Fréttablaðið - 24.01.2012, Qupperneq 6
24. janúar 2012 ÞRIÐJUDAGUR6
EVRÓPUSAMBANDIÐ Utanríkisráð-
herrar Evrópusambandsríkjanna
samþykktu í gær að öll olíuvið-
skipti við Íran verði bönnuð. Jafn-
framt verða eignir íranska seðla-
bankans í aðildarríkjum ESB
frystar.
Þetta er gert til að þrýsta á
írönsk stjórnvöld um að hefja aftur
viðræður um kjarnorkuáform sín.
Sjálfir segjast Íranar eingöngu
ætla að nota kjarnorkuna til að
uppfylla orkuþarfir landsins, en
stjórnvöld í Bandaríkjunum, Ísrael
og fleiri löndum telja sig hafa rök-
studdan grun um að þeir stefni á
að koma sér upp kjarnorkuvopn-
um.
Utanríkisráðherrar Evrópu-
sambandsins vísa í nýlega skýrslu
frá Alþjóðlega kjarnorkueftirlit-
inu, þar sem segir að Íranar hafi
neitað að standa við alþjóðlegar
skuldbindingar sínar og leyfa ekki
fullan aðgang alþjóðlegra eftirlits-
manna.
Íranar framleiða um það bil
fjórar milljónir olíutunna á dag
og hafa selt um fimmtung þeirra
til Evrópusambandsríkjanna. Olíu-
kaupin frá Íran nema þó ekki nema
sex prósentum af heildarolíukaup-
um Evrópusambandsríkjanna.
Tveir íranskir þingmenn brugð-
ust við tíðindunum í gær með því
að rifja upp hótanir um að loka
Hormússundi, sem er þröngt sund
milli Írans og Arabíuskaga. Sigla
þarf um Hormússund til að kom-
ast inn á Persaflóa, og um sundið
er fluttur um fimmtungur af allri
þeirri olíu sem seld er á heims-
markaði.
Utanríkisráðherrar Evrópu-
sambandsins ætla að endurskoða
ákvörðun sína í vor, meðal ann-
ars með tilliti til þess hvaða áhrif
viðskiptabannið getur haft á
Evrópuríki, og þá ekki síst Grikk-
land, sem á í miklum efnahags-
örðugleikum og treystir mjög á
að fá ódýra olíu keypta frá Íran.
Um fjórðungur af þeirri olíu sem
Grikkir kaupa kemur frá Íran.
Olíuverð hefur hækkað nokkuð
vegna þeirrar spennu sem refsiað-
gerðir ESB hafa aukið enn frekar.
Íranska fréttastofan IRNA hefur
það eftir embættismanni í íranska
utanríkisráðuneytinu að refsiað-
gerðirnar muni bitna mest á Evr-
ópusambandsríkjunum sjálfum.
Þá sagði Sergei Lavrov, utanrík-
isráðherra Rússlands, að refsiað-
gerðir Evrópusambandsins myndu
ekki liðka fyrir lausn málsins.
Þess í stað hvatti hann til þess að
viðræður hæfust að nýju.
gudsteinn@frettabladid.is
Evrópusambandið
í hart gegn Írönum
Evrópusambandið hefur samþykkt refsiaðgerðir gegn Írönum í tengslum við
deilur um kjarnorkuáform þeirra. Íranskir þingmenn ítreka í staðinn hótanir
um að loka Hormússundi og þar með allri umferð olíuskipa til og frá Persaflóa.
FÓTBOLTI
FYRIR ALLA
Fótbolti fyrir alla er að hefja göngu sína aftur.
Nýtt námskeið hefst sunnudaginn 29. janúar
og stendur yfir í sjö vikur, til 11. mars.
Við hittumst alla sunnudaga milli kl. 11.30 og 12.30
í íþróttamiðstöðinni Ásgarði í Garðabæ. Íslands-
meistararnir Ásgerður og Gunnhildur Yrsa þjálfa.
Námskeiðið kostar aðeins 3.000 kr. Við bjóðum öll
börn velkomin og vonumst til að sjá sem flesta.
Skráning á tölvupóstföngum yr@lsh.is og
gunnhildurj09@ru.is.
Á MARKAÐI Í TEHERAN Íranar hafa til þessa selt um fimmtung olíu sinnar til Evrópusambandsríkjanna, en þurfa nú að finna aðra
kaupendur. NORDICPHOTOS/AFP
Fylgist þú með EM í handbolta
í ár?
JÁ 75%
NEI 25%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Á að leysa upp þing og boða til
kosninga í vor?
Segðu þína skoðun á visir.is.
EGYPTALAND Flokkar íslamista
fengu rúmlega sjötíu prósent þing-
sæta í neðri deild egypska þings-
ins, sem kom fyrst saman í gær
eftir kosningarnar í vetur.
Tæplega helmingur atkvæða
kom í hlut Frelsis- og réttlætis-
flokksins, sem er flokkur á vegum
Bræðralags múslima, öflugra
samtaka trúaðra múslima. Sá
flokkur hefur heitið því að virða
mannréttindi og lýðræði, en annar
flokkur íslamista, Nour-flokk-
urinn sem fylgir mun harðari
strangtrúarstefnu, er með fimmt-
ung þingsætanna. Þetta voru
fyrstu þingkosningarnar í landinu
eftir að Hosni Mubarak hrökklað-
ist úr forsetaembætti snemma á
síðasta ári. Fyrir utan þinghúsið
voru í gær komnir saman allmarg-
ir mótmælendur, sem telja það
óviðunandi niðurstöðu að íslam-
istar hafi fengið yfirburðastöðu á
nýja þinginu.
Mannréttindasamtökin Human
Rights Watch hvetja hins vegar
Vesturlönd til þess að virða þessa
niðurstöðu nýtilkomins lýðræðis í
Egyptalandi. Kenneth Roth, fram-
kvæmdastjóri samtakanna, segir
að flokkar íslamista njóti mik-
illa vinsælda í arabaheiminum
og því rangt að úthýsa réttkjörn-
um stjórnvöldum slíkra flokka úr
alþjóðasamfélaginu.
Á hinn bóginn hvatti hann
einnig nýja þingið í Egyptalandi
til að virða réttindi bæði kvenna
og trúarlegra minnihlutahópa.
Á næstu vikum verða haldnar
kosningar til efri deildar þingsins.
Að því búnu verður hafist handa
við að semja nýja stjórnarskrá. - gb
Nýkjörið þing kom saman í fyrsta sinn í Kaíró í gær, tæpu ári eftir að Mubarak hrökklaðst frá völdum:
Íslamistar ráða för á nýkjörnu þingi
EGYPSKA ÞINGIÐ Fáar konur eiga sæti á
nýkjörnu þingi í Egyptalandi.
NORDICPHOTOS/AFP
SVEITARSTJÓRN Sóknarnefnd Stórólfshvols-
kirkju vill að Rangárþing eystra komi að
byggingu nýrrar kirkju og samnýtingu
húsnæðis og starfsmanns.
„Jöfnunarsjóður kirkna hefur heitið 95
milljónum varðandi hugsanlega kirkju-
byggingu á Hvolsvelli og það er spurning
hvernig sveitarfélagið kemur að þeirri
byggingu. Fyrst og fremst leggjum við til
lóð og bílastæði og svo er hugsanleg sam-
nýting á félagsheimilinu Hvoli,“ segir Ísólf-
ur Gylfi Pálmason sveitarstjóri.
„Hugmyndirnar eru ómótaðar og í
algjörum frumdrögum en þetta er spurn-
ing um ákveðna samvinnu í framtíðinni
milli samkomuhússins og kirkjunnar og
jafnvel hvort hægt er að hafa sameiginleg-
an húsvörð,“ segir Ísólfur Gylfi sem kveður
þörf á höfuðkirkju í Rangárvallasýslu.
„Í Árnessýslu er Skálholt til dæmis
höfuðkirkja uppsveitanna. Hér
eru margar litlar kirkjur en
það vantar í raun eina höfuð-
kirkju fyrir stærri athafnir.
Hugmyndin er sú að þetta verði
nokkurs konar menningarmið-
stöð“ segir sveitarstjórinn sem
telur framkvæmdir geta hafist
á árinu 2013 ef allt gangi að
óskum. - gar
ÍSÓLFUR GYLFI PÁLMA-
SON Sveitarstjórinn í
Rangárþingi eystra
segir vanta höfuðkirkju
fyrir stærri athafnir
í Rangárvallasýslu.
FRÉTTABLAÐIÐ/JÓN SIGURÐUR
Sveitarstjórn og sóknarnefnd í samstarf vegna nýrrar kirkjubyggingar á Hvolsvelli:
Vantar höfuðkirkju segir sveitarstjóri
KÖNNUN Nærri tveir þriðju hlutar
landsmanna segja áramóta skaupið
hafa verið gott samkvæmt niður-
stöðum skoðanakönnunar MMR.
Alls sögðu 64,8 prósent skaup-
ið gott, en 17,2 prósent töldu það
slakt. Um 18 prósent töldu það
hvorki gott né slakt.
Hrifningin með skaupið var
minnst meðal stuðningsmanna
Sjálfstæðisflokksins, en for-
ysta flokksins fékk það óþvegið
í skaupinu. Aðeins 50,3 prósent
stuðningsmanna flokksins sögðu
skaupið gott, samanborið við á
bilinu 75 til 77 prósent stuðnings-
manna Samfylkingarinnar og
Vinstri græns. - bj
Margir ánægðir með skaupið:
Stuðningsmenn
Sjálfstæðis-
flokks síst sáttir
Tryggingastofnun talin best:
Bestu opinberu
vefirnir valdir
STJÓRNSÝSLA Vefsíður opinberra
stofnana hafa batnað talsvert frá
árinu 2009. Þetta hefur úttekt
sem Deloitte vann fyrir innan-
ríkisráðuneytið leitt í ljós. Höfðu
opinberu vefsíðurnar bætt sig í
öllum þáttum frá síðustu úttekt
nema þjónustu.
Þá voru bestu vefsíðurnar
verðlaunaðar en vefur Trygg-
ingastofnunar var valinn besti
ríkisvefurinn og vefur Akureyr-
arbæjar besti vefur sveitarfélags.
Alls voru 267 vefsíður ríkis-
stofnana, ráðuneyta og sveitar-
félaga skoðaðar. Voru gæði
þeirra metin með samanburði
við kröfur Vefhandbókar ríkisins
um aðgengi, nytsemi, innhald og
þjónustu. - mþl
AKUREYRI Akureyrarbær hlaut á
dögunum verðlaun fyrir bestu vefsíðu
sveitarfélags. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Borgar sekt og missir próf
Átján ára maður hefur verið dæmdur
í 30 daga skilorðsbundið fangelsi og
til að greiða 185 þúsund króna sekt.
Þá var hann sviptur ökuréttindum.
Dóminn hlaut hann fyrir að hafa á
síðasta ári stolið 22 þúsund krónum
og ekið undir áhrifum fíkniefna.
Hann var einnig með kannabisefni
á sér þegar lögreglan stöðvaði hann.
Dómara þótti rétt, í ljósi bættrar
hegðunar mannsins og ungs aldurs,
að skilorðsbinda fangelsisdóminn.
DÓMSMÁL
KJÖRKASSINN