Fréttablaðið - 24.01.2012, Page 25

Fréttablaðið - 24.01.2012, Page 25
24. JANÚAR 2012 ÞRIÐJUDAGUR Vefsíður þar sem í boði eru ýmiss konar krassandi til-boð hafa rutt sér til rúms undanfarin ár. Fyrirtæki og þjón- ustuaðilar af öllum stærðum og gerðum auglýsa á síðunum með allt að 90 prósenta afslætti, ef næg þátttaka næst. Meðal þess sem hægt er að kaupa á spottprís á þessum síðum er matur, snyrtivörur, dekur, fatn- aður, miðar á tónleika, í leikhús, gisting og flugmiðar svo eitthvað sé nefnt. Þannig virka kaupin á síðunum: Ef kaupanda líst vel á eitthvert t ilboðanna, smellir hann á það og „kaupir“ það, með fyrir- vara um að lágmarks fjöldi kaupi tilboðið. Salan gengur ekki í gegn fyrr en sá fjöldi næst. Kaupandinn getur síðan deilt til- boðinu á Facebook eða á Twitter til að auka líkurnar á að tilboðið verði virkt. Þ e g a r n æ g u r fjöldi hefur keypt á t i lboðinu fær kaupandinn tilkynningu um að kaupin hafi gengið í gegn og getur þá prentað út inneignarbréf til að leysa út hjá viðkomandi fyrirtæki. Oft gilda tilboðin í 6 til 12 mán- uði eftir kaupin og kemur það þá fram á inneignarbréfinu. Dæmi um tilboðssíður: ■ www.groupon.com, amerísk síða sem fór í loftið haustið 2008. Tilboðin á groupon eru með 50 til 90 prósenta afslætti og standa fólki til boða í 45 lönd- um um allan heim. ■ www.hopkaup.is er íslensk síða. Meðal síðustu tilboða þar voru bílaþvottur, ostborgari og kaffi- bolli. ■ www.dilar.is, íslensk síða sem keyrð er af Hópkaup. Meðal vin- sælustu tilboða þar eru ljósakort og pitsur. ■ www.gaesin.is er íslensk síða. Meðal síðustu tilboða þar voru hreinsun á jakkafötum og kort í líkamsrækt. ■ www.winwin.is, íslensk síða. Meðal síðustu tilboða þar voru inneign í barna- fataverslun, f lug og gisting í New York og nudd. DIGITAL KYNNINGARBLAÐ 5 Hægt er að gera góð kaup á tilboðssíðum í sófanum heima. Nudd er hægt að kaupa með talsverðum afslætti gegnum tilboðssíðuna winwin.is. Hægt er að næla sér í ódýra ferð til útlanda á tilboðs- síðum. Krassandi tilboð Kjarakaup og lækkað verð koma sér vel þegar halda þarf um budduna. Vefsíður sem bjóða tilboð með fyrirvara um lágmarksfjölda kaupenda njóta mikilla vinsælda. ÉG ER NÝJA HÁÞRÓAÐA MYNDAVÉLIN MEÐ SKIPTILINSUM. 1 SÖLUAÐILAR: BECO, FÓTÓVAL, HEIMILISTÆKI, SJÓNVARPSMIÐSTÖÐIN. I AM THE NIKON 1 Kóreskir vísindamenn telja að í fram- tíðinni geti smartsímar með snerti- skjáum nýst í læknisfræðilegum til- gangi. Hópur vísindamanna við KA- IST-vísindastofnunina í Kóreu birti á dögunum grein í þýska vísinda- ritinu Angewandte Chemie. Þar var greint frá því að hægt væri að nota snerti skjáatæknina til að greina líf- sameindir líkt og gert er í læknis- fræðilegum rannsóknum. Hugmyndin kviknaði út frá þeirri staðreynd að virkni snertiskjáa bygg- ist á því að bera kennsl á rafvirkni frá snertingu fingurs. Þannig gerðu vísindamennirnir ráð fyrir að einn- ig væri hægt að bera kennsl á sérstök prótín og DNA-kjarnsýrur. Í rannsókninni kom í ljós að snertiskjáirnir gátu borið kennsl á kjarnsýrusameindir sem settar voru á þá. Vísindamennirnir kóresku vinna nú að því að þróa filmu úr hvarfgjörnum efnum sem getur greint sérstök lífefnafræðileg efni og vona með því að geta stigið fyrsta skrefið í átt að því að nýta snertiskjái og síma til að greina til að mynda krabbamein. Þeir taka þó fram að enn sé afar langt í land, en hugmyndin er heillandi. Smartsími sem lækningatól? Framtíðardraumar um að nýta síma til að greina sjúkdóma er ekki eins langt undan og menn gætu haldið. VILDARÁSKRIFT AÐ STÖÐ 2 INNIHELDUR AUK STIGVAXANDI AFSLÁTTAR. 512 5100 STOD2.IS VERSLANIR VODAFONE VERSLANIR OG ÞJÓNUSTUVER SÍMANS 800 7000 Stöð 2 Netfrelsi er skemmtileg nýjung fyrir áskrifendur Stöðvar 2. Njóttu þess að horfa á eftirlætisþættina þína og fjölbreytta afþreyingu í tölvunni, farsímanum eða spjaldtölvunni - þegar þér hentar. Nú missir þú ekki af neinu! Smelltu þér núna inn á stod2.is og horfðu á uppáhaldsþátinn þinn með Stöð 2 netfrelsi

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.