Fréttablaðið - 06.02.2012, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 06.02.2012, Blaðsíða 4
6. febrúar 2012 MÁNUDAGUR4 milljarðar evra er sú upphæð sem Grikkir þurfa að fá frá ESB og AGS til að geta greitt næstu afborganir. 130 GRIKKLAND Þrátt fyrir að vera í kapphlaupi við tímann hafa grísku stjórnarflokkarnir ekki getað komið sér saman um viðbrögð við kröfum frá Evrópusambandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum um enn harðari aðhaldsaðgerðir. Gríska stjórnin verður að fall- ast á þessar aðgerðir, eða sýna með öðrum hætti hvernig hún ætlar sér að draga meira saman í ríkisfjár- málum, ætli hún sér að fá frekari fjárhagsaðstoð frá ESB og AGS upp á 130 milljarða evra. Næstu stóru gjalddagar ríkis- skuldanna verða í mars. Fái Grikk- ir ekki peningana frá ESB og AGS geta þeir ekki greitt af skuldun- um, og þar með verður gríska ríkið komið í greiðsluþrot. Grísk stjórnvöld hafa undan- farna viku átt í ströngum viðræð- um, ekki bara við fulltrúa AGS og ESB, heldur einnig við fulltrúa lán- ardrottna sinna. Lúkas Papademos forsætisráðherra hefur auk þess staðið í ströngu við að fá stjórnar- flokkana til að koma sér saman um aðgerðir, en íhaldsflokkurinn Nýtt lýðræði hefur þverneitað að fall- ast á kröfur um enn frekar launa- lækkanir hjá ríkisstarfsmönnum og fleiri uppsagnir í opinbera geir- anum. Mikil andstaða hefur verið, jafnt meðal þingmanna sem alls almenn- ings, við kröfurnar frá ESB og AGS. Samdráttur hefur verið í grísku efnahagslífi fimm ár í röð. Nærri tvö ár eru síðan gríska ríkið byrj- aði að draga saman seglin með ströngum aðhaldsaðgerðum, sem bitnað hafa illa á öllum almenningi. Þær aðgerðir hafa ekki dugað til að koma ríkisfjármálum á réttan kjöl. Atvinnuleysið er nærri 20 pró- sent og flest heimili eiga í miklum erfiðleikum með að ná endum saman. Þolinmæði Evrópusambandsins virðist hins vegar vera á þrotum. Þjóðverjar beita grísk stjórnvöld hörðum þrýstingi og nú um helgina vildi Claude Juncker, leiðtogi ríkja- hóps evrusvæðisins, ekki lengur útiloka þann möguleika að Grikk- land verði hreinlega gjaldþrota. Antonis Samaras, leiðtogi íhalds- manna, sagði í gær að lánardrottn- ar Grikklands séu að „biðja um meiri kreppu, sem landið getur ekki þolað. Ég er að berjast með öllum tiltækum ráðum gegn þessu“. Georg Papandreú, leiðtogi sósíalista, er sömuleiðis andvíg- ur sumum af þeim kröfum, sem Grikkjum er gert að uppfylla. Hann er á móti því að laun verði lækkuð og vill að ríkið taki að sér rekstur bankanna, að minnsta kosti tímabundið. Viðræðum verður haldið áfram á morgun í von um að takast megi að koma saman einhvers konar mála- miðlun á síðustu stundu. gudsteinn@frettabladid.is GENGIÐ 03.02.2012 AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Brynja Gunnarsdóttir brynjag@365.is, Snorri Snorrason snorris@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Benedikt Jónsson benediktj@365.is, Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Ívar Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512- 5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 222,07 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 122,43 123,01 193,92 194,86 161,31 162,21 21,699 21,825 21,065 21,189 18,237 18,343 1,6051 1,6145 189,90 191,04 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR ÞJÓÐKIRKJAN Séra Gunnar Sigur- jónsson, sóknarprestur í Digra- neskirkju, hefur boðið sig fram til embættis biskups Íslands. Hann er sjöundi presturinn sem býður sig fram í embættið en framboðsfrest- ur rennur út 29. febrúar. „Ég býð mig ekki fram til embættis bisk- ups Íslands vegna þess að ég telji mig vera betur til þess fallinn en aðra, heldur vegna þess að ég ber traust til alls þess góða fólks sem hefur hvatt mig áfram í starfi mínu. Ég vil taka höndum saman með þeim sem vinna vilja Þjóð- kirkjunni til heilla með því að gera veg Krists sem mestan meðal fólks,“ segir Gunnar í yfirlýsingu sinni. - fb Sjöunda biskupsframboðið: Séra Gunnar býður sig fram SÉRA GUNNAR SIGURJÓNSSON EFNAHAGSMÁL Útflutningur í janúar var 12 milljörðum króna verðmætari en innflutningur, samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands. Verðmæti útflutnings, reiknuð á fob, námu tæpum 49,3 milljörðum króna. Verðmæti innflutnings nam 37,2 milljörðum króna. Þetta er viðsnúningur frá des- ember þegar vöruskiptajöfnuður var óhagstæður um 640 milljónir króna. Vöruskipti við útlönd árið 2011 voru jákvæð um tæplega 97 milljarða króna. Flutt var út fyrir um 619 milljarða króna en inn fyrir um 522 milljarða króna. - kóp Vöruskipti hagstæð: Mun meira flutt út en inn Grísku stjórnarflokkarnir ósammála um aðgerðir Kröfur ESB og AGS um frekari aðhaldsaðgerðir mæta harðri mótstöðu eins stjórnarflokkanna. Ströng fundarhöld alla helgina skiluðu litlum árangri. Grikkir eru að falla á tíma því óðum styttist í gjalddaga. ENGIN SVÖR Poul Thomsen frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, Matthias Mors frá framkvæmdastjórn ESB og Klaus Masuch frá Seðla- banka ESB ganga af fundi með Lucas Papademos, forsætisráðherra Grikklands, í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP NEYTENDUR Að minnsta kosti tvö matvælafyrirtæki hér á landi hafa ákveðið að taka upp holl- ustumerkið Skráargatið á völd- um vörum. Þó er ekki búið að innleiða merkið form- lega hér á landi. Skráargatið sést á umbúðum nýs skyrdrykkjar frá Mjólkursamsöl- unni og á morgun- korninu Bygga, frá matvælafyrirtækinu Árla. Í Skandinavíu hefur merkið verið notað í fjölda ára, en vörur þurfa að uppfylla ströng innihaldsskilyrði til að leyfilegt sé að nota það á umbúðunum. Atvinnuveganefnd Alþingis lagði til á fimmtudag að þings- ályktunartillaga um Skráargatið verði samþykkt. Í því felst að sjávarút- vegs- og landbúnað- arráðherra beiti sér fyrir því að hægt sé að taka upp merkið við íslenska matvæla- framleiðslu. Neytendasamtökin hafa lengi beitt sér fyrir því að merkið verði innleitt hingað til lands. Brynhildur Pétursdóttir, ritstjóri Neytendablaðsins, furðar sig þó á því að fyrirtæki séu nú þegar farin að markaðssetja vörur sínar með Skráargatinu, sér í lagi þar sem umsagnir Samtaka atvinnulífsins og Samtaka iðnað- arins fólu í sér töluverða gagn- rýni á innleiðingu merkisins. - sv Atvinnuveganefnd Alþingis vill að hollustumerki verði formlega tekið í notkun: Tvö fyrirtæki nota Skráargatið SKRÁARGATIÐ Hefur ekki verið innleitt formlega. KAUPMANNAHÖFN, AP Hákon, krón- prins Noregs, og krónprinsessan Mette-Marit voru meðal farþega sem þurftu að yfirgefa flugvél SAS-flugfélagsins eftir að reykur kom upp í farþegarýminu. Alls voru 135 manneskjur um borð í vélinni sem var á leið til Óslóar. Farþegarýmið fylltist af reyk vegna vélarbilunar og þurftu allir farþegarnir að rýma vélina á Kastrup-flugvellinum. Mette-Marit, sem er þekkt fyrir flughræðslu sína, þakkaði áhöfn SAS á Twitter-síðunni. - fb Hákon og Mette-Marit óhult: Reykur í flug- vél kóngafólks VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 15° -7° -11° -5° -6° -9° -3° -3° 20° 4° 10° 11° 27° -3° -2° 15° -5°Á MORGUN Strekkingur V-til, annars hægari. MIÐVIKUDAGUR 5-13 m/s, hvassast V-til. 3 7 8 5 6 6 59 8 7 6 13 12 13 16 7 3 6 8 5 14 10 5 2 4 0 -1 3 4 4 4 6 VINDASAMT og blautt S- og V- lands næstu daga. Hlýtt í dag, að 12 stigum en kólnar til morguns. Vægt frost N- og A-til á miðvikudag. Úrkoma A-til á morgun en annars að mestu þurrt og nokkuð bjart. Snjólaug Ólafsdóttir veður- fréttamaður
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.