Fréttablaðið - 15.03.2012, Blaðsíða 58

Fréttablaðið - 15.03.2012, Blaðsíða 58
15. mars 2012 FIMMTUDAGUR46 sport@frettabladid.is LANDSLIÐSKONURNAR Þóra Björg Helgadóttir og Sara Björk Gunnarsdóttir verða í sviðsljósinu í dag þegar LdB Malmö fær þýska liðið FFC Frankfurt í heimsókn í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Leikurinn verður í beinni á Eurosport klukkan 15.00 (Stöð 40 á Fjölvarpinu). Seinni leikur liðanna fer síðan fram eftir sex daga. Margrét Lára Viðarsdóttir er meidd og gat ekki leikið með Turbine Potsdam sem vann 2-0 sigur á rússneska liðinu Rossiyanka í fyrri leik sínum í gær. Vináttulandsleikur: Þýskaland-Ísland 33-22 Mörk Íslands: Ólafur Gústafsson 5, Róbert Gunn- arsson 4, Ásgeir Örn Hallgrímsson 3, Ólafur Bjarki Ragnarsson 3, Stefán Rafn Sigurmannsson 3, Arnór Gunnarsson 1, Sigurbergur Sveinsson 1, Hannes Jón Jónsson 1, Rúnar Kárason 1. Varin skot: Aron Rafn Eðvarðsson 13. IE-deild kvenna: Haukar-KR 78-56 Haukar: Tierny Jenkins 20/19 fráköst/5 stolnir, Jence Ann Rhoads 15/9 stoðsendingar, Íris Sverrisdóttir 11, Margrét Rósa Hálfdanardóttir 10, María Lind Sigurðardóttir 10, Guðrún Ósk Ámundardóttir 5, Gunnhildur Gunnarsdóttir 4, Auður Íris Ólafsdóttir 3. KR: Erica Prosser 22/8 fráköst, Margrét Kara Sturludóttir 16/5 fráköst/3 varin, Hafrún Hálfdán- ardóttir 14/7 fráköst, Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 2, Hrafnhildur Sif Sævarsdóttir 2/5 fráköst. Fjölnir-Njarðvík 87-76 Fjölnir: Brittney Jones 28/5 fráköst/10 stoðsend- ingar, Katina Mandylaris 23/19 fráköst, Jessica Bradley 18/9 fráköst, Erla Sif Kristinsdóttir 9, Birna Eiríksdóttir 3, Margrét Loftsdóttir 2, Bergdís Ragnarsdóttir 2/7 fráköst, Hugrún Eva Valdimars- dóttir 2/7 fráköst. Njarðvík: Lele Hardy 24/20 fráköst/7 stoð- sendingar, Petrúnella Skúladóttir 16/6 fráköst, Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir 10/5 fráköst, Salbjörg Sævarsdóttir 6/5 fráköst, Ína María Einarsdóttir 6, Sara Dögg Margeirsdóttir 6, Harpa Hallgrímsdóttir 2, Ólöf Helga Pálsdóttir 2, Eyrún Líf Sigurðardóttir 2, Erna Hákonardóttir 2. Valur-Hamar 95-67 Valur: Kristrún Sigurjónsdóttir 24/5 fráköst, Unnur Lára Ásgeirsdóttir 19/8 fráköst, Lacey Katrice Simpson 11/11 fráköst/8 stoðsendingar, Melissa Leichlitner 10/4 fráköst/5 stoðsendingar, María Ben Erlingsdóttir 9/4 fráköst, Guðbjörg Sverrisdóttir 8/4 fráköst, Signý Hermannsdóttir 6/9 fráköst//4 varin skot, María Björnsdóttir 6/5 fráköst, Berglind Karen Ingvarsdóttir 2. Hamar: Samantha Murphy 24/6 fráköst/5 stoðsendingar, Fanney Lind Guðmundsdóttir 13, Katherine Virginia Graham 12, Marín Laufey Davíðsdóttir 7/5 fráköst, Íris Ásgeirsdóttir 6, Jenný Harðardóttir 3, Álfhildur Þorsteinsdóttir 2 STAÐAN: Keflavík 27 20 7 2050-1880 40 Njarðvík 27 19 8 2237-2038 38 Snæfell 27 15 11 1967-1999 30 Haukar 27 14 13 1986-1919 28 KR 27 13 14 1960-1886 26 Valur 27 12 15 2003-1995 24 Fjölnir 27 9 18 1943-2201 18 Hamar 27 6 21 1874-2102 12 Meistaradeild Evrópu: Chelsea-Napoli Leikur í framlengingu er Fréttablaðið fór í prentun. Real Madrid-CSKA Moskva 4-1 1-0 Gonzalo Higuain (26.), 2-0 Cristiano Ronaldo (55.), 3-0 Karim Benzema (69.), 3-1 Zoran Tosic (77.), 4-1 Cristiano Ronaldo (90.+4) Real fór áfram, 5-2, samanlagt. Meistaradeildin í handb.: Wisla Plock-Kiel 24-36 Aron Pálmarsson skoraði þrjú mörk fyrir Kiel. Þetta var fyrri leikur liðanna í sextán liða úrslitum keppninnar. Danski handboltinn: Nordjsælland-AG 23-24 Snorri Steinn Guðjónsson tryggði AG sigur með marki 33 sekúndum fyrir leikslok. ÚRSLIT Öryggishnappur sem bjargar Hjúkrunarfræðingar alltaf á vakt Með öryggishnappi Öryggismiðstöðvarinnar færðu þráðlausan reykskynjara beintengdan stjórnstöð. Meiri þjónusta sem eykur öryggi þitt og þinna nánustu. Það er einfalt og kostar ekkert að skipta um þjónustuaðila. PI PA R\ PI PA R\ A TB W A • W A W A TB W S ÍA • S 1 20 62 20 6 3 Hringdu núna! Sími 570 2400 · oryggi.is Stöndum vaktina allan sólarhringinn HANDBOLTI Eftir að hafa aðeins verið þremur mörkum undir í hálf- leik, 16-13, sáu íslensku strákarnir ekki til sólar í þeim síðari gegn Þjóðverjum sem unnu afar öruggan og sannfærandi ellefu marka sigur. Íslenska liðinu gekk vel að leysa 6/0 vörn Þjóðverjanna í fyrri hálf- leik en átti aftur á móti engin svör við 5/1 vörninni sem Þjóðverjar spiluðu í þeim síðari. „Seinni hálfleikur var lélegur. Við höfðum í raun aðeins eina æfingu til þess að undirbúa okkur og þá bjuggum við okkur undir 6/0 vörn og sóknarleikurinn gekk vel gegn henni. Það var margt jákvætt við fyrri hálfleikinn en í þeim seinni vorum við ekki tilbúnir í slaginn. Þá fjaraði undan liðinu og menn gerðu sig seka um slæm mistök. Ég hefði verið tiltölulega sáttur við svona fimm marka tap en ellefu marka tap var óþarflega mikið,“ sagði landsliðsþjálfarinn Guðmundur Guðmundsson við Fréttablaðið eftir leikinn. Hann var að tefla fram illa reyndu liði í leiknum enda vantaði flesta lykilmenn íslenska liðsins í þennan leik. „Ég fékk fullt af svörum um hverjir koma til greina í þennan hóp og hverjir ekki. Hverjir eru að nálgast hann og hverjir eiga lengra í land. Þetta hjálpar mér fyrir að velja næsta hóp,“ sagði Guðmundur en hvernig voru menn að standa sig að hans mati? „Þetta var mjög kaflaskipt. Óli Bjarki kom inn með fína hluti og Aron átti flotta innkomu í markið og varði meðal annars sjö skot fyrsta korterið. 13 boltar hjá honum var fínt en Björgvin átti erfitt uppdráttar þann tíma sem hann spilaði,“ sagði Guðmundur en Björgvin varði ekkert skot þær 15 mínútur sem hann stóð í markinu. „Við fengum fín mörk frá Ólafi Gústafssyni en hann var ekki með fína skotnýtingu. Skaut þrettán sinnum að marki og skoraði fimm mörk. Stefán Rafn kom inn í síðari hálfleik og stóð sig vel. Ásgeir var góður í fyrri hálfleik og Sigurgeir Árni stóð sig vel í vörninni við hliðina á Vigni. Það var samt við ramman reip að draga í þessum leik. Það verður að viðurkennast og sóknarleikurinn ekki nægilega vel útfærður.“ Guðmundur hafði aðeins tvær æfingar til þess að undirbúa liðið og miðað við það var hann þokka- lega sáttur við það sem hann sá í þessum leik. Landsliðsþjálfarinn var í sér- stakri stöðu í gær enda var hann að stýra landsliðinu í höllinni þar sem hann stýrir liði sínu, Rhein- Neckar Löwen, í hverri viku. „Það var óneitanlega mjög sér- stakt að vera í hlutverki and- stæðingsins hérna. Það var samt mjög gaman og góð stemning hérna. Okkur Robba var sérstak- lega vel fagnað og skemmtileg upplifun og sérstök tilfinning. Það var samt góður andi hérna og ég naut þessarar reynslu.“ henry@frettabladid.is ÞETTA VAR ÓÞARFLEGA STÓRT TAP Laskað íslenskt landslið steinlá, 33-22, gegn Þjóðverjum í Mannheim í gær. Eftir ágætan fyrri hálfleik breyttu Þjóðverjar varnarleiknum sínum í þeim síðari og hreinlega keyrðu yfir íslenska liðið. FYRIRLIÐINN Á HEIMAVELLI Róbert Gunnarsson bar fyrirliðabandið í fyrsta skipti fyrir Ísland í gær og það á vellinum þar sem hann spilar fyrir lið sitt, Rhein-Neckar Löwen. NORDIC PHOTOS/BONGARTS KÖRFUBOLTI Haukastúlkur unnu öruggan sigur á KR-ingum í hreinum úrslitaleik liðanna um sæti í úrslitakeppni Iceland Express-deildarinnar í Hafnar- firði. Eftir jafnan fyrri hálfleik keyrðu heimakonur yfir gestina í þeim síðari og aldrei spurning um hvort liðið væri sterkara. „Það var markmið okkar fyrir tímabilið að komast í úrslita- keppnina og við náðum því,“ sagði Íris Sverrisdóttir brosandi út að eyrum. Hún hefur fulla trú á að liðið geti farið alla leið og Bjarni Magnússon, þjálfari Hauka, var sama sinnis. „Engin spurning. Við höfum tekið stig af liðunum fyrir ofan okkur og þau af okkur. Þetta verður spennandi,“ sagði Bjarni en þetta er níunda árið í röð sem Haukar komast í úrslitakeppnina. KR missti einn besta leikmann sinn á tímabilinu, Sigrúnu Sjöfn Ámundadóttur, meidda af velli í fyrri hálfleik. Ofan á önnur meiðslavandræði liðsins var það of mikil blóðtaka í baráttunni undir körfunni. „Þetta er bara martröð,“ sagði Margrét Kara Sturludótt- ir um þá staðreynd að KR væri komið í sumarfrí. Besti leikmað- ur Íslandsmótsins í fyrra hefur spilað undir pari í vetur en hefur sjálf engar skýringar á því. „Ég verð að taka mig saman í andlitinu og stíga upp. Þetta hefur ekki verið nógu gott,“ sagði Kara. Hún átti erfitt með að sætta sig við þá staðreynd að liðið væri komið í sumarfrí þótt einni umferð sé ólokið. - ktd Haukar tryggðu sér sæti í úrslitakeppninni með sigri á KR í hreinum úrslitaleik um sæti í úrslitakeppninni: Haukastúlkur eru til alls vísar í framhaldinu BARÁTTA Það var ekkert gefið eftir að Ásvöllum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.