Fréttablaðið - 25.04.2012, Blaðsíða 24
KYNNING − AUGLÝSINGHeitir pottar MIÐVIKUDAGUR 25. APRÍL 20122
Vandaðir akrílpottar á góðu
verði
„Við erum með eina gerð af pott-
um í þremur litum frá framleið-
anda sem við höfum þekkt í ára-
tugi,“ segir Ágúst Óskarsson, eig-
andi og stofnandi fyrirtækisins
Á. Óskarsson ehf. sem sérhæf-
ir sig meðal annars í búnaði og
ýmsum vörum fyrir sundlaug-
ar. „Við höfum mikla reynslu af
flestu sem tengist sundi og bað-
menningu og höfum sjálfir byggt
þó nokkrar sundlaugar víða um
landið. Það fer því afskaplega vel
saman við reksturinn hjá okkur að
bjóða upp á heita potta fyrir heim-
ili og sumarbústaði líka.“ Pottarn-
ir eru tveir sinnum tveir metrar á
breidd og níutíu sentimetra háir
þannig að það flæðir vel yfir axl-
irnar á fólki. „Svo
er hægt að fá
barnayfirfall
sem læk k-
ar vatnsyfir-
borðið þegar
það hentar.
Pottaskelj-
a r n a r er u
þyk k a r og
sterkbyggð-
ar. Þær eru
framleiddar
úr trefja- og
akrílplasti
en akrílplast-
ið er einmitt
lykilatriði
þegar kemur að því að kaupa pott
og ekki mikið vit að mínu mati að
velja annað efni. Akrílplastið held-
ur eiginleikum sínum svo árum
skiptir. Það verður hvorki lint eða
stamt með tímanum og upplit-
ast hvorki né rispast auðveldlega.
Það hrindir einnig mjög vel frá sér
óhreinindum sem auðveldar þrif í
alla staði,“ segir Ágúst.
Alvöru nudd
Á. Óskarsson ehf. býður upp á
nudddælur sem fyrirtækið hefur
um árabil selt til íslenskra sund-
staða. Dælurnar eru talsvert öfl-
ugri og vandaðri heldur en geng-
ur og gerist í nuddpottum sem eru
seldir til heimabrúks. „Með því að
velja góða dælu hjá okkur og rétt-
an fjölda nuddstúta er hægt að fá
kraftmeira nudd
sem gerir al-
mennilegt
gagn,“ segir
Ágúst „Lagn-
i r n a r h j á
ok k u r e r u
mu n s v er-
a r i heldu r
en í mörg-
u m öðr u m
pottum. Við
höf u m séð
potta og þá
sérstaklega
rafmagns-
p ot t a s em
eru með allt
of mjóar lagnir fyrir íslenskar
aðstæður. Þessar lagnir gefa sig
fljótlega ef það frýs í þeim en hjá
okkur er lítil sem engin hætta á
skemmdum.“
Sparnaður að velja hitaveitu sé
þess kostur
Á. Óskarsson ehf. leggur aðal-
áherslu á potta sem eru tengdir
við hitaveitu enda eru þeir tölu-
vert ódýrari bæði í innkaupum
og í rekstri heldur en rafmagns-
kyntir pottar. Á vef Orkuveitunn-
ar má finna reiknivél sem sýnir að
munur á rekstrarkostnaði getur
hlaupið á tugum þúsunda á ári.
„Það er svolítið merkilegt að geta
setið í pottinum í kannski klukku-
tíma og drukkið eina öldós sem er
síðan dýrari en allt vatnið sem
maður notar. Það er líka stór kost-
ur að geta alltaf notað ferskt og
hreint vatn og þurfa ekki að vera
að sulla í klór eða öðrum hreinsi-
efnum.“ Þeir sem búa á köldum
svæðum þurfa eðli málsins sam-
kvæmt að leita annarra lausna en
Ágúst segir að þá sé lítið mál að
tengja hitakút við pottinn.
Vandaðir pottar og alvöru nudd
Ágúst Óskarsson, sem á og rekur fyrirtækið Á. Óskarsson ehf. í Mosfellsbæ, hóf sölu á heitum pottum fyrir meira en þrjátíu árum og var einn af þeim
fyrstu til að bjóða Íslendingum upp á slíkan munað. Hann leggur aðaláherslu á potta sem eru tengdir við hitaveitu.
„Með því að velja góða dælu hjá okkur og réttan fjölda nuddstúta er hægt að fá kraftmeira nudd sem gerir almennilegt gagn,“ segir
Ágúst Óskarsson. MYND/PJETUR
Þekktasta náttúrulaug lands-ins er vafalaust Bláa lónið í Grindavík sem laðar að sér
tugþúsundir ferðamanna hvað-
anæva að úr heiminum allan árs-
ins hring. Lónið hefur um langt
skeið verið vinsælt umfjöllunar-
efni í fjölmiðlum og nýverið setti
tímaritið National Geographic
það á lista með 25 undrum ver-
aldar sem flokkuð voru niður eftir
því hvort þau tengjast vatni, himni
eða landi. Lónið er sett í fyrsta
f lokkinn og því lýst af ritstjórn
sem paradís í umhverfi sem lík-
ist helst yfirborði tunglsins. Auk
náttúrufegurðar og vandaðrar
bað aðstöðu er þar þjónustumið-
stöð sem er búin helstu nauðsynj-
um, veitingasala og margt fleira.
Ylströndin við Nauthólsvík
f lokkast sem náttúrulaug. Hún
var tekin í notkun árið 2000 þegar
ákveðið var að gera Nauthólsvík að
útivistarsvæði með áherslu á úti-
vist, sjósund, siglingar, sólböð og
almenna afslöppun í fallegu um-
hverfi. Þar er nú að finna fallegt lón
innan sjóvarnargarða sem voru
reistir, uppstreymispott til hitun-
ar á lóninu, þjónustumiðstöð með
búnings- og sturtuaðstöðu fyrir
baðgesti, heita setlaug fyrir fram-
an miðstöðina og grill og leiktæki
fyrir bæði börn og fullorðna.
Vatnsfjörður er vestastur þeirra
smáfjarða sem ganga inn úr
Breiðafirði. Þar er meðal annars
að finna heita fallega náttúrulaug
við Brjánslæk sem er vinsæll við-
komustaður ferðamanna. Einnig
er eftirsótt að sigla með ferjunni
frá Brjánslæk og út í Flatey þar sem
hægt er að skoða fallega byggð og
kirkju, fjölbreytt fuglalíf, gista og
njóta veitinga og einstakrar nátt-
úrufegurðar.
Grettislaug á Reykjaströnd í
Skagafirði. Hún er kennd við Gretti
Ásmundarson sem er sagður hafa
„bakast þar lengi um nóttina, því
honum var kalt orðið eftir (Drang-
eyjar)sundið nokkuð svo“. Fram á
20. öld voru þar tvær laugar en þær
eyðilögðust í óveðri sem gekk yfir
Skagafjörð árið 1934. Jón Eiríks-
son bóndi á Fagranesi stóð fyrir
því að Grettislaug var endurgerð
árið 1992.
Vinsælt er að gera sér ferð inn í
Landmannalaugar á Fjallabaks-
leið nyrðri, austur af Heklu. Þar er
náttúruleg laug (34-43 stiga heit)
í göngufæri frá skála og er ágætt
vatnsrennsli í gegnum laugina.
Hreinlætisaðstaða, salerni, hand-
laugar og sturtur, er í húsi skammt
frá. Mörgum þykir tilvalið að hvíla
þar lúin bein og njóta einstaks út-
sýnis yfir falleg og litskrúðug fjöll.
Unaðssemdir náttúrunnar
„Heitir pottar“ leynast víða í náttúrunni. Hér á landi er fyrir hendi fjöldi heitra náttúrulauga þar sem aðdráttaraflið er tengt heilnæmi þeirra og
fallegu umhverfi. Hér verða nokkrar þeirra nefndar sem tilvalið er að gera sér ferð í, safna þar kröftum og njóta lífsins í góðum félagsskap.
Ylströndin í Nauthólsvík laðar til sín fjölda gesta.
Bláa lónið er sjálfsagt þekktasta náttúrulaug lands-
ins. NORDICPHOTOS/GETTY Í Landmannalaugum á Fjallabaksleið nyrðri er hægt að gera sér til góða með því að skella sér í laugina. MYND/VILHELM
Pottaskeljarnar eru sterkbyggðar úr trefja- og
akrílplasti.
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 | Umsjónarmenn auglýsinga: Sverrir Birgir Sverrisson sverrirb@365.is s. 512 5432. | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal.