Fréttablaðið - 24.01.2012, Síða 10

Fréttablaðið - 24.01.2012, Síða 10
24. janúar 2012 ÞRIÐJUDAGUR10 EFNAHAGSMÁL Alls 45 fyrirtæki hafa fengið skuldir niðurfelldar fyrir milljarð króna eða meira í tengslum við fjárhagslega endur- skipulagningu. Níu fyrirtæki hafa að auki fengið felldar niður skuldir fyrir milljarð eða meira, eða svo háum skuldum breytt í hlutafé, í tengslum við nauðasamninga. Alls hafa því 54 fyrirtæki fengið skuldir felldar niður fyrir milljarð eða meira. Þetta kemur fram í tölum sem eftirlitsnefnd um framkvæmd sértækrar skuldaaðlögunar hefur gert aðgengilegar á vefsíðu efnahags- og viðskiptaráðuneytisins. Tölurnar miðast við tímabilið til 30. september 2011. Flest fyrirtækjanna 45 eru verslunar- og þjónustufyrirtæki eða 16 talsins. Þá eru á list- anum átta fasteignafélög og átta fjárfesting- ar- og eignarhaldsfélög. Heildarskuldir fyrirtækjanna 45 við við- komandi fjármálafyrirtæki voru rúmlega 482 milljarðar króna. Hafa 69 prósent skuldanna verið felld niður, eða 331 milljarður. Þá hefur skuldum að fjárhæð 29,6 milljarðar verið breytt í hlutafé. Sjö af þeim níu fyrirtækjum sem hafa feng- ið skuldir felldar niður í tengslum við nauða- samninga eru fjárfestingar- og eignarhalds- félög. Heildarskuldir fyrirtækjanna níu voru um 355 milljarðar. Þar af hafa 218 milljarðar verið felldir niður, eða 61 prósent. Skuldum að fjárhæð 92 milljarðar hefur verið breytt í hlutafé. - mþl Eftirlitsnefnd um sértæka skuldaaðlögun hefur birt tölur um skuldaniðurfellingu fyrirtækja: 54 fyrirtæki fengið milljarð afskrifaðan FJÁRMUNIR Flest þeirra fyrirtækja sem hafa fengið stórfellda niðurfellingu skulda eru verslunar- og þjón- ustufyrirtæki eða fjárfestingar- og eignarhaldsfélög. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA HVAÐ GETUM VIÐ LÆRT AF DÖNUM? Opinn fundur ASÍ í dag um það hvernig lækka má húsnæðisvexti heimilanna. Allir velkomnir. Ræðumenn: Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ Peter Jayaswal, aðstoðarframkvæmdastjóri samtaka húsnæðislánveitenda í Danmörku, fjallar um danska húsnæðislánakerfið (erindi á ensku). Pallborð: Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ Sigurður Erlingsson, framkvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs Stefán Halldórsson, ráðgjafi Landssamtaka lífeyrissjóða í húsnæðismálum. Þóra Arnórsdóttir, fréttamaður er fundarstjóri og stýrir umræðum í pallborði. Morgunverðarfundur ASÍ um húsnæðislán í dag milli kl. 8 og 10 á Hilton Reykjavík Nordica HERMENN LEIKA SÉR Indverskir landamæraverðir leika listir sínar á æfingu fyrir lýðveldishátíðina síðar í vikunni. NORDICPHOTOS/AFP SVEITARSTJÓRNIR Bæjarráð Kópa- vogs fellst á að taka aftur við atvinnulóðinni í Tónahvarfi 7 og endurgreiða lóðarhafanum 160 milljónir og afhenda honum einn- ig 30,7 milljóna króna lóð í Kópa- vogsbrún 2. Lóðarhafinn, Tónahvarf 7 ehf., vildi skila lóðinni í júní 2009 en í febrúar 2010 tilkynnti bærinn að ekki yrði tekið við henni. Sú ákvörðun var kærð til innan- ríkisráðuneytisins sem úrskurð- aði lóðarhafanum í vil. Krafa lóðarhafans á hendur bænum var komin yfir 200 milljónir króna með dráttarvöxtum og kostnaði. Nú er hann þó tilbúinn að lækka kröfuna og taka minni lóð upp í endurgreiðsluna. - gar Úrskurður Kópavogi í óhag: Neyðast til að taka við lóð og endurgreiða fé FÓLK Krakkarnir í þremur yngstu bekkjardeildum Sæmundarskóla í Grafarholti söfnuðu hátt í þrjátíu þúsund krónum á basar til styrkt- ar langveikum börnum. Afrakstri baksturs og föndur- klúbba var stillt fram í frístunda- heimilinu Fjósinu. Annar og þriðji bekkur sá um söluna. Ömmur, afar og foreldrar voru áberandi í hópi viðskiptavina. Í fyrra gekk einnig vel. „Þá seldum við fyrir Ellu Dís og það gekk svo vel að forstöðu- konan var farin að taka niður vegg- skraut og selja,“ segir Elín Jóns- dóttir, starfsmaður Fjóssins. - gar Börnin í Sæmundarskóla með velheppnaðan basar: Seldu handavinnuna til að styrkja langveik börn FYRIR GÓÐAN MÁLSTAÐ Einbeittir nem- endur í Sæmundarskóla seldu fallega gripi til að styrkja önnur börn sem glíma við erfið veikindi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN FJÁRMÁL Í tvö ár hefur ekki verið hægt að stofna nýja reikninga í gegnum netbanka Íslandsbanka eins og unnt er hjá hinum tveimur stóru viðskiptabönkunum. Guðný Helga Herbertsdótt- ir, upplýsingafulltrúi Íslands- banka, segir að í janúar 2010 hafi sá möguleiki að stofna reikninga verið tekinn úr netbankanum. Bankinn hafi ekki uppfyllt skilyrði laga um aðgerðir gegn peningaþvætti. Áður gátu við- skiptavinir sem voru með aðgang að netbankanum stofnað nýja reikninga í gegnum netið. Guðný segir að regluvarsla Íslandsbanka hafi talið að lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti væri ekki fullnægt með þáverandi tölvukerfum bankans. „Það þarf að vera á hreinu að netbankinn sé að tala við skilríkjagrunninn,“ útskýrir Guðný og vísar þar til þess að ganga þurfi með öruggum hætti úr skugga um áreiðanleika viðskiptavinanna. Það sé ekki unnt fyrr en netbankinn sé tengdur við persónuupplýsingar í gagnagrunni bankans. Í Landsbankanum geta við- skiptavinir hins vegar stofnað nýja reikninga í netbankanum. „Menn geta stofnað reikning ef þeir eru fyrir í viðskiptum í bankanum og ef skilríki þeirra hafa verið skönn- uð í bankanum og áreiðanleika- könnun hefur verið gerð,“ segir Kristján Kristjánsson upplýsinga- fulltrúi Landsbankans. Kristján segir Landsbank- ann vera með gríðarlega mikinn gagnabanka og þess vegna geti hann leyft sér þessa þjónustu. „Við tökum tillit til þessara hertu reglna um peningaþvætti.“ Haraldur Guðni Eiðsson hjá samskiptasviði Arion banka segir viðskiptavini bankans aðeins geta stofnað tiltekna reikninga í net- bankanum, til dæmis sparnaðar- reikninga. „Hvað varðar peningaþvættis- athugun, þá fara allir nýir við- skiptavinir bankans í gegnum hana þegar þeir stofna til við- skipta hjá bankanum. Einnig hefur umtalsverður hluti annarra við- skiptavina lokið athuguninni og unnið er að því að aðrir ljúki henni sem allra fyrst,“ segir Haraldur. Guðný segir að unnið hafi verið að því hjá Íslandsbanka að koma á fyrrgreindri þjónustu að nýju. Aðspurð segir hún hins vegar að ekki hafi borist margar athuga- semdir frá viðskiptavinum eftir að möguleikinn var tekinn út úr net- bankanum. „Menn hafa því frekar sinnt öðrum verkefnum. Það er þó unnið að tæknilegum útfærslum en ekki er hægt að segja til um hvenær því verki lýkur.“ - gar Lokað á nýja reikninga í netbankanum Ekki er hægt að stofna nýja reikninga í netbanka Íslandsbanka eins og áður. Samspil kerfa bankans uppfyllir ekki lög um peningaþvætti. Stofna má nýja reikninga í netbönkum Arion og Landsbanka. HARALDUR GUÐNI EIÐSSON KRISTJÁN KRISTJÁNSSON GUÐNÝ HELGA HERBERTSDÓTTIR HEIMASÍÐA ÍSLANDSBANKA Vegna ákvæða í lögum um peningaþvætti aftengdi Íslandsbanki í janúar 2010 þann möguleika að geta stofnað nýja reikninga í gegnum netbanka.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.