Fréttablaðið - 25.04.2012, Blaðsíða 25

Fréttablaðið - 25.04.2012, Blaðsíða 25
Kynning − auglýsing Heitir pottar25. apríl 2012 MIÐVIKUDAGUR 3 Tengi hefur um árabil selt vandaða nuddpotta frá bandaríska f y rir tæk inu Sundance Spas. Þeir koma í þrem- ur gerðum og eru tæknilega þró- aðir og ríkulega búnir. Einar Guð- jónsson, sölumaður í hreinlætis- tækjadeild Tengis, segir sölu potta hafa dregist þó nokkuð saman síðan 2008. „Við höfum selt potta frá Sundance Spas í mörg ár. Við- skiptavinir okkar treysta þessu merki vel og við bjóðum upp á mjög góða viðgerða- og varahluta- þjónustu sem skiptir miklu máli.“ Ódýrustu pottarnir eru með færri dælum og stútum. Miðstærð býr yfir hringrásardælu þannig að vatnið er alltaf á hreyfingu. Dýr- ustu pottarnir innihalda síðan vatns- og loftnudd. „Þetta er mjög kröftugt nudd þar sem dæla sér um að dæla lofti svo nuddið verð- ur harðara. Dýrustu pottarn- ir hafa líka útvarp, Ipod-tengi, geislaspilara og fleira.“ Góð umhirða skiptir öllu máli Þegar fjárfest er í heitum potti skiptir umhirða mjög miklu máli til að fyrirbyggja bilanir og skemmdir að sögn Einars. „Nauð- synlegt er að fólk hugsi vel um pottana sína, regluleg þrif og um- hirða gerir hlutina einfalda og þægilega. Þess vegna hefur Tengi lagt mikla áherslu á rétta notkun hreinsiefna til að koma til móts við þarfir viðskiptavina sinna.“ Hann segir sjaldnast við pottana að sakast þegar vatnið verður fúlt. Þegar leitað er ráða hjá honum sagði hann enga eina töfralausn vera til við að hreinsa rafmagns- potta. Þó sé auðvelt að halda vatn- inu hreinu með nokkrum samverk- andi þáttum og eftirfylgni. „Allir pottar þurfa hreinsiefni því með mönnunum berast sápuleifar, fita, sviti og húðflögur í pottinn. Mörg- um verður á að gleyma því að fara í sturtu áður en farið er í pottinn. Það er aldrei of oft brýnt fyrir fólki að þrífa sig vel áður en farið er ofan í.“ Hann segir mælingar hafa sýnt fram á 200 sinnum meiri mengun af völdum þeirra sem ekki þrífa sig áður en farið er í pottinn en hjá þeim sem fara í sturtu á undan og þrífi sig vel. Hreinsiefni fyrir ólíka notkun Einar segir Tengi bjóða upp á þrenns konar hreinsiefni fyrir pottana: klórtöf lur, Bromin og silfurhylki. Klórtöf lurnar segir Einar vera notaðar þar sem pott- urinn er í stöðugri notkun. Þær eru settar í pottinn fyrir og eftir notk- un. „Ég brýni fyrir fólki að muna ætíð að setja klórtöflu í pottinn eftir notkun til að hreinsa hann, en ef pottur er mikið notaður yfir dag- inn er ekki þörf á því að láta töflu út í eftir hverja notkun.“ Bromin er fjölvirkt tvíþátta klórfrítt efni og er lyktin daufari en af klórnum. Bromin-töflurnar eru settar í hólf eða skammtara og svo er efni, sem Einar nefnir Spachock, sett í vatnið eftir notkun. „Bromin- töflurnar eru lengi að leysast upp, eða um tvær til þrjár vikur. Þær henta því vel þar sem potturinn er ekki í notkun í lengri tíma, til dæmis í sumarbústöðum. Einnig eru þær hentugar fyrir þá sem hafa klórofnæmi.“ Þriðja leiðin til sótthreinsunar Sundance-potta er notkun silfur- hylkja. Einar segir silfur vera nátt- úrulega leið til sótthreinsunar og minnki um leið þörfina fyrir klór. „Silfurhylkin henta vel þeim sem eru með klórofnæmi og þar sem hylkið dugar í fjóra mánuði hent- ar það vel þeim sem skilja við pott- inn án eftirlits í lengri tíma. Eftir hverja notkun skal setja Díklór til frekari hreinsunar.“ Einar segir þróunina vera í þá átt að nota nátt- úrulegri hreinsiefni og minnka klórnotkun. Vellíðan í vönduðum pottum Mikil áhersla er lögð á góða umhirðu potta hjá Tengi. Viðskiptavinir fyrirtækisins njóta auk þess góðrar varahluta- og viðgerðarþjónustu. Starfsmenn hreinlætisdeildar Tengis aðstoða viðskiptavini við val á pottum. Einar Guðjónsson er lengst til hægri. mynd/stefán karlsson Smiðjuvegi 76 • Kópavogi • Sími 414 1000 • Baldursnesi 6 • Akureyri • Sími 414 1050 Opið virka daga frá 8 -18 laugardaga frá 10 -15 • www. tengi.is • tengi@tengi.is Gæði,þjónusta og ábyrgð- það er TENGI Heilsunuddpottar í úrvali Hreinsiefni fyrir heita potta

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.