Fréttablaðið - 18.06.2012, Blaðsíða 14
18. júní 2012 MÁNUDAGUR14
Listvinafélag Akureyrar-
kirkju stendur fyrir tón-
leikaröð í júlí á hverju ári,
sem nefnist Sumartónleikar
í Akureyrarkirkju. Þetta
er næstelsta tónleikaröð á
Íslandi og hefur hún verið
haldin í vel á þriðja áratug.
Boðið verður upp á fjöl-
breytta dagskrá í sumar,
flutta af framúrskarandi
listafólki. Hinn 1. júlí kemur
Hjörleifur Örn Jónsson slag-
verksleikari fram, en hann
er jafnframt skólastjóri
Tónlistarskólans á Akur-
eyri. Hinn 8. júlí kemur
Margrét Bóasdóttir sópr-
ansöngkona fram ásamt
Chalumeaux-tríóinu, en það
skipa þeir Kjartan Óskars-
son, Sigurður Ingvi Snorra-
son og Ármann Helgason.
Viku síðar, 15. júlí,
spila organistarnir Sigrún
Magna og Eyþór Ingi fjór-
hent og fjórfætt á kirkjuor-
gelið en 22. júlí koma þær
Guðrún Óskarsdóttir semb-
alleikari og Halla Steinunn
Stefánsdóttir fiðluleikari
fram.
Erlendir gestir reka
smiðshöggið á tónleika-
röðina í Akureyrarkirkju
29. júlí en þá leikur Trio
Bruun frá Danmörku list-
ir sínar, en það er skipað
Steffen Bruun bassasöngv-
ara, Hetna Regitze Bruun
sópransöngkonu og Philip
Schmidt-Madsen orgelleik-
ara.
Allir tónleikarnir hefjast
klukkan 17 og aðgangur er
ókeypis á þá alla, nema á
tónleikana 29. júlí þá kost-
ar miðinn 1.500 krónur.
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
timamot@frettabladid.is
Susan B. Anthony fæddist 15. febrúar árið 1820 í Massa-
chusetts. Hún var bráðþroska, orðin læs og skrifandi
aðeins þriggja ára. Faðir hennar, sem var verksmiðju-
eigandi, var framsýnn maður og vildi að dóttir hans
fengi menntun. Hins vegar voru kennarar ekki á sama
máli og hún var sniðgengin í barnaskóla vegna kynferðis
síns. Föður hennar ofbauð og hann tók að sér að kenna
dóttur sinni sjálfur. Þessi reynsla varð sennilega til þess
að Susan B. Anthony varð ein helsta baráttukona fyrir
réttindum kvenna á nítjándu öld í Bandaríkjunum.
Síðar launaði hún föður sínum þá trú sem hann
hafði á henni og vann sem kennari til að greiða
skuldir hans, þegar hann varð gjaldþrota. Hún ferð-
aðist víða um heim til að berjast fyrir réttindum
kvenna og árið 1873 var hún sektuð um 100 dollara
fyrir að greiða atkvæði í forsetakosningum árið áður.
Þá höfðu konur ekki kosningarétt og hún var hand-
tekin fyrir athæfið.
ÞETTA GERÐIST: 18. JÚNÍ 1873
Kona sektuð fyrir að kjósa
KRISTBJÖRG KJELD LEIKKONA er 77 ára í dag.
„Mér hefur alltaf þótt gaman að glíma við íslensk verk, ekki síst af því ég var gift íslenskum höfundi. Mér finnst
alltaf mikið mál að þau fái sem allra besta sjósetningu. Ef það gerist ekki eiga þau það á hættu að gleymast alveg.“
Í Stykkishólmi opnar á næstu dögum
nýtt hótel í Egilsenhúsi sem stendur
við Aðalgötu 2 þar í bæ. Gréta Sig-
urðardóttir hefur rekið gistiheimil-
ið Bænir & brauð í þrjú ár en stækk-
ar nú við sig og opnar Hótel Egilsen.
Áhersla hefur verið lögð á gæði þjón-
ustunnar á Bænum & brauði og verð-
ur sami háttur hafður á rekstri Hótels
Egilsen.
„Við þurfum að fresta formlegri
opnun um nokkra daga. Ég er svo lán-
söm að hafa forsjálni og er bara búin
að bóka gistirýmin með fyrirvörum,“
segir Gréta. Vinna hefur staðið síðan
í október við að innrétta húsið en upp-
haflega var það byggt sem íbúðarhús
árið 1867 af Agli Egilsen.
„Ég sá það í fyrra þegar ég var
búin að bóka öll herbergi allt sumar-
ið að það er eftirspurn eftir vandaðri
og öðruvísi gistingu,“ heldur Gréta
áfram og segist hafa lagt enn meira á
sig til að veita hágæðaþjónustu á gisti-
heimili sínu. Gæðaúrval gistiplássa er
meira með þjónustu hennar.
„Svo var Egilshús á sölu í fyrra.
Við fórum ekki að huga að því að
kaupa það fyrr en í júlí og þá hafði
enginn sýnt því áhuga,“ segir Gréta.
Húsið var gert upp árið 2008 og er í
fullkomnu ástandi að utan og er ytra
byrði þess friðað. Gréta segir þó
hafa þurft að endurskipuleggja innra
rýmið svo það henti hóteli. Vinna við
það er að klárast um þessar mundir.
Framkvæmdirnar hafa einnig skapað
atvinnu fyrir marga í Stykkishólmi.
„Við erum að vanda okkur mikið og
leggjum áherslu á að fólk verði ekki
fyrir ónæði frá öðrum gestum og að
það sé engin hætta á ferðum. Það eru
bara tíu herbergi svo þetta er bara
lítið og kósý hótel. Ég kalla það litla
demantinn minn,“ segir Gréta.
„Við sýnum húsinu mikla virðingu
við breytingarnar. Ég sé þetta ekki
sem samkeppni heldur viðbót við það
sem fyrir er. Við stefnum að því að
hafa opið allt árið og þannig er mark-
aðssetning okkar byggð upp.“ Gréta
segir enn fremur að hótelið eigi að
vera sögu- og heiðarleikahótel. Gest-
um mun standa til boða að afgreiða sig
sjálfir á barnum og þarna verða dýrir
hlutir sem Gréta treystir gestum fyrir
að ganga vel um.
Gestir verða hvattir til að skilja
eftir sig sögu og frásagnir af sínum
ferðum og af sér, hvort sem það eru
myndir, frásagnir skrifaðar á serví-
ettur eða teikningar. Gréta segir
að gaman sé að skilja eitthvað eftir
sig auk þess að taka með sér minja-
gripi. „Hver einasti hlutur í húsinu
hefur verið valinn með það í huga að
hann hafi að geyma einhverja sögu.
Við reynum að halda í það gamla, án
þess að það verði gamaldags. Þetta er
svona nútímahótel með gömlu ívafi.“
„Húsgögnin eru skandínavísk og
íslensk hönnun. Við erum til dæmis
afskaplega stolt af því að eiga fimm
stóla eftir Svein Kjarval. Sagan er
ekki bara það sem hefur verið ritað,
heldur lítum við svo á að lífið okkar sé
saga,“ segir Gréta að lokum.
birgirh@frettabladid.is
HÓTEL EGILSEN Í STYKKISHÓLMI: ÁHERSLA Á AÐ GESTIR SKILJI EFTIR SIG SÖGU
Hótelið verður viðbót við
ferðaþjónustu í Stykkishómi
AKUREYRARKIRKJA Sumar-
tónleikaröðin er sú næstelsta á
landinu.
Sumartónleikar á Akureyri
Okkar ástkæra eiginkona, móðir,
tengdamóðir, amma og systir,
KRISTÍN HRÖNN RAGNARSDÓTTIR
BRANTLEY
Savannah, Missouri
(áður Smáratúni 44, Keflavík)
lést á heimili sínu 29. maí sl. eftir langvarandi
veikindi. Minningarathöfn fer fram frá
Keflavíkurkirkju, mánudaginn 18. júní kl. 13.
Fyrir hönd aðstandenda hinnar látnu,
John Richard Brantley
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi,
BIRKIR ÞÓR GUNNARSSON
Ljósuvík 14, Reykjavík,
sem lést 9. júní verður jarðsunginn frá
Grafarvogskirkju 19. júní kl. 13.00.
Þeim sem vildu minnast hans er bent á
Líknar- og styrktarsjóð Oddfellowa.
Gunnar Birkisson Jóhanna B. Þórhallsdóttir
Stefán Hjálmar Birkisson Margrét Björk Kjartansdóttir
Dagný Björk Stefánsdóttir Steindór Hjartarson
Aron Birkir Stefánsson Herdís Helgadóttir
Hanna Björt Stefánsdóttir
EGILSENHÚS Húsið var gert upp að utan árið 2008 og hafa endurbætur að innan staðið yfir síðan í október. Vandað er til verka og reynt að
halda í söguna án þess þó að hótelið verði gamaldags. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Í tilefni af 100 ára afmæli ÍSÍ og að á þessu ári eru Ólympíu-
leikar í London hófst sérstök ólympíuvika 16. júní sem
stendur til 22. júní. Í ólympíuvikunni bjóða sambandsaðilar
ÍSÍ upp á íþróttakynningar fyrir þá sem eru með sumar-
námskeið, einnig ætlar íþróttafólk að kíkja í heimsókn.
Það sem verður meðal annars í boði í ólympíuvikunni er
strandblak í Fossvoginum, skylmingar í Baldurshaganum,
hafnabolti í Laugardalnum, borðtennis, frjálsar íþróttir,
heimsókn í Íþróttahús fatlaðra í Hátúni, keila, knattþrautir
KSÍ og fleira.
Markmiðið er að hafa gaman og kynna fyrir krökkunum
ýmsar íþróttir og ekki síst sjálfa Ólympíuleikana. Ólympíu-
vikan er einnig vettvangur til þess að veita krökkum tæki-
færi til að kynnast ólympísku gildunum og fá ýmsar upplýs-
ingar um sjálfa leikana. Fyrir hvað standa hringirnir fimm,
hví er Ólympíueldurinn tendraður á fjögurra ára fresti?
Svör við þessu og ýmsu öðru er hægt að kynna sér á www.
olympiuleikar.com.
Ólympíuvika hafin
SKYLMINGAR Eru meðal þess sem er í boði í ólympíuviku, auk
hafnabolta, keilu og fleira.
Elskulegur eiginmaður minn,
sonur, faðir, tengdafaðir og afi
HJALTI GUÐMUNDSSON
meindýraeyðir
Huldugili 6, Akureyri,
lést fimmtudaginn 7. júní.
Guðný Ósk Agnarsdóttir
Ingibjörg Jóhannsdóttir
Heiður Hjaltadóttir Arnar Már Sigurðsson
Gígja Hjaltadóttir
Agnar Kári Sævarsson Heiðrún Georgsdóttir
Sigurlaug Sævarsdóttir Hilmar Þór Ívarsson
afabörn og aðrir aðstandendur
verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju
þriðjudaginn 19. júní kl. 13.30.