Fréttablaðið - 24.01.2012, Side 26
ÞRIÐJUDAGUR 24. JANÚAR 2012DIGITAL KYNNINGARBLAÐ6
Konum fækkar í tölv-
unarfræði
Kvenkyns nemendum sem lögðu stund á tölvunarfræði í háskólum á Ís-
landi fækkaði stöðugt frá árinu 2000 til 2010. Árið 2001 voru þeir 30 prósent
af heildarfjölda nemenda í greininni en árið 2010 aðeins 12,5 prósent. Í ein-
stökum árgöngum fór hlutfall kvenna allt niður í 5%. Til samanburðar var 51%
nemenda í viðskiptafræði kvenkyns á árinu 2010 og ríflega 62% af heildar-
fjölda nemenda á háskólastigi.
Vandamálið einskorðast ekki við Ísland. Samkvæmt nýlegri rannsókn sem
var unnin fyrir European Schoolnet eru innan við 20% tölvunarfræðinga á
Evrópusambandssvæðinu konur. Þó er talið að um 300.000 tæknimenntaða
einstaklinga hafi vantað á því svæði árið 2010. heimild: sky.is
Þessar stúlkur virðist ekki skorta
áhugann. Vonandi endist hann. MYND GVA
Bandaríski ofurtölvuframleiðandinn SuperMicro var að
setja á markað Supermicro MicroCloud SuperServer lausnina,
sem hentar vel í allar netþjónustur, gagnageymslur og
sýndarumhverfi. Um er að ræða 8 modular server
einingar í nettum 23“ djúpum kassa. Án allra kapla og
hver eining vinnur sjálfstætt. Einingarnar eru með
kröftugum Intel Xeon E3-1200 örgjörvum.
Þeir sem vilja líta á gripinn ættu að skella sér á
CeBIT-sýninguna í Hannover í Mars þar sem
SuperMicro mun sýna græjuna!
ÁTTA VÉLAR Í EINNI
Nýjasta orðið í fartölvuheiminum er Ultra-book. Á íslensku kallast slíkar vélar fisvélar, þar sem megináhersla er lögð á að hafa þær
sem þynnstar og léttastar. Besta leiðin til að ímynda
sér Ultrabook er að hugsa um MacBook Air sem er
ekki framleidd af Apple eða venjulega fartölvu sem
farið hefur í megrun. Sem sagt ofurþunnar og mjög
öflugar 11-13“ fartölvur og keppast nú allir framleið-
endur við að koma á markað með svona vélar, og eftir
að ASUS markaðssetti sína fyrstu vél UX21 í haust, þá
hafa fleiri framleiðendur bæst í hópinn.
Asus Zenbook er sú nýjasta í þess-
um flokki véla og kemur með SATA3
SSD-diski sem tryggir bæði mun
meiri hraða og gerir framleiðandan-
um kleift að hafa vélarnar jafn örþunn-
ar og raun ber vitni. Zenbook er aðeins 3
millimetrar þar sem hún er þynnst og aðeins
1,1 kg á þyngd. Þær koma jafnframt með nýjustu
gerð af annarrar kynslóðar Intel Core örgjörvun-
um vinsælu, i5 eða i7. Þrátt fyrir smæðina er raf-
hlöðuendingin allt að sjö tímar.
Það stefnir í mikla samkeppni milli framleiðenda
í fisvélum, þar sem þær njóta strax mikilla vinsælda.
Toshiba hefur nýverið sett á markað heimsins létt-
ustu 13“ vél Portégé Z830 og á CES-raftækjasýning-
unni sem nú stendur yfir í Las Vegas sýndi Acer nýj-
ustu Aspire S5 vélina og stefnir að því að koma í haust
með fyrstu fisvélina með Windows 8.
Hver er nýjasta digital-græjan sem keypt var og hvað dreymir fólk um
að eignast úr digital-landi? Þrír valinkunnir landsmenn upplýsa sín
digital-mál.
Hilmar Veigar Pétursson, framkvæmda-
stjóri CCP:
„Ég fékk mér iMac-tölvu fyrir jólin, eftir að
hafa frestað því í tuttugu ár. Þótt græjan sé
ekki ný af nálinni var bæði stórt og persónu-
legt skref fyrir mig að skipta um lið og fara úr
PC yfir í Makka. Ég var kominn með PC-kunn-
áttuna í vöðvaminnið og kunni þar allt upp
á hár, en þarf nú að læra nýja hluti og finna
út úr ýmsu, sem er skemmtileg nýbreytni.
Þessi kaup eru án efa byrjun á ákveðnu
trendi og kalla tvímælalaust á meira, sem er
verulega sniðugt hjá Apple. Ætli ég endi ekki
með iPhone5 úr því ég er loks kominn með
Makka?“
Rósa Birgitta Ísfeld, söngkona og
plötusnúður:
„Ég er lítið í nýjustu græjum og enn bara með
skífusíma, en væri ansi flott og tæknileg ef
ég fjárfesti í Rane Serato-mixer. Þá gæti ég
tengt SL-plötuspilarana mína við mixerinn
og losnað við að bera tvo kassa af plötum,
en þess í stað tekið með mér tölvu, tösku og
plötuspilara, sem væri mjög huggulegt. Þá
langar mig einnig í TC Electronic-hljóðbox til
að leika með rödd mína, en síðasta græjan
sem ég fékk mér var einmitt Boss VE20-hljóð-
box.“
Hörður Ágústsson, eigandi Maclands:
„Nýjasta digital-græjan mín er Apple TV
sem er engin smáræðis snilld og í raun besti
sjónvarpsafþreyingarhlutur í sögunni, hingað
til. Þetta er hrikalega flott, fjölhæf og nett
græja sem meira að segja konur samþykkja
sem viðhengi við sjónvarpstækið. Með henni
getur maður leigt sér bíómyndir og sjón-
varpsefni frá Apple og ef maður á iPhone eða
iPad er hægt að setja eigið efni og bíómyndir
af dvd-diskum yfir á tölvutækt form. Apple
TV er klárlega digital-græjan sem menn eru
spenntastir fyrir nú og virkar frábærlega með
öllu frá Apple.“
Digital draumar Ofurþunn
og öflug
Ultrabook er eins og fartölva sem hefur farið
í megrun og keppast framleiðendur nú um
að koma fram með slíkar vélar. Asus Zenbook er
sú nýjasta í þessum flokki.
Heimir & Kolla
vakna með þér í bítið
Fréttir, fróðleikur
og frábær tónlist
alla virka morgna
kl. 6.50 – 9.00
Þráinn á tökkunum og
Gissur með fréttirnar