Fréttablaðið - 24.01.2012, Side 38

Fréttablaðið - 24.01.2012, Side 38
24. janúar 2012 ÞRIÐJUDAGUR26 26 menning@frettabladid.is Tónlistarkonan Myrra Rós Þrastardóttir gefur út sína fyrstu plötu, Kveldúlfur, í næstu viku og heldur í þriggja vikna tónleikaferða- lag um Pólland. „Þessi plata hefði ekki orðið til nema fyrir þá miklu hjálp og frábæra stuðning sem ég fékk frá vinum og vandamönnum og öllum þeim sem höfðu trú á mér,“ segir tónlistarkonan Myrra Rós Þrastardóttir um fyrstu plötu sína, Kveldúlfur, sem kemur út á vegum Geimsteins í næstu viku, hinn 30. janúar. Á útgáfudaginn, sem jafnframt er afmælisdagur langömmu Myrru Rósar, heldur hún í tæplega þriggja vikna langt tónleikaferðalag um Pólland þar sem hún kemur meðal annars fram í einum glæsilegasta kast- ala landsins. „Ég hef aldrei farið til Póllands áður og er mjög spennt,“ segir Myrra Rós, en með henni ferðast bassaleikarinn Andrés Lárus- son, sem hefur verið órjúfanlegur hluti af ferli Myrru frá upphafi og semur með henni lög, og tromm- arinn Júlíus Óttar Björgvins- son. „Ég kynntist pólskum strák, honum Rafal, á Iceland Airwaves- hátíðinni fyrir tveimur árum og við höfum verið vinir síðan. Hann þekkir inn á bransann þarna úti og hefur unnið baki brotnu við að skipuleggja túrinn, svara tugum tölvupósta á dag og slíkt. Við spil- um á fjórtán tónleikum og förum í nýja borg á hverjum degi.“ Myrra Rós, sem leikur lág- stemmt þjóðlagapopp en þó til- finningaþrungið á köflum, tók fyrst upp gítar tvítug að aldri og kenndi sjálfri sér á gripinn með hjálp netsins og nótnahefta. „Ég orti mikið af ljóðum þegar ég var yngri og málaði sömuleið- is, svo mér datt í hug að það væri gaman að sjá hvað gerðist með gítarinn. Ég var mjög léleg rosa- lega lengi og var bara að dútla mér heima. Svo fór ég að gera þetta af alvöru fyrir um fjórum árum. Það gerðist nánast bara af sjálfu sér, en í millitíðinni fór ég í skóla að læra grafíska hönnun. Þá uppgötvaði ég að tónlistin var orðin svo fyrirferðarmikil að hún bitnaði á náminu svo ég hætti í skólanum,“ segir Myrra Rós, sem síðan hefur komið fram á fjölda tónleika hérlendis og einnig í Danmörku og Þýskalandi. Fyrsta platan hennar verð- ur einnig gefin út í Þýskalandi á árinu. „Þjóðverjar hafa mjög gaman af því að heyra lögin á íslensku. Þeim finnst íslenskan svo hljómfögur,“ bætir hún við, en á Kveldúlfi eru textar bæði á ensku og íslensku. Tónlistarkonan segir lögin hafa vaxið að umfangi á upp- tökuferli plötunnar og þau séu öll í hljómsveitarútsetningum, en upphaflega hugmyndin var að halda fjölda hljóðfæra í lág- marki. Þar koma góðir gestir við sögu, meðal annars KK, sem leikur á gítar í titillaginu Kveld- úlfur og hljómsveitin Hjálm- ar, sem spilar undir í tveimur lögum. „KK og Kiddi í Hjálmum eru æði og hjálpuðu mér mikið með að koma plötunni í gang,“ segir Myrra Rós. kjartan@frettabladid.is GERÐIST NÁNAST AF SJÁLFU SÉR KVELDÚLFUR Myrra Rós hlaut góða hjálp við gerð fyrstu plötu sinnar, meðal annars frá KK og Hjálmum og fleiri vinum og vandamönnum. Fatahönnuðurinn Mundi klæðir mannskapinn upp fyrir Póllandsreisuna sem stendur fyrir dyrum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN FRÖNSK KVIKMYNDAHÁTÍÐ Alliance Française í Reykjavík, Sendiráð Frakklands á Íslandi og Græna ljósið standa fyrir franskri kvikmyndahátíð sem verður haldin í 12. sinn dagana 27. janúar til 9. febrúar í Háskólabíói og í Borgarbíói á Akureyri 17. til 20. febrúar. Árlega sækja um 10.000 gestir frönsku kvikmyndahátíðina, en að þessu sinni er sérstök áhersla lögð á kvikmyndir eftir kvenleikstjóra. siminn.is Greidd eru mánaðargjöld skv. verðskrá. Nánar á siminn.is Fleiri v E N N E M M / S ÍA / N M 4 9 4 2 0 Um leið og þú tengist Sjónvarpi Símans geturðu horft á opnu, íslensku stöðvarnar og færð fjórar erlendar stöðvar að auki. Á Plús-stöðvunum geturðu séð útsendinguna með klukkutíma seinkun. Sjónvarpið beint eða með klukkutíma seinkun Nýtt! Nú fylgja fjórar erlendar stöðvar

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.