Fréttablaðið


Fréttablaðið - 06.02.2012, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 06.02.2012, Qupperneq 10
6. febrúar 2012 MÁNUDAGUR10 120.000 100.000 80.000 60.0002 40.000 20.000 0 LS R og L H LV G ild i Al m en ni ls j. St af ir ls j. St ap i l sj . Sa m ei n. L sj . Fe st a ls j. Lí fs ve rk Fr já ls i l sj . Sö fn un ar sj óð ur Lv es t Ís le ns ki ls j. LS S Ls j. Ba nk am EF ÍA Ls j. Ve st m . Ls j. Bæ nd a Kj öl ur ls j. Ls Rb LS BÍ Es j. St m . H af na rfj . Ls j. Ra ng . LS A Lí fe yr is sj . T an nl .fé l Ls j. St m . K óp av . Es j. Re yk ja ne s Ls j. Ak ra n Ls j. St m . H ús av . Ls j. N es k. Tap hvers lífeyrissjóðs í milljónum króna NÝ SKÝRSLA UM STARFSEMI LÍFEYRISSJÓÐANNA Í AÐDRAGANDA HRUNSINS Tap lífeyrissjóðanna jafngildir því að hvert mannsbarn á land- inu hafi tapað um einni og hálfri milljón króna, sé miðað við mannfjölda 1. janúar síðastliðinn. Sé miðað við fjölda Íslendinga yfir sextán ára, sem eiga eitthvað í lífeyrissjóðunum, er tap þeirra tæpar tvær milljónir að meðal- tali. Fólki er skylt að greiða í líf- eyrissjóði frá sextán ára aldri. Heildartap lífeyrissjóðanna var rúmlega 479,6 milljarðar króna, eins og kom fram í úttekt sem gefin var út á föstudag. Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins og Lífeyrissjóður hjúkr- unarfræðinga (LSR og LH) töp- uðu mestu, eða rúmlega 101 milljarði króna sem er 21 pró- sent af heildartapi lífeyris- sjóðanna allra. Samanlagt eru þetta stærstu lífeyrissjóðirnir á landinu og í árslok 2010 áttu þeir eignir fyrir rúmlega 371 milljarð, samkvæmt Landssam- tökum lífeyrissjóða. Lífeyrissjóður verzlunarmanna (LV), næststærsti sjóður landsins, tapaði rúmum 80 milljörðum króna og Gildi, þriðji stærsti sjóðurinn, tapaði 75 milljörðum. Í lok árs 2010 átti LV tæpa 310 milljarða króna og Gildi átti eignir upp á 241 milljarð. Þessir þrír stærstu lífeyrissjóðir landsins báru meirihlutann af tapi allra sjóðanna, eða 54 prósent. Þeir áttu í árslok 2010 um 48 prósent af heildareignum lífeyrissjóðanna. Almenni lífeyrissjóðurinn var sá sjóður sem tapaði mestu fyrir utan fyrrnefnda þrjá stærstu sjóðina. Almenni tapaði tæpum 30 milljörð- um króna og átti í árslok 2010 eign- ir fyrir tæpa 99 milljarða. Stafir lífeyrissjóður kom þar á eftir og tapaði rúmum 29 milljörðum en átti eignir upp á 109 milljarða í lok 2010. Stapi lífeyrissjóður tapaði 27,7 milljörðum og Sameinaði lífeyris- sjóðurinn rúmum 25 milljörðum. Sjóðirnir eru í fjórða og fimmta sæti yfir eignamestu sjóðina við lok árs 2010 og áttu 109 og 105,4 milljarða króna. Aðrir lífeyrissjóðir töpuðu undir tuttugu milljörðum hver, eins og sjá má í meðfylgjandi töflu. thorunn@frettabladid.is Sjóðsfélagar töpuðu tveimur milljónum Tap hvers og eins Íslendings vegna taps lífeyrissjóðanna er um ein og hálf milljón. Sjóðsfélagar hafa tapað að meðaltali tveimur milljónum króna. Sjö líf- eyrissjóðir töpuðu meira en tuttugu milljörðum króna, sá stærsti rúmum 100. JÓN ÁSGEIR Tap hvers mannsbarns í milljónum miðað við mannfjölda 1. janúar. 1,5 Tap fólks yfir sextán ára aldri sem greitt hefur í lífeyrissjóði. 1,9 Því er velt upp í skýrslunni um lífeyrissjóðina að Lífeyrissjóður verslunarmanna hafi mögulega brotið lög með kaupum á gjaldeyr- istryggingum árið 2008. Með því hafi verið aukið á áhættu sjóðsins og gengið þvert á lögbundið hlut- verk hans. Í skýrslunni eru gerðar athuga- semdir við þá ákvörðun að kaupa gjaldeyristryggingar. Lífeyris- sjóðir hafi keypt tryggingar þegar krónan lækkaði í verði á þeirri forsendu að krónan myndi hækka fljótt aftur og sjóðirnir hagnast. Því er velt upp hvernig það komi heim og saman við langtíma- sjónarmið að taka slíka áhættu. Skammtímagróði hafi verið hafð- ur að leiðarljósi. Lífeyrissjóðum er heimilt að gera afleiðusamninga til að draga úr áhættu, eins og fram kemur í skýrslunni. Þar stendur að það sé „eðlilegt að skilja þetta ákvæði svo að það sé bæði nauð- synlegt og nægilegt skilyrði fyrir afleiðusamningi að hann dragi úr áhættu sjóðsins. Afleiðusamning- arnir sem gerðir voru árið 2008 til að tryggja erlendar eignir sjóð- anna drógu ekki úr áhættu sjóðs- ins, heldur þvert á móti juku hana“. Stjórn LV hefur hafnað því að hafa brotið lög. Um hafi verið að ræða hefðbundna framvirka samn- inga um sölu á gjaldeyri sem hafi verið hugsaðir til langs tíma. Ekki hafi verið byggt á skammtímasjón- armiðum og væntingum um skjót- fenginn gróða. Þá hafi Fjármála- eftirlitinu frá upphafi verið gerð grein fyrir stöðu samninganna og aldrei hafi verið gerð athugasemd. Stjórnin segir að gjaldmiðlastýring hafi um langt árabil verið eðlilegur hluti af fjárfestingarstefnu lífeyr- issjóða um allan heim. „Kaupum á hlutabréfum fylgir áhætta sem kemur einkum fram í sveiflum á gengi bréfanna. Þegar hlutabréfin eru erlend bætist við gjaldmiðla- áhætta þar sem skuldbinding- arnar gagnvart sjóðsfélögum eru í íslenskum krónum. Þá áhættu hefur verið leitast við að takmarka með gjaldmiðlavörnum.“ - þeb Stjórn LV hafnar vangaveltum um lögbrot: Samningar eðlilegir og ekki brot á lögum SKÝRSLAN KYNNT Nefndin sem skipuð var til að rannsaka lífeyrissjóðina. Í skýrslunni er fjallað um gjaldeyristryggingar lífeyrissjóðanna og spurt hvort lögbrot hafi verið framin. Tap lífeyrissjóðanna vegna Baugs Group og tengdra aðila var rúmlega 77 milljarðar króna, sem jafngildir 16 prósentum af heildartapinu og 20 prósentum af tapi þeirra í hlutabréfum og skuldabréfum. Af 20 prósent- unum voru um 12,3 prósent vegna Glitnis. Þetta kemur fram í skýrslunni. Jón Ásgeir Jóhannesson, fyrrverandi aðaleigandi Baugs, hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hann hafnar því að bera ábyrgð á tapi lífeyrissjóðanna vegna Glitnis og segir framsetningu í skýrslunni vera villandi. Hann segir hana ekki gefa að öllu leyti rétta mynd af stöðunni þar sem skýrsluhöfundar hafi ekki heyrt sjónarmið forsvarsmanna þeirra fyrirtækja sem í skýrslunni eru tilgreind. Þá segir hann að hrunið verði ekki gert upp með skýrslum sem séu einsleitar heldur væri betra að sett væri upp sannleiksnefnd þar sem menn yrðu kallaðir fyrir og þjóðin fengi að fylgjast með í beinni útsendingu. Hafnar ábyrgð og vill sannleiksnefnd LSR og LH 101.528 LV 80.282 Gildi 75.540 Almenni lsj. 29.658 Stafir lsj. 29.435 Stapi lsj. 27.719 Samein. Lsj. 25.419 Festa lsj. 19.709 Lífsverk 16.159 Frjálsi lsj. 11.946 Söfnunarsjóður 10.461 Lvest 10.441 Íslenski lsj. 8.232 LSS 7.302 Lsj. Bankamanna 4.146 EFÍA 3.985 Lsj. Vestm. 3.940 Lsj. Bænda 3.914 Kjölur lsj. 2.420 LsRb 2.299 LSBÍ 1.211 Esj. Stm. Hafnarfj. 883 Lsj. Rang. 807 LSA 699 Lífeyrissj. Tannl.fél 597 Lsj. Stm. Kópav. 418 Esj. Reykjanes 236 Lsj. Akran 221 Lsj. Stm. Húsav. 70 Lsj. Nesk. 8 Samtals 479.685 Tapið í tölum … og passar með öllu www.ms.is H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.