Fréttablaðið


Fréttablaðið - 24.01.2012, Qupperneq 39

Fréttablaðið - 24.01.2012, Qupperneq 39
ÞRIÐJUDAGUR 24. janúar 2012 27 Tónleikar ★★★★ Valgeir Guðjónsson Spilaðu lag fyrir mig – sextugsaf- mælistónleikar í Hörpu Sunnudaginn 22. janúar Valgeiri Guðjónssyni var vel fagn- að þegar hann steig á svið í Hörpu, húsinu sem hann og margir aðrir áhrifamenn innan geirans höfðu barist svo ákaft fyrir, á sunnu- dagskvöld. Enda ekki að undra þar sem áhorfendur þurftu ekki að vera í minnsta vafa um það sem í vændum var. Troðfullt húsið vissi að runa af vinsælum lögum biði þess, enda gæti Valgeir hæglega troðfyllt þriggja kvölda tónleika- dagskrá með eintómum risasmell- um, svo veglegt er lagasafnið. Að auki bjuggust líklega margir við að Stuðmaðurinn sem einna minnst hefur farið fyrir á undan- förnum árum skreytti dagskrána með laufléttu gríni eins og hans er von og vísa. Þeir urðu ekki fyrir vonbrigðum. Afmælisbarnið hóf leik með hnausþykku bandinu, sem sam- anstóð af Jóni Ólafssyni, Stefáni Magnússyni, Eyjólfi Kristjáns- syni og Stuðmönnunum Tómasi Tómassyni og Ásgeiri Óskarssyni, með titillagi tónleikanna og nýút- kominnar safnskífu, Spilaðu lag fyrir mig, og gaf þannig tóninn fyrir vel heppnað kvöldið. Næsta lag kynnti Valgeir sem fyrsta sitt sem varð að einhverju, She Broke My Heart sem Long John Baldry söng svo snilldarlega á Sumar á Sýrlandi (þótt sá hafi raunar ávallt verið ósáttur við textann), en ekki minni ánægja fylgdi því að heyra höfundinn túlka, því Valgeir var fremur lítið fyrir að syngja sín eigin lög með Stuð- mönnum á plötum, sérstaklega framan af. Sömu sögu má segja af laginu Úfó úr Með allt á hreinu, og fleiri lögum á dagskránni, að óvaninn gerði frammistöðuna þeim mun eftirminnilegri. Þá átti ung einkadóttir Valgeirs fallega innkomu þegar hún flutti þræl- gott frumsamið lag, Híalín, fyrir og með pabba sínum. Svo tíndust þau inn vinsælu lögin, gullkornin og samstarfs- fólkið. Diddú og Egill Ólafsson, en því miður enginn Sigurður Bjóla, fóru vel með Spilverks-smelli og bar hæst óvenju kraftmikil Græna byltingin (mætti heyrast oftar í slíkri útsetningu því það svín- virkar) en óþarfi að skeyta saman tveimur lögum í eitt (Skandinavíu blues og Bráðabirgðabúgí) enda ást Íslendinga á „tveir fyrir einn“- tilboðum hugsanlega ofmetin (þótt það sé svo „svo mikið í því“ eins og Valgeir komst að orði). Með allt á hreinu-útgáfan af Stuðmönnum kláraði svo kvöldið með nokkrum af stærstu smellunum (Popplag í G-dúr, Slá í gegn, Ástardúett og fleirum) og endurkomu rytma- kóngsins Lars Himmelbjerg, sem mun hafa dvalið lengi í finnsku gítarklaustri og háði kostulegt sólógítareinvígi við Þórð Árnason. Allt tókst þetta einkar vel til og þótt allir geti haft sínar skoðan- ir á lagavali á slíkum tónleikum (undirritaður hefði til að mynda kosið að fá að heyra minnst eitt lag af Hrekkjusvínum og Punkt- ur punktur komma strik til að auka á fjölbreytnina) er ekki nokkur leið til þess að allir fái að heyra sitt uppáhald. Við það verður að búa, enda það sem í staðinn kemur ekki af lakara taginu. Kjartan Guðmundsson Niðurstaða: Afar vel heppn- aðir afmælistónleikar hjá Valgeiri og stórkostlegur katalógur sem mætti viðra oftar. Valgeir sló í gegn á afmælistónleikum SEXTUGUR Valgeir Guðjónsson fékk góða hjálp frá vinum og vandamönnum á stórgóðum afmælistónleikum í Hörpu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI HVAÐ? HVENÆR? HVAR? Þriðjudagur 24. janúar 2012 ➜ Fræðsla 17.30 Fræðslukvöld æskulýðs- sviðs KFUM og KFUK á Íslandi verður haldið að Holtavegi 28. Er þetta fyrsta fræðslukvöldið af fjórum undir yfir- skriftinni Viltu vita meira. Efni kvöldsins er Biblían: Hvar er hún og hvað er hún ekki. Allir áhugasamir eru velkomnir og er aðgangur ókeypis. ➜ Kvikmyndir 20.00 Kvikmyndin NO, Global Tour eftir Spánverjann Santiago Sierra verður sýnd í Bíó Paradís. Miðaverð er kr. 1.100, en ókeypis fyrir Menningarkorts- hafa. ➜ Fyrirlestrar 12.00 Peter Ørebech flytur erindið Makríldeilan undir sjónarhorni alþjóða- laga og stjórnmála á Lögfræðitorgi Háskólans á Akureyri, M102 Sólborg v/ Norðurslóð. Allir velkomnir. 12.05 Fyrirlestur í hádegisfundaröð Sagnfræðingafélags Íslands: Hvað eru minningar? heldur áfram í Þjóðminja- safni Íslands. Sigrún Sigurðardóttir flytur fyrirlestur undir yfir- skriftinni Innrömmun. Minningar, ljósmyndir og saga. Aðgangur er ókeypis og öllum opinn. ➜ Tónlist 20.30 Djass- tónleikaröð á KEX Hosteli, Skúlagötu 28, hefst í dag þegar Kvar- tett Jóels Pálssonar stígur á svið. Aðgangur er ókeypis. Upplýsingar um viðburði send- ist á hvar@ frettabladid.is valkostir í Sjónvarpi Símans Nettenging hjá Símanum gefur þér möguleika á Sjónvarpi Símans og fjölbreyttu úrvali sjónvarps- og afþreyingarefnis. Nú geta viðskiptavinir Símans leigt myndir og séð útsendingar í háskerpu. Ef tengingin þín ber HD-útsendingar geturðu virkjað aðganginn á þjónustuvefnum og séð Sjónvarp Símans í allri sinni dýrð. Með smelli á VOD takkann opnarðu SkjáBíó með yfir 4000 titlum, bíómyndum, þáttum, barnamyndum og efni á 0 kr. Í SkjáFrelsi, Stöð 2 Frelsi og RÚV Frelsi sérðu nýjustu þættina og fréttirnar þegar þér hentar. Ef þú smellir á MENU takkann og velur útvarp opnast Bestu lögin, sérsniðnar tónlistarrásir fyrir öll möguleg tilefni. Þar eru líka allar íslensku útvarps- stöðvarnar og tugir erlendra. Nýtt! Háskerpu- útsending á 0 kr. Bestu lögin skapa stemninguna Frelsi til að horfa þegar þér hentar er opin ánendurgjalds til kynningar

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.