Fréttablaðið - 03.04.2012, Síða 8
3. apríl 2012 ÞRIÐJUDAGUR8
Almenna
ályktunin
sem má draga
af þessu er að
menn eru að
leggja gríðar-
lega áherslu á
netvarnir.
HRAFNKELL V. GÍSLASON
FORSTJÓRI PÓST- OG
FJARSKIPTASTOFNUNAR
VARNARMÁL Atlantshafsbandalag-
ið (NATO) hefur boðið út verkefni
fyrir sem nemur 9,7 milljörðum
króna til að efla netvarnir banda-
lagsins. Um er að ræða stærsta
samning sem bandalagið hefur
gert til að tryggja upplýsinga-
öryggi hjá bandalaginu og aðild-
arríkjum.
Með útboðinu er ætlað að styrkja
netvarnarmiðstöð NATO. Miðstöð-
in er þegar starfandi, en henni er
ætlað að starfa á fullum afköstum
fyrir lok árs, og er útboðinu ætlað
að tryggja það.
Miðstöðinni hefur hingað til
fyrst og fremst verið ætlað að
tryggja öryggi tölvukerfis banda-
lagsins. Fyrir árslok er ætlunin að
auka áherslu á aðstoð við banda-
lagsríki, til dæmis með því að
deila upplýsingum. Þá verða einn-
ig sett á laggirnar sérstök við-
bragðsteymi sem bandalagsrík-
in geta fengið aðstoð frá sé gerð
alvarleg netárás.
„Almenna ályktunin sem má
draga af þessu er að menn eru að
leggja gríðarlega áherslu á net-
varnir,“ segir Hrafnkell V. Gísla-
son, forstjóri Póst- og fjarskipta-
stofnunar.
Stofnunin starfrækir netörygg-
isteymi, svokallaðan CERT-hóp, en
Hrafnkell segir hópinn leggja alla
áherslu á borgaralegar netvarnir,
ekki hernaðarlegar eins og NATO.
Hópurinn horfi nú fyrst og fremst
til samstarfs við Norðurlöndin, þó
ekki sé hægt að útiloka samstarf
við NATO í framtíðinni.
Reglulega eru gerðar netárásir
á stofnanir og fyrirtæki hvar sem
er í heiminum. Yfirleitt er ekkert
gefið upp um slíkar árásir, þar sem
stjórnendur fyrirtækja óttast að
traust á fyrirtækjunum hrynji, og
hlutabréfaverðið þar með, ef upp-
lýst er um netárásir sem fyrirtæk-
in ná ekki að verjast.
Dæmi eru um slíkar árásir á
nokkur af stærstu olíu- og gas-
framleiðslufyrirtækjum heims
nýverið. Árásirnar voru raktar
til Kína. Þar sem þær áttu sér
bara stað á skrifstofutíma í Pek-
ing telja sérfræðingar víst að kín-
versk stjórnvöld standi á bak við
árásirnar.
brjann@frettabladid.is
Netvarnir hjá NATO
efldar fyrir milljarða
Atlantshafsbandalagið ætlar að verja nærri tíu milljörðum króna í að efla net-
varnir bandalagsins. Ætla að koma upp viðbragðsteymum sem aðildarríki geta
kallað til sé gerð netárás. Fölsk vinabeiðni aðmíráls kom bandalaginu í bobba.
UPPLÝSINGAR Tölvuþrjótar geta beitt ýmsum aðferðum til að nálgast trúnaðarupplýsingar, allt frá myndum á Facebook-síðu til
trúnaðargagna um vopnaframleiðslu. NORDICPHOTOS/AFP
1. Hver varð Íslandsmeistari í
badminton í níunda skipti um
helgina?
2. Hver er formaður Lögmanna-
félags Íslands?
3. Hvað heitir flokkur Aung San
Suu Kyi?
SVÖR
Yfirmenn í herafla Bandaríkjanna og
Bretlands, auk háttsettra embættis-
manna í löndunum tveimur, féllu í gildru
njósnara þegar þeir samþykktu vina-
beiðni á Facebook-samskiptasíðunni
sem virtist vera frá James Stavridis,
bandarískum aðmírál sem starfar nú
sem yfirmaður herafla NATO í Evrópu.
Stavridis hafði hins vegar ekki tekið
upp á því að setja upp síðu á Facebook,
heldur er talið að kínverskir njósnarar
hafi staðið á bak við tiltækið, að því er
fram kemur í frétt breska dagblaðsins Telegraph um málið.
Tilgangurinn með þessu var að fá sem mest af persónulegum upp-
lýsingum um þessa nýju vini falska aðmírálsins. Hvorki Facebook né NATO
hafa gefið upp hversu margir féllu í gildruna.
Njósnararnir fengu með þessu upplýsingar á borð við persónuleg netföng,
símanúmer, nöfn fjölskyldumeðlima, myndir og jafnvel upplýsingar um
ferðalög viðkomandi. Slíkar upplýsingar geta nýst á margvíslegan hátt, til
dæmis til að auðvelda tölvuþrjótum að hakka sig inn í mikilvæg kerfi, og
mögulega til að kúga viðkomandi til að gera eitthvað vafasamt.
Afleiðingarnar af þessu urðu aðrar en einhverjir hefðu getað reiknað
með. Í stað þess að setja hömlur á notkun á Facebook-síðunni krefst NATO
þess nú að yfirmenn og erindrekar hjá bandalaginu séu með sína eigin
Facebook-síðu til að koma í veg fyrir sambærileg atvik í framtíðinni.
Vinabeiðni aðmíráls reyndist fölsk
1. Ragna Ingólfsdóttir 2. Brynjar Níelsson
3. Lýðræðisfylkingin
Leggur grunn að góðum degi
Felix svefnsófi
TILBOÐ
Kr. 368.900,-
Verð áður 461.125,-
Svefnsófadagar í apríl
Felix tungusófi
TILBOÐ
Kr. 552.000,-
Verð áður 690.000,-
Lingen svefnsófi
TILBOÐ
Kr. 99.000,-
Verð áður 123.750,-
*3,5% lántökugjald.
12
mánaða
vaxtalaus k jör
á svefnsófum
í aprí l
Áttu von á gestum?
Mikið úrval svefnsófa
með dýnum í sérflokki
SÝRLAND, AP Kofi Annan, erindreki Sameinuðu þjóðanna í Sýr-
landi, tilkynnti öryggisráði Sameinuðu þjóðanna í gær að Sýr-
landsstjórn hafi fallist á að draga herlið sitt frá íbúðahverfum
fyrir 10. apríl.
Bashar Ja‘fari, sendiherra Sýrlands hjá Sameinuðu þjóð-
unum, staðfesti þetta og ítrekaði að Sýrlendingar styddu sex
punkta friðaráætlun, sem Kofi Annan kynnti þeim nýverið.
Enn hafa þó engin merki sést um að sýrlensk stjórnvöld ætli
að framkvæma það, sem krafist er af þeim í friðaráætluninni.
Susan Rice, sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóð-
unum, sagðist enn full tortryggni gagnvart Sýrlandsstjórn.
„Við höfum séð að þau hafa skuldbundið sig til að binda
enda á átökin og í kjölfarið hafa átökin magnast um helm-
ing,“ sagði hún. „Þannig að Bandaríkin, í það minnsta, myndu
skoða þessi loforð og segja enn og aftur að staðfesting þeirra
felst í athöfnum en ekki orðum.“ - gb
Sýrlendingar segjast fallast á friðaráætlun Sameinuðu þjóðanna:
Lofa að draga herinn til baka
UPPREISNARMENN Í DAMASKUS Enn er beðið eftir að
Sýrlandsstjórn standi við loforðin. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
LÖGREGLUMÁL Lítil meiðsli urðu á
fólki í tveimur bílslysum á Holta-
vörðuheiði aðfaranótt mánudags.
Skafrenningur og hálka var á
heiðinni.
Í fyrra slysinu rann bíll í hálk-
unni og fór út af veginum. Eng-
inn meiddist en þegar verið var
að draga bílinn upp á veginn kom
annar bíll að. Ökumaður þess
bíls náði ekki að stöðva og bíllinn
rann út af veginum og valt. Fjórir
voru í þeim bíl og kvartaði einn
yfir eymslum. Fólkið var flutt í
Borgarnes til skoðunar. - þeb
Vetrarfærð á Holtavörðuheiði:
Tveir bílar fóru
út af á heiðinni
VEISTU SVARIÐ?