Fréttablaðið - 06.02.2012, Qupperneq 2
6. febrúar 2012 MÁNUDAGUR2
SPURNING DAGSINS
Heyrnartæki
með fjögurra
ára ábyrgð
LÍFFRÆÐI Áður óþekkt bandorms-
sýking í ufsa, sem er mikilvæg-
ur nytjafiskur á Íslandsmið-
um, er til rannsóknar hjá Biopol
sjávarlíftæknisetri á Skagaströnd
og Tilraunastöð Háskóla Íslands
að Keldum. Bandormurinn
er þekktur erlendis en engin
vitneskja virðist liggja fyrir um
þessa tegund bandorms í ufsa.
Kveikjan að rannsókninni var
athugull sjómaður um borð í
frystitogaranum Arnari HU 1
frá Skagaströnd, en eftir nokk-
urra ára frí frá sjómennsku tók
hann eftir breytingu á ufsanum
þegar hann kom aftur um borð.
Starfsfólki Biopol bárust sýnis-
horn af sýktum fiski og í fram-
haldi af því var sótt um styrk til
Verkefnasjóðs sjávarútvegsins. Í
krafti styrksins verður leitast við
að kortleggja útbreiðslu sýking-
arinnar með söfnun á fiskum vítt
og breitt um íslensku efnahags-
lögsöguna. Að rannsókninni koma
auk Biopol og Tilraunastöðvar-
innar að Keldum, sjávarútvegs-
fyrirtækið Fisk Seafood, eigandi
Arnars HU, en sýnataka verður í
höndum sjómanna um borð. Um
þúsund sýnum verður safnað áður
en upp verður staðið.
Árni Kristmundsson, deildar-
stjóri fisksjúkdómadeildar að
Keldum, segir bandorminn ekki
skaða fiskinn í sjálfu sér. Helst er
að hann rýri verðmæti afurða, þó
að Árni leggi á það þunga áherslu
að ekki megi draga stórar álykt-
anir um hvað sé hér á ferðinni.
Fyrst og síðast sé þetta forvitni-
legt. Hann svarar því játandi að
áhrif hlýnandi veðurfars geti
verið um að kenna. „Öll dæmi sem
ég hef fundið um þessa tegund eru
frá mun suðlægari slóðum,“ segir
Árni.
Athugull sjómaður
fann sýkingu í ufsa
Til rannsóknar er bandormstegund sem fundist hefur í ufsa á Íslandsmiðum.
Ormurinn hefur ekki greinst í þessari fisktegund áður, hvorki hér né erlendis.
ORMURINN Hér sést bandormurinn í hendi starfsmanns hjá Biopol. Ormurinn er
um fimm sentimetrar að lengd. MYND/BIOPOL
■ Frumgreining hefur farið fram á tegundinni og virðist hún tilheyra
bandormategundum af flokki Trypanorhyncha. Tegundir innan þessa
flokks eru allþekktar erlendis, þó einkum fullorðinsstig þeirra.
■ Lífsferill þessara tegunda krefst minnst þriggja ólíkra hýsla. Fyrsta lirfustig
ormanna finnst í ýmsum hryggleysingjum, þá einkum dýrasvifi. Annað
lirfustig finnst í ýmsum tegundum fiska, bæði botnlægra tegunda sem og
miðsjávarfiska. Fullorðinsstigið finnst svo í meltingarvegi brjóskfiska, eða
hákarla og/eða skata.
■ Tegundir af þessum flokki eru almennt ekki taldar skaðlegar hýsli sínum
en geta hins vegar rýrt verðmæti afurða.
Frumgreining bandormsins bendir til …
Spurður hvort bandormurinn
gæti tekið sér bólfestu í öðrum
hvítfisktegundum, eins og þorski,
segir Árni að erfitt sé að meta
það. „Þessi tegund, sem ég tel að
þetta sé, er hins vegar mjög ósér-
hæfð á hýsla. Þetta er fæðuborin
sýking og ef aðrar tegundir eru
að éta það sama og ufsinn þá er
ekki hægt að útiloka slíkt.“
Halldór G. Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri Biopol, bendir á
að það sé ekki síst athyglisvert
hvernig tilvist bandormsins rat-
aði inn í þann farveg sem málið
sé í. „Nálægð okkar við sjómenn
og viðfangsefnið gerir það að
verkum að þessi sýking er til
skoðunar. Það sprettur upp ýmis-
legt áhugavert vegna þessarar
nálægðar, enda býr hjá þessu
fólki vitneskja sem finnur sér
kannski síður farveg ef ekki
væru rannsóknastofnanir úti um
land,“ segir Halldór.
svavar@frettabladid.is
SÝRLAND, AP Hillary Clinton, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, hvetur „vini lýðræðislegs Sýrlands“
til þess að standa saman gegn Bashar al-Assad
Sýrlandsforseta.
Hún kallar það skrípaleik að Rússar og Kínverjar
hafi beitt neitunarvaldi sínu í Öryggisráði Samein-
uðu þjóðanna gegn ályktun, sem ætlað var að þrýsta
á Assad forseta og stjórn hans.
Riad al-Asaad, yfirmaður í bardagsveitum lið-
hlaupa úr sýrlenska hernum, segir að nú þegar ljóst
er að öryggisráðið styður ekki aðgerðir gegn Sýr-
landsforseta, þá sé þeim sá kostur nauðugur að berj-
ast vopnaðri baráttu fyrir frelsi landsins. Hernaður
sé eina leiðin úr því sem komið er.
„Neitunin er ekki heimsendir,“ skrifaði aftur á
móti Radwan Ziadeh, einn leiðtoga stjórnarandstæð-
inga, á Facebook-síðu sinni. „Byltingin heldur áfram
og verður sigursæl, ef guð lofar.“
Ziadeh sagðist reikna með að Frakkar, Banda-
ríkin og arabaríki muni styðja her uppreisnar-
manna til hernaðar gegn stjórninni.
Bandaríkin og nokkur Evrópuríki hafa fullyrt að
eina leiðin til að friða ástandið í Sýrlandi sé brott-
hvarf Sýrlandsforseta.
Rússar og Kínverjar vildu ekki fallast á ályktun
sem væri yfirlýsing um stuðning við áætlun Araba-
bandalagsins, þar sem í þeirri áætlun er afsagnar
Assads forseta krafist. - gb
Bandaríkjastjórn hvetur til aðgerða gegn Assad Sýrlandsforseta:
Segir neitun Rússa skrípaleik
SÝRLANDSFORSETI Á BÆN Bashir al-Assad, fyrir miðri mynd,
ásamt Mohammed Abdelsattar Sayyed trúmálaráðherra og
Ahmed Hassun, æðsta guðfræðiráðgjafa stjórnvalda, á bæn í
tilefni af fæðingardegi Múhameðs spámanns. NORDICPHOTOS/AFP
SLYS Þyrla Landhelgisgæslunnar
flaug með slasaðan mann á Land-
spítalann í Fossvogi í gær eftir
að hann féll af vélsleða sínum í
fjallshlíðum Esjunnar í gær.
Maðurinn fékk höfuðhögg
þegar hann féll en var með með-
vitund. Hann kvartaði undan
eymslum í hálsi og baki. Átta vél-
sleðamenn úr björgunarsveitum
Slysavarnafélagsins Landsbjarg-
ar sinntu aðgerðum á slysstað
og nutu aðstoðar þyrlunnar við
flutning á spítala. Í tilkynningu
frá Landsbjörgu kom fram að
björgunaraðgerðin hefði gengið
vel enda var gott færi fyrir vél-
sleða og einmuna veðurblíða. - fb
Slys í hlíðum Esjunnar:
Vélsleðamaður
slasaðist á Esju
FINNLAND, AP Sauli Niinisto,
íhaldssamur Evrópusinni, bar
sigur úr býtum í seinni umferð
forsetakosn-
inganna í Finn-
landi í gær.
Hann fékk
63 prósent
atkvæða og
tekur því við
af Tarja Halo-
nen, sem gegnt
hefur embætt-
inu í tvö kjör-
tímabil, sam-
tals tólf ár, við miklar vinsældir.
Niinisto verður fyrsti forseti
landsins sem ekki er sósíal-
demókrati.
Í seinni umferðinni völdu kjós-
endur milli Niinistos og Pekka
Haavisto, frambjóðanda Græn-
ingjaflokksins, sem fékk 37
prósent atkvæða. Haavisto varð
fyrstur samkynhneigðra til að
bjóða sig fram til forseta.
Niinisto hlaut 37 prósent í
fyrri umferð kosninganna en
Haavisto 19 prósent. - gb
Forseti kosinn í Finnlandi:
Sauli Niinisto
hreppti hnossið
SAULI NIINISTO
KÓPAVOGUR Viðræður um myndun
nýs meirihluta í Kópavogi eru
áformaðar í dag.
Ómar Stefánsson, oddviti fram-
sóknarmanna, sagði í samtali við
Vísi í gærkvöld, að hann hefði
verið í símasambandi við oddvita
sjálfstæðismanna og lista Kópa-
vogsbúa.
Ómar sagði viðræðurnar mjak-
ast áfram en of snemmt væri
að segja til um hvenær væntan-
legur meirihluti liti dagsins ljós
í bænum. Hann sagði oddvita
flokkanna þriggja hittast í dag.
Kópavogur enn án meirihluta:
Viðræður halda
áfram í dag
ÞJÓÐKIRKJAN Starfsreglum um
kosningu biskups Íslands og
vígslubiskupa var breytt á
aukakirkjuþingi sem fram fór í
Grensáskirkju á laugardag.
Teknar verða aftur upp póst-
kosningar í stað rafrænna kosn-
inga eins og var fyrirhugað. Það
var gert að beiðni kjörstjórn-
ar sem taldi að kosningin yrði
öruggari með póstkosningu.
Jafnframt var kosin fimm
manna nefnd sem er ætlað það
hlutverk að endurskoða starfs-
reglur um kosningu biskups
Íslands og vígslubiskupa og á
hún að skila
s t ö r f u m á
kirkjuþingi
sem kemu r
saman næsta
haust.
Í setningar-
ræðu sinni á
aukakirkju-
þingi ræddi
Pétur Kr. Haf-
stein, forseti
kirkjuþings,
um þá skoðun sína að allt þjóð-
kirkjufólk, ekki aðeins trúnaðar-
menn í sóknarnefndum, ætti að
njóta kosningarréttar til bisk-
upskjörs sem og kirkjuþings. Þá
sagði Pétur að brýnasta verkefni
kirkjunnar um þessar mundir
væri að endurheimta traust og
trúnað og ná til þeirra sem af
einhverjum ástæðum hafa ekki
talið sig eiga lengur samleið með
kirkjunni.
Í nefndinni sem mun endur-
skoða kosningareglur sitja Gísli
Baldur Garðarsson formaður,
dr. Þorkell Helgason, Inga Rún
Ólafsdóttir, Pétur B. Þorsteins-
son og sr. Jóna Kristín Þorvalds-
dóttir. - fb
Reglum um kjör biskups og vígslubiskupa breytt á aukakirkjuþingi:
Póstkosning í stað rafkosningar
PÉTUR KR.
HAFSTEIN
BANDARÍKIN, AP Mitt Romney,
fyrrverandi ríkisstjóri í Massa-
chusetts, virðist nú ósigrandi í
kosningabaráttu repúblikana,
sem sækjast eftir því að verða
forsetaefni flokksins.
Eftir stórsigur í Flórída í síð-
ustu viku vann Romney einnig
sigur í Nevada á laugardag, og er
því kominn með nánast óyfirstíg-
anlegt forskot á Newt Gingrich,
fyrrverandi forseta fulltrúadeild-
ar Bandaríkjaþings.
Eitthvað gæti þó saxast á það
forskot á morgun, þegar forkosn-
ingar verða haldnar í Minnesota.
Harðir íhaldsmenn eru þar á
miklu flugi og fjölmenna vænt-
anlega til forkosninga, sem gæti
tryggt Gingrich sigur. - gb
Línur skýrast vestanhafs:
Romney virðist
vera ósigrandi
MITT ROMNEY Eitthvað gæti saxast á
forskot hans á morgun í Minnesota.
NORDICPHOTOS/AFP
Kastaðist á þriðju bifreiðina
Bifreið var ekið á aðra bifreið á Arnar-
hrauni í Hafnarfirði á laugardag. Sú
bifreið kastaðist á þriðju bifreiðina.
Bifreiðinni sem olli tjóninu var ekið af
vettvangi en á Flókagötu í Reykjavík
var hún stöðvuð og er ökumaður
grunaður um akstur undir áhrifum
vímuefna.
LÖGREGLUFRÉTTIR
Sara, er þetta skemmtilegur
dúett?
„Já, svona líka! Bæði gleði og drama
í dúr og moll.“
Sara og Svanhildur Vilbergsdætur hafa
stundað „dúettamálun“ í 18 mánuði.