Fréttablaðið - 18.06.2012, Page 8
18. júní 2012 MÁNUDAGUR8
Fjölmenni sótti hátíðahöld í miðbæ Reykjavíkur í tilefni af
þjóðhátíðardegi Íslendinga, 17. júní, í gær. Boðið var upp
á leiktæki fyrir börnin í Hljómskálagarðinum og dagskrá
var á sviðinu við Arnarhól. Þá var efnt til skrúðgöngu frá
Hlemmi niður á Lækjartorg þar sem lúðrasveit lék fastan
takt í broddi fylkingar.
Hátíðahöld
í Reykjavík
Í FARARBRODDI Skátar voru í fararbroddi og báru íslenska fánann. Fast á hæla þeirra kom lúðrasveitin og sá til þess að allir
gengu í takt. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
AUSTURVÖLLUR Bjarni Benediktson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sat með dóttur
sína í fanginu er hann hlýddi á ræðu Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra. Þeirri
stuttu virtist ekki líka neitt afskaplega vel við orð Jóhönnu og hefur örugglega fest
augun á litríkum gasblöðrum.
HÁTÍÐARSKAPIÐ Þessir drengir voru í sannkölluð hátíðarskapi þegar þeir reyndu
leiktækin í Hljómskálagarðinum. Þar mátti finna eitthvað við allra hæfi og njóta
blíðunnar í faðmi fjölskyldunnar.
HALTU FAST! Þessi litla snót skemmti sér konunglega
þegar pabbi hennar ók henni í hjólbörum í Hljóm-
skálagarðinum.
FÁNINN Á þjóðhátíðardaginn ber mikið á íslenska fánanum. Lög um
hann voru sett 17. júní árið 1944 og voru þau önnur lögin sem sett
voru, á eftir stjórnarskránni, við stofnun lýðveldisins.
17. JÚNÍ: Þjóðhátíðardagur Íslendinga
www.volkswagen.is
Volkswagen Caddy
Caddy er áreiðanlegur, sparneytinn og þægilegur
í allri umgengni. Lipur vinnuþjarkur með frábæra
aksturseiginleika og ríkulegan staðalbúnað.
Hann er fáanlegur með bensín-, dísil- og metan-
vélum frá framleiðanda.
Caddy* kostar aðeins frá
2.990.000 kr.
(kr. 2.382.470 án vsk)
*Miðað v ið Caddy TSI bensín, 86 hestöfl, beinskiptur.
Aukahlutir á mynd, álfelgur og þokuljós.
Góður
vinnufélagi
Til afgreiðslu strax
Atvinnubílar
Fæst einnig
fjórhjóladrifinn