Fréttablaðið - 06.02.2012, Side 46
6. febrúar 2012 MÁNUDAGUR22 22
menning@frettabladid.is
Í tilefni Vetrarhátíðar
mun Reykjavík Bók-
menntaborg UNESCO
glæða vetrarmyrkrið
lífi með því að varpa
ljóðum og skáldskap
í bland við myndir af
skáldum á vel valda
glugga í miðbænum.
Staðirnir eru Mokka-
kaffi á Skólavörðu-
stíg, Laugavegur 11,
Trúnó/Barbara við
Laugaveg, Hress-
ingarskálinn í Aust-
urstræti og Hlemm-
ur, en allir tengjast
þessir staðir skáldum
og skáldskap órofa
böndum.
Textarnir eiga það
sameiginlegt að tak-
ast á við myrkrið og
kallast þannig á við
þema hátíðarinnar í
ár, „Magnað myrk-
ur“. Þeir eru allir eftir
þekkt borgarskáld
svo sem Stein Stein-
arr, Dag Sigurðarson,
Ástu Sigurðardóttur
og Lindu Vilhjálms-
dóttur svo einhver séu
nefnd.
Skáldagluggar eru
samstarfsverkefni
Bókmenntaborgarinn-
ar og Gunnars Gunn-
arssonar og verða
kvikir alla Vetrarhá-
tíðina frá fimmtudags-
kvöldinu 9. febrúar til
mánudagsmorguns
þess 13.
Skáldagluggar á
frægum kaffihúsum
DAGUR SIGURÐARSON Er
meðal skálda sem guða
munu á glugga kaffihúsa.
Hefst fimmtudaginn 9. febrúar
Frá höfundum Lost
FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT | 512 5100 | STOD2.IS
Mikil gleði ríkti í stærstu
deild Listaháskóla Íslands
síðdegis á föstudag er hún
flutti úr Skipholti 1 í Þver-
holt 11. Þar með jókst rými
hennar úr 3.000 fermetrum
í 4.000 og lofthæð, birta og
útsýni til muna.
„Við eigum eftir að móta þetta hús-
næði algerlega eftir okkar þörfum,
sem er rosalega spennandi,“ segir
Jón Cleon Sigurðsson, formaður
nemendafélags Listaháskólans,
um hið nýja húsnæði arkitekta- og
hönnunardeildar skólans í Þver-
holti 11, hús sem eitt sinn var
merkt DV í bak og fyrir. Hera
Guðmundsdóttir, nemandi á 3. ári í
fatahönnun, tekur undir með Jóni.
„Við erum komin með miklu meira
pláss en áður og stór hluti af því
er ætlaður fyrir opna fyrirlestra
og hvers kyns móttökur. Það gerir
okkur líka mögulegt að opna sýn-
ingarnar okkar fyrir fleiri en bara
samnemendur.“
Húsið í Skipholti 1 sem Lista-
háskólinn er að flytja úr hefur til-
heyrt honum frá því skólinn var
stofnaður 1998 og hefur verið
musteri listsköpunar mun lengur
því þar var Myndlista- og handíða-
skólinn til húsa í áratugi. Það hús-
næði var orðið þröngt og óvistlegt
enda segir Jón Cleon nemendur
stundum hafa nefnt það „Skitholt“
sín á milli. Viðbrigðin verða mikil
að komast í Þverholtið því þar er
hátt til lofts og vítt til veggja fyrir
þennan 240 manna vinnustað og
útsýnið er vítt.
Meðal þess sem tekur miklum
breytingum við flutningana er
aðstaða kennara sem áður þurftu
að undirbúa kennsluna meira og
minna heima hjá sér. Nú fá þeir
gott rými á 4. hæð, þeirri sömu
og aðalskrifstofur skólans eru á.
Nemendaverkstæðin eru á neðri
hæðunum, einnig veitingaaðstaða
sem verður opin almenningi. „Við
ætlum að opna skólann meira út í
samfélagið,“ segir Hera. Já, segir
Jón Cleon „Það má líka segja að
hann sé stoðdeild innan íslensks
samfélags því við hönnum í raun-
inni framtíð Íslands.“
gun@frettabladid.is
Gerbyltir aðstöðu bæði
nemenda og starfsfólks
NÓG PLÁSS Fatahönnunarnemendurnir byrjaðir að koma sér fyrir í nýju rými.
FLUTNINGAR Nemendur og starfsfólk hjálpuðust að við að flytja húsgögnin yfir götuna. MYNDIR/STEFÁN
Hjálmar H. Ragnarsson rektor lét ekki sitt eftir liggja
í flutningum Listaháskólans milli húsa í Holtunum.
Hann gaf sér þó tíma til að sýna ljósmyndara blaðsins
bókasafn skólans sem búið er að koma fyrir á 6. hæð.
Þar dró hann líka upp úr rassvasanum lítinn hlut og
sagði sögu hans: „Þegar við stofnuðum skólann 1998 þá
kom stjórnarmaðurinn Kristinn E. Hrafnsson myndlistar-
maður á fund með þennan grip. Þetta er núllpunktur og
markaði upphaf skólans. Núllpunkturinn gefur fólki pláss
til að búa eitthvað til úr engu eins og listamenn gera
þegar þeir búa til tónverk eða hvað sem er.
Þessi gripur hefur verið tákn skólans og alltaf átt stað
á fundarborði hans. Þar sem hann er, þar er skólinn.“
Hjálmar er afar ánægður með nýja húsnæðið en segir
það þó ekki mega gleymast að Listaháskóli Íslands sé
eftir sem áður á þremur stöðum í borginni. „Draumurinn
er að allur skólinn komist í eitt hús og verði þungamiðja
listsköpunar á Íslandi.“
NÚLLPUNKTURINN TÁKN SKÓLANS
REKTORINN „Þetta er núllpunkturinn sem Kristinn E. Hrafns-
son myndlistarmaður gaf skólanum.“ FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
alla sunnudaga klukkan 16.
Njótið vel
Hemmi Gunn
– og svaraðu nú!
Fjölbreyttur og fjörugur þáttur
BUXNARULLUARÍUR eftir Mozart og Gounod eru meðal þess sem verður á dagskrá Sigríðar Óskar
Kristjánsdóttur á fyrstu hádegistónleikum ársins í Hafnarborg sem haldnir verða á morgun. Buxnarulluaríur eru lög
þar sem söngkona klæðist buxum og syngur hlutverk ungra stráka.
FRÉTTIR VIÐSKIPTI SPORT UMRÆÐAN LÍFIÐ SJÓNVARP
TAKTU VÍSI
Á HVERJUM
MORGNI!