Fréttablaðið - 25.04.2012, Blaðsíða 39
MIÐVIKUDAGUR 25. apríl 2012 23
eikhússins
hrífandi nærveru. Tinna Sverris-
dóttir kann listina að kveikja á
háu ljósunum og heilla áhorfend-
ur, hvort heldur hún er beinlínis
að biðla til fólks eða bara að tjá
einhverjar óskir og vonir. Snorri
Engilbertsson leikur föður sem
er miður sín vegna þess að sonur
hans hefur verið ákærður fyrir
nauðgun og hyggst hann fá leik-
hóp til að sviðsetja atburðina
nákvæmlega eins og þeir áttu
að hafa gerst. Sú sviðsetning fer
aftur á móti á annan veg þar sem
aðalleikkonan fær léttasótt í miðju
nauðgunaratriðinu. Þeir feðgar
sýndu skemmtilegan samleik, en
það var Kolbeinn Arnbjörnsson
sem fór með hlutverk sonarins.
Það hefði kannski mátt fylgja
þessari sögu betur eftir en aðrar
þurftu að komast að því einkenni
hvers og eins varð að fá sitt rými.
Ólöf Haraldsdóttir lék stúlkuna,
sem einhvern veginn verður
útundan og einkenndist túlkun
hennar af sársauka og viðkvæmni.
Sara Margrét Nordahl ljær sorg-
mæddri móður líf, móður sem
orðið hefur fyrir því að missa
bæði eiginmann og barn. Hún er
hefur í þessu verki eins og í Jarð-
skjálftum í London fantagóða
nærveru. Pétur Ármannsson leik-
ur náungann sem er að koma út úr
skápnum en vill ekki gera það á
neinn venjulegan máta, þannig
að í hvert sinn sem hann brydd-
ar upp á þessu bresta á hópatriði
sem svo sannarlega lyfta sýning-
unni í hæðir. Sigurður Þór Óskars-
son sýnir einnig að hann kann að
kitla hláturtaugar. Elísabet Brekkan
Niðurstaða: Sýningin var öll mjög vel
unnin og leikaraefnin sýndu vel hvað
í þeim býr, en hún var helst til löng.
BRAGI ÓLAFSSON Rómantískt andrúms-
loft er hans fyrsta ljóðabók í langan
tíma. FRÉTTABLAÐIÐ/XXX
Bragi Ólafsson hefur sent frá
sér nýja ljóðabók sem nefnist
Rómantískt andrúmsloft.
Í Rómantísku andrúmslofti
laðar Bragi, „ögrar og hrífur í
nýjum ljóðum með auðþekkjan-
legum brag og húmor“ segir á
heimasíðu Forlagsins. „Ljóðum
sem hylla skáldskapinn og tón-
listina og fagna hverju nýju and-
artaki – en þar sem dauðinn er þó
sínálægur, lævís og snöggur upp
á lagið.“
Þetta er fimmta ljóðabók
Braga, sem hóf höfundarferil
sinn með ljóðabókinni Dragsúg
árið 1986 en síðasta ljóðabók
hans, Klink, kom út 1995. Undan-
farin ár hefur hann einbeitt sér
að skáldsagnagerð og leikrit-
un en síðasta skáldsaga hans,
Handritið að kvikmynd Arnar
Featherby og Jóns Magnússonar
um uppnámið á veitingahúsinu
eftir Jenný Alexson, var tilnefnd
til Íslensku bókmenntaverð-
launanna 2010.
Rómantískt
andrúmsloft
Braga Ólafs
NÚ GETUR ÞÚ NOTAÐ ÞÍNA ÁVÍSUN
Á LESTUR Á EYMUNDSSON.IS
STÆRSTU BÓKAVERSLUN LANDSINS
NÝJUSTU BÆKURNAR OG FERSKAR FRÉTTIR
Á WWW.FACEBOOK.COM/EYMUNDSSON
YFIR 100.000 TITLAR Á EINUM STAÐ
Nýttu þína ávísun!
Ávísunin gildir
við kaup á öllum
íslenskum:
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Miðvikudagur 25. apríl 2012
➜ Söngskemmtun
14.00 Söngvaka verður hjá Félagi eldri
borgara í Reykjavík, Stangarhyl 4. Stjórn-
endur eru Helgi Seljan og Sigurður
Jónsson. Aðgangseyrir er kr. 600.
➜ Listahátíð
10.00 Sameiginleg listadagahátíð verð-
ur haldin á Garðatorgi fyrir nemendur í
leik- og grunnskólum í tilefni Listadaga
barna og ungmenna í Garðabæ.
➜ Dans
20.30 Gömlu dansarnir verða dansaðir
hjá Þjóðdansafélagi Reykjavíkur, Álfa-
bakka 14a. Allir velkomnir og aðgangs-
eyrir er kr. 800.
➜ Fyrirlestrar
12.00 Zhang Boyu prófessor talar á
fyrirlestri með yfirskriftinni Modernity
and Identity í Sölvhóli, Listaháskóla
Íslands. Fyrirlesturinn fer fram á ensku
og aðgangur er ókeypis.
12.15 Jóhannes M. Gunnarsson læknir
og Gyða Baldursdóttir hjúkrunarfræð-
ingur halda kynningu um nýjan spítala
og þýðingu hans fyrir fólk sem greinist
með krabbamein. Fyrirlesturinn er undir
yfirskriftinni Landspítali fyrir framtíðina
og er haldinn í Ráðgjafarþjónustu
Krabbameinsfélags Íslands á fyrstu
hæð húss Krabbameinsfélags Íslands,
Skógarhlíð 8. Allir velkomnir.
20.00 Rósa Þorsteinsdóttir heldur fyrir-
lestur um ævintýri, erlend og íslensk,
prentuð og sögð, í ReykjavíkurAkademí-
unni, Hringbraut 121. Allir velkomnir.
20.00 Bjarni Guðmundsson á Hvann-
eyri segir gestum frá því hvernig
dráttarvélarnar Ferguson og Farmall
breyttu lífinu í sveitunum á bókakaffi í
Menningarmiðstöðinni Gerðubergi.
➜ Umræður
17.00 Ferðamálasamtök Hafnarfjarðar
standa fyrir hraðstefnumóti í Gaflara-
leikhúsinu þar sem boðið verður upp
á kynni meðal þeirra sem hafa áhuga
á ferðaþjónustu og tengdri starfsemi
í Hafnarfirði. Hagsmunaaðilar, leik-
menn og fagaðilar hvattir til að mæta
og styrkja tengslanetið. Veitingar verða
seldar á staðnum.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is og einnig er
hægt að skrá þá inni á visir.is.