Fréttablaðið


Fréttablaðið - 25.04.2012, Qupperneq 21

Fréttablaðið - 25.04.2012, Qupperneq 21
Á FERÐ UM ÍSLAND Þeir sem ætla að ferðast um Ísland í sumar geta kynnt sér staðhætti, náttúrufar, gönguleiðir og margt fleira áhugavert á upplýsingavefnum ferdalag.is eða visiticel- and.com. Á þessum síðum er margt áhugavert fyrir Ís- lendinga sem vilja ferðast um föðurlandið. Ástæða þess að við settum upp veitingahús í þessu húsi í Hlíða-smára 3 er sú að skrifstofur Atlanta eru í sama húsi og við vildum að starfsmenn okkar gætu gengið að góðum mat í hádeginu. Hér var áður kaffihús en því var lokað,“ segir Stefán Eyjólfsson, einn af framkvæmdastjórum og eigend- um félagsins. Stefán segir að upphaflega hafi mötu- neyti Atlanta verið í húsinu en síðan hafi félagið leigt út aðstöðuna fyrir kaffihús þar sem starfsmennirnir gátu borðað niðurgreiddan mat. „Þegar kaffihúsið lokaði ákváðum við að gera okkar eigin veitingastað sem gæti þá þjónað öllu hverfinu en hér eru margir stórir vinnu- staðir,“ greinir Stefán frá. Hann bætir því við að með þessari ákvörðun hafi félagið séð tækifæri til að bjóða upp á hollan og góðan mat í hádeginu. Bæði er hægt að borða á staðnum eða taka með sér. Einnig er veisluþjónusta í boði en fólk getur tekið staðinn á leigu fyrir afmæli, erfi- drykkju, fermingu, brúðkaup eða aðrar uppákomur. „Þetta er fyrst og fremst hádegisstaður en við erum með opið til fjögur á daginn,“ segir Stefán. „Aðaltil- gangurinn var að gera þetta almennilega fyrir okkar fólk og leyfa síðan öðrum að njóta þess.“ INNRÉTTINGAR ÚR SEIFI Það sem gerir staðinn skemmtilegan er að hann er skreyttur með flugtengdu efni úr sögu Atlanta. Áhugafólk um flug getur því komið og skoðað áhugaverða hluti á veitingahúsinu. „Við erum með myndir af öllum flugvélum sem hafa verið skráðar á flugfélagið Air Atlanta en það eru um 140 vélar. Heill veggur er því þakinn flugvélum. Þá höfum við sett upp í einu horni staðarins innréttingar úr flugvélinni Seifi sem flutti ólympíueld- inn í kringum hnöttinn árið 2004 en hún var sérinnréttuð. Saga Atlanta kemur því sterk inn í innréttingu veitingastaðarins,“ bætir Stefán við. GAMALGRÓIÐ FYRIRTÆKI Flugfélagið Atlanta er 26 ára gamalt fyrir- tæki og á því orðið langa sögu. Þóra Guð- mundsdóttir og Arngrímur Jóhannsson stofnuðu félagið árið 1986 en núverandi eigendur eru eingöngu með starfsemi erlendis. Margir hafa starfað hjá félaginu í gegnum tíðina. Rúmlega hundrað manns starfa hjá Atlanta í Hlíðasmára í dag fyrir utan starfsfólk úti um allan heim. Stefán segir að veitingahús Atlanta sé opið fyrir alla og það er matreiðslu- meistarinn Gaukur Eyjólfsson sem sér um matargerðina. „Við leggjum áherslu á fisk og létta rétti en hlaðborð í hádeginu kostar 1.590 krónur fyrir manninn sem ég tel vera mjög gott verð,“ segir Stefán. ATLANTA SETUR UPP VEITINGAHÚS FLUGFÉLAGIÐ ATLANTA hefur sett upp veitingahús í Hlíðasmára þar sem 26 ára flugsaga félagsins fær að njóta sín. GOTT UMHVERFI Stefán Eyjólfsson, Gaukur Eyjólfsson, Herdís Einarsdóttir og Margrét Grétarsdóttir í nýju veitingahúsi Atlanta. MYND/STEFÁN FLOTTIR BÚNINGAR Í veitingahúsi Atlanta má sjá ýmsa muni úr flugflota félagsins. Skokkar og kjólar Við erum á Facebook Bæjarlind 6 S. 554 7030 Eddufelli 2 S. 557 1730 www.rita.is Grænn kjóll / skokkur á 6.900 kr. Margir litir. Str. 40 - 58 Túrkisblár kjóll á 5.900 kr. Tveir litir. Ein stærð: 48/50 DALVEGI 16c · 201 KÓPAVOGI SÍMI 568 6411 · WWW.RAFVORUR.IS Taka 12 Kg · Hljóðlát Stórt op > auðvelt að hlaða Sparneytin amerísk tæki. <Þvottvélin tekur heitt og kalt vatn Afkastamikill þurrkari > Þvottavél Þurrkari12 kg Amerísk gæðavara Amerísk gæðavara Vertu vinurSími 551 2070 Opið mán.-fös. 10-18. Lokað á laugard. 7. apríl Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf. www.mistyskor.is Hugsaðu vel um fæturna Í hálfa öld hafa miljónir manna um allan heim notað BIRKENSTOCK sér til heilsubótar. Hvað um þig? Teg: „ Annapolis“ Fótlaga skór úr leðri með vönduðu innleggi. Stærðir: 36 - 42 Verð: 28.900.-

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.