Fréttablaðið - 25.04.2012, Side 16

Fréttablaðið - 25.04.2012, Side 16
25. apríl 2012 MIÐVIKUDAGUR16 Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. timamot@frettabladid.is „Það er mikil hvatning fyrir okkur að fá viðurkenningu á því að við séum á réttri leið,“ segir segir Estrid Þorvaldsdóttir, sem ásamt Þórgunni Ársælsdóttur geð- lækni tók á móti viðurkenningu á árs- fundi Landspítalans í gær, en þær hafa undanfarin ár kennt starfsfólki spít- alans jóga. Nokkrir aðrir starfsmenn spítalans fengu viðurkenningu fyrir vel unnin störf. Í vetur hafa þær Estrid og Þórgunn- ur jafnframt staðið fyrir kundalini- jógakennslu á Kleppi. Þar hafa tím- arnir mælst vel fyrir og þykja þeir góð viðbót við aðra meðferð. „Slökun og jóga kemur ekki í staðinn fyrir faglega vinnu, en það getur verið mjög mikil- væg viðbót við aðra meðferð. Erlend- ar rannsóknir hafa sýnt að iðkun jóga dregur úr þunglyndi, kvíða og streitu,“ segir Estrid og bætir við að mikil vakning sé að verða á góðum áhrifum jóga, hvort heldur sem er í heilbrigðis- kerfinu eða samfélaginu öllu. Hún segist sjá jákvæðar breytingar á því fólki sem sótt hafi tíma hennar, hvort sem er á Kleppi, á átröskunar- deild Landspítalans eða dagdeildinni Hvítabandi, þar sem hún hefur líka kennt jóga. Þær Estrid og Þórgunnur hafa unnið saman að því að kynna kosti kundalini- jóga frá því árið 2009. „Við Þórgunnur vorum saman í kundalini-jógakenn- aranámi árið 2008 og fórum í kjölfarið á því af stað með að kenna starfsfólki Landspítalans kundalini-jóga,“ rifjar Estrid upp. „Það var nauðsynlegt að fara þessa leið, til þess að starfsfólk- ið gæti opnað sig fyrir jóga. Það hefði ekki verið hægt að byrja á hinum endanum. Það tók sinn tíma að opna nokkrar dyr, en nú er að verða mikil og almenn vakning á þessu sviði.“ Kundalini þýðir lífsorka og jóga þýðir sameining. Í kundalini-jóga er unnið jafnt með hugann og líkamann. Markmiðið er að temja hugann. „Með því að stunda kundalini-jóga verðum við að betri okkur sjálfum. Þegar fólk er mjög kvíðið á það oft erfitt með and- ardráttinn. Kundalini getur hjálpað þar. Þunglyndi getur valdið því að við náum ekki í kraftinn okkar og kunda- lini er gott verkfæri til að komast aftur í tengingu við hann. Félagsfælni minnkar líka, því ef við náum að lenda betur í okkur sjálfum erum við ekki eins mikið með hugann við það sem hinir eru að gera. Við verðum sáttari við okkur sjálf,“ segir Estrid að lokum og hvetur alla til að prófa jóga og finna hversu góð áhrif ástundun þess getur haft á sálarlífið. holmfridur@frettabladid.is KUNDALINI-JÓGAKENNARAR: HLJÓTA VIÐURKENNINGU LANDSPÍTALANS Jóga góð viðbót við meðferð gegn geðrænum vandamálum SJÁ ÁRANGUR Í STARFI Þær Estrid Þorvaldsdóttir og Þórgunnur Ársælsdóttir hafa í starfi sínu séð að iðkun jóga getur hjálpað við að draga úr kvíða og þunglyndi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Merkisatburðir 1719 Róbinson Krúsó eftir Daniel Defoe kemur út. 1915 Hótel Reykjavík og ellefu önnur hús við Austurstræti, Póst- hússtræti og Hafnarstræti brenna í mesta eldsvoða á Íslandi til þessa tíma. Tveir menn farast. 1944 Fyrsta íslenska óperettan, Í álögum, er frumsýnd í Iðnó. 1974 Nellikubyltingin hefst í Portúgal þar sem einræðisstjórn landsins er steypt af stóli. 1991 Bifreið er ekið á hæsta tind Íslands, Hvannadalshnúk á Öræfajökli, í fyrsta sinn. 2005 Búlgaría og Rúmenía skrifa undir samning um inngöngu í ESB. JÖKULL JAKOBSSON (14. sept. 1933 – 25. apríl 1978) rithöfundur og leikritaskáld lést á þessum degi. „Sumt fólk ryður út úr sér heilu fyrirlestrunum, oftast ekki að marka orð af því sem það segir. Stundum er mest að marka það sem það minnist ekki á.“ Á dramatískum blaðamannafundi þýska tímaritsins Stern árið 1983 var því lýst yfir að dagbækur Hitlers, sem blaðið hafði undir höndum, væru fals- aðar. Tímaritið hafði nokkrum dögum fyrr birt brot úr dagbókunum og fullyrt að það hefði sextíu dagbækur undir höndum. Dagbækurnar, sem voru sextíu talsins, átti Hitler að hafa skrifað á árunum 1932 til 1945. Blaðamaður Stern, Gerd Heidemann, fullyrti að þær hefðu fundist á heylofti í Austur- Þýskalandi. Sagðist hann telja að bækurnar hefðu legið á loftinu frá því þýsk flugvél hrapaði í stríðslok með ýmis leynigögn úr híbýlum Hitlers í Berlín. Fljótlega eftir birtinguna kom upp grunur um að dagbækurnar væru fals- aðar og voru þær sendar í rannsókn. Kom þá ýmislegt í ljós sem staðfesti þann grun. Meðal annars það, að pappírinn í bókunum var framleiddur eftir lok síðari heimsstyrjaldarinnar. Þá fundust ýmsar rangfærslur í dagbókunum sjálfum. Síðar kom í ljós að dagbækurnar höfðu verið keyptar af hinum snjalla falsara Konrad Kujau, sem hlaut níu milljónir þýskra marka fyrir greiðann. Heidemann og Kujau voru síðar dæmdir í 4 og hálfs árs fangelsi fyrir svik og fölsun. ÞETTA GERÐIST: 25. APRÍL 1983 Upp kemst um fölsun dagbóka Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTÍN HALLDÓRSDÓTTIR áður Fannborg 8, andaðist á Hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð mánudaginn 16. apríl. Jarðarförin fer fram frá Kópavogskirkju fimmtudaginn 26. apríl kl. 15.00. Fyrir hönd vandamanna, Haukur Högnason Hildur Högnadóttir Hildigunnur Davíðsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JÓHANNA GUÐBJÖRG GUNNLAUGSDÓTTIR frá Efri-Harrastöðum, Skagaströnd, Kópavogsbraut 1B, Kópavogi, lést á Landspítala, Landakoti, miðvikudaginn 18. apríl. Útförin fer fram frá Garðakirkju á Álftanesi föstudaginn 27. apríl kl. 15.00. Bergdís Ósk Sigmarsdóttir Davíð W. Jack Gunnlaugur G. Sigmarsson Steinunn F. Friðriksdóttir Sigurþór Heimir Sigmarsson Þjóðbjörg Hjarðar barnabörn og barnabarnabörn. Móðir mín, UNNUR SÓLVEIG VILBERGSDÓTTIR Lækjasmára 6, Kópavogi, sem lést á Landspítalanum v/Hringbraut 16. apríl, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 27. apríl kl.15.00. Vilborg G. Hansen Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÓLAFUR JÓNSSON fyrrv. verslunarmaður, frá Fossi í Hrútafirði, til heimilis að Lækjasmára 106, Kópavogi, lést á Hjúkrunarheimilinu Sóltúni miðviku- daginn 18. apríl síðastliðinn. Útförin fer fram frá Áskirkju mánudaginn 30. apríl kl. 15.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á minningarsjóð Sóltúns. Bryndís Ólafsdóttir Sigríður Ólafsdóttir Sigurður Björnsson Sunna Lind Sigríðardóttir Ólafur Hákon Sigurðarson Ástkær sonur minn, eiginmaður, faðir, tengdafaðir og afi, ÁGÚST G. BERG arkitekt, lést að heimili sínu laugardaginn 21. apríl. Útför hans fer fram frá Neskirkju miðvikudaginn 2. maí kl. 15.00. Björg Baldvinsdóttir Signý Guðmundsdóttir Guðrún Björg Ágústsdóttir Ágúst Ómar Ágústsson Guðmundur R. Ágústsson Ármann Pétur Ágústsson Innilegar þakkir til allra þeirra sem auðsýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför bróður okkar, mágs, frænda og vinar, EYJÓLFS PÉTURSSONAR fyrrverandi bónda á Nautaflötum í Ölfusi, Úthaga 3, Selfossi. Starfsfólki Kumbaravogs eru færðar alúðarþakkir fyrir umönnun og hlýju. Þorbergur Pétursson Rós Ólafsdóttir Soffía Pétursdóttir systkinabörn og fjölskyldur þeirra. Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 www.utforin.is Allan sólarhringinn ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir Hermann Jónasson Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, AUÐUR JÓNSDÓTTIR hjúkrunarfræðingur, frá Múla í Álftafirði, lést á krabbameinsdeild Landspítalans laugardaginn 21. apríl. Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 30. apríl klukkan 13.00. Sigurjón Marinósson Elín María Sigurjónsdóttir Eyþór Kolbeinsson Marinó Freyr Sigurjónsson Irene Emily Wilkinson Ásgeir Eyþórsson Birkir Eyþórsson Auður Eyþórsdóttir Sigurjón Ernir Eyþórsson Ari Khuzani Marinósson Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, ÞÓRÐUR VÍGLUNDSSON Hlíðargötu 9, Neskaupstað, lést á heimili sínu laugardaginn 21. apríl. Útförin fer fram frá Norðfjarðarkirkju mánudaginn 30. apríl kl. 14.00. Stella Steinþórsdóttir Ragnheiður Þórðardóttir Steinþór Þórðarson Elena Zaitseva Víglundur Þórðarson Sigurjóna Jónsdóttir og barnabörn.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.