maður að brenna sig á óæðri endanum, en á Urban Cruiser er hitinn mátulegur. Farangursrýmið virkar við fyrstu sýn ekki stórt, en þegar á reynir er það glettilega stórt og gott að raða í það. Mér hefur alltaf leiðst vélarhljóðið í dísilvélum, en þessi vél er glettilega lágvær þegar hún er orðin heit. Urban Cruiser er góður og stöð- ugur á malarvegum, en fullmikið smá- steinahljóð er undir bílnum við þær aðstæður. Eftir malarvegaraksturinn skoðaði ég hvort bíllinn væri mikið skítugur og kom mér á óvart að aðeins aftasti hlutinn var skítugur en lítið upp á hliðarnar. Í heildina var ég mjög ánægður með bílinn og þá sérstaklega í snjónum og hálkunni, en þar fær hann hæstu einkunn hjá mér. Vélaprófanir hlj@bondi.is Hjörtur L. Jónsson Verð: 4.350.000 kr. Lengd: 3.930 mm Breidd (án spegla): 1.725 mm Hæð 1.540 mm Hestöfl: 90 Þyngd 1.240 kg Helstu mál Toyota Urban Cruiser: Þó að farangursrýmið virki lítið rúmast ótrúlega mikið í því. Mjög sterk fylgni er á milli aksturs og vergar landsframleiðslu eða hagvaxtar á Íslandi að því er fram kemur í frétt Vegagerðarinnar Miðað við þróun aksturs á Íslandi frá árinu 1975 er 96 prósent fylgni milli þeirrar þróunar og vaxtar landsframleiðslunnar til ársins 2010. Þannig hefur dregið verulega úr akstri á Íslandi allt frá því fyrir hrunið 2008. Samkvæmt spá Vegagerðarinnar er gert ráð fyrir að umferð fari heldur að aukast á þessu ári en aukin skattlagning á ökutæki og eldsneyti kann þó að setja strik í þá útreikninga. Víða erlendis eru tölur um heild- arakstur og breytingar á akstri nýttar til að meta ástand hagkerfisins eða spá í það ástand. Það gæti því verið fróðlegt að sjá þróun umferðar á nýju ári en fyrstu talnaVegagerðarinanr er að vænta í byrjun febrúar. Í fréttum af umferð og akstri hefur Vegagerðin minnst á að víða erlendis eru umferðartölur metnar sem mjög góður rauntímamælikvarði á hag- vaxtarþróun. Það er því fylgst mjög glöggt með þessum tölum til þess að meta ástand hagkerfisins. Vegagerðin skoðaði fylgni milli vergrar landsframleiðslu og þróun samanlagðs aksturs á landinu frá árinu 1975 til ársins 2010, því grunur lék á að þessu væri svipað farið hér á landi sem og annarsstaðar. Niðurstaðan sýnir svo ekki verður um villst að óhætt er að segja að mjög mikil fylgni er á milli þessara tveggja þátta, eða um 96% fylgni að meðaltali fyrir tímabilið, sjá línu- ritið. Því ætti að vera óhætt að nota umferðartölur til þess að áætla hag- vaxtaþróun eða spá fyrir um hana. Staðfestar hagvaxtartölur, tölurnar um verga landsframleiðslu, koma ekki fyrr en þremur árum á eftir, töl- urnar fyrir 2009 og 2010 eru þannig bráðabirgðatölur. Akstur á landinu hefur vaxið árlega um 3,8% milli áranna 1975 og 2010 en verg landsframleiðsla hefur vaxið um 3% á sama tímabili. Í ljósi alls þessa verður afar fróðlegt að sjá hver þróun umferðar verður á þessu ári. Mikil fylgni með akstri og hagvexti - 96 prósent fylgni frá árinu 1975 og verulegur samdráttur í kreppunni Eins og Yaris? Sóði á afturendann. Óska eftir að kaupa allar tegundir dráttarvéla, diesel lyftara og jarðtætara af öllum stærðum. Uppl. í síma 866-0471 traktor408@gmail.com

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.