Fréttablaðið - 18.06.2012, Blaðsíða 15
Saltbjörgu er ætlað að hanga við hlið þér við matseldina og er salt-inu stráð yfir matinn af snærinu.
Saltbjörg er einnig sérstök gjöf, hún
er tákn og fjandafæla sem heldur því
jákvæða inni og því neikvæða úti. Ég
hef fengið góð viðbrögð og ætla að þróa
verkefnið frekar,“ segir Edda Katrín
Ragnarsdóttir, nýútskrifaður vöruhönn-
uður frá LHÍ, en í lokaverkefni sínu vann
hún með þá gömlu hjátrú að fara skuli
með brauð og salt fyrst inn í húsnæði
þegar flutt er inn.
„Það er gert til að vernda heimilið
svo hvorki skorti mat né salt í graut-
inn,“ útskýrir Edda og segist hjátrúar-
full sjálf. Hún hafi meðal annars sökkt
sér ofan í Stóru hjátrúarbókina við
vinnslu verkefnisins.
„Bókin varð eins konar biblía gegnum
allt rannsóknarferlið. Ég ákvað að vinna
með saltið því það kemur okkur öllum
við. Við gætum ekki lifað án salts. Í hjá-
trúnni segir einnig að salt hafi áður fyrr
verið tákn vináttunnar,“ útskýrir Edda.
„Ferlið við að rækta saltið upp á snærið
tók langan tíma eða allt upp í átta vikur.
Þetta hæga ferli finnst mér mikilvægt
fyrir merkingu vörunnar,“ segir Edda.
Aðspurð um framtíðaráformin nú
eftir útskrift segist hún ætla að endur-
næra sig í sveitaloftinu heima á Flúðum
næstu vikur. Eftir það taki ævintýrin við
í Suður Frakklandi.
„Ég fer á sumarnámskeið hjá breska
hönnuðinum Max Lamb í Boisbuchet-
School. Í framtíðinni ætla ég svo í
masters nám í vöruhönnun en tek mér
pásu einn vetur. Ég ætla bara að gera
skapandi og skemmtilega hluti. Maður
er alltaf að læra eitthvað nýtt og ögr-
andi og tækifærin liggja alls staðar, ef
þau eru ekki til staðar bý ég þau til. Eins
og Elsa frænka mín segir; það eru til ráð
við öllu nema ráðaleysi.“
■ heida@365.is
SALT Í GRAUTINN
GÓÐ INNFLUTNINGSGJÖF Edda Katrín Ragnarsdóttir vöruhönnuður ræktaði
saltkristalla á snæri í lokaverkefni sínu út frá gamalli hjátrú.
HJÁTRÚARFULL Edda
Katrín Ragnarsdóttir
vöruhönnuður vann út
frá gamalli hjátrú í loka-
verkefni sínu við LHÍ.
MYND/ANTON
LANGT FERLI Allt upp
í átta vikur tók að rækta
saltið upp á snærið.
MYND/HÉÐINN EIRÍKSSON
KVENNAMESSA Í LAUGARDAL
Á morgun, kvenréttindadaginn, verður Kvennakirkjan með
guðsþjónustu við Þvottalaugarnar í Laugardal kl. 20 í sam-
starfi við Kvenréttindafélag Íslands og Kvenfélagasamband
Íslands. Séra Agnes M. Sigurðardóttir, verðandi biskup,
predikar. Hópur kvenpresta mun taka þátt í messunni og
fagna þannig kjöri fyrsta kvenbiskups yfir Íslandi.
Gerið gæða- og
verðsamanburð
Sofðu vel - heilsunnar vegna
Listhúsinu Laugardal, 581 2233 · Baldursnesi 6, Akureyri, 461 1150 · Opið virka daga kl. 10.00 - 18.00 · laugardaga 12.00 - 16.00
*3,5% lántökugjald
TILBOÐ Á ÖLLUM STILLANLEGUM HEILSURÚMUM
Með okkar bestu heilsudýnu.
Verð frá kr. 339.900 á hjónarúmi.
MIKIÐ ÚRVAL AF
SVEFNSÓFUM
12 má
naða
vaxtal
ausar
greiðs
lur*