Fréttablaðið - 18.06.2012, Síða 12

Fréttablaðið - 18.06.2012, Síða 12
12 18. júní 2012 MÁNUDAGUR FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Atli Fannar Bjarkason (dægurmál) atlifannar@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir, ritstjórnarfulltrúi, sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ: Elín Albertsdóttir elin@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 greinar@frettabladid.is FRÁ DEGI TIL DAGS HALLDÓR Veiðigjald er komið á fyrir löngu í sjávarútveginum. Það gerðu útvegs- menn sjálfir. Viðskipti með veiðiheim- ildir eru umfangsmiklar og verðið afar hátt. Veltan nemur tugum milljarða króna á hverju ári. Tekjurnar renna nær eingöngu til handhafa veiðiheimildanna. Stjórnarflokkarnir hyggjast auka hlut ríkissjóðs úr 9,46 kr. fyrir kíló af þorski í 37 kr. fyrir veiðileyfið og hækka það svo í 54 kr. eftir þrjú ár. Útgerðarfyrir- tækin sjálf krefjast um 300 kr. í endur- gjald fyrir réttinn. Það er áttfalt veiði- gjald. Hlutur þeirra í tekjunum er 97% og lækkar í 82% með áformum stjórn- valda. Hlutur ríkisins verður ekki talinn mikill. Á síðasta fiskveiðiári voru 44% afla- marksins flutt á milli skipa. Viðskipti milli óskyldra aðila námu 76 þúsundum tonna. Hagfræðistofnun Háskóla Íslands birti í maí 2010 skýrslu um markaðinn með veiðiheimildir. Telur stofnunin að hann sé skilvirkur og verðlagið endur- spegli fjárhagslega getu fyrirtækjanna til þess að greiða fyrir veiðiréttinn. Bent er á að kvótalitlar og kvótalausar útgerðir séu stórtækar á markaðnum fyrir leigukvóta. Hlutur þeirra var fisk- veiðiárið 2008/9 um 35% af öllum leigu- kvóta í þorski og ýsu það ár. Nýlegri upp- lýsingar eru ekki handbærar, en miðað við þetta hlutfall leigðu kvótalitlar eða kvótalausar útgerðir til sín og veiddu um 15.000 tonn af þorski og 10.000 tonn af ýsu á síðasta fiskveiðiári. Þær greiddu í veiðigjald 60-80% af verðinu, sem fæst fyrir fiskinn á fiskmarkaði. Stóru útgerðirnar, Samherji, HB Grandi og Brim, leggja á allt að 80% veiðigjald í krafti úrelts úthlutunarkerfis og kvóta- markaðar, sem LÍÚ rekur. Þótt ríkið auki hlut sinn í veiðigjald- inu hækkar kvótaverðið ekki. Leigjendur verða jafnsettir. Hagnaður af framsal- inu verður eftir sem áður mjög mik- ill eða þrefalt meiri en af veiðum. Þeir, sem eftir hækkun veiðigjaldsins kaupa veiðirétt til langs tíma, aflahlutdeild, verða líka jafnsettir. Verði tekið tillit til fjárskuldbindinga vegna keyptra afla- hlutdeilda raskar hækkun veiðigjalds- ins ekki forsendum kaupanna. Það er löngu tímabært að framsal veiðiheimilda verði fremur tekjustofn hins opinbera en fáeinna útgerðarmanna. Veiðigjaldið kom fyrir löngu Sjávar- útvegsmál Kristinn H. Gunnarsson fv. alþingismaðurb ó k a b ú ð f o r l a g s i n s N ýjustu tölur um framleiðslu fíkniefna hér á landi gefa tilefni til vangaveltna um hvort ekki mætti eitthvað betur fara í hvernig hér er staðið að forvörnum og er þar áfengisstefnan ekki undanskilin. Eftir hrun krónunnar árið 2008 og dýrtíðina sem þá tók við hefur framleiðsla á kannabisefnum tekið kipp hér á landi, að því er fram kemur í nýrri samantekt lögreglunnar á höfuð- borgarsvæðinu. Þannig voru á skrá lögreglu árið 2007 um tutt- ugu brot sem tengdust kannabis- framleiðslu, en voru orðin 180 þremur árum síðar. Um leið margfaldaðist fjöldi kannabis- plantna sem lögregla gerði upp- tækar. Árið 2007 voru plönturnar um þúsund talsins en síðustu ár hefur fjöldinn verið á bilinu sex til tíu þúsund. Á sama tíma hafa rannsóknir sýnt að neysla kannabisefna, og þá helst maríjúana, hefur stóraukist hjá ungu fólki. Í fyrrahaust var frá því greint íslensk ungmenni ættu Norðurlandamet í maríjúana neyslu. Og ekki þarf annað en að ræða við framhaldsskólanema til að fá stað- fest að þeir eiga auðveldara með að nálgast kannabisefni en áfengi. Þá virðist lítið svarað linnulausum áróðri um meint skaðleysi kannabisreykinga þar sem eiturlyfjasalar og hasshausar sem réttlæta vilja eigin neyslu vitna gjarnan í eldgamlar rannsóknir. „Kannabisefni eru einu ólöglega vímuefnin á Vesturlöndum sem eiga sér aðdáendahóp, „kannabisbullurnar“ sem berjast skipulega fyrir lögleiðingu þeirra,“ segir á vef SÁÁ. Minna fer fyrir því að haldið sé á lofti nýrri rannsóknum sem sanna skaðsemi þessa eiturlyfs, hvernig það eyðileggur námsgetu (sem væntanlega bætir gráu ofan á svart í tölfræði um unglinga sem ekki geta lesið sér til gagns), ógnar geðheilsu og veldur ánetj- an sem hefur í för með sér veruleg fráhvarfseinkenni. Því má að minnsta kosti velta fyrir sér hvort hátt verð og aðrar aðgerðir sem gripið hefur verið til í forvarnaskyni til að beina ungu fólki frá áfengi, svo sem blástursmælingar við inngang á dans leikjum framhaldsskóla, ýti fremur undir að ungmennin leiti annarra vímugjafa, svo sem maríjúana. Eftir uppgang þeirrar framleiðslu síðustu ár er bæði ódýrara og auðveldara fyrir ung- menni að hafa upp á slíkum efnum, auk þess sem þau sleppa óhindrað í gegn um blástursmælingu skólanna sem viðhafa slík meðul. Vitanlega væri allra best að ungdómurinn héldi sig frá vímu- efnaneyslu í hvaða mynd sem hún er, lögleg eða ólögleg. Með fræðslu og þeirri fyrirmynd sem felst í eðlilegri umgengni við áfengi má hins vegar teljast líklegra að neysla ungmenna hefj- ist síðar og verði fremur innan ramma laga og reglna en raunin er í núverandi fyrirkomulagi. Ekki verður fram hjá því horft að tölurnar virðast benda til þess að þjóðin hafi með stefnu sinni í forvarnamálum verðlagt áfengi út af markaðnum í ákveðnum kreðsum og búið til rými fyrir aðra ólöglega vímugjafa. Hlýtur þar að vera komið fullt tilefni til að endurmeta virkni þeirra for- varnameðala sem hingað til hefur verið beitt. Kannabisræktun aldrei meiri hér á landi. Endurmeta þarf forvarnastefnuna Óli Kristján Ármannsson olikr@frettabladid.is SKOÐUN Lætin grátin Egill Helgason sjónvarpsmaður kvartar yfir því að ekki hafi verið um neina kvöldskemmtun að ræða í miðborg Reykjavíkur í gær. Þykir honum heldur lágt risið á þjóðhátíðardegi Íslendinga fyrir vikið. Það er af sem áður var, því fáir hafa skrifað meira um læti í miðbænum en einmitt Egill. Hann hefur búið þar lengi og kvartað sáran yfir þeim ólifnaði sem fylgir kvöldfylliríum í miðbænum. Nú má vel vera að hann hafi séð fyrir sér dannaða skemmtun þar sem saklaus ungmenni dilluðu sér í takt við fagra tóna. Reynslan ætti þó að sýna honum að þúsundum ungmenna fylgir fyllirí og fylliríi fylgja læti. Þess vegna eru oft læti í miðbænum. Lítið er eldri manns gaman Guðbergur Bergsson er eldri en tvævetur þegar kemur að því að hneyksla. Sú var tíð að hann breytti íslenskum bók- menntum á máta sem sumum fannst hneykslan- legur. Nú virðist hann helst dunda sér við það að ýfa sem flestar fjaðrir og nota sem grófust orð, aðeins til að hneyksla. Það er af sem áður var. Persónulega sambandið Jóhanna Sigurðardóttir forsætis- ráðherra sagði, í hátíðarávarpi sínu í gær, að loks hyllti undir að draumsýn Jóns Sigurðssonar og fleiri um alíslenska stjórnarskrá yrði að veruleika. Þetta er umhugsunarefni. Jón var andsnúinn því að danskir stjórnmálamenn hlutuðust til um íslensk málefni, en hann vildi þó halda persónulegu sambandi Íslendinga og Danakonungs. Slíkt er ekki að finna í drögum að nýrri stjórnarskrá, en það þykir alltaf fínt að veifa Jóni á afmælinu hans. kolbeinn@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.