Fréttablaðið - 25.04.2012, Síða 42
25. apríl 2012 MIÐVIKUDAGUR
sport@frettabladid.is
FH getur í kvöld tryggt sér sæti í lokaúrslitum
N1-deildar karla með sigri á Akureyri norðan
heiða í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 19.00.
Rauðarárstígur 10
105 Reykjavík
Sími: 562 4082
www.yggdrasill.is
Verslunin er staðsett við
hliðina á Hlemm. Það er
tilvalið að gera stórinnkaupin
á afsláttardeginum.
Afsláttar dagur
10% afsláttur af öllum vörum
Landsins mesta úrval af lífrænum vörum
FÓTBOLTI Þegar Barcelona komst
2-0 yfir gegn Chelsea í lok fyrri
hálfleiks í síðari viðureign liðanna
í undanúrslitum Meistaradeildar-
innar í gær reiknuðu sjálfsagt
flestir með því að það væri borin
von fyrir þá ensku að koma sér
aftur inn í leikinn, hvað þá að gera
nóg til að tryggja sér sæti í úrslita-
leik keppninnar. Ekki síst þar sem
þeir voru manni færri eftir að hafa
misst fyrirliðann John Terry af
velli með rautt spjald.
En kraftaverkin gerast enn og
eitt slíkt átti sér svo sannarlega
stað á Nývangi, hinum gríðar-
sterka heimavelli Barcelona í gær.
Þegar dómari leiksins flautaði
leikinn af var staðan 2-2 og leik-
menn Chelsea fögnuðu sem óðir
væru.
Sergio Busquets og Andrés
Iniesta komu Barcelona yfir í fyrri
hálfleik en á milli markanna fékk
Terry beint rautt spjald fyrir að
reka hnéð í Alexis Sanchez, leik-
mann Barcelona. Þá virtist öllu
lokið.
En þá gerðu leikmenn Barcelona
sig seka um skelfileg mistök. Þeir
sváfu á verðinum á meðan Chelsea
brunaði í skyndisókn sem lauk með
því að Brasilíumaðurinn Ramires
komst einn gegn Victor Valdes í
markinu. Hann skoraði með glæsi-
legri vippu og gaf stuðningsmönn-
um Chelsea vonarglætu rétt áður
en leikmenn gengu til búningsklefa.
Seinni hálfleikur hófst svo á
því að Barcelona fékk vítaspyrnu.
Lionel Messi, einum mesta marka-
hróki sögunnar, hefur þrátt fyrir
öll sín afrek aldrei tekist að skora
gegn Chelsea og það breyttist ekki
í gær. Hann steig á vítapunktinn
og þrumaði knettinum í slána.
Eftir þetta sóttu Börsungar nán-
ast látlaust gegn tíu mönnum Chel-
sea sem stilltu þéttum varnarmúr
í kringum eigin vítateig. Heima-
menn röðuðu sér utan við varnar-
línuna og reyndu hvað þeir gátu
að troða boltanum í gegn. Minnti
seinni hálfleikurinn helst á eina
afar langa handboltasókn.
Alexis Sanchez kom þó boltanum
í markið en það var dæmt af vegna
rangstöðu. Messi átti líka skot í
stöng. En ekkert gekk og þegar
varamaðurinn Fernando Torres
skoraði í uppbótartíma var endan-
lega búið að máta heimamenn.
„Við trúðum á þetta,“ sagði
Ashley Cole eftir leikinn. „Ekki
margir höfðu trú á okkur en við
gerðum það. Það jafnast ekkert
á við þann baráttuvilja sem við
sýndum í kvöld.“
Fórnarkostnaðurinn fyrir Chel-
sea er þó að fjórir leikmenn, John
Terry, Branislav Ivanovic, Raul
Meireles og Ramires, verða allir
í banni í úrslitaleiknum 19. maí í
München í Þýskalandi.
eirikur@frettabladid.is
Kraftaverkið á Nývangi
Chelsea tryggði sér í gær sæti í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu eftir ótrúlegan
leik í Barcelona í gær. Chelsea vann samanlagðan 3-2 sigur þrátt fyrir að hafa
verið um tíma tveimur mörkum undir og manni færri á heimavelli Barcelona.
ÓSVIKINN FÖGNUÐUR Frank Lampard fagnar jöfnunarmarki Fernando Torres á Nou Camp í gær. NORDICPHOTOS/GETTY