Fréttablaðið - 15.03.2012, Blaðsíða 22
22 15. mars 2012 FIMMTUDAGUR
Stálgrindarmöstur eins og þau sem Landsnet hyggst reisa á
Reykjanesskaganum eru táknmynd
liðinna tíma. Þau byggja í grunninn
á sömu verkfræði og notuð var við
hönnun og byggingu Eiffel turnsins.
Byggingu Eiffel turnsins lauk árið
1889 og hefur ýmislegt breyst í
heiminum síðan þá – líka í verk-
fræði. Fyrir mörgum áratugum
var litið á stálgrindarmöstur og
háspennulínur með stolti, þau til-
heyrðu kennileitum þróaðra ríkja
– táknmynd iðnvæðingarinnar og
vitnisburður um nútímaverkfræði
síns tíma. Það eru í dag aftur á móti
sterk tengsl milli þeirrar neikvæðu
ímyndar sem stálgrindarmöstur
hafa og þeirrar tegundar verkfræði
sem býr að baki.
Í þessu samhengi er athygli vert
að horfa nokkra áratugi aftur í
tímann eða til upphafs 20. aldar-
innar. Þá byggðu brúarmannvirki
og háspennumöstur – hvort fyrir sig
mikilvægir þættir í flutningskerfi
– á sömu stálgrindaverkfræðinni
og þótti fínt. Á meðan brúarverk-
fræðin hefur síðan þá þróast langt
frá stálgrindaverkfræðinni hefur
verkfræði háspennumastra staðið
í stað. Brúarmannvirki og brúar-
verkfræði hafa jafnframt í gegnum
tíðina haldið sinni jákvæðu ímynd,
sem jafnframt er athygli vert.
Ástæður þessa verða ekki raktar
hér, ekki rúm til þess. Hins vegar
má í þessu samhengi velta fyrir
sér af hverju Danir notuðu ekki
stálgrindur undir vindmyllurnar
sínar. Hvítar vindmyllur í einföldu
formi eru í dag jákvæð táknmynd
nútímaverkfræði og tæknivæðingar
sem vinnur með umhverfinu. Þessi
ímynd er notuð (og misnotuð) víða í
markaðssetningu sem undirstrikar
hversu sterk hún er.
Staðan sem við stöndum nú
frammi fyrir á sviði raforku-
flutnings kerfa er að því er virðist
dæmigert afsprengi fákeppni og
einokunar á markaði, hér á sviði
tækni og verkfræði. Fámennur
hópur manna stjórnar ferlinu – og
hefur lengi gert – með sérhagsmuni
að leiðarljósi, nú í síauknum mæli á
kostnað almennings. Kommúnista-
ríkin urðu á sínum tíma að horfast
í augu við vandamál sem sprottin
voru af sama meiði þegar tímar
kommúnisma liðu undir lok;
einokun og fákeppni hamlar þróun.
Það sem almenningur og sveitar-
stjórnarfólk almennt virðist minna
upplýst um er að það eru aðrar
lausnir til á raforkuflutningi en þær
sem Landsnet kynnir, við getum
kallað þær þriðju leiðina. Um er að
ræða umhverfisvænar lausnir sem
byggja á nútímaverkfræði, lausnir
sem jafnframt eru hagkvæmar sé
rétt staðið að málum. Kynningar-
ferli Landsnets eru hönnuð með
þarfir fyrirtækisins í huga, sem
virðast stjórnast af skammtíma-
sjónarmiðum – hámörkun skamm-
tímahagnaðar líkt og um einka-
fyrir tæki væri að ræða. Af hverju
að færa sig frá því sem maður
þekkir svo vel – og er sérfræðingur
í – breytingar gætu mögulega haft
„óþarfa“ aukakostnað í för með
sér fyrir fyrirtækið þótt slíkt gæti
komið betur út fyrir samfélagið
þegar til lengri tíma er litið.
Er óeðlilegt að ætla að fyrir-
tæki í almenningseigu taki tillit til
almannahagsmuna?
Mótmælin í Vogum
Mótmælin í Vogum eru í fullkomnu
samræmi við sambærileg mótmæli
sem eiga sér stað í síauknum mæli
víða í heiminum, enda eru stál-
grindarmöstur fulltrúi þeirrar sjón-
mengunar sem raforku flutnings-
kerfi valda. Nokkrar þjóðir hafa
áttað sig á þessu, þar á meðal
Finnar og Danir. Nú hafa Vogarnir
bæst í hópinn og ber það vott um
framsýni og hugrekki til þess að
standa vörð um það sem er raun-
verulega verðmætt.
Ofureflið er mikið þótt fáir
standi þar að baki. Forstjóri fyrir-
tækisins Landsnets hefur skv.
lögum hönnun, stjórnun og skipu-
lagningu raforkuflutningskerfa í
sínum höndum á Íslandi. Ný orku-
stefna iðnaðarráðuneytisins tekur
því miður ekki betur á þessum
málum, heldur þvert á móti gefur
forstjóra Landsnets svo gott sem
haftalaust frelsi til að haga þessum
málum eins og hentar Landsneti og
hagnaðarsjónar miðum þess best.
Hversu mikill þarf hagnaðurinn
að vera?
Síðari hluti greinarinnar birtist
á næstu dögum.
Kjósendur fá sífellt fleiri tæki-færi til að taka þátt í þjóðar-
atkvæðagreiðslum, sem er gott.
En um leið er orðið mjög brýnt að
setja lög gegn því að valdi og fjár-
magni verði beitt til að skekkja
grundvöll lýðræðisins.
Fjársterkir aðilar hafa forskot á
þá efnaminni þegar kemur að því
að fjárfesta í markaðs setningu
skoðana. Ef við viljum ekki að
aðgangur að fjármagni geti
ráðið úrslitum í þjóðaratkvæða-
greiðslum þarf að setja lög sem
jafna leikinn.
Erlend stjórnvöld og alþjóða-
fyrir tæki geta hæglega yfir-
gnæft lýðræðislega umræðu í jafn
fámennu landi og okkar, nema slík
inngrip verði bönnuð með lögum.
Því miður virðist þó einna
brýnast að takmarka svigrúm
ríkis valdsins til að beita sér. Í
aðdraganda þjóðaratkvæðis um
Icesave III, fór ríkisstjórnin í
mikla herferð um landið og hvatti
kjósendur til að samþykkja lögin.
Bæklingur var sendur á öll heimili,
en áður var beiðni Advice hópsins
um að bæklingurinn innihéldi bæði
með- og mótrök hafnað.
Á móti ríkisvaldinu fór fámennur
hópur sjálfboðaliða sem lagði
nótt við dag til þess að koma and-
mælum á framfæri við landsmenn.
Ríkisstjórnin stýrði öllum tíma-
setningum og sá sér hag í því að
skammta sem fæsta daga til and-
mæla. Beiting ríkisvaldsins með
þeim hætti sem hér er lýst er í
raun ofbeldi gagnvart lýðræðinu í
landinu.
Aðildarsamningur að ESB mun
verða settur í þjóðaratkvæði. Bæði
Já- og Nei-hreyfingar hafa sprottið
upp og kynnt sín sjónarmið á jafn-
réttisgrundvelli. En ríkis stjórnin
hefur nú þegar afbakað lýð ræðið
með því að leyfa ESB að verja hér
yfir tvö hundruð milljónum til ein-
hliða kynningar. Það er margfalt
meira fé en já- og nei- hreyfingar
hafa úr að spila. Ríkisstjórnin hefur
greitt fyrir því að ESB veiti millj-
örðum inn í landið í formi aðlög-
unarstyrkja. Opinberir starfsmenn
þiggja veglegar boðsferðir ESB til
Brussel. Í ljósi þess að framundan
er þjóðaratkvæðagreiðsla um málið,
er augljóst að þessar aðgerðir ríkis-
stjórnarinnar eru löngu komnar út
fyrir velsæmismörk. Ríkis stjórnin
beitir ríkisvaldinu skefjalaust til
að móta skoðanir lykilfólks og
almennings í þágu aðildar.
Lýðræði okkar heldur vonandi
áfram að aukast og þróast en það
er ennþá of berskjaldað fyrir valdi
og fjármagni. Úr því þarf að bæta
með lögum. Beint lýðræði er tæki-
færi fyrir landsmenn til að taka
þátt í mikilvægum ákvörðunum
og móta hér betra samfélag, en
það mun kalla ógæfu yfir þjóðina
verði lýðræðinu leyft að snúast upp
í kapphlaup þar sem óbeislað vald
og fjármagn fær að ráða úrslitum.
Mótmælin í Vogum eru í fullkomnu
samræmi við sambærileg mótmæli sem
eiga sér stað í síauknum mæli...
Ríkisstjórnin
beitir ríkisvaldinu
skefjalaust til að móta
skoðanir lykilfólks og al-
mennings í þágu aðildar.
100%
HÁGÆÐA
MYSUPRÓTEIN
MS.IS
PRÓTEINDRYKKURINN
SEM ÍSLENDINGAR FÁ
ALDREI NÓG AF
ÍS
L
E
N
SK
A
S
IA
.IS
M
S
A
5
86
99
0
3/
12
NÚ EINNIG MEÐ
BRÓMBERJABRAGÐI
Eiga Suðurnes að bera ímynd
19. aldar iðnvæðingar?
Lýðræði okkar er
berskjaldað
Orkumál
Magnús Rannver
Rafnsson
lektor í verkfræði við
HiST University College
í Þrándheimi
Lýðræði
Frosti
Sigurjónsson
rekstarhagfræðingur