Fréttablaðið - 25.04.2012, Page 10

Fréttablaðið - 25.04.2012, Page 10
25. apríl 2012 MIÐVIKUDAGUR10 Save the Children á Íslandi SUÐUR-SÚDAN, AP „Nágrannar okkar í Khartoum hafa lýst yfir stríði gegn lýðveldinu Suður-Súdan,“ sagði Salva Kiir, forseti Suður- Súdans, í Kína í gær á fundi sínum með Hu Jintao, forseta Kína. Formleg stríðsyfirlýsing hafði ekki verið gefin út, en Kiir sagði sprengjuárásir súdanska hers- ins undanfarna daga jafnast á við slíka yfirlýsingu. Á mánudag gerðu Súdanar sprengjuárásir á markaðstorg og olíuvinnslusvæði í Suður-Súdan. Sprengjuárásir héldu síðan áfram í fyrrinótt. Súdanar segja þessar loftárás- ir gerðar vegna þess að suður- súdanski herinn hafði farið yfir landamærin með skriðdreka og fjölmennt lið hermanna. Íbúar í Suður-Súdan lýstu yfir stofnun sjálfstæðs ríkis á síðasta ári en eiga í deilum við nágranna sína í norðrinu um olíuauðlindir og landamæri. Eitt stærsta deilumál- ið snýst um afnot Suður-Súdana af olíuleiðslum í gegnum Súdan. Í síðasta mánuði slitnaði upp úr samningaviðræðum eftir að átök hófust á landamærunum. Suður-Súdanar réðust þá inn í landamærabæinn Hegling, sem þeir gera tilkall til. Suður-Súdanar hafa nú dregið allt herlið sitt burt frá Hegling, að eigin sögn vegna alþjóðlegs þrýst- ings. Súdanski herinn segist hins vegar hafa hrakið suður-súdanska herinn frá Hegling. Omar al-Bashir, forseti Súdans, hefur sagt að árásum á Suður-Súd- an verði haldið áfram þangað til allt suður-súdanskt herlið er farið frá Súdan. Á föstudaginn var Bashir harð- orður, kallaði Frelsisher Suður- Súdans „eitruð skorkvikindi“ og sagði ekki koma til greina að semja. Hann muni aldrei leyfa Suð- ur-Súdönum að flytja olíu í gegn- um Súdan, „jafnvel ekki þótt þeir gefi okkur helminginn af afrakstr- inum“. Kiir, forseti Suður-Súdans, sagð- ist hafa farið til Kína þrátt fyrir það hve ástandið er viðkvæmt vegna þess að hann vill styrkja tengslin við Kínverja. Kínverjar hafa hins vegar reynt að tryggja góð tengsl við bæði Súdan og Suður-Súdan og hvetja ráða- menn ríkjanna til að komast að samkomulagi. gudsteinn@frettabladid.is Barist hart um olíu og landamæri Ekkert lát er á árásum súdanska hersins á Suður- Súdan. Enginn sáttavilji sjáanlegur af hálfu forseta Súdans. Ágreiningur er um olíu og landamæri. BRUNNIN OLÍUVINNSLUSTÖÐ Súdanar skoða skemmdir í landamærabænum Hegling, þar sem helsta miðstöð olíuvinnslu landsins er. NORDICPHOTOS/AFP FORSETI SUÐUR-SÚDANS Íbúar í Suður- Súdan lýstu yfir stofnun sjálfstæðs ríkis í síðasta mánuði. Salva Kiir, forseti S-Súdans, segir sprengjuárásir súdanska hersins ekkert annað en stríðsyfir- lýsingu. NOREGUR Norski öryggisvörðurinn Tor Inge Kristoffersen segir að ástandið í mið- borg Óslóar hafi einna helst líkst stríðs- vettvangi eftir að Anders Behring Breivik hafði sprengt 950 kílógramma sprengju fyrir utan stjórnsýslubygginguna, þar sem forsætisráðherrann hafði aðsetur. Kristofferson hafði fylgst með Breivik leggja bifreið sinni fyrir utan bygginguna og var að skoða bílnúmerið, til að kanna hvort bifreiðinni mætti leggja þarna, þegar sprengjan sprakk. Átta manns létu lífið og var aðkoman skelfileg: „Meira en hundrað líkamspartar fundust í stjórnsýsluhverfinu,“ sagði Ole Morten Störseth lögreglumaður, sem fékk það verkefni að bera kennsl á hina látnu. Þetta kom fram á sjöunda degi réttar- haldanna yfir Breivik í gær. Yfir- heyrslum yfir honum er lokið í bili og þessa dagana lýsa vitni atburðarásinni í Ósló og á Úteyju, þar sem hann myrti 69 manns. Thor Langli, sem stjórnaði aðgerðum lögreglunnar, segir að sig hafi strax grun- að að sami maður væri að verki þegar til- kynningar bárust um skotárás á Úteyju stuttu eftir árásina í Ósló. „Ég gat ekki ímyndað mér að tveir menn gætu verið með svona brjálaðar hugmyndir,“ sagði Langli við réttarhöldin í gær. - gb Yfirheyrslum yfir Breivik lokið en réttarhöldin halda áfram: Skelfileg aðkoma eftir árásina ANDERS BEHRING BREIVIK BRETLAND, AP Harry Bretaprins hefur hlotið verðlaun Atlantshafs- ráðsins fyrir leiðandi mann- úðarstarf í sjálfboðaliðastarfi til aðstoðar særðum her- mönnum. Frá því var greint í gær að Harry taki við verðlaununum í Washington í Bandaríkjunum í næsta mán- uði. Hann tekur einnig við þeim fyrir hönd Vil- hjálms bróður síns, en það mun til marks um starf góðgerða- stofnunar þeirra. Prinsarnir eru sagðir hafa starfað með samtökum á borð við Walking with the wounded, Help for heroes og fleirum viðlíka. - óká Prinsar fá viðurkenningu: Hjálpuðu særð- um hermönnum HARRY BRETAPRINS

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.