Fréttablaðið - 03.04.2012, Page 48

Fréttablaðið - 03.04.2012, Page 48
3. apríl 2012 ÞRIÐJUDAGUR44 sport@frettabladid.is GUNNAR HEIÐAR ÞORVALDSSON skoraði sigurmark Norrköping í 1-0 sigri liðsins á Svíþjóðarmeisturum Helsingborg í gær en þá lauk fyrstu umferð tímabilsins. Markið skoraði Gunnar Heiðar með skalla af stuttu færi í fyrri hálfleik en hann spilaði allan leikinn fyrir Norrköping. KÖRFUBOLTI Svíþjóðarmeistararn- ir og Íslendingaliðið Sundsvall Dragons er úr leik í úrslitakeppni sænsku úrvalsdeildarinnar í körfubolta eftir tap í oddaleik rimmu sinnar gegn LF Basket í fjórðungsúrslitum, 88-79, í gær. Þetta eru vitanlega mikil von- brigði fyrir drekana sem lentu 2-1 undir í einvíginu. Þeir náðu svo að knýja fram oddaleik með naumum sigri á útivelli í síðustu viku en urðu svo að játa sig sigr- aða á heimavelli í oddaleiknum. Jakob Örn Sigurðaron skoraði fimmtán stig, Hlynur Bærings- son sex, auk þess að taka tíu fráköst, og Pavel Ermolinskij var með fimm stig fyrir Sund- svall. Ekkert Íslendingalið komst áfram í undanúrslitin í Svíþjóð að þessu sinni. - esá Íslendingaliðið Sundsvall: Meistararnir úr leik í Svíþjóð JAKOB ÖRN Varð að játa sig sigraðan í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI SKÍÐI Skíðamóti Íslands lauk í Hlíðarfjalli í gær með keppni í stórsvigi karla og kvenna. Katrín Kristjánsdóttir frá Akureyri varð hlutskörpust kvenna og Dalvík- ingurinn Jakob Helgi Bjarnason í karlaflokki, en hann er einungis sextán ára gamall og vann þar með sinn fyrsta Íslandsmeistara- titil í flokki fullorðinna. Jakob Helgi er í hópi bestu skíðagarpa Evrópu í sínum aldursflokki og þykir mikið efni. Hann varð í öðru sæti í svigi á laugardaginn. Katrín er tvítug og yngri systir Dagnýjar Lindu sem lengi bar höfuð og herðar yfir aðrar skíða- konur á Íslandi. Hún hætti árið 2008 eftir langan og gæfuríkan feril. Katrín var í öðru sæti eftir fyrri ferð í sviginu á laugardag- inn en féll úr leik í seinni ferð- inni. Sigurvegari í svigi kvenna, hin átján ára María Guðmunds- dóttir, meiddist á hné í gær og er óvíst hversu alvarleg meiðslin eru. - esá Skíðamóti Íslands lauk í gær: Sextán ára Ís- landsmeistari FÓTBOLTI Manchester United er í lykilstöðu á toppi ensku úrvals- deildarinnar eftir 2-0 sigur á Blackburn á útivelli í gær. Liðið er nú með 76 stig og fimm stiga forystu á granna sína í Manches- ter City, sem hefur fatast flugið að undanförnu. Antonio Valencia og Ashley Young skoruðu mörk United í gær á síðustu tíu mínútum leiksins. Valencia skoraði fyrra markið með föstu skoti úr þröngu færi og lagði svo upp síðara markið fyrir Young en mark hans var einnig glæsilegt. Sjö umferðir eru eftir af tíma- bilinu í Englandi og fátt sem bendir til annars en að United verði fyrsta liðið í sögunni til að vinna 20 deildarmeistaratitla þar í landi. - esá United vann Blackburn, 2-0: Fimm stiga for- ysta á toppnum FÖGNUÐUR Ashley Young fagnaði marki sínu í gær vel og innilega. NORDIC PHOTOS/GETTY Sími 570 2400 · oryggi.is Stöndum vaktina allan sólarhringinn Fáðu tilboð á oryggi.is Það er einfalt að skipta um þjónustuaðila. Gerðu verðsamanburð. Hringdu núna í 570 2400. PI PA R\ TB W A • S ÍA • 1 11 0 49 Borgar þú of mikið fyrir öryggiskerfið? Góð ráð frá Trausta á facebook.com/oryggi Iceland Express-deild karla: 8-LIÐA ÚRSLIT, LEIKIR NR. 2 Snæfell - Þór Þorl. 94-84 (47-49) Snæfell: Jón Ólafur Jónsson 27/7 fráköst, Mar- quis Sheldon Hall 22/10 fráköst/8 stoðsendingar, Quincy Hankins-Cole 22/13 fráköst, Pálmi Freyr Sigurgeirsson 11, Hafþór Ingi Gunnarsson 7, Sveinn Arnar Davidsson 3. Þór Þorlákshöfn: Darrin Govens 32/6 fráköst, Blagoj Janev 18/6 fráköst, Matthew James Hair- ston 16/7 fráköst, Guðmundur Jónsson 12, Darri Hilmarsson 4/6 fráköst, Grétar Ingi Erlendsson 2. Staðan í einvíginu er jöfn, 1-1. Keflavík - Stjarnan 88-82 (45-50) Keflavík: Charles Michael Parker 24/12 fráköst, Jarryd Cole 22/14 fráköst, Valur Orri Valsson 16/6 stoðsendingar, Magnús Þór Gunnarsson 15/6 stoðsendingar, Halldór Örn Halldórsson 6, Almar Stefán Guðbrandsson 5. Stjarnan: Justin Shouse 20/8 fráköst, Marvin Valdimarsson 18/7 fráköst, Keith Cothran 14, Jovan Zdravevski 11/7 fráköst, Renato Lindmets 9/8 fráköst, Sigurjón Örn Lárusson 4, Dagur Kár Jónsson 4, Fannar Freyr Helgason 2. Staðan í einvíginu er jöfn, 1-1. ODDALEIKIR Þorlákshöfn: Þór - Snæfell fim. kl. 19.15 Garðabær: Stjarnan - Keflavík fim. kl. 19.15 ÚRSLIT KÖRFUBOLTI „Við festumst í 72 stig- um á föstudaginn og núna fest- umst við í 73 stigum. Ég get alveg viðurkennt að ég fékk aðeins fyrir hjartað þá,“ sagði sigurreifur þjálfari Snæfells, Ingi Þór Stein- þórsson, og glotti við tönn. Hans menn í Snæfelli lögðu Þór frá Þor- lákshöfn í gær, 94-84, og þarf því oddaleik til að útkljá einvígið. Hið sama má segja um rimmu Keflavíkur og Stjörnunnar en fyrrnefnda liðið vann sigur í hörkuleik í gær, 88-82. Nonni Mæju með stórleik Snæfell og Þór buðu upp á hreint frábæran leik í Fjárhúsinu í gær. Stuðningsmenn Þórsara, Græni drekinn, fór á kostum í stúkunni og heimamenn tóku vel undir. Leikurinn í járnum nær allan tímann en Snæfellingar sterkari þegar á reyndi. Jón Ólafur Jónsson átti stór- brotinn leik fyrir Snæfell og þegar hann lenti í villuvandræð- um undir lokin stigu Hankins- Cole og Sheldon Hall upp. Þórsar- ar hættu að hitta og virtust ekki hafa nógu sterkar taugar þegar mest á reyndi. „Nonni var geggjaður og dró vagninn á meðan þeir hittu ótrú- lega fyrir utan þriggja stiga lín- una. Heimavöllurinn gaf okkur kraft líka. Ég var virkilega ánægður með spilamennskuna og menn stigu upp er á þurfti að halda,“ sagði Ingi sem bíður spenntur eftir oddaleiknum. „Við eigum helmingslíkur í þeim leik. Þessi lið eru það jöfn. Ég er ekk- ert gapandi hissa að þetta sé að fara í oddaleik.“ Þeir voru einfaldlega betri Benedikt Guðmundsson, þjálfari Þórs, var svekktur en alls ekki af baki dottinn eftir leikinn í gær. „Við fáum á okkur allt of mikið af stigum og svo ræðum við ekk- ert við Mæjuna [Jón Ólaf] lung- ann úr leiknum. Hann skildi liðin að lengi vel. Villuvandræðin fóru líka illa með okkur og við verðum að vinna okkur út úr því,“ sagði Benedikt en hann vildi ekkert kvarta yfir dómgæslunni samt. „Við áttum að spila betur og þeir voru einfaldlega betri í dag. Nú er hreinn úrslitaleikur fram undan og ég er ekkert fúll yfir því enda gaman af svoleiðis leikjum. Ég hef farið í þá ófáa í gegnum tíðina. Ég fagna því þó svo vissu- lega hefði ég viljað klára þetta dæmi í kvöld.“ Hiti í Sláturhúsinu Einvígi Keflavíkur og Stjörn- unnar ræðst í oddaleik en hitinn í báðum liðum var mikill og bar- áttan tók yfir gæði körfuboltans á löngum köflum. Heimamenn byrjuðu leikinn betur og leiddu með níu stiga mun eftir fyrsta fjórðung þar sem Valur Orri Valsson var að gera Stjörnunni lífið leitt. Meiri ákefð var í Garðbæingum í öðrum leik- hluta sem skilaði þeim fimm stiga forystu í hálfleik. Marvin Valdi- marsson var í fararbroddi. Keflvíkingar voru með eins stigs forystu í fyrir síðasta leik- hlutann. Eftir erfiða byrjun á honum náðu þeir að klára leikinn á spennandi hátt. „Þessi leikur tók á taugarnar fyrir bæði lið eðlilega. Svona á þetta að vera og svona mun þetta vera,“ sagði Sigurður Ingimund- arson, þjálfari Keflavíkur. „Ég er hrikalega ánægður með barátt- una hjá okkur. Margir voru voða öruggir um að Stjarnan myndi vinna okkur sem mér finnst í raun og veru fáránlegt.“ - hbg, egm Lömbin rotuðu drekann Snæfell og Þór Þorlákshöfn þurfa að mætast í oddaleik í átta liða úrslitum Ice- land Express-deildar karla. Snæfell lagði Þór, 94-84, í öðrum leik liðanna í Fjár- húsinu. Keflavík knúði einnig fram oddaleik í rimmu sinni gegn Stjörnunni. SIGUR Quincy Hankins-Cole átti flottan leik í gær en hann skoraði 22 stig og tók þrettán fráköst. Hér fagnar hann í leikslok. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.