Fréttablaðið


Fréttablaðið - 24.01.2012, Qupperneq 17

Fréttablaðið - 24.01.2012, Qupperneq 17
ÞRIÐJUDAGUR 24. janúar 2012 17 Spítalinn okkar allra Er fyrirhuguð stækkun Land-spítala gæluverkefni karla í lególeik? Það má lesa úr skrif- um Guðna Ágústssonar, fyrrver- andi ráðherra, sem skrifar grein í Fréttablaðið þann 17. janúar sl. undir yfirskriftinni: „Háskóla- þorpið í Vatnsmýrinni.“ Þar ræðir hann áform um stækkun Landspítala. Guðni finn- ur það verkefninu einna helst til foráttu að það sé gæluverk karla og hefur að hluta til eftir Guðjóni Baldurssyni lækni sem nýverið líkti stækkun spítalans við leik barna með kubba. Ekkert er hins vegar fjær sanni hvað snertir það mikilvæga mál, sem stækkun Landspítala er. Guðni gerir því skóna að ráð- deildarsömum konum dytti ekki í hug að leggja út í framkvæmdir sem þessar. Þetta eru athyglis- verð ummæli hjá fyrrum þing- manninum, enda minnast þess flestir að konur hafa í gegnum tíðina átt myndarlegan þátt í byggingu spítala hér á landi og frumkvæði að mörgum fram- kvæmdum í sjúkrahúsmálum. Landspítali tók til starfa 1930. Bygging hans hafði átt þó nokk- urn aðdraganda og þá voru menn ekki fremur en nú sammála um bygginguna. Þá voru það konur sem voru í fararbroddi og börð- ust fyrir því af miklum dugnaði að spítalinn yrði byggður. Áformin um stækkun Land- spítala nú hafa frá því að verk- efnið komst á skrið, fyrir um áratug, bæði verið á hendi karla og kvenna. Það er skiljanlegt, enda er stækkun spítalans þjóð- þrifamál og mun gagnast öllum landsmönnum sem þangað gætu þurft að sækja þjónustu, burt- séð frá því hvort það eru börn, ungt fólk, fólk á miðjum aldri, eða eldra fólk, en sá þjóðfélags- hópur mun fara ört stækkandi á komandi árum. Sú bygging sem fyrirhugað er að reisa nú er því fráleitt legó- leikur stórra stráka. Hún er þvert á móti nauðsynleg til að: 1) Auka öryggi og bæta aðbún- að sjúklinga. 2) Klára sameiningu spítalanna í Reykjavík, flytja starfsemina í Fossvogi á Hringbraut og ná fram þeirri hagræðingu sem í því felst. 3) Efla kennslu nemenda í heilbrigðisgreinum og aðstöðu til rannsókna. 4) Bæta starfsaðstöðu. Guðni nefnir í grein sinni að for- sendur séu brostnar og spyr hvort ekki þurfi að endurskoða þær. Þarna vísar hann væntanlega til breyttra aðstæðna eftir efnahags- hrun. Hér má enn minna á að for- sendur frá því fyrir hrun hafa þegar verið endurskoðaðar. Árið 2005 var farið í samkeppni um nýjan spítala og þá var í bígerð að byggja mun stærri byggingu en nú eru áform um. Áætlanir voru m.ö.o. endurskoðaðar eftir hrun og ný samkeppni á nýjum forsendum fór fram 2010. Nú er í 1. áfanga áætlað að byggja með- ferðarkjarna sem hýsir bráða- móttöku, myndgreiningardeild, skurðstofur, gjörgæslu, þræð- ingastofur og legudeildir. Þessar einingar verða að standa saman í einu húsi því hver og ein getur ekki án hinnar verið. Þá á einnig að byggja hús fyrir rannsóknar- stofur spítalans og Blóðbanka og sjúkrahótel. Háskólinn áform- ar síðan að byggja húsnæði fyrir kennslu í heilbrigðisgreinum. Farið hefur verið vandlega yfir stærð húsa með ráðgjöfum, not- endum og hönnuðum og hófsemi gætt í hvívetna. Samkvæmt ákvörðun Alþingis er nú unnið að frumhönnun þess- ara bygginga. Þegar henni er lokið verða áformin aftur borin undir Alþingi og þá fá kjörnir fulltrúar landsins tækifæri til að endurmeta stöðuna og ákveða hvað gera skuli. Hvort þessar byggingar og þær sem á eftir koma kallist þorp eða ekki þá verður spítali fráleitt byggður upp í mörgum litlum húsum. Í okkar litla landi er held- ur hvorki raunhæft né skynsam- legt að hafa á mörgum stöðum ýmsa þá starfsemi sem Land- spítali sinnir, eins og nú er má þar m.a. nefna kransæðaþræð- ingar og víkkanir, geislameðferð krabbameina o.s.frv. Sjúkrahús á landsbyggðinni, t.d. sjúkrahúsið á Akureyri, verða þó eftir sem áður mikilvægur hlekkur í heilbrigðis- þjónustu landans. Hvers vegna ætti að leggja þann ágæta spít- ala af þótt bæta þurfi húsakost Landspítala? Guðni segir í grein sinni að honum sýnist að „verið sé að hanna einn stóran „LANDSPÍT- ALA ALLRA LANDSMANNA““. Rifja má upp með fyrrum alþing- ismanninum að í lögum um heil- brigðisþjónustu frá 2007 segir m.a.: „Landspítali er aðalsjúkra- hús landsins og háskólasjúkrahús. Hann veitir sérhæfða sjúkrahús- þjónustu, m.a. á göngu- og dag- deildum, fyrir alla landsmenn og almenna sjúkrahúsþjónustu fyrir íbúa heilbrigðisumdæmis höfuð- borgarsvæðisins.“ Það voru ein- mitt Guðni og hans samstarfs- menn á þingi sem ákváðu það og settu í lög að Landspítali skyldi vera spítali allra landsmanna. Það eru eflaust fáir Íslendingar sem ekki hafa beint eða óbeint reynslu af starfi Landspítala og svo mun verða í framtíðinni. Þar er unnið mikið metnaðarfullt starf oft við erfiðar aðstæður. Bygging nýs Landspítala er að okkar mati brýnt verkefni. Ný bygging mun bæta þjónustu sjúklinga og auka öryggi þeirra um leið og hag- kvæmni eykst og spítalinn verð- ur aðlaðandi og eftirsóttur vinnu- staður. Þannig verður áfram til í landinu þjóðarspítali, spítali allra landsmanna sem þeir geta verið stoltir af. Nýr Landspítali Anna Stefánsdóttir framkvæmdastjóri hjúkrunar á Landspítala Gyða Baldursdóttir hjúkrunarfræðingur Bygging nýs Landspítala er að okkar mati brýnt verkefni. Ný bygging mun bæta þjónustu sjúklinga og auka öryggi þeirra um leið og hagkvæmni eykst og spítalinn verður aðlaðandi og eftirsóttur vinnustaður. AF NETINU Andleg leti Íslendingar virðast taka því sem sjálfsögðu að sama fólkið sé við stjórn hér ár eftir ár, áratug eftir ára- tug. Það er nánast eins og þeir hafi ekki hugmyndaflug til að breyta. Yfirleitt er þetta fólk ekki þekkt fyrir að hafa sérlega frumlegar eða mikil- vægar hugmyndir um heiminn – nei, hugmyndagrundvöllur íslenskra stjórnmála er algjörlega á tvist og bast – einkenni þess er frekar að það er tilbúið að skipta um stefnu þegar hentar, það kann vel list sjálfsréttlætingarinnar. Í raun er það klárara í því að rugla en skýra. http://silfuregils.eyjan.is Egill Helgason Að fara úr öskunni í eldinn Við samþykkt EES-samningsins 1993 höfðu hvorki Össur Skarphéð- insson né Jón Hannibalsson sem ráðherrar og þingmenn minnstu efasemdir um að hann stæðist stjórnarskrá og andmæltu því að með honum yrði Alþingi í ríkum mæli svipt áhrifum á lagasetningu. Nú taka þeir báðir fagnandi mati norsku skýrslunnar um fullveldis- framsal vegna EES og vilja nýta það til að opna allar gáttir fyrir aðild að Evrópusambandinu. Einnig á þessa úthugsuðu leikfléttu bentu andstæðingar EES-samningsins þráfaldlega fyrir tveimur áratugum. http://smugan.is Hjörleifur Guttormsson Ögmundur skúrar ekki Hitti varla nokkurn, sem ekki er reiður yfir getuleysi Alþingis við að gera upp pólitískan þátt hrunsins. Þeir vilja fá að vita nákvæmlega, á hvaða hátt pólitíkusar komu að ferlinu. Hver gerði hvað á hverjum degi og gerði ekki hvað á hverjum degi. Hver sagði hverjum hvað á hverjum degi og sagði ekki hvað við hvern á hverjum degi. Þetta er enn í þoku. Margir ætluðust til að henni yrði sópað burt í vitna- leiðslum. Ferlið skiptir fólk meiru en útkoma Landsdóms. Réttilega er Ögmundi Jónassyni mest kennt um svik Alþingis, enda var hann kosinn til að skúra. Útskýringar hans falla í mjög grýttan jarðveg. http://jonas.is/ Jónas Kristjánsson

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.