Fréttablaðið - 24.01.2012, Blaðsíða 20
Minningarsjóður Margrétar Oddsdóttur er
kominn með eigin vef www.maggaodds.is. Þar
er hægt að panta minningarkort og greiða með
greiðslukorti. Sjóðurinn var stofnaður árið 2010
og er honum ætlað að styrkja skurðlækningar
við brjóstakrabbameini á Landspítala.
MS kynnir til sögunnar nýjan Skyr.is-drykk, tímamótavöru sem ber hið sameiginlega norræna hollustu-
merki „skráargatið“. Vörur með skráargatinu þurfa
að uppfylla ákveðin næringarviðmið og er merking
fyrir matvörur sem teljast hollastar í sínum fæðu-
flokki. Því er ætlað að auðvelda neytendum að velja
sér holla matvöru. Skyr.is-drykkurinn er prótein-
ríkur og fitulaus og hann er uppspretta kalks, fjöl-
margra vítamína og steinefna. Drykkurinn er í
250 ml dósum og inniheldur 16 grömm af prótein-
um. Hann er fáanlegur í tveimur bragðtegundum:
jarðar berja og bláberja.
Skráargatið
Skráargatsmerkið hefur ekki enn verið tekið form-
lega upp hérlendis af
yfirvöldum, en það
er notað í Sví-
þjóð, Noregi og
Danmörku.
Vörur sem fá
að bera skráargats-
merkið uppfylla skil-
yrði sem sett eru um
innihald sykurs, salts,
fitu og trefja í vörum.
Í tilfelli sýrðra mjólk-
urvara á borð við skyr-
drykk er sett skilyrði
um fitumagn undir 0,7g í
100g og magn ein- og tví-
sykra undir 9g í 100g. Nýju
Skyr.is-drykkirnir uppfylla
öll þessi skilyrði.
Hér fyrir neðan má finna umfjöllun
Lýðheilsustöðvar (nú embætti landlæknis)
um skráargatið:
Skráargatið („Nyckelhålet“ á sænsku) hefur verið í
notkun í Svíþjóð í yfir 20 ár og er orðið vel þekkt þar
í landi. Árið 2007 ákváðu Svíar, Norðmenn og Danir
að vinna að því að koma á fót samnorrænu merki
sem byggt væri á sænska skráargatinu, en skilgrein-
ingar á bak við skráargatið voru þróaðar áfram. Slíkt
er í samræmi við þróunina almennt á sviði næringar
á Norðurlöndum og eru þau öll með samnorrænar
næringarráðleggingar („nordic nutrition recomm-
endations“).
Hollt val verður auðvelt val
Markmið með hollustumerki eins og skráargat-
inu er að neytendur geti á
skjótan hátt valið hollar
matvörur við inn-
kaup. K röfur t i l
mat væla sem fá
mer k ið b y g g j-
ast á viðurkennd-
um atriðum sem snerta
samhengi næringar og
heilsu. Neytendur geta
treyst því að vara sem
ber skráargatið sé holl-
ari en aðrar vörur í sama
flokki sem ekki bera merk-
ið. Auk þess að vera upplýs-
andi fyrir neytendur hvetur
slíkt merki matvælafyrirtæki
til að þróa hollari vörur. Til að
hollustumerki skili árangri þarf
samstöðu hagsmunaaðila, það
er neytenda, verslunar, iðnað-
ar, stjórnvalda og fleiri. Embætti
landlæknis styður því að skráar-
gatið verði tekið upp á Íslandi.
Lækningajurtagarður var opnaður í
Nesi sumarið 2010 í samstarfi Sel-
tjarnarnesbæjar, Lækningaminjasafns,
Lyfjafræðisafns, Læknafélags Íslands,
Lyfjafræðingafélags Íslands, Land-
læknisembættisins og Garðyrkjufélags
Íslands. Plöntur í garðinum voru
valdar út frá heimildum um ræktun
hér á landi á tímabilinu 1760-1834.
Nú hefur stjórn garðsins ákveðið að
stofna hollvinahóp Urtagarðsins og
gefa bæði félagsmönnum og öðrum áhugasömum möguleika á að fylgj-
ast nánar með starfseminni og styrkja hana samhliða. Fyrirtæki geta gerst
styrktaraðilar Urtagarðsins og áhugasamir starfsmenn verið meðlimir holl-
vinahópsins.
Hollvinahópurinn getur tekið þátt í viðburðum Urtagarðsins, lagt fram vinnu
eða efni til afmarkaðra verkefna, til dæmis sjálfboðavinnu við umhirðu
garðsins og lagt fram plöntur í plöntusafnið.
Um starf Urtagarðsins má lesa á vefsíðu Lækningaminjasafnsins og Nes-
stofu, www.nesstofa.is.
Hollvinir Urtagarðsins
STJÓRN LÆKNINGAJURTAGARÐSINS VILL STOFNA HOLLVINAHÓP TIL AÐ STYRKJA
STARFSEMINA.
Nýr skyrdrykkur
stimplaður með
skráargatinu
Hollt val verður auðvelt með nýja tímamótadrykknum frá
Skyr.is. Norræna skráargatið tryggir afbragðs kost; próteinríkan,
fitulausan og uppsprettu kalks, vítamína og steinefna.
Lækna grunar oftar að um
líkamlegt ofbeldi sé að ræða ef
fótbrotið barn tilheyrir fátækri
fjölskyldu.
Þetta eru niðurstöður amerískrar
könnunar en könnunin sýndi að
læknar sem lásu yfir tilbúið tilfelli
um 18 mánaða barn með „vafa-
samt“ fótbrot voru líklegri til að
gruna að um ofbeldi væri að ræða
ef fjölskyldu barnsins var lýst sem
fátækri.
Kynþáttur barnsins virtist ekki
hafa áhrif á skoðun læknisins í til-
búnu tilfelli. Fjallað er um niður-
stöðurnar á fréttavef Reuters og
þar segir einnig að kannanir hafi
þó sýnt að þegar um alvörutilfelli
er að ræða skipti kynþáttur máli.
Tilfelli þar sem um börn úr minni-
hlutahópum er að ræða eru frekar
metin sem ofbeldistilfelli en þegar
börnin eru hvít.
Dr. Antoinette L. Laskey, sem
leiddi rannsóknina, sagði vel þekkt
að sjúklingar fengju misjafnlega
meðhöndlun eftir kynþætti. Einn-
ig hætti fólki til að halda að heim-
ilisofbeldi ætti sér ekki stað hjá
betur efnuðu fólki. Niðurstöður
rannsóknarinnar sýndu að mikil-
vægt væri að læknar horfðu hlut-
laust á fyrirliggjandi upplýsingar.
- rat
Laun hafa áhrif á
skoðanir lækna
Efnahagsstaða sjúklinga hefur áhrif á greiningu lækna samkvæmt amerískri könnun.
NORDICPHOTOS/GETTY
Fæst í Bónus
Nú er tíminn fyrir harðfisk og bitafisk!
Þegar litið er til innihalds og næringargildis kemur í ljós að
Gullfiskur harðfiskur og bitafiskur er einhver besti prótíngjafi sem
völ er á. Það fara 5 kíló af nýrri roðlausri ýsu í að búa til 1 kíló af
harðfiski / bitafiski. Vatnið er dregið út með kældri þurrkaðferð,
en næringarefnin halda sér. Örlítið salt til bragðbætis.
Gullfiskur harðfiskur og bitafiskur
inniheldur rúmlega 80% prótín og
önnur næringarefni, sem eru
líkamanum nauðsynleg.
Kynning - Auglýsing