Fréttablaðið - 24.01.2012, Page 24

Fréttablaðið - 24.01.2012, Page 24
ÞRIÐJUDAGUR 24. JANÚAR 2012DIGITAL KYNNINGARBLAÐ4 Við erum alltaf með beina tengingu við markaðinn því þannig getum þróað námið í samræmi við breyttar þarfir í hverjum geira,“ segir Berg- lind Káradóttir, kennari við Marg- miðlunarskólann. Skólinn er rek- inn undir hatti Tækniskólans og meðal samstarfsaðila eru Caoz og CCP Games. „Í fyrra byrjuðum við til dæmis að helga heila önn tölvu- leikjum því eftirspurnin hefur auk- ist svo gríðarlega á því sviði,“ segir hún. Berglind kennir margmiðlunar- forritun en hún er tölvunarfræð- ingur að mennt og með meistara- gráðu í Interactive Multimedia frá University of Westminster. Það vekur athygli að hún er eina konan sem kennir við skólann og vekur spurningar um það hvort marg- miðlunin sé ennþá fyrst og fremst karlafag. „Það var þannig, en það hefur orðið mikil breyting á því,“ segir Berglind. „Þegar ég var að læra tölvunarfræðina í HR á sínum tíma voru fimm stelpur í bekknum en tuttugu strákar. Á fyrsta ári í Marg- miðlunarskólanum núna eru stelp- urnar um það bil jafnmargar og strákarnir. Það hefur orðið aukn- ing á umsóknum frá stelpum síð- ustu árin, einkum eftir að ég fór að kenna hérna, enda var ég fyrsti og er eini kvenkennarinn við skólann.“ Hverju þakkarðu þessa auknu ásókn kvenna í fagið? „Ég held það hafi síast inn að þetta sé ekki bara fyrir nörda,“ segir Berglind og hlær. „Áður sá fólk fyrir sér einhvern karlmann lokaðan inni á skrif- stofu með storknað kaffi í bolla á kafi í tölvunni án mannlegra sam- skipta þegar talað var um tölvugeir- ann. Nú er þetta orðið miklu fjöl- breyttara og skemmtilegra, tölvu- leikir, eftirvinnsla við kvikmyndir og fleira sem gerir þetta eftirsókn- arvert í augum stelpna. Auk þess sjá þær í dag fullt af f lottum konum í þessum bransa sem vita greinilega alveg hvað þær eru að gera.“ - fsb Margmiðlun er ekki bara fyrir nörda Konur hafa gert innrás í Margmiðlunarskólann og eru fyrsta árs nemar nú til helminga stelpur og strákar. Sú var ekki raunin þegar Berglind Káradóttir, eini kvenkennari skólans, var í námi. „Þegar ég var að læra tölvunarfræðina í HR á sínum tíma voru fimm stelpur í bekknum en tuttugu strákar,” segir Berglind Káradóttir, kennari í Margmiðlunarskólanum. Nú eru til helminga stelpur og strákar á fyrsta ári í Margmiðlunarskólanum. MYND/PJETUR „Við Íslendingar höfum ekki alltaf passað nógu vel upp á höfundana okkar, þannig að verk margra þeirra eru ófáanleg í bókabúðum,” segir Ingólfur Kristjáns- son, ritstjóri og annar eigandi vefsíðunnar Lestu.is sem býður upp á klassískar bókmenntir í formi raf- bóka. „Við settum okkur það markmið að setja inn sem allra mest af sígildum bókum sem komnar eru úr höf- undarrétti og setja þær í skemmtilegan og glæsilegan búning sem höfðar til fólks,“ segir Ingólfur. Nú þegar er að finna þrjátíu titla á Lestu.is og verða þeir orðnir um hundrað í árslok samkvæmt núverandi birting- aráætlun. Meðlimir Lestu.is fá einnig aðgang að um- fjöllun um höfunda, bókmenntatímariti Lestu.is, les- hringjum og örnámskeiðum um valdar bækur og höf- unda. Einnig er hægt að kaupa hverja bók fyrir sig án þess að gerast áskrifandi. Hinn eigandi vefsíðunnar er Jökull Sigurðs- son, sem sér um hina tæknilegu útfærslu. „Út- gáfan hentar fyrir alla rafbókalesara og les- bretti,“ segir hann. „Við bjóðum upp á tvö formöt sem hægt er að hlaða niður: ePub-form- at, sem er alþjóðlegi staðallinn hjá öllum nema Amazon, og svo mobi-format fyrir Kindle. Svo er líka hægt að fá bækurnar sem flettibæk- ur sem fólk getur lesið af hvaða tölvu eða snjallsíma sem er. Við munum kannski sjá okkur fært að bjóða upp á alla þá val- möguleika sem ólík tæki kalla eftir með tíð og tíma, en nú fyrst um sinn ákváðum við að bjóða upp á hvern texta í þessum þremur útfærslum.“ Auk Lestu.is reka þeir félagar í samstarfi við félaga sinn vefinn Hlusta.is þar sem fólk getur orðið sér úti um hljóðbækur til að hlusta á. Ingólfur segir mark- miðið vera að með tímanum verði til heilt samfélag í kringum vefina tvo og leshringirnir séu upphafið að því. „Okkar markmið með þessu er að setja öll þessi stórbrotnu listaverk og bókmenntaperlur sem við Ís- lendingar eigum á einn stað og gera þau aðgengileg fyrir alla,“ segir hann. Á Lestu.is er að finna skáldsögur, smásögur, barna- sögur, ljóð, greinar og margt fleira, auk þess sem ævi- ágrip hvers höfundar er að finna á vefsíð- unni. Í framhald- inu er svo mein- ingin að standa fyrir kynning- um á einstökum höf undum og völdum verkum þeirra. - fsb Rafvæða bókmenntaarfinn Mikil þróun hefur orðið undanfarið ár í þráðlausum lausnum í síma- og tölvuheiminum og hafa fram- leiðendur lagt sig mikið fram um að fækka snúrunum. Logitech býður upp á flotta lausn til að nota uppáhaldshátalarana með hvaða blátannartæki sem er, hvort sem um er að ræða snjallsíma, spjald- tölvu eða önnur tæki með Bluetooth, en það er algengur búnaður í flestum tækjum í dag. Logitech Bluetooth Wireless sendir tónlist þráðlaust með blátönn úr tækinu yfir í hátalarana eða hljómtækin. Um er að ræða mjög nett tæki með RCA og 3,5mm jack-tengi til að tengja beint í hátalara með RCA eða inn á aukarás í hljómtækjunum. Með því er hægt að vera hvar sem er á heimilinu og hlusta á tónlist eða útvarpsstöðvar í betri hljómgæðum en úr sjálfum tækjunum. Tækið er mjög einfalt í uppsetningu og kemur með sérstökum hugbúnaði frá Logitech. Tækið fæst í Tölvulistanum á aðeins 7.990 krónur. ÞRÁÐLAUSIR HÁTALARAR Hin ýmsu smáforrit eða „apps“ fyrir smartsíma og spjaldtölvur hafa tröllriðið öllu að undanförnu. Þessi forrit eru misjafnlega gagnleg og sum aðeins gerð til að skemmta notandanum og vinum hans. Hér eru nokkur dæmi um misgagnleg smáforrit. Pet Pic kallast smáforrit sem gerir fólki auðveldara fyrir að ná góðum myndum af gæludýrum sínum. Dýrin hafa ekki alltaf þá þolinmæði sem þarf til að sitja kyrr en Pet Pic er útbúið til að spila hljóð sem vekur áhuga dýranna svo þau líti upp í þann mund sem myndin er tekin. Hægt er að velja á milli mismunandi hljóða. LaDiDa er nokkurs konar öfugt karaókí smáforrit. Það virkar á þann veg að notandinn syngur eða rappar í símann. Forritið mun greina röddina og semja tónlist til að passa við sönginn. Það mun einnig stilla röddina þannig að söngvarinn hljómi afar fagmannlega. Bongo Bongo eru sýndarbongó trommur. Þannig breytist skjárinn á símanum í trommu sem hljómar mis- jafnlega eftir því hvar í símann er slegið. Ef bongótrommurnar eru ekki nógu sérkennilegar er einnig hægt að velja smáforritið Didgeridoo en það er fornt ástralskt hljóð- færi með einstaklega sérkennilegum hljómi. Bic Concert Lighter er kveikjari í símanum. Hann er þó ekki hægt að nota til að kveikja raunverulegan eld. Hugmyndin var sú að tónleikagestir gætu kveikt á slíkum sýndarkveikjara í stað raun- verulegs til að sýna velþóknun sína á frammistöðu hljómsveitarinnar. Líklega eru tónleikahaldarar mjög glaðir yfir þessu smáforriti enda mun minni eldhætta af þúsundum síma en þúsundum logandi kveikjara. Hægt er að velja milli nokkurra tegunda kveikjara. Þá hreyfist loginn með símanum. Easy Metal Detector Lite er smáforrit sem hægt er að nota til að leita eftir málmum. Erfitt er að gera sér í hugarlund hvenær þessi eiginleiki kæmi að góðum nótum, nema ef væri til að leita eftir klinki í sófanum. My Magic 8 Ball kallast smáforrit sem segir fólki til um framtíðina. Kúlur í líki snókerkúlu númer átta hafa lengi verið vinsælar sem forspártæki en þá er kúlan spurð spurningar, hrist og þá kemur upp svar af ein- hverju tagi. Nú er sumsé hægt að hlaða slíkri kúlu niður í símann, spyrja símann spurningar, hrista hann og fá upplýsandi svar um hæl. Skrítin smáforrit Ingólfur Kristjánsson og Jökull Sigurðsson , eigendur Lestu.is, stefna að því að til verði heilt samfélag áhugamanna um bókmenntir í kringum vefinn. MYND: GVA

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.