Fréttablaðið


Fréttablaðið - 03.04.2012, Qupperneq 27

Fréttablaðið - 03.04.2012, Qupperneq 27
Grænn apríl www.lifandimarkadur.is Borgartúni 24 | Reykjavík Hæðasmára 6 | Kópavogi Sími: 585 8700 Allar Sonett hreinlætisvörurnar eru ECO vottaðar LIFANDI markaður býður 15% afslátt af völdum vörum frá Sonett í apríl. Öll hreinsiefni frá Sonett eru unnin úr jurta- hráefnum og eru því 100% niðurbrjótanleg í náttúrunni. Veldu Sonett þegar þú tekur þín fyrstu skref í átt að grænum lífsstíl. 15% afsláttur teg 3371 - létt fylltur og voða sætur í B,C skálum á kr. 5.500,- buxur í stíl á kr. 1.995,- NÝTT SNIÐ Laugavegi 178 - Sími: 551 3366 Þú mætir - við mælum og aðstoðum www.misty.is Opið frá 10-18 virka daga. 10-14 laugardaga JEPPA- OG SKÍÐAFERÐ UM PÁSKA Útivist efnir til jeppa- og skíðaferðar um páskana. Ekið er á eigin bílum inn á Dómadalsleið. Þaðan er farið á skíðum í Dalakofann en jepparnir flytja farangurinn. Á laugardag og páskadag verður skíðað í nágrenni skálans, meðal annars um falleg hverasvæði. Nánar á utivist.is. Íþróttamenn sem vilja ná góðum árangri þurfa sífellt að huga að mataræði sínu. Veitingastaðurinn Culiacan býður upp á hollan skyndibita sem er bæði næringarríkur og hitaein- ingasnauður. Elmar Diego er einn þeirra íþróttamanna sem borðar reglulega á Culiacan en hann keppir á Íslandsmótinu í Fitness næsta föstudag. Hann hefur æft lyftingar í meira en 20 ár. „Ég er búinn að vera að keppa með hléum síðan 1990. Í fyrra átti ég góða endurkomu eftir langt hlé, en ég sigraði þá,“ segir hann. PRÓTEINRÍKUR MATUR SKIPTIR ÖLLU MÁLI Að sögn Elmars er það erfiðasta við að stunda fitness að mega ekki borða það sem mann langar í. Mataræðið sé númer 1, 2 og 3 ef fólk ætlar að ná árangri. „Þar á eftir koma stífar æfingar. En það er alveg sama hversu mikið maður æfir ef maður velur ekki réttan mat ofan í sig. Þá gerist ekki neitt. Maður er það sem maður borðar, það er bara staðreyndin.“ Elmar er nú á lokasprett- inum við að skera sig niður fyrir Íslandsmótið. Þá skiptir mestu máli að hans sögn að borða próteinríkan mat sem inniheldur ekki margar hitaeiningar. „Þá fæ ég mér oftast Fitness-burrito eða Supremo-salat á Culiacan. Þannig hjálpa ég líkamanum að halda í vöðvamassann en ganga á fituforðann. Þegar ég er hins vegar ekki að skera finnst mér hrikalega gott að fá mér Quesadillas.“ ÚRVAL HEILSUBITA AUKIST MIKIÐ Elmar hefur keppt síðan árið 1994. Hann finnur mikinn mun á úrvali heilsubita í dag og þegar hann hóf keppni. „Ég finn svakalegan mun á úrval- inu af heilsubita núna eða þegar ég var að keppa 1994. Þá var ekkert svona í boði og maður þurfti að útbúa sinn mat heima fyrir fram. Þetta er algjör lúxus, að geta komið við á veitingastað og fengið það sem mann vantar, það er fitulítinn og próteinríkan mat,“ segir Elmar. Hann merkir einnig að fólk sé almennt miklu meðvitaðra um hvað það setur ofan í sig en áður. Elmar segir ganga vel að skera sig nið- ur og vonast eftir góðu gengi á mótinu næsta föstudag. „Það eru þrettán kepp- endur í Fitness-flokki karla. Þar sem ég vann í fyrra er ég mátulega bjartsýnn núna,“ segir Elmar brosandi. Culiacan er á Suðurlandsbraut 4a, og er opið alla daga 11.30 - 22.00. Í KEPPNISFORM MEÐ FITNESS BURRITO CULIACAN KYNNIR Próteinríkur og hitaeiningasnauður heilsubiti er góður valkostur fyrir íþróttamenn sem vilja ná árangri. VELLÍÐAN Í HVERJ- UM BITA Fitulítill og próteinríkur matur hjálpar íþróttamönnum að ná toppárangri. MYND/SÓLVEIGMAÐUR ER ÞAÐ SEM MAÐUR BORÐAR, ÞAÐ ER STAÐREYND.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.