Bændablaðið - 02.02.2012, Blaðsíða 33

Bændablaðið - 02.02.2012, Blaðsíða 33
33Bændablaðið | fimmtudagur 2. febrúar 2012 Nýlega fæddist sjö milljarðasti jarðarbúinn og mannkynið er komið í ógöngur með fæðuöflun fyrir allan þennan mannfjölda. Vatn er ein verðmætasta afurð heimsins, og af því eigum við Íslendingar nóg. Ef við skoðum vatn sem útgjaldalið við framleiðslu matvæla þá bregður okkur hressi- lega í brún, og við verðum að spyrja okkur þeirrar spurningar hvort að sanngjarnt sé að við tökum til okkar svo mikið af vatnsforða heimsins í gegnum innflutt matvæli eins og við gerum í dag? Við verðum að átta okkur á því að vegna kaupgetu okkar ríku þjóðanna af erlendum matvæl- um líða þeir sem eru fátækir. Við vitum að auðhringir einoka vatns- lindir í mörgum löndum með þeim afleiðingum að íbúar þar geta ekki ræktað matvæli fyrir sig og sína. Siðferðisvitund neytenda Hvaða rétt höfum við Vesturlandabúar til þess að nýta matvæli sem ræktuð eru í vanþróuðum ríkjum? Hvernig getum við réttlætt það að fátækir bændur séu sviptir aðgengi að vatni vegna þess að vatnið þeirra þarf að nota í ræktun á matvælum fyrir þá neytendur sem mesta hafa peningana? Styrjaldir eru háðar vegna aðgengis að vatni. Við sjáum milljónir manna svelta vegna þess að fólk fær ekki aðgengi að vatni til akuryrkju eða kjötframleiðslu og við Íslendingar erum ekki saklaus, nei, öðru nær; okkur er nokk sama hvaðan ávextir og grænmeti koma sem boðið er til sölu í matvöruversl- unum, hvort sem það er niðursoðið, fryst eða ferskt, eða hvort að varan er ræktuð eða unnin í þrælahaldi. Krafa íslenskra neytenda er eingöngu sú að þeir geti fengið vöruna sem allra ódýrast. Jafnvel eru uppi raddir tals- manna neytenda sem heimta að meira sé flutt inn til landsins af kjöti, þrátt fyrir að með þessum kjötinnflutningi séum við að taka til okkar vatn sem öðrum jarðabúum ber réttur til. Við framleiðslu á einu kílói af nautakjöti sem alið er á korni þarf að nota hvorki meira né minna en 15.500 lítra af vatni. Hvernig getum við réttlætt inn- flutning á kjöti þegar við búum við slík gæði eins og íslenska lamba- og nautakjötið? Væri okkur ekki nær að framleiða allt okkar kjöt, og rækta sjálf allt það korn sem þarf í fóður til eldis á fugla- og svínakjöti? Norræn velferð Í kjölfar efnahagshrunsins fordæmir þjóðin græðgi og kallar eftir betra sið- ferði. Til þess að verða við því er ekki nóg að koma lögum yfir gjörspillta útrásarvíkinga, við almenningur verðum að taka okkur á og taka tillit til þeirra jarðarbúa sem lifa við hvað bágastar aðstæður. Ísland byggðist upp á kristnu siðferði, og núna við endurreisn Íslands höfum við tækifæri til þess að vera þjóð í samfélagi þjóða sem byggir á þeim náungakærleika, mannúð og umhyggju fyrir öldruðum, fátækum og sjúkum sem Kristur boðaði og lögð var sem grunnur þess norræna velferðarsamfélags sem við viljum endurheimta og standa vörð um. Ylrækt í þéttbýli Við Íslendingar búum svo vel að nátt- úruauðlindum og umhverfisvænni raforku að okkur ætti að veitast auðvelt að framleiða allan okkar mat sjálf, með því að veita landsmönnum aðstöðu til ræktunar á ávöxtum og grænmeti í gróðurhúsum sem reist yrðu í þéttbýli og almenningi leigð ræktunarrými í þeim. Með því að gefa almenningi möguleika til eigin matvælarækt- unar ættu einnig að skapast tækifæri til nýrra sprotafyrirtækja er fólk fer að selja umframframleiðslu sína. Á Íslandi höfum við séð bændamarkaði á sumrin þar sem fólk er að selja alls- kyns afurðir, bæði ferskar og unnar, úr íslenskri ræktun. Ýmsir vaxtar- broddar gætu þrifist sem afleiðing af gróðurhúsaræktuninni, t.d. full- vinnsla á afurðunum eins og niður- suða, frysting, pökkun, vínbrugg- hús og kryddþurrkun svo fátt eitt sé nefnt. Hæfileikaríkt viðskipta- og kaupsýslufólk myndi án efa finna sér farveg í þessu umhverfi og vonandi gætum við Íslendingar lagt ríkulega fram meiri fæðu til útflutnings í matarbúr jarðarbúa. Tækifærin til nýsköpunar og stofn- unar smáfyrirtækja eru óþrjótandi án þess að stofnkostnaður þurfi að vera svo hár, t.d. má hæglega leigja út skólaeldhúsin á kvöldin og um helgar til þess að fólk geti þar fram- leitt úr sínum afurðum í viðurkenndu eldhúsi, t.d. pasta og salsasósur fyrir markaðinn. Gæðavín framleidd á Íslandi Lítri af léttvíni kostar um 1000 lítra af vatni í framleiðslu, vel má rækta vínber í gróðurhúsum/ylgörðum, og það er reyndar mjög spennandi við- fangsefni þar sem hægt er að velja vínvið frá bestu svæðum heimsins og skapa honum þann jarðveg, lýs- ingu og vökvun sem hann þrífst best í til þess að vínið nái sem bestum gæðum. Það væri skemmtilegt fyrir íslensk veitingahús að geta boðið viðskiptavinum sínum að velja af vínseðli vín úr Efra-Breiðholti, Seltjarnarnesi, Þingeyjarsýslu og Með því að gefa almenningi kost á ræktun í gróðurhúsum sem reist yrðu í þéttbýli gæti einnig myndast hvati hjá almenningi til moltugerðar úr lífræn- um úrgangi, sem ætti þá að minnka kostnað sveitarfélaga við sorpvinnslu. Eggjaskurn og bananahýði yrðu ekki lengur sorp heldur dýrmætt hráefni til moltugerðar fyrir ræktun á grænmeti og ávöxtum. Ræktun í gróðurhúsum hefur auk þess marga kosti fram yfir hefð- bundna ræktun: Algjörlega má stýra vökvun, hita og lýsingu og tryggja þar með hámarksuppskeru. Ræktunin getur verið algjörlega eiturefnalaus. Lífræn ræktun er auðveldari í gróðurhúsum heldur en á ökrum. Allflestar ávaxta- og grænmetis- tegundir er hægt að rækta í gróður- húsum. Tryggjum fæðuöryggi þjóðarinnar Af þessari nýsköpun yrðu jákvæð áhrif á íslenskt þjóðfélag, þar sem verðmætasköpun og atvinnuþátttaka myndu aukast og þar af leiðandi mynda nýja skattstofna og auka tekjur ríkisins. Minna yrði flutt inn af mat- vælum, sem hefði þá jákvæð áhrif á vöruskiptajöfnuð. Einnig myndum við efla fæðuöryggi þjóðarinnar með umhverfisvænum hætti, en jákvæð umhverfisáhrif yrðu talsverð þar sem draga myndi úr innflutningi með skipum og flugi, sem krefjast olíu og valda talsverðri losun á mengandi efnum. Einnig má geta þess að gróð- urhúsaræktun krefst koltvísýrings, svo að þar náum við að binda hluta af okkar koltvísýringi sem verður til hérlendis í stað þess að losa hann í umhverfið. Fjárfesting í þessari atvinnugrein er öruggari heldur en í stóriðju, þar sem núna ríkir heimskreppa og vafa- mál er hversu mikil eftirspurn verður eftir áli og slíku í nánustu framtíð. Mjög líklega mun heimskreppan hafa þau áhrif að draga mun úr iðnaði á heimsmælikvarða en fólk þarf alltaf að borða, og með vitundarvakningu á ábyrgð okkar sem heimsborgarar, í heimi þar sem aðgengi að vatni er víða lítið, má vonast eftir því að við tökum þetta með íslenskum stæl og enginn verði hér maður með mönnum nema að hann geti rakið og ábyrgst alla sína fæðuneyslu. Eignarhald og rekstrarfyrirkomulag Eignarhald á gróðurhúsunum og rekstri þeirra getur verið með ýmsum hætti, líklega kæmi vel út fyrir þau að semja sem einn aðili um kaup á raforku til þess að tryggja að almenn- ingur gæti leigt sér ræktunarrými á viðráðanlegu verði sem næst heimili sínu. Tryggja yrði að almenningur hefði forgang að notkun gróður- húsa sem reist yrðu í íbúabyggð, og upplagt væri að íbúar nýttu sér félagsmiðstöðvar og safnaðarheimili í sínum hverfum til fræðslu, spjalls og ráðagerða varðandi ræktunina. Best væri að halda veglega hönn- unarsamkeppni um þessi verkefni þar sem einstakar aðstæður okkar hérlendis; jarðhiti, raforka og gnægð vatns til viðbótar við nýjustu þekk- ingu og tækni, bjóða upp á nýja nálgun að byggingu og rekstri gróðurhúsa og ylgarða. Guðrún Sæmundsdóttir Höfundur er með bloggsíðuna alit.blog.is Breytum vatni í vín Frá því að ný reglugerð um dýralæknaþjónustu tók gildi hefur víða á landinu verið hávær umræða um að búfjáreigendur fái ekki viðunandi þjónustu á meðan eftirlitið er stóraukið og jafnvel meiri þungi settur í eftirlitshlutann en þjónustu við dýraeigendur. Ástæða er til að hafa áhyggjur af bæði velferð dýra í dreifbýli og álagi sem þessi óvissa skapar bændum. Vaktsvæði eru í mörgum tilfellum svo stór og erfið yfir- ferðar að ekki er einum dýralækni mögulegt að sinna þeim eins og gert er ráð fyrir í reglugerðinni. Sem dæmi má nefna að á þjónustusvæði sex gæti vakt- hafandi dýralæknir þurft að fara frá Vopnafirði á Norðfjörð yfir þrjá fjallvegi, sem oft eru erfiðir yfirferðar, eða dýralæknir sem staðsettur er á Héraði þurft að fara í vitjun bæði á Vopnafjörð og Seyðisfjörð eða Borgarfjörð sama dag. Þessi staða er uppi víðar á landinu og getur ekki talist ásættanleg, hvorki fyrir bóndann né dýralækninn. Ríkisvaldið tók að sér að tryggja nauðsynlega, almenna dýralæknaþjónustu til að tryggja dýravelferð í landinu. Þar hefur verið skorið niður, ekki eru alls staðar sólarhringsvaktir heldur einungis bakvakt og hefur verið mjög erfitt að nálgast þau númer sem hringja á í, en auðvelt ætti að vera að lagfæra það ef vilji er fyrir hendi. Svæðunum hefur einnig verið fækkað. Þau eru orðin það stór að dýralæknar sem voru starf- andi á sumum svæðunum treystu sér hreinlega ekki til að standa þessar vaktir né taka þjónustuna að sér. Þá voru kröfurnar sem settar voru í þjónustusamningunum þannig að miklar skyldur voru settar á dýralæknana og kusu því sumir að skrifa ekki undir. Ljóst má vera að erfitt er að reka dýralæknisþjónustu á dreif- býlustu svæðunum á markaðsleg- um forsendum, en reyna verður að tryggja manneskjulegra umhverfi fyrir þá sem þarna vinna þannig að mögulegt sé fyrir dýralækna að koma til starfa á þessum dreifbýlli svæðum. Tryggja þarf þjónustuna og skapa bændum á þessum svæðum öryggi í starfi, því fátt er eins slítandi og að vera með mikið veika skepnu og ná ekki í dýralækni eða vita að það tekur hann langan tíma að komast á svæðið. Hvorki ráðuneytið né Matvælastofnun virðast hafa getað tekið á vandamálinu og þessar stofnanir vísa hvor á aðra þegar bændur og dýraeigendur hafa haft samband við þær. Þetta er nokkuð sem verður að laga. Því hlýtur það að vera krafa bænda og dýraeigenda að Matvælastofnun, sem á að fara með þessi mál, taki til endur- skoðunar dýralæknaþjónustu í dreifbýli og reyni að lagfæra þá annmarka sem komið hafa fram eftir að ný reglugerð kom til framkvæmda þann 1. nóvember síðastliðinn. Og einnig að nú þegar verði tryggð dýralæknaþjónusta á þeim svæðum þar sem enginn dýralæknir sótti um og ekki hafa náðst samningar. Til umhugsunar: Það mætti skoða þann möguleika að bændur geri samning við sinn dýralækni um að hafa neyðarlager af lyfjum við hendina, sem þeir geti gripið til fyrir gripi sem þurfa bráða- meðferð, að höfðu samráði við dýralækni sem myndi þá skrá lyfjagjöfina á viðkomandi grip. Og að lokum vil ég óska lands- mönnum öllum gleðilegs árs og friðar. Jóhann Gísli Jóhannsson, Breiðavaði Af dýralæknaþjónustu á þorra Samgönguáætlun fyrir árin 2011 til 2022 er nú í vinnslu hjá Alþingi. Nái áætlunin óbreytt fram að ganga munum við ekki sjá neinar samgöngufram- kvæmdir á stórum landsvæðum allt til ársins 2022 og viðhalds- fjármunir verða einnig af mjög skornum skammti. Engar framkvæmdir á stórum landsvæðum til ársins 2022! Mörg landsvæði hafa glímt við mikla fólksfækkun á undanförn- um árum. Bættar samgöngur eru grunnurinn að því að efla byggð um allt land og margir horfðu til samgönguáætlunar í þeirri von að nú færi daginn að lengja. Áætlunin sýnir því miður hið gagnstæða og dregur ekki upp bjarta mynd af næsta áratug. Stór landsvæði munu að óbreyttu búa við ónýta malarvegi næstu 10-15 árin en í mörgum héruðum er ekki gert ráð fyrir neinum framkvæmdum til ársins 2022. Þeir sem til þekkja fullyrða að gert sé ráð fyrir of litlu fjármagni til viðhalds, sérstaklega á seinni hluta áætlunarinnar. Viðhaldi hefur verið ábótavant á síðustu árum og þeim vegaköflum sem þarfnast viðhalds fer fjölgandi. Samhliða því sem vegakerfið eldist er gert ráð fyrir vaxandi umferð, fjölgun ferða- manna og auknum þungaflutning- um. Þetta þýðir að gera verður ráð fyrir meira fjármagni til viðhalds heldur en gert er í áætluninni. Þrátt fyrir að 3 ár séu liðin frá efnahagshruni virðast enginn jákvæð teikn vera á lofti í samgöngu- málum. Í því ljósi má fastlega gera ráð fyrir að ekki dragi úr uppsögnum og fjárhags- vandræðum hjá verktaka- fyrirtækjum enda lítið að gerast í öðrum mannaflsfrekum fram- kvæmdum. Það er samfélagslega dýrt að tapa einstaklingum úr landi en þeir sem missa vinnuna eiga helst von um vinnu í Noregi. Samhliða eru vinnuvélar fluttar út á gjafverði en það verður dýrt að endurnýja þessi tæki á nýjan leik. Þessar staðreyndir hefur ríkis- stjórnin ekki tekið inn í myndina þegar ákvarðanir um fjárveitingar til samgöngumála voru teknar. Má ekki samþykkjast óbreytt! Stefna ríkisstjórnar birtist í þeim málum sem hún leggur fram. Við fyrstu umræðu málsins kom fram vilji hjá nefndarmönnum innan ríkisstjórnarliðsins til að gera breytingar á samgönguáætlun áður en hún verður samþykkt. Ég bind vonir við að þau orð standi, því að algjört framkvæmdaleysi á stórum landsvæðum til ársins 2022 væri reiðarslag sem ynni þvert gegn þeirri stefnu að efla byggð um land allt. Ásmundur Einar Daðason alþingismaður og fulltrúi Framsóknarflokksins í samgöngunefnd. Samgönguáætlun – sorgleg framtíðarsýn! Ásmundur Einar Daðason

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.