Fréttablaðið - 24.01.2012, Síða 4

Fréttablaðið - 24.01.2012, Síða 4
24. janúar 2012 ÞRIÐJUDAGUR4 SÝRLAND, AP Stjórnvöld í Sýrlandi höfnuðu í gær hugmyndum Arababandalagsins um að koma á friði í landinu. Þær fólu meðal annars í sér að Bashar a-Assad forseti færi frá völdum, þjóð- stjórn yrði mynduð innan tveggja mánaða og lýðræðislegar kosningar færu fram undir alþjóðlegu eftirliti. Assad hefur neitað að taka ábyrgð á ofbeldinu sem hefur geisað í landinu í tæpt ár og kostað á sjötta þúsund manna lífið. Þess í stað kenn- ir hann hryðjuverkamönnum og útsendurum erlendra samsærismanna um ástandið. Tillög- urnar eru að mati stjórnvalda óumbeðin erlend afskipti af innanríkismálum Sýrlands og skýrt brot á fullveldi landsins. Evrópusambandið lýsti í gær yfir stuðningi við áætlun Arababandalagsins og herti enn frek- ar refsiaðgerðir sínar gegn stjórnvöldum í Sýr- landi. Samkvæmt þeim eru eignir 22ja einstak- linga, tengdum stjórnvöldum, frystar og bætast við hóp um 100 manna sem eins er ástatt um. Arababandalagið hefur verið við eftirlit í landinu í einn mánuð og framlengdi dvöl sína um mánuð í viðbót í gær. Andófshópar í Sýrlandi eru ósáttir við tillögur Arababandalagsins sem þeim finnst ganga of skammt. Allt annað en tafarlaus afsögn Assads muni aðeins gefa stjórnvöldum meiri tíma til að berja niður andóf í landinu. Sýrlensk stjórnvöld eru þó ekki alein á báti því að fregnir bárust af því í gær að Rússar hefðu ákveðið að selja þeim 36 orrustuþotur. - þj Sýrlensk stjórnvöld sitja enn sem fastast við völd þrátt fyrir síaukinn alþjóðlegan þrýsting: Hafna hugmyndum Arababandalagsins ÓRÓI MAGNAST Tugir þúsunda manna og kvenna hafa mótmælt ofríki Bashars al-Assad forseta á götum Sýrlands síðasta árið. Arababandalagið hefur reynt að stilla til friðar, en án árangurs. FRÉTTABLAÐIÐ/AP REYKJAVÍK Tæplega 190 hug- myndir um bætt hverfi í Reykjavík hafa verið skráðar frá íbúum inn á samráðsvef Betrireykjavik.is, Betri hverfi. Fresturinn rann út á miðnætti í gær. Í tilkynningu segir að þær hugmyndir sem fái mestan stuðning verða metnar af starfsfólki á fagsviðum borg- arinnar. Hverfaráð Reykjavík- ur munu síðan velja allt að 26 verkefni fyrir hvert hverfi, sem íbúar munu greiða atkvæði um í rafrænum kosningum í mars. - sv 190 hugmyndir um hverfin: Fjölmargir vilja bæta hverfin GENGIÐ 23.01.2012 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 220,624 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 123,46 124,04 192,23 193,17 160,00 160,90 21,517 21,643 20,834 20,956 18,195 18,301 1,6041 1,6135 189,83 190,97 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Brynja Gunnarsdóttir brynjag@365.is, Snorri Snorrason snorris@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Benedikt Jónsson benediktj@365.is, Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Ívar Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512- 5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is LEIÐRÉTT Herbergjum á Hótel HaPPi, sem fjallað er um í grein í Allt í gær, mun fjölga úr 22 í 42 eftir breytingar. Bílabúð Benna - Vagnhöfða 23 - 590 2000 - benni@benni.is - www.benni.is Nesdekk - Fiskislóð - sími 561 4110 / Nesdekk - Reykjanesbæ - sími 420 3333 NJARÐARBRAUT 9 - REYK JAN ES BÆ FIS KIS LÓÐ 3 - REYKJAVÍK ÍTALÍA, AP Talið er að laumufar- þegar hafi verið um borð í ítalska skemmtiferðaskipinu Costa Concordia, sem strandaði við strendur Toscana-héraðs á Ítalíu 13. janúar. Því má gera ráð fyrir að tala týndra sé hærri en greint var frá í fyrstu. Kafarar hafa fundið lík þriggja kvenna í skipinu síðustu tvo daga og fór þá tala látinna í fimmtán. Ein konan var þó hvorki skráður farþegi né starfsmaður á skipinu. Opinber tala þeirra sem saknað er er komin niður í nítján sam- kvæmt nýjustu talningu. - sv Laumufarþegar í skipinu: Fimmtán hafa fundist látnir VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 17° 6° 2° 1° 5° -1° -1° -1° 19° 9° 18° 9° 26° -13° 7° 14° -3° Á MORGUN 3-8 m/s. FIMMTUDAGUR 10-18 m/s. 0 -2 -2 0 -4 -4 2 4 1 0 0 7 9 7 8 16 7 4 7 5 12 8 -6 -4 -4 -6 -2 -4 -4 -4 -6 -3 SLÆM FÆRÐ Vindur gengur að mestu niður um sunnan- og vestan- vert landið núna fyrir hádegi en stíf austanátt fram eftir degi og sam- felld snjókoma um tíma norðan til á landinu. Dregur úr éljum á morgun. Elísabet Margeirsdóttir veður- fréttamaður FANGELSISMÁL Hlutfall erlendra fanga sem búsettir eru hér á landi hefur aukist mikið síðan árið 2000. Í dag býr um helmingur fanga hér, en árið 2000 sátu sjö erlendir ein- staklingar í fangelsi á Íslandi og af þeim var einung- is einn búsettur hér. Margrét Frí- mannsdóttir, forstöðumaður á Litla-Hrauni, segir megin- muninn á þeim erlendu föngum sem búa hér og erlendis vera heimsóknir fjöl- skyldu og vina. Þeir sem ekki búi hér fái engar heimsóknir. „Þeir sem eru búsettir á land- inu reyna að gera sig skiljan- lega. Ef þeir tala ekki íslensku þá reyna þeir við enskuna. Þeir sem búa í útlöndum eru ekki mikið að reyna það,“ segir Margrét og bætir við að þó fang- arnir tali hvorki íslensku né ensku, einangrist þeir þó ekki félagslega. Mennirnir haldi mikið hópinn eftir þjóðernum og sækist eðlilega í það að hittast úti við. Þá ganga sam- skiptin yfirleitt vel við íslensku fangana inni á deildunum. Flestir erlendir ríkisborgarar sem sitja hér í fangelsum gera það vegna auðgunarbrota. Næstalgeng- ustu brotin eru tengd fíkniefnum. Í október á þessu ári voru um 20 erlendir fangar í íslenskum fangels- um, sem gerir um 15 prósent fanga- fjöldans. Helgi Gunnlaugsson, afbrota- fræðingur við Háskóla Íslands, segir málið snúa að því hvernig ein- staklingar tengist samfélaginu og nærhópum sínum. „Ef tengslin eru traust eru minni líkur á afbrotum, en ef þau eru laus- beisluð og veik aukast líkurnar,“ segir hann. Vegna tilfinningalegra tengsla við aðra vilji fólk ekki valda öðrum vonbrigðum með afbrotum og ekki gera öðrum þann óleik að valda því tjóni. Því megi líta á mik- inn félagsauð í samfélaginu sem nokkurs konar tryggingafélag sam- félagsins gegn afbrotum. „Með því er einnig hægt að sýna fram á að við ættum að efla félags- auð fólks og styrkja tengslin hvert við annað, ekki síst þá sem eru af erlendum uppruna,“ segir Helgi. „Það er besta forvörnin gegn afbrot- um.“ RÚV greindi frá því í desember að utanríkisráðuneytinu sé kunnugt um sextán Íslendinga sem sitja nú í fangelsum erlendis. Dómarnir sem þeir eru með á bakinu eru allt að 20 ára langir. sunna@frettabladid.is Helmingur erlendra fanga búsettur hér Um helmingur erlendra fanga í íslenskum fangelsum er búsettur hér. Fyrir tólf árum bjó aðeins einn erlendur fangi á landinu. Forstöðumaður Litla-Hrauns segir félagsleg samskipti þeirra ganga vel. Sextán Íslendingar eru fangar erlendis. Hugmyndasamkeppni um hönnun á svæði sem umlykur Norræna húsið er opin landslagsarkitektum og öðrum fagaðilum og hönnuðum sem skráðir eru í fagfélög innan Hönnunarmið- stöðvar Íslands auk sambærilegra fagaðila á Norðurlöndum. Ekki einungis landslagsarkitektum, eins og sagði í blaðinu í gær. MARGRÉT FRÍMANNSDÓTTIR HELGI GUNNLAUGSSON Ef tengslin eru traust eru minni líkur á afbrotum, en ef þau eru lausbeisluð og veik aukast líkurnar. HELGI GUNNLAUGSSON AFBROTAFRÆÐINGUR Kaupmáttur hefur hækkað Kaupmáttur launa hefur aukist um 3,7 prósent síðustu tólf mánuði, að því er fram kemur hjá Hagstofu Íslands. Kaupmáttur launa í desemb- er hækkaði um 0,1 prósent frá fyrra mánuði. EFNAHAGSMÁL DÓMSTÓLAR 54 ára gömul kona var í Héraðsdómi Reykjaness í gær dæmd í þriggja mánaða skilorðs- bundið fangelsi fyrir fjárdrátt. Konan sveik árið 2009 út vörur og þjónustu hjá fjölda fyrir- tækja á höfuðborgarsvæðinu fyrir rúmar 445 þúsund krónur og lét gjaldfæra án heimildar á tvö greiðslukort í annarra eigu. Meðal sönnunargagna var mynd- bandsupptaka af konunni í verslun 10-11 í Glæsibæ. Þar sagði konan kominn tvífara sinn. Hún játaði þó brot sín að hluta. Auk fangelsis- dóms þarf konan að greiða bætur og sakarkostnað. - óká Kona dæmd fyrir fjársvik: Taldi konu á upptöku tvífara VIÐ STRÖND TOSCANA Skemmtiferða- skipið Costa Concordia strandaði þann 13. janúar. NORDICPHOTOS/AFP Útlendingar í fangelsum á Íslandi 7 6 17 21 25 33 33 20 20 44 46 33 40 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 21 25 31 38 37 35 35 64 67 62 71 20 31 1515 2945 6 4 4 21 70 60 50 40 30 20 10 0 HEIMILD: FANGELSISMÁLASTOFNUN Búsettir á Íslandi Búsettir erlendis

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.