Fréttablaðið - 15.03.2012, Qupperneq 8
15. mars 2012 FIMMTUDAGUR8
„Líka fyrir konur.
Mottumars er líka fyrir konur.
Þótt þær séu lengur að safna skeggi.”
Safnaðu mottu og áheitum á www.mottumars.is
H
:N
M
ar
ka
ðs
sa
m
sk
ip
ti
/ S
ÍA
Umsóknarfrestur er til og með 10. júní
Mælt er með að umsækjendur komi í viðtal áður en sótt er um
Upplýsingar veitir Soffía Sveinsdóttir, IB-stallari, í síma 595 5233
soffia@mh.is og ibstallari@mh.is • http://www.mh.is
Opið hús í MH í dag, 17-19, allir velkomnir
HOLLAND Thomas Lubanga, 51
árs gamall uppreisnarforingi frá
Austur- Kongó, er að mati stríðs-
glæpadómstóls Sameinuðu þjóð-
anna sekur um að hafa rænt
hundruðum barna og notað þau til
að drepa fólk.
„Ákæruvaldið hefur sannað
með óyggjandi hætti að Thomas
Lubanga sé sekur um þann glæp
að skylda og skrá börn innan við
15 ára aldur til hernaðar og nota
þau til virkrar þátttöku í hernaðar-
átökum,“ segir í úrskurði dómara
Alþjóðlega sakadómstólsins í Haag.
Þetta er sögulegur atburður því
þetta er fyrsti úrskurður þessa
dómstóls, sem tók til starfa fyrir
tíu árum.
Þetta er jafnframt í fyrsta sinn
sem alþjóðlegur dómstóll fellir
dóm í málum barna sem neydd hafa
verið til þátttöku í stríðs átökum.
Sameinuðu þjóðirnar telja að tugir
þúsunda barna séu notaðir í hernaði
víðs vegar um heim, einkum þó í
Afríku, Asíu og Suður-Ameríku.
„Sakfelling Lubangas er áhrifa-
rík aðvörun til herforingja í Kongó
og annars staðar: að nota börn sem
vopn í stríði er alvarlegur glæpur
sem getur komið þeim á saka-
mannabekkinn,“ segir Geraldine
Mattioli-Zeltner hjá mannréttinda-
samtökunum Human Rights Watch.
Dómstóllinn er viðurkenndur af
120 ríkjum en Bandaríkin, Kína,
Ísrael og fleiri ríki hafa ekki viður-
kennt hann, svo dómstóllinn hefur
ekki lögsögu yfir glæpum sem
framdir eru í þeim löndum.
Réttarhöldin yfir Lubanga hófust
árið 2009. Hann var handtekinn
árið 2006, fyrstur allra sem hand-
teknir hafa verið samkvæmt hand-
tökubeiðni frá Alþjóðlega saka-
dómstólnum.
Hann var leiðtogi Bandalags
kongóskra föðurlandssinna, liðs-
safnaðar sem tók þátt í Kongó-
stríðinu upp úr síðustu aldamót-
um. Hersveitir Lubangas gerðu
margar árásir á almenna borgara
í Ituri-héraði og rændu hundruðum
barna. Meðal annars eru liðsmenn
hans sagðir hafa ráðist á skóla og
rænt þar öllum börnum sjöunda
bekkjar.
Liðsmenn hans voru sakaðir um
að hafa drepið níu friðargæslu-
liða frá Sameinuðu þjóðunum árið
2006. Eftir það sá Laurent Kabila,
þáverandi forseti Kongó, sér ekki
annað fært en að láta handtaka
Lubanga og framselja.
gudsteinn@frettabladid.is
Hlýtur dóm fyrir að
nota börn í hernaði
Fyrsti dómur alþjóðlega sakadómstólsins í Haag var kveðinn upp í gær. Rúmlega
fimmtugur uppreisnarforingi frá Kongó sakfelldur fyrir að þvinga hundruð
barna til að taka þátt í hernaði. Hann á nú yfir höfði sér ævilangt fangelsi.
THOMAS LUBUNGA Fyrr-
verandi uppreisnarforingi
sakfelldur í réttarsal í Haag.
N
O
R
D
IC
PH
O
TO
S/A
FP
ÞJÓÐKIRKJAN Atkvæðagreiðsla
vegna biskupskjörs er hafin og
hafa nú fyrstu atkvæðin skilað
sér inn til biskupsstofu.
Alls eru 502 kjörmenn með
atkvæðisrétt. Atkvæðaseðlar
voru póstlagðir til kjörmanna
síðastliðinn föstudag.
Frestur til að skila inn rennur
út 19. mars. Talning atkvæða
fer fram þann 23. mars næst-
komandi. Stefnt er að biskups-
vígslu sunnudaginn 24. júní
2012. - sv
Biskupskjöri lýkur 19. mars:
Atkvæðin farin
að tínast inn
DANMÖRK Helle Thorning-
Schmidt, forsætisráðherra Dan-
merkur, er reiðubúin að nýta upp-
lýsingar fengnar með pyntingum
verði þær til að bjarga lífi
danskra þegna. Dönsk yfirvöld
líta hins vegar á pyntingar sem
mannréttindabrot.
Þetta kemur fram á vef danska
blaðsins Berlingske sem hefur
það eftir forsætisráðherranum að
upplýsingarnar verði hins vegar
ekki áframsendar til annarra
landa.
Samkvæmt frásögn Berlingske
vildi ráðherrann ekki svara því
beint hvort það þýddi að dönsk
yfirvöld myndu ekki senda slíkar
upplýsingar áfram ef hætta væri
til dæmis á árás á Svíþjóð. - ibs
Danski forsætisráðherrann:
Má nýta upplýs-
ingar fengnar
með pyntingum
Selja veiði og hús í Sogi
Sveitarstjórn Grímsness- og
Grafnings hrepps hefur ákveðið að
auglýsa veiðiréttindi og veiðihús
sveitarfélagsins við Sogið til sölu á
almennum markaði.
SVEITARFÉLÖG
SAMFÉLAGSMÁL Í fyrra fæddust
4.496 börn með lögheimili á
Íslandi, að því er segir í frétt á vef
Hagstofunnar.
Þetta er fækkun frá 2010 þegar
4.907 börn fæddust. Drengirnir
sem fæddust í fyrra voru 2.327 en
stúlkurnar 2.169.
Bent er á að þrátt fyrir
fækkunina sé fjöldi fæðinga í
fyrra engu að síður svipaður og
meðaltal undanfarinna áratuga en
árgangurinn 2011 er sá 26. stærsti
frá 1951.
Fæðingartíðnin, það er fjöldi
fæðinga á hverjar 1.000 konur á
aldrinum 20 til 44 ára, var 68 árið
2011, samanborið við 73,7 árið á
undan.
Flestar fæðingar í fyrra urðu í
ágústmánuði, alls 428, og í júlí en
þá fæddust 405 börn.
Fæstar fæðingar urðu í fyrra í
október en þá voru þær 336. Árið
2010 fæddust flestir í september
eða alls 472. Það ár fæddust fæstir
í febrúar eða 372.
Tölur um fæðingar ná til allra
barna mæðra sem eiga lögheimili
á Íslandi við fæðingu, hvort sem
þau eru fædd innanlands eða utan.
- ibs
Í fyrra fæddust alls 4.496 börn, 2.327 drengir og 2.169 stúlkur:
Fæðingum fækkar milli ára
Á FÆÐINGARDEILD Í fyrra urðu flestar
fæðingar í ágúst en fæstar í október.
NORDICPHOTOS/GETTY
VIÐSKIPTI Stjórn Totusar ehf.,
félags um eignarhald tónlistar-
og ráðstefnuhússins Hörpu, hefur
ákveðið að taka tilboði Lands-
bankans um umsjón með útgáfu
skuldabréfa sem félagið hyggst
gefa út. Skuldabréf að upphæð
18,5 milljarða króna verða gefin
út til að endurfjármagna fram-
kvæmdirnar við húsið. Með
útgáfunni verða framkvæmdirnar
fullfjármagnaðar og í kjölfarið
verður sambankalán, sem tekið
var vegna framkvæmdanna í árs-
byrjun 2010, greitt upp. - mþl
Skuldabréfaútboð Hörpu:
Landsbankinn
sér um útgáfu
1. Hvað heitir yfirmaður kynferðis-
brotadeildar lögreglunnar?
2. Í hvaða þingnefnd situr Árni
Páll Árnason fyrir Samfylkinguna?
3. Búningahönnuður fyrir hvaða
ofurhetju mun hanna búninga fyrir
Latabæ?
SVÖR
1. Björgvin Björgvinsson 2. Utanríkis-
málanefnd 3. Batman
VEISTU SVARIÐ?