Fréttablaðið - 25.04.2012, Blaðsíða 8
25. apríl 2012 MIÐVIKUDAGUR8
Tryggðu þér miða á www.hhi.is, í síma 8OO 66 11
eða hjá næsta umboðsmanni.
DRÖGUM
Í DAG
25. APRÍL
Nú er vinningurinn 1O milljónir á einn miða.
Í hverri Milljónaveltu drögum við að auki út
5 stakar milljónir, aðeins úr seldum miðum.
MILLJÓNAVELTAN VELTUR ÁFRAM!
Fáðu þér
miða fyrir
kl. 16.OO
samfylkingin.is
LÍFSKJÖR ALDRAÐRA
Dagskrá
13.00 Velkomin á málþing
Kristín Á. Guðmundsdóttir, formaður Landssamtakanna 60+ setur þingið
Ljúf tónlist
Ingólfur Steinsson og dætur flytja létt lög við ljóð Davíðs Stefánssonar
Ávarp
Jóhanna Sigurðardóttir, formaður Samfylkingarinnar og forsætisráðherra
13.30 Endurskoðun almannatrygginga – hvað er í farvatninu?
Árni Gunnarsson, formaður starfshóps um endurskoðun almannatryggingalaga
Lífeyrir almannatrygginga – fréttir af vettvangi
Sigríður Lillý Baldursdóttir, forstjóri Tryggingastofnunar
Vanrækt gildi liðinna ára
Gunnar Hersveinn, heimspekingur
14.45 Kaffihlé
15.15 Framtíð og hugmyndafræði lífeyrissjóðanna
– samtrygging og/eða séreign?
Guðbjartur Hannesson, velferðarráðherra
Hvernig bætum við lífskjörin? – fyrirspurnir og umræður
Björk Vilhelmsdóttir, borgarfulltrúi og formaður velferðarnefndar
16.30 Áætluð fundarlok
Fundarstjórar Gylfi Ingvarsson, varaformaður Landssamtakanna 60+
Jónína Rós Guðmundsdóttir, alþingiskona
Málþingið er öllum opið
Opið málþing Landssamtakanna 60+ og velferðarnefndar Samfylkingarinnar
Hvammi, Grand Hóteli, Sigtúni 38 í Reykjavík, föstudaginn 27. apríl kl. 13.00
27.
apríl
_________________________________________________________________________________
NOREGUR Rannsóknir á dómkirkj-
unni í Bergen í Noregi hafa leitt í
ljós það sem menn telja vera hinsta
hvílustað Magnúsar lagabætis Nor-
egskonungs. Magnús var sonur
Hákonar gamla Hákonarsonar og
ríkti yfir Noregi frá 1263 til 1280.
Magnúsar er minnst fyrir að sam-
ræma löggjöf í Noregi með nýjum
lögbókum, en hann lét jafnframt
gera lögbókina
Járnsíðu handa
Íslendingum og
svo Jónsbók, sem
hér var notuð
fram á 18. öld.
Aftenposten
greinir frá því
að röntgenrann-
sóknir rann-
sóknarstofunn-
ar SINTEF hafi
leitt í ljós stein-
kistu í vegg kirkjunnar og að í henni
megi greina málmleifar.
Þótt heimildir hermi að Magnús
hafi verið grafinn í kirkjunni hefur
legstaður hans ekki verið kunnur.
„Þetta hlýtur að vera Magnús
lagabætir. Í kirkjunni er ekki graf-
inn annar konungur,“ er haft eftir
Gunnari Rosenlund, sem fjármagn-
að hefur rannsóknirnar. „Fram-
haldið er hins vegar óvíst. Kirkj-
an er friðuð og allar framkvæmdir
þarf að bera undir Fornleifastofnun
ríkisins.“
Gunnar telur þó að fyrsta skref
hljóti að vera að bora gat í vegg
kirkjunnar til að komast nær stein-
kistunni.
Dómkirkjan í Bergen er 60 metra
löng steinkirkja og 20,5 metrar á
breidd, að því er Aftenposten grein-
ir frá. Fyrstu heimildir um hana
eru frá 1181, en síðan var byggt við
hana Fransiskuklaustur. Magnús
lagabætir fjármagnaði svo endur-
byggingu kirkjunnar eftir bruna
1270 og var grafinn í henni.
Að því er fram kemur á alfræði-
vef Wikipediu hefur Magnús laga-
bætir almennt fengið góð eftir-
mæli. Er hans sagt minnst sem
konungs sem beitti lögunum frem-
ur en sverðinu. „Hann var friðsam-
ur og forðaðist stríðsátök og harðar
deilur en kaus að tryggja stöðug-
leika,“ segir þar. Frá því er greint
að Magnús hafi fengið Sturlu Þórð-
arson sagnaritara til að skrifa sögu
Hákonar föður síns en árið 1278
fól hann Sturlu einnig að skrifa
sína eigin sögu. Aðeins mun brot af
henni hafa varðveist.
„Sturla var talinn friðsemdar-
maður en var þó þátttakandi
í mörgum helstu viðburðum
Sturlungaaldar,“ segir einnig á
Wikipedia. Hann barðist með Sig-
hvati föðurbróður sínum og sonum
hans í Örlygsstaðabardaga og var
í liði Þórðar kakala er hann sneri
heim frá Noregi. olikr@frettabladid.is
Telja fundinn
legstað Magn-
úsar lagabætis
Röntgenrannsóknir á dómkirkjunni í Bergen hafa
leitt í ljós forna steinkistu í vegg kirkjunnar. Telja
fræðimenn víst að þar hvíli Magnús lagabætir en
hann færði Íslendingum landslög á 13. öld.
ÚR JÓNSBÓK
Hér getur að líta
myndstaf við
þjófabálk Jóns-
bókar sem hér
var lögtekin árið
1281 og notuð
fram á 18. öld.
Löggjöf Magnúsar
lagabætis mun
hafa byggst á hug-
myndinni um að
glæpur væri brot
gegn ríkisvaldi
fremur en ein-
staklingum og dró
þar með úr vægi
hefndarinnar.
MYND/STOFNUN ÁRNA
MAGNÚSSONAR
MAGNÚS
HÁKONARSON
FJÖLMIÐLUN Mennta- og menningar-
málaráðuneytið mun veita eina
milljón króna til hóps íslenskra
fræðimanna vegna þátttöku
þeirra í alþjóðlegri rannsókn
meðal blaða- og fréttamanna.
Katrín Jakobsdóttir ráðherra
ákvað fjárveitinguna á mánudag.
Rannsóknin, The Worlds of
Journalism Study, er alþjóðleg
könnun á starfsumhverfi blaða-
og fréttamanna sem tekur meðal
annars til þeirra þátta sem nefnd-
ir voru í Skýrslu rannsóknar-
nefndar Alþingis um starfshætti
og siðferði í íslenskum fjölmiðl-
um.
84 lönd taka þátt í rannsókn-
inni, en hérlendis er hún sam-
starfsverkefni sjö kennara við
Háskóla Íslands og Háskólann á
Akureyri. Niðurstöðurnar eiga
meðal annars að nýtast stjórn-
völdum til að bera fjölmiðla hér
Menntamálaráðuneytið styrkir alþjóðlega rannsókn:
Umfangsmikil rannsókn
á starfi fréttamanna