Fréttablaðið - 25.04.2012, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 25.04.2012, Blaðsíða 1
veðrið í dag MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* Sími: 512 5000 *Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup júlí - september 2011 Miðvikudagur skoðun 12 3 SÉRBLÖÐ í Fréttablaðinu Markaðurinn Fólk Heitir Pottar veðrið í dag 25. apríl 2012 96. tölublað 12. árgangur HEITIR POTTARMIÐVIKUDAGUR 25. APRÍL 2012 Kynningarblað Rafmagnspottar, myndskreyttir pottar, umhirða, nudd og hreinsiefni. V ið bjóðum upp á gott úrval af heitum pottum og lands-ins mesta úrval af síum, varahlutum og f ylgihlutum,“ segir Steinar Þór Þórisson, fram-kvæmdastjóri Laugarinnar ehf.Meðal vörumerkja Laugarinn-ar eru Portcril og Coast Spa en nýlega yfirtók Laugin potta-deild Poulsen og jók vöruúr-valið til muna. Þá býður Laug-in mikið úrval hreinsiefna frá Aqua Finesse og Bayrol, síur og varahluti. „Portcril- pottarnir eru hágæðapottar, framleiddir í Portú-gal með búnað frá Balboa, en Bal-boa er einn af tveimur stærstu framleiðendum búnaðar fyrir heita potta í heiminum,“ segir Steinar Þór. Nýtískuleg hönnun einkennir pottana frá Portcril. Þá er hægt að fá í öllum regnbogans litum og einnig myndskreytta eftir eigin óskum. „Viðskiptavinurinn velur mynd sem er steypt í pottinn. Þú getur hannað þinn eigin pott, bara gefa ímyndunaraf linu laus-an tauminn. Þá hafa kanadísku pottarn-ir frá Coast Spa verið seldir á Íslandi í fjölda ára og reynst einstak-lega vel. Þeir eru í hæsta gæðaflokki og hafa hlot-ið margvísleg verðlaun undanfarin ár.“ Laugin ehf býður upp á við-gerðarþjónustu á öllum gerðum potta þar sem fagmenn vinna verk-ið en ekkert er eins leiðinlegt og að geta ekki notað pottinn vegna bilunar. „Þessu höfum við full-an skilning á og bregðumst fljótt við. Einnig eigum við varahlut-ina í f lestum tilfellum sem flýtir afgreiðslu,“ segir Steinar. „Við veitum einn-ig ráðgjöf í notkun og meðferð potta en með því að halda lögn-um og búnaði hreinum lengist líftíma pottanna til muna. Um-hverfisvæna hreinsiefnið frá Aqua Finesse hefur verið notað í heita potta og sundlaugar á Íslandi með góðum árangri. Það sér um að jafnvægisstilla sýrustig, hreinsa burtu allt slí og kemur í veg fyrir þörungamyndun. Þá hafa hreinsi-efnin frá Bayrol reynst mjög vel,“ segir Steinar. Hjá Lauginni er að finna úrval fylgihluta fyrir heita potta svo sem hitamæla, háfa, klórskammtara og ryk-sugur og fleira.„Við hugsum líka um börnin og eigum mikiðúrval leikf Heildarlausnir í heitum pottum Laugin ehf. sérhæfir sig í öllu sem við kemur heitum pottum og sundlaugum. Nýlega yfirtók Laugin pottadeild Poulsen og jókst vöruúrvalið til muna. Þá býður Laugin upp á viðgerðarþjónustu á öllum gerðum potta. Laugin ehf. sérhæfir sig í öllu sem við kemur heitum pottum og sundlaugum. Steinar Þór Þórisson, framkvæmdastjóri Laugarinnar ehf. að Smiðjuvegi 4. MYNDSKREYTTIR POTTARNýtískuleg hönnun einkennir pottana frá Portcril. Hægt er að fá pottana í öllum regnbogans litum og einnig myndskreytta eftir eigin óskum. VERÐLAUNAPOTTARCoast Spa eru kanadískir pottar sem seldir hafa verið á Íslandi í fjölda ára. Pottarnir hafa reynst einstaklega vel en Coast Spa hefur hlotið margvísleg verðlaun undanfarin ár fyrir heita potta og laugar í hæsta gæðaflokki. Coast Spa býður upp á mikið úrval potta. HREINSIEFNI OG VIÐHALDMeð því að halda lögnum og búnaði hreinum lengist líf í Nýtískuleg hönnun einkennir pottanaf á P Poprtcril fram-leiðir potta í öllum regnbogans litum. Á FERÐ UM ÍSLANDÞeir sem ætla að ferðast um Ísland í sumar geta kynnt sér staðhætti, náttúrufar, gönguleiðir og margt fleira áhugavert á upplýsingavefnum ferdalag.is eða visiticel- and.com. Á þessum síðum er margt áhugavert fyrir Ís- lendinga sem vilja ferðast um föðurlandið. Á stæða þess að við settum upp veitingahús í þessu húsi í Hlíða-smára 3 er sú að skrifstofur Atlanta eru í sama húsi og við vildum að starfsmenn okkar gætu gengið að góðum mat í hádeginu. Hér var áður kaffihús en því var lokað,“ segir Stefán Eyjólfsson, einn af framkvæmdastjórum og eigend-um félagsins. Stefán segir að upphaflega hafi mötu-neyti Atlanta verið í húsinu en síðan hafi félagið leigt út aðstöðuna fyrir kaffihús þar sem starfsmennirnir gátu borðað niðurgreiddan mat. „Þegar kaffihúsið lokaði ákváðum við að gera okkar eigin veitingastað sem gæti þá þjónað öllu hverfinu en hér eru margir stórir vinnu-staðir,“ greinir Stefán frá. Hann bætir því við að með þessari ákvörðun hafi félagið séð tækifæri til að bjóða upp á hollan og góðan mat í hádeginu. Bæði er hægt að borða á staðnum eða taka með sér. Einnig er veisluþjónusta í boði en fólk getur tekið staðinn á leigu fyrir afmæli, erfi-drykkju, fermingu, brúðkaup eða aðrar uppákomur. „Þetta er fyrst og fremst hádegisstaður en við erum með opið til fjögur á daginn,“ segir Stefán. „Aðaltil-gangurinn var að gera þetta almennilega fyrir okkar fólk og leyfa síðan öðnjóta þess “ ATLANTA SETUR UPP VEITINGAHÚSFLUGFÉLAGIÐ ATLANTA hefur sett upp veitingahús í Hlíðasmára þar sem 26 ára flugsaga félagsins fær að njóta sín. Skokkar og kjólar Grænn kjóll / skokkur á 6.900 kr. Margir litir. Str. 40 - 58 DALVEGI 16c · 201 KÓPAVOGISÍMI 568 6411 · WWW.RAFVORUR.IS Taka 12 Kg · HljóðlátStórt op > auðvelt að hlaðaSparneytin amerísk tæki.<Þvottvélin tekur heitt og kalt vatn Afkastamikill þurrkar > Þvottavél Þur kari 12 kg Amerískgæðavara Amerískgæðavara Vertu vinur Sími 551 2070Opið mán.-fös. 10-18.Lokað á laugard. 7. apríl Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.www.mistyskor.is Hugsaðu vel um fætur a Í hálfa öld hafa miljónir manna um allan heim notað BIRKENSTOCK sér til heilsubótar. Hvað um þig?Teg: „ Annapolis“ Fótlaga skór úr leðri með vönduðu innleggi. Stærðir: 36 - 42 Verð: 28.900.- www.visir.is Sími: 512 5000 | Miðvikudagur 25. apríl 2011 | 8. tölublað | 8. árgangur Nið r töðu að vænta í SpKef deilu í síðasta lagi 10. maíÚrskurðanefnd um fjárhagslegt uppgjör milli Landsbankans og íslenska ríkisins vegna yfirtöku bankans á SpKef mun skila niðurstöðu sinni í síð-asta lagi 10. maí næstkomandi. Málflutningur deilu-aðila fyrir úrskurðarnefndinni fór fram 28. og 29. mars síðastliðinn og hefur hún sex vikur frá lokum hans til að skila niðurstöðu. Ragnar H. Hall hæsta-réttarlögmaður, sem er formaður nefndarinnar, segir niðurstöðuna ekki liggja fyrir en að það styttist í hana. Um gríðarlega fjárhagslega hagsmuni er að ræða fyrir bæði Landsbankann, sem tók yfir starf-semi SpKef sparisjóðs í byrjun mars 2011 og íslenska ríkið Ríki …við prentum! COCA COLA – 33 cl Á réttri leið með jóga Estrid Þorvaldsdóttir og Þórgunnur Ársælsdóttir hljóta viðurkenningu Landspítalans. tímamót 16 Ný plata frá Bubba Bubbi Morthens sendi frá sér plötu í gær og hyggst setjast aftur í dómarasætið í maí. popp 30 TÓNLIST Hljómsveitin Sigur Rós er með aðra plötu í undirbúningi sem mun fylgja eftir plötunni Valtara sem kemur út 28. maí. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins er þessi óvænta plata þegar tilbúin og verður gefin út á næsta ári. Hún mun vera gjörólík hinni rólegu og inn- hverfu Valtara. Hljómsveit- in er þessa dagana stödd í Bretlandi þar sem hún kynnir Valtara fyrir þarlendum fjöl- miðlum. Sveitin spilar á fjölda tónlistarhátíða víða um heim í sumar. Þar að auki spilar hún ein á báti á níu tónleikum og er uppselt á alla nema eina. - fb / sjá síðu 30 Með tvær plötur tilbúnar: Plata frá Sigur Rós á næsta ári Ljótur að utan – ljúfur að innan Ný ju ng ! Paratabs® ALÞINGI Algjör óvissa ríkir um hvernig starfi Alþingis verður háttað fram á vor. Alls liggja 93 stjórnarfrumvörp fyrir Alþingi og 29 stjórnartillögur. Ljóst er að ekki tekst að ljúka þeim málum fyrir sumarleyfi, en þingi á samkvæmt dagskrá að ljúka 31. maí. Frá því að þing tók aftur til starfa eftir páskafrí hafa aðeins tvö mál verið samþykkt til þingnefnd- ar, tillaga um breytingu á stjórnar- ráði og Rammaáætlun um vernd og nýtingu náttúrusvæða. Björn Valur Gíslason, formaður þingflokks Vinstri grænna, sakar stjórnarandstöðuna um að ástunda nýja tegund af málþófi sem felist í því að málum sé ekki hleypt til nefnda. „Þau eru búin að hertaka löggjafasamkunduna.“ Stjórnarandstæðingar sem Fréttablaðið ræddi við sökuðu stjórnina hins vegar um að for- gangsraða ekki þeim málum sem ljúka ætti á yfirstandandi þingi. Sigurður Ingi Jóhanns- son, varaformaður þingflokks Framsóknarflokksins, segir stjórn- ina hafa komið fram með mál sem gríðarlegur ágreiningur sé um í stjórnarflokkunum sjálfum. Alla forgangsröðun vanti. „Það hefur komið til tals á þing- flokksformannafundum og forsæt- isnefndarfundum að það sé nauð- synlegt að fá fram forgangsröðun ríkisstjórnarinnar á þeim málum sem hún vilji klára, því augljóst sé að öll mál verði ekki kláruð.“ Sigurður segir að því lengur sem það dragist því færri mál muni klárast. Björn Valur segir hins vegar að ljóst sé á hvaða mál stjórnin leggi áherslu: kvótann, Rammaáætlun og breytingar á stjórnarráði. Þessi mál hafi komið fram fyrir tilskilinn frest og stefna stjórnarinnar varð- andi þau sé ljós og því verði ekki samið um þau. „Það er hins vegar óheilbrigt að ekki skuli vera hægt að taka þetta til umfjöllunar í nefndum, þar sem þingmenn og aðrir í samfélaginu sem hafa áhuga á málinu geta komið að þeim og haft áhrif á þau.“ Magnús Orri Schram, formaður þingflokks Samfylkingarinnar, segir mikilvægt að koma málum eins og Rammaáætlun sem fyrst til nefndar. Í annarri umræðu sé hægt að fjalla efnislega um umsagnir og faglega vinnu nefndarinnar. „Svo virðist hins vegar að það sé stefna stjórnarandstöðunnar að hægja verulega á öllum málum.“ Heimildir Fréttablaðsins herma að andrúmsloft á Alþingi sé við frostmark. Dómur Landsdóms hafi ekki bætt þar á. Á meðan ekki er samið um þingstörf bíður fjöldi mála umfjöllunar. Af öðrum málum sem gætu orðið tímafrek má nefna breytingar á stjórnarskránni, en tæpur mánuður er síðan þær voru ræddar. - kóp Þingmál ná ekki í nefndir Engin sátt er um hvernig dagskrá Alþingis verður fram á vor. Alls liggja 93 stjórnarfrumvörp fyrir þingi og 29 stjórnartillögur. Aðeins tvö mál hafa verið samþykkt til nefndar eftir páska. Ásakanir um málþóf. Framlögð á þessu þingi 126 Samþykkt 33 Bíða 1. umræðu 51 Í nefnd á milli 1. og 2. umr. 28 Bíða 2. umræðu 10 Í nefnd á milli 2. og 3. umr. 2 Bíða 3. umræðu 2 93 stjórnarfrumvörp bíða enn afgreiðslu á Alþingi VIÐSKIPTI Bakkavör Group, móðurfélag rekstrar- félagsins Bakkavarar, mun breyta kröfum sínum á félagið í nýtt hlutafé á næstu dögum. Umbreyt- ingin á sér stað rúmum tveimur árum fyrr en upp- haflega var áætlað. Bræðurnir Lýður og Ágúst Guð- mundssynir áttu að geta eignast allt að 25 prósent í félaginu sem þeir stofnuðu, ef tækist að greiða kröfuhöfum fyrir mitt ár 2014. Nú er ljóst að þeir munu tapa allri eign sinni í Bakkavör Group. Stærstu eigendur félagsins eru Arion banki, skila- nefnd Glitnis, Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins, Gildi lífeyrissjóður og Lífeyrissjóður verzlunar- manna. Heildarfjárhæð skulda Bakkavar Group nam um 64 milljörðum króna við gerð nauðasamn- ings félagsins fyrir um tveimur árum. Bakkavör Group endurfjármagnaði lán dóttur- félaga sinna í byrjun síðasta árs með því að gefa út 350 milljónir punda, 71,5 milljarða króna, skulda- bréfaflokk og fá sambankalán upp á 380 milljónir punda, 77,7 milljarða króna. Skuldabréfaflokkurinn er á gjalddaga í febrúar 2018 en sambankalánið um mitt ár 2014. - þsj / sjá Markaðinn Kröfum á Bakkavör Group mun verða breytt í hlutafé á næstunni: Bræðurnir munu tapa Bakkavör HÆGLÆTISVEÐUR Í dag má búast við hægum vindi víðast hvar en aðeins hvassara verður við SA-ströndina. Víða verður skýjað með köflum en léttir heldur til norðvestanlands er líður á daginn. VEÐUR 4 8 4 3 0 3 JÓN ÞÓR BIRGISSON BLÓMARÓSIR Ráðhús Reykjavíkur iðaði af lífi í gær þegar á annað hundrað kvenna á öllum aldri komu saman til að sauma og sníða Mæðrablóm í hundraðavís. Blómin verða boðin til sölu til að byggja upp menntunarsjóð á vegum Mæðrastyrksnefndar. Sjóðurinn mun styrkja tekjulágar konur til að bæta við sig menntun og veita þeim þannig ný tækifæri. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Kraftaverkamaðurinn Roberto Di Matteo kom Chelsea í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu. sport 26

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.