Fréttablaðið - 24.01.2012, Síða 13
ÞRIÐJUDAGUR 24. janúar 2012 13
DÓMSTÓLAR Sautján ára piltur
var dæmdur í 30 daga fangelsi
á fimmtudag, skilorðsbundið í
tvö ár, fyrir að stela hjólbarða og
felgu undan bíl á bílasölu á Akur-
eyri. Þjófnaðurinn átti sér stað í
nóvember í fyrra.
Pilturinn, sem játaði sök
undan bragðalaust, hefur áður
hlotið dóma. Þar á meðal er
dómur fyrir líkamsárás frá
árinu 2009 og svo dómar fyrir
umferðar lagabrot, þar á meðal
fíkniefna- og ölvunarakstur, frá
árunum 2009 og 2011. - óká
Sautján ára þjófur á Akureyri:
Fékk skilorð
fyrir felgustuld
GJALDEYRISMÁL Rúmlega helming-
ur þátttakenda í könnun sem MMR
gerði fyrir vefsíðuna Andríki seg-
ist andvígur því að Ísland taki upp
evru sem gjaldmiðil.
Alls segjast tæp 52% vera and-
víg, rúm 28% fylgjandi og fimmt-
ungur segist hvorki andvígur né
fylgjandi. Nokkur munur er á
afstöðu svarenda eftir búsetu en
63% landsbyggðarfólks segjast
vera gegn evru en hlutfallið er
44% á höfuðborgarsvæðinu. Um er
að ræða netkönnun sem gerð var í
síðustu viku og 785 svöruðu. - þj
Könnun MMR:
52% segjast vera
mótfallin evru
SJÁVARÚTVEGUR Aflaverðmæti
íslenskra skipa nam 127,2 millj-
örðum króna fyrstu tíu mán-
uði ársins 2011 samanborið við
114 milljarða á sama tímabili
2010, samkvæmt tölum Hagstofu
Íslands. Aflaverðmæti hefur því
aukist um 13,2 milljarða króna
eða 11,6% á milli ára.
Verðmæti þorskafla var um
36,9 milljarðar og dróst saman
um 0,9% frá fyrra ári. Aflaverð-
mæti ýsu nam 9,5 milljörðum og
dróst saman um 27,2%.
Aflaverðmæti uppsjávarafla
jókst um 56,9% milli ára og nam
38,5 milljörðum. Stafar sú aukn-
ing að stærstum hluta af verð-
mætaaukningu loðnuaflans, sem
jókst um 250% á milli ára og nam
8,7 milljörðum króna. - shá
Loðnan gefur drjúgar tekjur:
Aflaverðmætið
127 milljarðar
ÍSLEIFUR AÐ VEIÐUM Verðmætaaukning
loðnuaflans er um 250%.
FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR
STJÓRNSÝSLA Á árinu 2011 bárust
umboðsmanni Alþingis alls 519
kvartanir. Á sama tíma tók hann til
athugunar níu mál að eigin frum-
kvæði. Skráð mál á árinu voru því
alls 528 talsins, en það er 40 pró-
senta fjölgun frá árinu áður.
„Árið 2010 bárust 370 kvartanir
og sjö mál voru tekin til athugun-
ar að frumkvæði umboðsmanns.
Málum hefur því fjölgað verulega,“
segir á vef umboðsmanns Alþingis.
„Umboðsmaður hefur jafn-
framt afgreitt fleiri mál á árinu en
nokkru sinni fyrr eða alls 473 mál
en flest höfðu þau áður verið árið
2010 eða 398,“ segir þar jafnframt.
Um áramótin voru alls 157 mál
til athugunar hjá umboðsmanni en
á sama tíma í fyrra voru 102 mál
til athugunar. „Þessi staða skýrist
meðal annars af því að kvörtunum
til umboðsmanns fjölgaði fyrst og
fremst á síðari hluta ársins og af
hálfu umboðsmanns er því beðið
skýringa stjórnvalda í fleiri málum
en áður og fleiri mál eru einnig
til lokaafgreiðslu.“ Í samantekt
umboðsmanns kemur fram að líkt
og síðustu ár hafi flest þeirra mála
sem skráð voru hjá umboðsmanni
lotið að töfum á afgreiðslu mála hjá
stjórnvöldum. „Þeim fjölgaði úr 67 í
135. Síðustu ár hafa þessi mál verið
um 18 prósent skráðra mála en voru
á síðasta ári 25,5 prósent.“ - óká
Umboðsmaður Alþingis afgreiddi fleiri mál en nokkru sinni árið 2011:
Málum fjölgaði um 40 prósent milli ára
Stærstu málaflokkarnir hjá Umboðsmanni Alþingis 2011
Tegund máls fjöldi mála
1. Tafir hjá stjórnvaldi á afgreiðslu máls 135
2. Skattar og gjöld 53
3. Opinberir starfsmenn 38
4. Fjármála- og tryggingastarfsemi 32
5. Almannatryggingar 21
6. Lögreglu- og sakamál 19
7. Atvinnuleysistryggingar 13
8. Atvinnuréttindi og atvinnufrelsi 12
9./10. Fangelsismál 11
9./10. Menntamál 11
Heimild: Umboðsmaður Alþingis
Nánari upplýsingar á www.rsk.is
Lokafrestur
31. janúar
Endurgreiða má virðisaukaskatt vegna kostnaðar við aðkeypta
vinnu við viðhald og endurbætur á íbúðar- og frístundahúsnæði.
Samhliða má lækka tekjuskattsstofn um mest 200.000 kr. hjá
einhleypingi og 300.000 kr. hjá hjónum og sambúðarfólki.
Frestur til að skila inn umsókn vegna vinnu á árinu 2011 rennur
út 31. janúar næstkomandi.
Ef sótt er um eftir þann tíma vegna framkvæmda á síðasta ári
heimilast aðeins endurgreiðsla á virðisaukaskatti en ekki lækkun
á tekjuskattsstofni.
Hægt er að sækja um endurgreiðslu á þjónustuvef
ríkisskattstjóra, skattur.is