Fréttablaðið - 15.03.2012, Side 10
15. mars 2012 FIMMTUDAGUR10
FORSETI ÍSLANDS AFHENTI SAMFÉLAGSVERÐLAUN FRÉTTABLAÐSINS
Samfélagsverðlaun Frétta-
blaðsins voru afhent við
hátíðlega athöfn í gær. For-
seti Íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, afhenti verð-
launin. Þetta er í sjöunda
sinn sem Fréttablaðið veitir
Samfélagsverðlaun en þau
eru veitt í fjórum flokkum
auk heiðursverðlauna.
Samfélagsverðlaunin
Að þessu sinni hlaut áfangaheimilið
Dyngjan Samfélagsverðlaun Frétta-
blaðsins.
Dyngjan hefur starfað síðan 1988.
Hlutverk Dyngjunnar er að veita
konum sem koma úr áfengis- og
vímuefnameðferð samastað meðan
þær koma undir sig fótum í nýju
lífi. Dyngjan hefur reynst mörgum
konum mikilvægur áfangastaður en
á dvalartíma sínum fá þær svigrúm
til að breyta og byggja upp alls gáðan
ábyrgan lífsstíl. Að jafnaði dvelja
um 14 konur í Dyngjunni og sumar
þeirra með börn. Edda Guðmunds-
dóttir veitir Dyngjunni forstöðu.
Forseti Íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, afhenti Eddu verðlaunin
fyrir hönd Dyngjunnar. Ari Edwald,
forstjóri 365, afhenti síðan verð-
launafé að upphæð ein milljón
króna.
Aðrir sem voru útnefndir til Sam-
félagsverðlauna voru Frú Ragn-
heiður, heilsugæsluþjónusta fyrir
jaðarhópa, og Vinafjölskyldur sem
er verkefni sem stuðlar að því að
erlendar fjölskyldur séu virkar í
skólastarfi.
Hvunndagshetja
Hvunndagshetja ársins 2012 er
Pauline McCarthy, sem er jafnan
tilbúin að leggja góðum málefnum
lið. Auk þess að vinna sjálfboða-
störf bæði fyrir Rauða krossinn og
Mæðrastyrksnefnd hefur hún opnað
heimili sitt þeim sem eru einir á
jólum.
Aðrir tilnefndir í þessum flokki
voru Árni Stefán Árnason, lög-
fræðingur með dýrarétt að sérsviði,
og Gróa Gunnarsdóttir, leikskóla-
kennari á leikstofu Barnaspítala
Hringsins.
Frá kynslóð til kynslóðar
Verðlaun í þessum flokki fékk
Bandalag íslenskra skáta, sem hefur
að leiðarljósi að þroska börn og ungt
fólk til að verða sjálf stæðir, virkir,
hjálpsamir og ábyrgir samfélags-
þegnar. Skátahreyfingin gegnir
mikilvægu hlutverki sem val kostur
í frístundastarfi barna og ung-
menna.
Aðrar tilnefningar í þessum
flokki voru Tölvufærninámskeið
þar sem ungir kenna öldnum í
félagsmiðstöðinni í Hæðargarði og
Stefán Þorleifsson, íþrótta kennari
og samfélagsmáttarstólpi í Nes-
kaupstað.
Til atlögu gegn fordómum
Með okkar augum – sjónvarps þáttur
hlaut verðlaunin í þessum flokki.
Þættirnir eru lóð á vogarskálar þess
að breyta þeirri ímynd sem þorri
fólks hefur af einstaklingum með
þroskahömlun.
Aðrir tilnefndir í þessum flokki
voru Kaffi, kökur og rokk&ról, tón-
leikaröð á vegum SÁÁ, og Sigríður
Víðis Jónsdóttir vegna bókar sinnar
Ríkisfang: Ekkert.
Heiðursverðlaun
Heiðursverðlaun Samfélags-
verðlauna Fréttablaðsins hlaut
Þorvaldur Kristinsson.
Undanfarna þrjá áratugi hafa
fjölmargir sigrar unnist í baráttu
samkynhneigðra fyrir réttindum
og viðurkenningu. Þorvaldur hefur
á þessum tíma verið máttarstólpi í
hreyfingu samkynhneigðra, bæði
í grasrót og í fararbroddi, meðal
annars sem forseti Hinsegin daga.
Byggt á tilnefningum lesenda
Á annað hundrað tilnefninga til
Samfélagsverðlaunanna bárust frá
lesendum Fréttablaðsins að þessu
sinni. Markmið með Samfélags-
verðlaununum er að beina sjónum
að margbreytilegum góðum verkum
sem unnin eru í samfélaginu. Þetta
er í sjöunda sinn sem Fréttablaðið
veitir Samfélagsverðlaunin.
Samfélagsverðlaun Frétta-
blaðsins nema sem fyrr segir einni
milljón króna, aðrir verðlaunahafar
fengu tíu tommu United-spjaldtölvu
frá Tölvulistanum auk verðlauna-
gripa sem eru hannaðir og smíðaðir
af Ásgarði, Mosfellsbæ.
Dyngjan fékk Samfélagsverðlaunin
Lesendur Fréttablaðsins gátu sent inn tilnefningar til Samfélagsverðlauna í
janúar. Þá tók dómnefnd við og vann úr tilnefningunum.
Dómnefnd um Samfélagsverðlaun var skipuð Steinunni Stefánsdóttur,
aðstoðarritstjóra Fréttablaðsins, sem var formaður, Önnu Kristinsdóttur,
mannréttindastjóra Reykjavíkurborgar, Felix Bergssyni, útvarpsmanni með
meiru, og séra Jónu Hrönn Bolladóttur.
Dómnefnd um Samfélagsverðlaun
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
– Afslátt eða gott verð?
Kletthálsi Reykjav.
Reykjanesbæ
Akureyri
Húsavík
Vestmannaeyjum
Asaki VERKFÆRI
ALB10DAS 10,8V Li-Ion
Bor/skrúfvél 1,4Ah 30Nm
14.890,-
ALM18DD 18V höggborvél
Li-Ion 2,8Ah 38Nm 2 hraðar
41.890,-
AR636 18V Skrúfvél
Ni-Cd 2,0Ah 158Nm
18.890,-
AV224 620W höggborvél
SDS & herðslupatróna
13.900,-
AB693 150W Pússvél
93x185mm
5.890,-
ALM14DF 14,4V Li-Ion
herðsluskrúfvél
2,8Ah 135Nm
36.890,-
ALM18DB 18V Li-Ion
borvél 2,8Ah / 38Nm
39.990,-
ATH: Tvær rafhlöður,
taska og hraðvirkt
hleðslutæki fylgir
hverri hleðsluvél!
***** 5 stjörnu verkfæri
SAMFÉLAGSVERÐLAUN Edda Guðmundsdóttir, forstöðumaður áfangaheimilsins
Dyngjunnar, tók við Samfélagsverðlaununum 2012 úr hendi forstjóra 365, Ara Edwald.
HVUNNDAGSHETJAN Pauline McCarthy
hefur meðal annars opnað heimili sitt
fyrir þeim sem eru einir á jólum.
FRÁ KYNSLÓÐ TIL KYNSLÓÐAR Forseti Íslands afhenti Braga Björnssyni skáta-
höfðingja verðlaun til handa skátahreyfingunni.
TIL ATLÖGU GEGN FORDÓMUM Sjónvarpsþátturinn með okkar augum færði aðstandendum hans verðlaun í flokknum Til atlögu gegn fordómum. Veittu fulltrúar þáttarins
verðlaununum viðtöku úr hendi forseta Íslands, Ólafs Ragnars Grímssonar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
HEIÐURSVERÐLAUN Þorvaldur Kristinsson hefur í áratugi verið í fylkingarbrjósti í
baráttunni fyrir réttindum samkynhneigðra.