Fréttablaðið


Fréttablaðið - 18.06.2012, Qupperneq 16

Fréttablaðið - 18.06.2012, Qupperneq 16
FÓLK|HEIMILIÐ FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is, s. 512 5473 | Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432 | Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512-5427 Hús Gianni Versace er nú til sölu. Það er á Miami Beach í Flórída. Húsið kostar 125 milljónir doll- ara en það eru litlir 16 milljarðar. Húsið var byggt árið 1930 og er fyrirmynd þess elsta hús í vesturhluta heimsins, Alcazar de Colon í Dómin- íska lýðveldinu, byggt árið 1510 af syni Kristófers Kólumbus. Í fyrstu var húsið kallað Casa Casuarina en eftir að Jacques Amsterdam keypti það og notaði sem þrjátíu eininga íbúðarhús- næði fyrir listamenn og ríkt fólk var það kallað Amsterdam-höllin. Gianni Versace, ítalski fatahönnuður- inn, keypti húsið árið 1993 á 2,9 millj- ónir Bandaríkjadala eða 375,2 milljónir króna. Hann keypti einnig autt hótel við hliðina á húsinu til að hafa meira pláss. Þar setti hann viðbyggingu við húsið, bílskúr, sundlaug og garð en þessar breytingar kostuðu 33 milljónir dollara. Á meðan Versace var eigandi voru oft haldin partí þar sem allir helstu lista- menn heims og stórstjörnur skemmtu sér. Versace fékk þó ekki að njóta húss- ins lengi því hann var skotinn til bana fyrir utan heimili sitt, 16. júlí 1997. Eftir dauða Versace var húsið sett á uppboð og milljarðamæringurinn Peter Loftin keypti það. Árið 2009 var húsinu breytt í hótel, veitingastað og spa og er nóttin á hótelinu ein sú dýrasta sem fyrir- finnst í Bandaríkjunum. VERSACE-HÖLLIN TIL SÖLU SÖGUFRÆGT HÚS TIL SÖLU Þetta fallega hús sem byggt var árið 1930 á Miami Beach er nú til sölu á 125 milljónir dollara. Í dag er það hótel og veit- ingastaður en áður átti Gianni Versace fatahönnuður heima þar. FLOTT HÖNNUN Mikið var lagt í hönnunina á húsinu. STÓRGLÆSILEGT Húsið er eitt það glæsi- legasta á Miami. ■ NOTALEGIR NÁGRANNAR Hvort sem það er í garðinum heima eða fyrir utan sumarbústaðinn er eitt- hvað notalegt við þessa fiðruðu ná- granna sem keppast syngjandi við að færa björg í bú. Auk þess eru þetta fínustu mein- dýraeyðar og hjálpa okkur við að halda skordýrum í lágmarki í garðinum, á um- hverfisvænan hátt. Þrátt fyrir að nóg sé af skordýrum í garðinum má þó ekki gleyma að gefa fuglunum því annars er ekki víst að þeir setjist að. Hafið ekki áhyggjur af því að þeir taki fóðrið fram yfir skordýrin því þau tína þeir aðallega sem fæði fyrir ungana sína. SKEMMTILEGT FUGLAHÚS Hjálpsamir smáfuglar ■ EYÐIBÝLI SKRÁSETT Árið 2011 hófst Rannsóknarverkefnið Eyðibýli á Íslandi en að því standa arkitektar, sagnfræðingar og jarðfræðingar meðal annarra. Markmið verkefnisins er að rannsaka og skrá umfang og menningarlegt vægi eyðibýla og annarra yfirgefinna íbúðar- húsa í sveitum landsins og stuðla að björgun áhugaverðra og byggingarsögu- lega mikilvægra húsa. Sumarið 2011 voru skrásett eyðibýli og yfirgefin hús á Suður- og Suðausturlandi. Í ár verður Vesturland skoðað og Norðausturland tekið fyrir á sama máta. Nú er hægt að fylgjast með framgangi verkefnisins á Facebo- ok-síðunni Eyðibýli á Íslandi. SAGA HÍBÝLA Í SVEITUM GLUGGAR OG HURÐIR Selós // Gagnheiði 72 // Selfoss // Sími 482 4100 Gluggar Opnanleg fög Útidyrahurðir Svalahurðir Rennihurðir Bílskúrshurðir www.selos.is Gluggar og hurðir frá Selós eru CE vottuð og prófuð hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands Stofnað 1973 Ert þú að kaupa vottaða glugga og hurðir?

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.