Fréttablaðið - 13.02.2012, Blaðsíða 2
13. febrúar 2012 MÁNUDAGUR2
SPURNING DAGSINS
12-36 mánaða binditími
Engin útborgun
Ábyrgðar- og kaskótrygging
Bifreiðagjöld
20.000 km á ári
Sumar- og vetrardekk
Þjónustuskoðanir og smáviðhald
Leigð´ann
Eigð´ann
Nýlegir bílar
Allir í toppástandi
Fara í gegnum gæðaskoðun AVIS
Þriggja daga reynsluakstur
www.avisbilar.is
S. 591 4000
... og krækja sér í bíl á frábæru verði!
til þess að fara inn á avisbilar.is
11 ástæður
FÓLK Söng- og leikkonan Whitney
Houston er látin, 48 ára að aldri.
Hún lést á
hótelherbergi
í Beverly Hills
aðfaranótt
laugardags.
Hún er talin
hafa drukknað
í baðkari.
Whitney
Houston var
ein merk-
asta söngkona
heims, þekktust fyrir lög á borð
við I Will Always Love You og
Saving All My Love For You.
Eiturlyfjaneysla og stormasamt
hjónaband Houston og söngv-
arans Bobby Brown varpaði
skugga á glæsilegan feril henn-
ar í seinni tíð.
Houston lést skömmu áður
en hún ætlaði að mæta í veislu
á vegum plötumógúlsins Clive
Davis í tengslum við afhendingu
Grammy-verðlaunanna í Los
Angeles. - afb
Whitney Houston látin:
Fannst á hótel-
herbergi sínu
WHITNEY HOUSTON
ALÞINGI Skotíþróttamenn hafa
óskað eftir fundi með innan-
ríkisráðherra vegna athuga-
semda sem þeir gera við drög að
nýjum vopnalögum, sem opin-
beruð voru fyrir nokkru.
„Við erum búnir að óska eftir
fundi en höfum ekki fengið
svar,“ segir Halldór Axelsson,
formaður Skotíþróttasambands
Íslands. Sambandið sendi inn
breytingartillögur og vonast
til þess að tekið verði tillit til
þeirra.
Verði frumvarpsdrögin að
lögum óbreytt þýðir það endalok
þriggja skotfimiíþróttagreina að
mati sambandsins. - bj
Skotíþróttamenn ósáttir:
Bíða eftir fundi
með ráðherra
UMHVERFISMÁL Þrír bændur telja að Ísafjarðar-
bær beri ábyrgð á því tjóni sem þeir urðu fyrir af
völdum díoxín-mengunar frá sorpbrennslustöðinni
Funa í Engidal. Lögmaður bændanna hefur skrifað
Ísafjarðarbæ, sem átti og rak Funa, og óskað eftir
afstöðu sveitarfélagsins til bótaskyldu.
Í bréfinu segir einnig að bændurnir hafi orðið
fyrir miklu tjóni vegna mengunarinnar. Næstu
vikur og mánuðir fari í að meta tjónið og ekki sé
ósennilegt að leita þurfi til dómkvaddra mats-
manna, náist ekki samkomulag við sveitarfélagið.
Eftir að málið kom upp þurfti að slátra öllu búfé
á bænum Efri-Engidal og Kirkjubóli í Skutulsfirði.
Auk þess þótti nauðsynlegt að slátra sjö kálfum frá
Neðri-Hjarðardal í Dýrafirði þar sem þeir komu
allir frá Efri-Engidal. Fengu bændurnir ekkert
greitt fyrir afurðirnar enda var þeim fargað.
Hinn 11. janúar síðastliðinn var aflétt banni á nýt-
ingu fóðurs frá svæðinu. „Niðurstöðurnar breyta
hins vegar engu um þann búfénað sem var eða er
mengaður, né heldur breyta niðurstöðurnar banni á
nýtingu eldra fóðurs frá Engidal. Áfram er því bann
við nýtingu afurða þeirra dýra sem alin voru á fóðri
frá svæðinu þegar mengunin var meiri en nú er,“
segir í bréfi lögmannsins til sveitarfélagsins.
Bæjarráð Ísafjarðarbæjar hefur óskað eftir
umsögn Andra Árnasonar, bæjarlögmanns
Ísafjarðarbæjar, um málið. - shá
Bændur telja Ísafjarðarbæ ábyrgan fyrir tjóni vegna díoxín-mengunar frá Funa:
Vilja skýr svör um bótaskyldu
SORPBRENNSLAN FUNI Díoxín fannst í kjöti, mjólk og fóðri
með þeim afleiðingum að bændur misstu lífsviðurværi sitt.
FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA
VÍSINDI Eldflaug af tegundinni
Vega verður skotið á loft í fyrsta
sinn, rétt fyrir hádegi í dag.
Geimferðastofnun Evrópu hefur
unnið að þróun flaugarinnar síð-
ustu níu ár.
Flaugin mun flytja níu gervi-
hnetti á braut um jörðu, en helsta
markmiðið með Vega-flaugunum
er að sjá til þess að evrópskir
aðilar hafi eigin skotaðstöðu og
flaugar og verði því síður háðir
öðrum ríkjum, til dæmis Rússum,
við að skipuleggja geimskot.
Flauginni, sem er um 30 metr-
ar á lengd, verður skotið upp frá
Frönsku-Gvæana, í Suður-Amer-
íku. - þj
Ný geimflaug í jómfrúarferð:
Vega-flaug á
loft í fyrsta sinn
ALLT TIL REIÐU Fyrstu flauginni af
gerðinni Vega verður skotið upp í dag, ef
fram fer sem horfir. MYND/ESA
TÚRKMENISTAN, AP Ekki er mikilla
tíðinda að vænta úr forsetakosn-
ingunum sem fóru fram í Túrk-
menistan í gær.
Sitjandi forseti, Gúrbangúllí
Berdímúkhamedov, á sigur vísan
þar sem enginn af sjö mótfram-
bjóðendum hans hefur háð kosn-
ingabaráttu að ráði. Hann var
fyrst kjörinn fyrir fimm árum og
hefur fetað sömu braut leiðtoga-
dýrkunarinnar og forveri hans,
Túrkmenbashi.
Túrkmenistan, sem áður var
hluti af Sovétríkjunum, er ríkt af
auðlindum, en nokkuð þykir vanta
upp á frelsi almennings. - þj
Túrkmenar kjósa forseta:
Litlar líkur á
ósigri forsetans
GRIKKLAND Gríska þingið fjallaði í
gær um aðgerðaáætlun sem felur í
sér stórfelldan niðurskurð ríkisút-
gjalda. Afgreiða þarf áætlunina til
þess að Grikkland geti fengið 130
milljarða evra neyðarlán frá ESB
og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.
Á sama tíma mótmæltu tugþús-
undir á götum Aþenu. Lögregla
beitti táragasi á fólkið, sem fellir
sig ekki við aukinn niðurskurð.
Evangelos Venizelos fjármála-
ráðherra Grikkja sagði á þinginu
að landið færi lóðbeint á hausinn
yrði áætlunin ekki samþykkt.
Grikkir mótmæla enn:
Gjaldþrot án
nýrra aðgerða
Þorsteinn, eru menn þá að
skegg-appa sig upp?
„Það er að minnsta kosti ljóst að
menn skeggræða þetta á kaffistof-
um landsins.“
Þorsteinn Þorsteinsson, vörustjóri Nokia
hjá Hátækni, segir nýja uppfærslu, eins
konar skegg-app, standa til boða þeim
sem upplifa það að andlitshár þeirra
truflar tal í síma með snertiskjá.
LEIKHÚS „Ég er að átta mig á því
núna hversu heppinn ég hef verið
að ekki fór verr,“ segir Halldór
Gylfason, sem leikur huglausa
ljónið í uppfærslu Borgarleik-
hússins á Galdrakarlinum í Oz.
Á 48. sýningu leikritsins á
laugar daginn varð óhappið sem
Halldór vísar til. „Ég er að koma
inn á sviðið og er í miðri setningu
þegar ég hverf ofan um hlera á
gólfinu. Það eru um fjórir metr-
ar frá hleranum og niður á gólfið
undir sviðinu, en ég dett fyrst um
einn metra og lendi á lyftu og fer
þaðan niður á gólf,“ lýsir Halldór.
Halldór var klæddur í þykkan
ljónsbúning, sem hann telur að
hafi tekið af honum fallið. „Svo
átti ég auðvitað ekki von á þessu
og var alveg slakur, svona eins og
þegar fullur karl dettur af hest-
baki. Það hefur örugglega hjálp-
að.“
Fyrir tilviljun var leikarinn og
leikstjóri verksins, Bergur Þór
Ingólfsson, á meðal áhorfenda og
varð því vitni að slysinu, líkt og
aðrir með augun á sviðinu. Hann
hljóp strax baksviðs til að athuga
með Halldór, sem hvatti Berg til
að taka við kyndlinum sem hug-
lausa ljónið.
Þar sem ljóst var að Halldór
var ekki alvarlega slasaður sam-
þykkti Bergur það. Hann klædd-
ist búningi ljónsins, steig á svið
og útskýrði fyrir áhorfendum
hvað hefði komið fyrir. Svo klár-
aði hann sýninguna í hlutverki
ljónsins og stóð sig með prýði.
Á meðan á þessu stóð var Hall-
dór fluttur með sjúkrabíl upp á
spítala, þar sem staðfest var að
hann væri óbrotinn. Hann var
hins vegar nokkuð lemstraður,
tognaður í baki og með verki í
hálsi og höfði.
Í gær var 49. sýning á Galdra-
karlinum í Oz og í þetta sinn
leysti leikstjórinn Halldór af alla
sýninguna. Halldór vonast hins
vegar til þess að komast fljótlega
aftur á svið.
„Ég er mun betri í dag en í gær.
Þetta er vonandi bara tognun og
mar, ég er bjartsýnn á að jafna
mig á þessu á nokkrum dögum,“
segir hann.
Mannleg mistök réðu því að
hlerinn var opinn á vitlausum
tíma. Vinnueftirlitið er búið að
taka út aðstæður og tekin hefur
verið ákvörðun um að framveg-
is geti aðeins einn maður opnað
hlerann á meðan á sýningu stend-
ur, til að koma í veg fyrir að svip-
að óhapp geti átt sér stað aftur.
holmfridur@frettabladid.is
Hrapaði fjóra metra
í miðri leiksýningu
Vinnuferlum verður breytt í Borgarleikhúsinu eftir að Halldór Gylfason leikari
féll niður um hlera í miðri leiksýningu á laugardaginn. Fallið kom Halldóri svo
á óvart að hann var „slakur eins og fullur karl á hestbaki“ og slapp óbrotinn.
HALLDÓR SEM HUGLAUSA LJÓNIÐ Áhorfendum á 48. sýningu á Galdrakarlinum í
Oz á laugardaginn brá í brún þegar Huglausa ljónið hvarf niður um hlera á gólfinu í
miðri sýningu. Fallið var um 4 metrar. MYND/BORGARLEIKHÚSIÐ
Ég er mun betri í
dag en í gær. Þetta
er vonandi bara tognun og
mar, ég er bjartsýnn á að
jafna mig á þessu á nokkrum
dögum.
HALLDÓR GYLFASON
LEIKARI
LÖGREGLUMÁL Karlmaðurinn sem
varð fyrir hrottalegri árás á
heimili sínu á Þórshöfn aðfara-
nótt sunnudags er ekki í lífs-
hættu, samkvæmt upplýsingum
frá Sjúkrahúsinu á Akureyri.
Maðurinn, sem er á áttræðis-
aldri, var illa haldinn þegar hann
kom á sjúkrahúsið. Hann var
mikið skorinn og lemstraður eftir
árásina, meðal annars með höfuð-
áverka.
Árásin átti sér stað rétt eftir
miðnætti. Árásarmaðurinn, sem er
karlmaður á þrítugsaldri, braust
inn á heimili þolandans og réðist
á hann meðal annars með hníf að
vopni. Lögregla kom skömmu síðar
á staðinn og var árásarmaðurinn
þá enn á vettvangi og var handtek-
inn í framhaldinu.
Hann var drukkinn þegar árásin
átti sér stað, en lögregla telur að
árásarmaðurinn hafi talið sig eiga
einhver óuppgerð mál við húsráð-
anda.
Þar sem málið telst upplýst er
ekki talin þörf á því að fara fram
á gæsluvarðhald yfir árásarmann-
inum. - þj
Ráðist á mann á áttræðisaldri á heimili hans á Þórshöfn:
Taldi sig eiga óuppgerð mál
FRÁ ÞÓRSHÖFN Árásarmaðurinn réðist
inn á heimili mannsins á Þórshöfn. Lög-
regla handtók hann þar, en sleppti svo
lausum eftir að málsatvik urðu ljós.